Morgunblaðið - 21.10.2021, Page 63

Morgunblaðið - 21.10.2021, Page 63
ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021 Yfirtaka sádiarabísks fjár- festahóps á Newcastle United hefur vísast ekki farið fram hjá nokkrum manni. Í gær tók Steve Bruce pokann sinn eftir rúm tvö ár sem knattspyrnustjóri. Þar með hefur fyrsta fórnar- lamb nýrra eigenda litið dagsins ljós, en fjárfestahópurinn er stór- huga og vill að Newcastle verði að næsta Manchester City. Þjálfari eins og Bruce, sem er af gamla skólanum, passar ekki nægilega vel inn í þá framtíðarsýn. Eftir að fjárfestar frá Samein- uðu arabísku furstadæmunum eignuðust City sumarið 2008 lét árangurinn ekki á sér standa. Fyrr um vorið lenti liðið í 9. sæti. Ári síðar náði liðið 5. sæti og tímabil- ið eftir það, eftir að Roberto Mancini hafði tekið við stjórn- artaumunum, náðist 3. sætið. Vorið 2011, tæpum þremur árum eftir eigendaskiptin, vann City ensku úrvalsdeildina. Hversu líklegt er að Newcastle geti náð svo góðum árangri svo fljótt? Reglur um eyðslu félaga voru umtalsvert linari þegar City hóf að eyða fúlgum fjár í sterka leikmenn sumarið 2008 og enn hærri fjárhæðum sumarið á eftir. Yfirtaka Newcastle fór í gegn eftir að félagaskiptagluggi sumarsins lokaðist og þá ætti þeim að vera sniðinn þrengri stakkur hvað eyðslu varðar, þótt ávallt virðist hægt að fara ein- hverjar krókaleiðir í þeim efnum. Lið Newcastle er þá, á papp- írunum í það minnsta, ekki jafn sterkt fyrir og City var vorið 2008. Því býst maður fyrir fram ekki við jafn skjótum árangri hjá Newcastle en það gæti þó auð- veldlega breyst þegar ríkasta fé- lag heims fer að bjóða einhverjum af bestu leikmönnum heims frá- leitar upphæðir í laun. BAKVÖRÐUR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.isJóhanna Margrét Sigurðardóttir átti frábæran leik fyrir HK og skor- aði átta mörk þegar liðið tók á móti ÍBV í úrvalsdeild kvenna í hand- knattleik, Olísdeildinni, í fjórðu um- ferð deildarinnar í Kórnum í Kópa- vogi í gær. Leiknum lauk með 27:21-sigri HK en HK-ingar leiddu með sex mörkum í hálfleik, 15:9, og Kópavogsliðið náði mest níu marka forskoti í síðari háflleik, 19:10. Þetta var fyrsti sigur HK á tíma- bilinu en liðið er með 2 stig í fimmta sæti deildarinnar. ÍBV er með 2 stig í sjöunda sætinu. Óvæntur sigur HK gegn ÍBV Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. Illviðráðanleg Eyjakonur réðu ekki við Jóhönnu Margréti í Kórnum. Starri Friðriksson skoraði sjö mörk fyrir Stjörnuna þegar liðið vann fimm marka sigur gegn Selfossi í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, í Set-höllinni á Sel- fossi í gær. Leiknum lauk með 25:20-sigri Stjörnunnar en staðan var jöfn í hálfleik, 11:11. Leó Snær Pétursson skoraði sex mörk fyrir Garðbæinga, en Einar Sverrisson var markahæstur Selfyssinga með sjö mörk. Stjarnan jafnar Val að stigum í efsta sæti deildarinnar, en bæði lið eru með 8 stig. Selfoss er með 2 stig í níunda sætinu. Morgunblaðið/Eggert Sjö Starri Friðriksson fór mikinn á Selfossi í sigri Garðbæinga. Stjarnan lagði Selfoss að velli þegar mest lá við og lagði í raun ákveðin grunn að þessum sigri,“ skrifaði Skúli B. Sigurðsson meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Það sýnir styrk meistaraliðsins að hafa unnið fyrstu fjóra leikina í deild- inni án Hildar Bjargar Kjart- ansdóttur sem er á sjúkralistanum. Ameryst Alston var stigahæst með 23 stig fyrir Val. Byrjun Njarðvíkinga er virkilega góð. Eftir þrjá sigra fylgdi liðið því eftir með spennandi leik gegn meist- araliðinu. Framhaldið verður mjög forvitnilegt hjá Njarðvíkingum sem hafa lítið látið fyrir sér fara síðustu árin eftir að hafa unnið bæði Íslands- mótið og bikarkeppnina árið 2012. Al- iyah Collier var stigahæst hjá Njarð- vík með 24 stig. Fyrsti sigur Blika Skallagrímur og Breiðablik voru í annarri stöðu þegar þau mættust í Borgarnesi í gær því þau voru án sig- urs eftir fyrstu þrjá leikina. Breiða- blik var í miklu stuði í gær og vann Skallagrím með þrjátíu stiga mun, 79:49. Breiðablik var yfir, 46:29, að loknum fyrri hálfleik. Í öðrum leikhluta náði Breiðablik afgerandi frumkvæði í leiknum og fylgdi því eftir með að vinna þriðja leikhluta 24:6. Breiðablik er því með 2 stig en Skallagrímur er án stiga á botninum. Chelsey Shumpert var stigahæst hjá Breiðabliki með 28 stig en Anna Soffía Lárusdóttir skoraði 12 stig og tók 8 fráköst. Maja Michalska, fyr- irliði Skallagríms, var stigahæst með 15 stig og tók 14 fráköst. Meistararnir án taps í deildinni Morgunblaðið/Skúli B. Sig. Í Ljónagryfjunni Diane Diéné Oumou hjá Njarðvík með boltann í leiknum í gær og Guðbjörg Sverrisdóttir hjá Val fylgist grannt með henni. - Fyrsta tap Njarðvíkinga í deildinni kom gegn Val - Blikarnir í stuði KÖRFUBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Á meðan bikarmeistarar Hauka voru í Frakklandi að glíma við atvinnu- mennina í Evrópukeppni, mættust í Subway-deildinni þau lið sem hafa byrjað best í deildinni. Nýliðarnir í Njarðvík, sem hafa komið mjög á óvart, tóku á móti Íslandsmeisturum Vals. Liðin höfðu unnið fyrstu þrjá leiki sína en meistararnir kreistu fram sigur 63:60. Njarðvík var yfir 54:48 fyrir síðasta leikhlutann en Val- ur sýndi seiglu og náði í stigin. „Valskonur auðvitað hafa séð þetta allt áður og þrátt fyrir risatap í síð- asta leik gegn Keflavík rifu þær sig upp og sýndu fína frammistöðu þetta kvöldið og þá helst til varnarlega. Talandi um Keflavík, þá var það ein- mitt Keflvíkingurinn í liði Vals, Eydís Eva Þórisdóttir, sem kveikti í Valslið- inu þegar mest á þurfti. Eydís setti 8 af 11 stigum sínum í fjórða leikhluta „Við erum nokkrar að berjast um þessa stöðu en af því að ég er hugsuð sem hægri bakvörður vil ég klárlega gera mitt besta til að halda stöðunni,“ sagði Guðný Árnadóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, á fjarfundi með blaðamönnum í gær. Ísland mætir Tékklandi í undan- keppni HM 2023 á Laugardalsvelli á morgun en þetta er annar leikur íslenska liðsins í undankeppninni. Guðný, sem er að upplagi mið- vörður og leikur með AC Milan á Ítalíu, lék í stöðu hægri bakvarðar í fyrsta leik undankeppninnar gegn Hollandi 21. september á Laugardalsvelli. „Mér líst vel á að spila hægri bakvörð. Ég spila hægra megin í þriggja manna vörn úti þannig að það er svona blanda af hægri bak- verði og miðverði. Það er gaman að fá að spila og gaman að fá að prófa nýjar stöður,“ bætti Guðný meðal annars við en nánar er fjallað um málið á mbl.is/sport/ efstadeild/. Morgunblaðið/Eggert Sending Guðný lék í stöðu hægri bakvarðar gegn Hollandi og stóð stig vel. Vonast til að halda stöðunni Subway-deild kvenna Njarðvík – Valur................................... 