Morgunblaðið - 21.10.2021, Page 61

Morgunblaðið - 21.10.2021, Page 61
DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021 Kuldaskór Verð 22.995 Stærðir 36-47 Vatnsheldir Innbyggðir broddar í sóla SMÁRALIND www.skornir.is „HVAÐ GET ÉG SAGT, PABBI. ÉG HEF ALLTAF HAFT ÁHYGGJUR AF HLÝNUN JARÐAR OG HÆKKANDI YFIRBORÐI SJÁVAR.“ „ERTU MEÐ ANNAN MATSEÐIL? ÉG HEF EKKI EFNI Á NEINU Á ÞESSUM.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fara í messu saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HÆ, FEITI. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? EKKERT NÝTT! SELDUR LOKSINS EIGUM VIÐ KASTALA! ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ EF VIÐ LEGÐUM HART AÐ OKKUROG VÆRUM ÞOLINMÓÐ MYNDUM VIÐ NÁ LANDI! NÚ HAFA EINHVERJIR AÐRIR NÁÐ LANDI! á alla orgeltónleika sem voru í boði. Uppáhaldstónskáldin mín eru César Franck, Händel og Bach. Ljós- myndaáhuginn er líka frá föður mín- um kominn, en hann hélt fyrstu ljós- myndasýninguna hér á landi ásamt vinum sínum, en hún var haldin í Bogasalnum.“ Fjölskylda Eiginkona Flóka er Guðný Dóra Gestsdóttir, f. 20.3. 1961, safnstjóri á Gljúfrasteini, menntuð í ferðamála- fræðum við Southbank University í London og með meistarapróf í menn- ingarstjórnun frá Háskólanum á Bif- röst. Flóki og Guðný eru búsett í Grafarvogi í Reykjavík. Foreldrar Guðnýjar voru hjónin Gestur Zophonías Sveinsson, f. 3.10. 1920, d. 29.12. 1980, bóndi í Stóra-Galtardal og á Grund á Fellsströnd, síðar verkamaður í Hafnarfirði, og Guðrún Valdimarsdóttir, f. 28.3. 1924, d. 16.12. 2016, húsfreyja og verkakona. Fyrri eiginkona Flóka er Ásdís Sig- urþórsdóttir, f. 23.2. 1954, myndlist- armaður og myndlistarkennari. Dætur Flóka og Ásdísar eru: 1) Birta, f. 29.2. 1976, lærður forritari og vinnur sem hönnuður, búsett í Hafn- arfirði. Sonur hennar er Dagur Spói, f. 20.12. 2008; 2) Hekla, f. 8.4. 1988, ljósmyndari, búsett í Reykjavík. Bróðir Flóka er Friðrik Sveinn Kristinsson, f. 30.3. 1946, húsasmiður og tæknifræðingur í Garðabæ. Foreldrar Flóka voru hjónin Krist- inn Sigurjónsson, f. 4.4. 1923, f. í Hafnarfirði, d. 20.8. 1993, offsetljós- myndari í Reykjavík, og Svanhvít Friðriksdóttir, f. 29.1. 1925 í Vest- mannaeyjum, d. 7.10. 2008, húsmóðir í Reykjavík og síðar í Kópavogi. Flóki Kristinsson Ingunn Sigurðardóttir húsfreyja á Ósi Sveinn Sveinsson sjómaður á Ósi á Eyrarbakka Sveinbjörg Sveinsdóttir húsfreyja í Vestmannaeyjum og Kópavogi Friðrik Ingimundarson sjómaður í Vestmannaeyjum, síðar búsettur í Kópavogi Svanhvít Friðriksdóttir húsmóðir í Reykjavík, síðar í Kópavogi Elín Svipmundsdóttir húsfreyja í Skarðshjáleigu og Vík Ingimundur Jónsson bóndi í Skarðshjáleigu í Mýrdal, síðar tómthúsmaður í Vík Salvör Sigurðardóttir vinnukona í Garðhúsum í Reykjavík Þorsteinn Jónsson sjómaður í Holti í Garði Steinþóra Sigurjónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Sigurjón Arnlaugsson verkstjóri í Hafnarfirði Kristín Guðmundsdóttir vinnukona í Miðkrika, síðar í Reykjavík Arnlaugur Jónsson vinnumaður í Miðkrika í Hvolhreppi, Rang. Úr frændgarði Flóka Kristinssonar Kristinn Sigurjónsson offsetljósmyndari í Reykjavík Kristján Karlsson yrkir: Það lagði sig maður í Líma, mjög langur, í fáeina tíma og vaknaði lár, bæði grettinn og grár en gat ekki varist að kíma. Sigurlín Hermannsdóttir yrkir á Boðnarmiði: Til að koma kvenmannsverki frá, nú kunngerist og ritað er á blað, þarf að minnsta kosti karla þrjá en konur hafa alltaf vitað það. Helgi Ingólfsson svaraði: Frægðarsögn var fest á blað fann sinn hjartastrenginn. Karlmenn þrír sem komu að, en kvenmaður? Nei, enginn. Halldór Halldórsson skrifar: „Ég hef lengi velt fyrir mér hvaða „seggi“ Jón Thoroddsen hafði í huga þegar hann kvað „svíkur hún seggi“ í Vögguvísu? Í ljósi þess set ég eftirfarandi tilgátu fram“! Eins og draumur dofni og dragi úr mér þrótt; held ég sáttur sofni seggi við í nótt! Gunnar J. Straumland skrifar: „Er ég hóf upp raust mína á kvæða- skemmtun Stemmu, Lands- sambands kvæðamannafélaga, í Kakalaskála í Skagafirði um helgina, þótti mér við hæfi að stríða Skagfirðingum örlítið“: Mikið var hún móðir Jörð máttug er hún þetta bjó. Skima ég yfir Skagafjörð, skratti fagran, tja … og þó! Og áfram: „Ég slapp tiltölulega lifandi frá því enda …“ Gjarnan hafa Húsvíkingar hingað ekið því skensi geta Skagfirðingar skammlaust tekið. Guðmundur Arnfinnsson yrkir sléttubönd (refhvef, hringhent): Góður prestur ekki er andans mesti sauður. Hróður brestur fráleitt, fer firrtur lesti dauður. Dauður lesti firrtur fer fráleitt, brestur hróður. Sauður mesti andans er, ekki prestur góður. Hér yrkir Magnús Halldórsson „Úr þjóðsögunum“: Mundi beygður, merin hölt, í mýri vaga. Þau flá nú ekki feitan gölt, sem forðum daga. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Maður í Líma og móðir Jörð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.