Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 66

Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Jón Hjartarson hlaut í gær Bók- menntaverðlaun Tómasar Guð- mundssonar 2021 fyrir handrit sitt að ljóðabókinni Troðningar. Afhenti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri honum verðlaunin við athöfn í Höfða. Alls bárust 57 óbirt ljóða- handrit í samkeppnina í ár. Í dómnefnd sátu Sif Sigmars- dóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Eyþór Árnason. Í umsögn þeirra um verðlaunahandritið segir meðal ann- ars: „Troðningar eftir Jón Hjartar- son er kraftmikið verk um hið óvænta í hinu augljósa, fegurðina í hversdagsleikanum og mikilfeng- leika þess smáa. Í bókinni fer Jón um víðan völl. En hvort sem yrkis- efnið er náttúran, sagan eða samtím- inn er sjónarhornið ávallt óvænt.“ Þá segir að í ljóðunum sýni Jón fram á „að í lífinu leynist margbreytileik- inn oft í því einfalda“. Setur veruleikann úr skorðum Jón Jóhann Hjartarson fæddist árið 1942 á Hellissandi. Hann út- skrifaðist sem kennari frá Kenn- araskóla Íslands 1965 og lauk leik- araprófi frá Leiklistarskóla Leik- félags Reykjavíkur 1968. Hann var við framhaldsnám í Berlín 1984. Jón hefur samið fjölda leikrita, bæði fyrir börn og fullorðna, auk barna- og unglingabóka. Fyrsta leik- rit hans, Afmælisboðið, er frá 1969. Hann samdi einnig leikgerð upp úr skáldsögu Kristínar Marju Bald- ursdóttur, Mávahlátri, sem sett var upp hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1998. Hann hefur bæði leikstýrt verkum sínum og annarra hjá at- vinnuleikhúsum og áhugaleikhópum. Síðast kom út eftir hann ungmenna- bókin Auga í fjallinu (2017). Við athöfnina í Höfða í gær sagði Jón að hann hefði löngum dáð þjóð- skáldin okkar, eins atómskáldin, „og ég dái þá höfunda sem nú fást við ljóð. Og mér sýnist íslensk ljóðagerð dafna býsna vel sem er gott. Ljóðið ratar til sinna og setur veruleikann svolítið úr skorðum sem er hollt,“ sagði hann. Ríslaðist hægt og hægt inn Þegar Jón er spurður hvort hann hafi lengi fengist við yrkingar segist hann hafa samið kveðskap eftir pöntun alla sína starfstíð. „Það er meiri iðnaðarbragur á því,“ bætir hann við en sá kveðskapur hafi til að mynda verið fyrir hvers kyns dag- skrárgerð meðfram leikhúsvinn- unni. „Það er rímbarningur sem ég hef aldrei litið á sem alvöruskáld- skap. En eftir að ég losnaði að mestu leyti úr tengslum við leikhúsið kom upp sú löngun að gera eitthvað meira abstrakt, að hvíla mig á skylduyrkingum. Þetta ríslaðist hægt og hægt inn og ég fór ekki að hugsa um ljóðin sem bók fyrr en fyr- ir svona tveimur árum. Ég fór þá að leggja drög að einhvers konar grind sem gæti komið út. Ég hélt að ég yrði að gefa hana út sjálfur, eins og ungskáldin gera, mest fyrir vini og vandamenn. En svo lét ég handritið inn í þessa samkeppni og bókin er komin út!“ Þekktar og óþekktar slóðir Jóni finnst ekki auðvelt að svara spurningunni um hvað hann yrki. „Þetta er svolítið ferðalag úr borg- arumhverfinu og út í náttúruna. Og aftur heim í skáldskapinn,“ svarar hann. „Bókin heitir Troðningar og það segir eitthvað, þetta eru bæði þekktar og óþekktar slóðir sem ég er að troða.“ Er Jón nokkuð hættur að yrkja – munu ljóðin ekki flæða frá honum? „Ég held áfram að pára, hvað sem verður um það. Þetta er áráttu- hneigð sem er erfitt að losna við. Þótt maður eldist og verði lúinn er ekki þar með sagt að maður hætti að hugsa,“ segir verðlaunaskáldið. „Áráttuhneigð sem er erfitt að losna við“ - Jón Hjartarson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Morgunblaðið/Unnur Karen Verðlaunaskáld Jón Hjartarson tók við bókmenntaverðlaununum fyrir ljóðahandritið úr hendi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í Höfða í gær. Á útgáfulista bókaforlagsins Sölku er venju fremur fjölbreytt útval bóka, veiðibækur, matreiðslubækur, barnabækur, bækur