60:63 Skallagrímur – Breiðablik ................... 49:79 Keflavík – Grindavík.......................... (62:57) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/korfubolti. Staðan fyrir leik Keflav. og Grindav.: Valur 4 4 0 322:269 8 Njarðvík 4 3 1 264:240 6 Haukar 3 2 1 221:158 4 Keflavík 3 2 1 232:213 4 Grindavík 3 1 2 210:230 2 Fjölnir 3 1 2 213:231 2 Breiðablik 4 1 3 289:280 2 Skallagrímur 4 0 4 214:344 0 Evrópubikar kvenna L-RIÐILL: Tarbes – Haukar .................................. 66:53 Evrópubikar FIBA D-RIÐILL: Gilbao Galil – Zaragoza...................... 90:91 - Tryggvi Snær Hlinason skoraði 6 stig, tók fimm fráköst og varði fimm skot á 15 mínútum hjá Zaragoza. F-RIÐILL: Ionikos – Antwerp Giants .................. 81:92 - Elvar Már Friðriksson skoraði 8 stig, tók þrjú fráköst og gaf fimm stoðsendingar á 32 mínútum hjá Antwerp Giants. >73G,&:=/D KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: HS Orku-höllin: Grindavík – KR ........ 18.15 Garðabær: Stjarnan – Þór Þ................ 19.15 Sauðárkr.: Tindastóll – Breiðablik ..... 19.15 TM-Hellirinn: ÍR – Keflavík ............... 20.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: TM-Höllin: Stjarnan – Valur.................... 18 1. deild karla, Grill 66-deildin: Varmá: Afturelding U – Fjölnir............... 20 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: TM-Höllin: Stjarnan U – Víkingur .......... 20 Í KVÖLD! Íslendingar voru fyrirferðarmiklir í Meistaradeildinni í handknattleik í gær en þá voru fjögur Íslend- ingalið á ferðinni. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 9 mörk og var markahæstur hjá Kielce sem vann Porto 39:33 í B-riðli. Haukur Þrastarson skoraði 1 mark. Kielce kom sér fyrir á toppnum í riðlinum með sigrinum með 8 stig eftir fimm leiki en Barcelona og Veszp- rém eru tveimur stigum á eftir og eiga leik til góða. Riðillinn er geysilega sterkur og sem dæmi má nefna að franska stórliðið París Saint-Germain er einnig í riðl- inum. Þýska liðið Flensburg sem nældi í Teit Örn Einarsson á dögunum er í 8. og neðsta sæti með 1 stig eftir fjóra leiki. Aron Pálmarsson skoraði 8 mörk og var markahæstur hjá Aal- borg sem vann Vardar Skopje 33:29 í A-riðlinum. Aron gaf einnig 4 stoðsendingar í leiknum. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari hjá Aalborg sem er í efsta sæti í riðl- inum með 8 stig, stigi á undan Kiel og Montpellier. Kiel gerði jafntefli gegn Pick Szeged 32:32 en Mont- pellier vann Meshkov Brest 32:26. Ólafur Guðmundsson skoraði ekki fyrir franska liðið að þessu sinni. Elverum er í 3.-4. sæti með 6 stig en liðið vann Zagreb 30:25. Orri Freyr Þorkelsson lék ekki með vegna Elverum en hann veikt- ist á dögunum. kris@mbl.is Sigvaldi Björn markahæstur Morgunblaðið/Eggert Markahæstur Sigvaldi Björn Guð- jónsson skoraði 9 mörk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.