Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
S . F. C H R O N I C L E
B B C
T I M E O U T
84%
T H E T E L E G R A P H
90%
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
NÝ ÍSLENSK – PÓLSK MYND FRAMLEIDD AF SAGA FILM
L
eikstjórinn, Christoffer
Boe, snýr aftur á sitt
heimasvæði átján árum
síðar með nýja dramtíska
og spennuþrungna rómantík, Bragð
af hungri (Smagen af sult), en hann
er betur þekktur fyrir framlag sitt
til glæpamynda og glæpaþátta.
Þetta er þó ekki í fyrsta skiptið sem
Boe tekst á við þennan greinarflokk
en hann gerði Viðreisn (Reconstruc-
tion) árið 2003 þar sem myndin
hlaut verðlaun fyrir kvikmyndatöku
á Cannes sama ár. Christoffer Boe
og Tobias Lindholm skrifuðu hand-
rit kvikmyndarinnar, Bragð af
hungri, og er þetta í fyrsta skiptið
sem þeir vinna saman við gerð kvik-
myndar en þess má geta að Lind-
holm skrifaði, ásamt Thomas
Vinterberg, handritið fyrir óskars-
verðlaunamynd síðasta árs Drykkja
(Druk, Thomas Vinterberg, 2020).
Kvikmyndastíll Boes og Lindholms
er mjög ólíkur ef miðað er við fyrri
verk þeirra. Boe er oft mjög skap-
andi í kvikmyndagerð sinni en
Lindholm varpar frekar ljósi á
raunheiminn. Bragð af hungri er
þar af leiðandi mjög áhugaverð
blanda þessara ólíku stíla.
Í Bragð af hungri fylgjum við
parinu Maggie og Carsten sem þau
Katrine Greis-Rosenthal og Nikolaj
Coster-Waldau leika frábærlega.
Maggie er mannfræðingur og sér-
grein hennar felst í mat en Carsten
er frægur kokkur. Hjónin eiga tvö
yndisleg börn og mynda nýjasta
ósigrandi teymið í matarmenningu
Danmerkur. Þau deila sameigin-
legum draumi um veitingastað með
michelinstjörnu og eru tilbúin að
fórna öllu fyrir þá viðurkenningu,
jafnvel fjölskyldunni. Söguþráður-
inn er ekki frumlegur en það er tón-
listin og litirnir í myndheildinni sem
gefa sögunni nýjan blæ. Söguþráð-
urinn er sagður í gegnum mörg
endurlit og sýna innihaldsefni í lífi
Maggie sem virðist ekki geta satt
hungrið innra með sér. Þessi endur-
lit mynda síðan eins konar uppskrift
sem Boe matar áhorfendur með.
Bragð af hungri er þannig skorin
niður í kafla sem bragðast misvel,
sumir súrir en aðrir sætir.
Matur spilar stórt hlutverk í kvik-
myndinni og gefur myndinni mikinn
lit enda fátt skemmtilegra en að
horfa á ljúffengan, og í öðrum atrið-
um, kynþokkafullan mat. Boe hefði
getað valið annað þema, þar sem
hjónin berjast um einhvers konar
viðurkenningu sem kostar þau
hjónabandið en hann valdi, ásamt
Lindholm, matargerðarlistina og
ekki að ástæðulausu. Matargerðar-
listin er svo nátengd menningu og
sögu og þannig fær hver réttur sína
eigin merkingu. Þess má geta að
ýmsar tilvitnanir er að finna í söguna
um Adam og Evu og aldingarðinn
Eden eins og til dæmis eplarétturinn
í fyrsta atriðinu, þar sem fyrsta
syndin er framin, og tréð sem stend-
ur í miðjum veitingastað þeirra
hjóna.
Eiginkonan, Maggie, tilkynnir
áhorfendum strax á fyrstu fimmtán
mínútunum í kvikmyndinni að hún
vilji allt og er ætlað að tákna nú-
tímakonuna í vestrænu samfélagi
sem neitar að sætta sig einungis við
móðurhlutverkið og eltir drauma
sína í staðinn. Sagan hefur hins
vegar mun veigameiri merkingu og
segir frá fólki sem telur sig vanta
eitthvað til að geta orðið hamingju-
samt. Myndina má þannig líta á
sem ákveðna gagnrýni á vestræn
samfélög og neysluhyggju. Boe
varpar meðal annars ljósi á það
lúxusvandamál sem vestræn sam-
félög standa frammi fyrir, það er að
segja að þegar möguleikarnir eru
endalausir virðist bætast ofan á
þrýstingur um að skara fram úr.
Matargerðarlistin er ekki svo
ólík kvikmyndageiranum að því
leyti að þar ríkir mikill keppnis-
andi og markmiðið er að ná til
margra og hljóta einhvers konar
viðurkenningu, verðlaun. Um leið
og einstaklingur hefur hlotið ein-
hverja viðurkenningu fyrir verkin
sín, eins og Óskarsverðlaun eða
michelinstjörnu, hækka staðlar
markhópsins. Neitandi býst við að
fá michelinrétt á veitingastað með
michelinstjörnu. Álíka á sér stað í
kvikmyndageiranum, leikstjórar
mynda sér stöðu í bransanum og
áhorfendur gera ákveðnar kröfur
til þeirra einstaklinga. Nú hafa
Christoffer Boe og Tobias Lind-
holm skapað sér ákveðna stöðu í
kvikmyndabransanum og því fylgir
þrýstingur. Það væri því gaman að
bera Boe og Lindholm saman við
hjónin í kvikmyndinni og skoða lík-
indin þar á milli, er kvikmyndin
reynslusaga þeirra vina?
Hjónabandssæla?
Litir „Söguþráðurinn er ekki frumlegur en það eru tónlistin og litirnir í myndheildinni sem gefa sögunni nýjan blæ.
Söguþráðurinn er sagður í gegnum mörg endurlit og sýna innihaldsefni í lífi Maggie sem virðist ekki geta satt
hungrið innra með sér,“ segir um Smagen af sult. Hjónin leika Katrine Greis-Rosenthal og Nikolaj Coster-Waldau.
Bíó Paradís
Smagen af sult/ Bragð af hungri
bbbnn
Leikstjórn: Christoffer Boe. Handrit:
Christoffer Boe og Tobias Lindholm.
Kvikmyndataka: Manuel Alberto Claro.
Tónlist: Anthony Lledo og Mikkel
Maltha. Aðalleikarar: Katrine
Greis-Rosenthal, Nikolaj Coster-Waldau
og Flora Augusta. Danmörk, 2021. 104
mínútur.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Poppkórinn Vocal Project kemur
fram á tónleikum í Guðríðarkirkju
í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20
undir yfirskriftinni Saman á ný.
„Það er söngþyrstur hópur sem
bíður þess að halda fyrstu tón-
leikana í tæp tvö ár. Það er óhætt
að segja að æfingarnar okkar gefi
fyrirheit um magnaða tónleika.
Kórinn hefur stækkað töluvert og
sjaldan verið fleiri meðlimir, og
hljómurinn eftir því. Efnisskráin
er fjölbreytt, ballöður, popp og
rokk, flest með undirleik,“ segir í
tilkynningu frá kórnum, en frá
stofnun kórsins 2010 hafa að jafn-
aði um 80 manns sungið með hon-
um hverju sinni. Stjórnandi kórs-
ins er Gunnar Ben.
Töff Gunnar Ben ásamt Vocal Project.
Saman á ný með
Vocal Project
Bandaríski sýn-
ingarstjórinn og
listgagnrýnand-
inn Gregory
Volk heldur í
kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20
fyrirlestur í
Listasafni
Reykjavíkur –
Hafnarhúsi.
Fyrirlesturinn er í röðinni Um-
ræðuþræðir og nefnir Volk hann
„Once, then Something: Wonderful
Encounters with Marvelous Art“.
Hann mun fjalla um eigin upplif-
anir og persónulega sýn á samtíma-
listina. Volk hefur talsvert skrifað
um og unnið með íslenskum lista-
mönnum.
Umræðuþræðir eru styrktir af
bandaríska sendiráðinu á Íslandi.
Volk fjallar um
samtímamyndlist
Gregor Volk