um gönguferðir, fjármálalæsi, glæpi og hlutabréfa- viðskipti. Ólafur Tómas Guðbjartsson hefur staðið við bakkann með veiðistöng í hönd við hvert tækifæri síðustu 30 ár og í bókinni Dagbók urriða miðlar hann fróðleik um veiðar og veiði- mennsku. Bókin er óður Ólafs til veiðinnar og náttúrunnar og í henni má finna ýmsar sögur, frásagnir af baráttum við ótal fiska á fjöl- breyttum slóðum og fróðleik um sjó- birtinga, urriða, bleikjur, laxa og ótal veiðisvæði. Skaði heitir glæpareyfari Sól- veigar Pálsdóttur. Í honum er rann- sóknarlögreglumaðurinn Guðgeir og teymi hans er kallað að tjaldsvæðinu í Herjólfsdal eftir að ljóst er að þar hafa átt sér stað voveiflegir atburðir. Skemmtiferð vinahjóna virðist hafa farið á annan veg en til stóð og ljóst er að margt býr undir yfirborði og ásjónu fólks. Rannsókn lögreglunnar teygir anga sína víða, allt frá eld- fjallaeyjunni til frumskóga Mið- Ameríku. Veitingahúsið Jómfrúna þekkja velflestir sem í miðborg Reykjavíkj- ur hafa komið og fyrir marga er fasti í tilverunni og viðskiptavinir hennar eru þeir tryggustu. Bókin Jómfrúin eftir Jakob E. Jakobsson er óður til Jómfrúarinnar og í henni má finna uppskriftir að fjölmörgum réttum sem prýtt hafa matseðilinn í gegnum tíðina, sögu veitingastaðarins og vitnisburð fastakúnna. Peningar heitir bók Björns Berg Gunnarssonar sem varpar ljósi á ýmsar hliðar fjármála á lifandi. Litið er bak við tjöldin meðal annars í heimi kvikmynda, tölvuleikja, fót- bolta, tónlistar og tísku og fjallað um bæði það sem Birni þykir hafa tekist vel og það sem farið hefur á versta veg að hans mati. Í bókinni má líka finna ráð um meðferð sparifjár og leitast er við að vekja áhuga lesenda á fjármálum. Salka gefur einnig út bókina Hlutabréf á heimsmarkaði eftir Sig- urð B. Stefánsson og Svandísi Rún Ríkarðsdóttur. Í bókinni má finna svör við spurningum sem brenna raunar á vörum fjárfesta og sjóð- stjóra daglega og leitast er við að svara þeim á einum stað. Í fjár- málafræði og reynslubúri fjárfesta má þó oft finna fleiri en eitt rétt svar við hverri spurningu og varpar bókin ljósi á það. Bakað með Evu heitir væntanleg bók Evu Laufeyjar Kjaran Her- mannsdóttur. Í bókinni eru ríflega 80 uppskriftir að bökuðu góðgæti af öll- um stærðum og gerðum sem henta við öll tilefni. Veislutertur, pönnu- kökur og vöfflur, brauðréttir og sætabrauð, marengstertur, osta- og skyrkökur, formkökur og smákökur og bollakökur eru meðal þess sem prýðir síður bókarinnar. Grill hefur að geyma fleiri en 100 grilluppskriftir úr smiðju Viktors Arnar Andréssonar og Hinriks Arn- ar Lárussonar Hinriks í Sælkerabúð- inni ásamt ráðum um grill- og eld- unaraðferðir. Hráefnið er af ýmsum toga, allt frá nauti til grænmetis, villibráðar til skelfisks og sósum til eftirrétta. Í bókinni Ósýnilegar konur rann- sakar Caroline Criado Perez sláandi rætur kynjamismununar og skoðar líf kvenna á heimilinu, á vinnustaðn- um, á opinberum vettvangi, í heil- brigðiskerfinu og á fleiri stöðum dag- legs lífs. Bókin byggir á hundruðum rannsókna víðsvegar um heiminn og er skrifuð á kraftmikinn og hátt. Gönguleiðir á hálendinu eftir Jón- as Guðmundsson hefur að geyma leiðarlýsingar tæplega 30 leiða á há- lendinu, nánar tiltekið að Fjallabaki og í kringum Landmannalaugar. Hverri leið fylgir leiðarlýsing, kort og GPS-hnit, fjöldi ljósmynda og upplýsingar um staðhætti og að- stæður. Þar að auki má finna sögu- legan og landfræðilegan fróðleik um þær leiðir sem gengið er hverju sinni. Í bókinni er einnig kafli um undirbúning og fjölda ráða þegar kemur að fjallgöngum og útivist. Salka gefur einnig út að nýju ferðabókina Fjallamenn eftir Guð- mund Einarsson frá Miðdal, en hún kom fyrst út árið 1946. Í bókinni eru ferðaþættir frá byggðum og óbyggð- um Íslands og einnig frá ferðum Guðmundar um Mið- og Suðaustur- Evrópu, Alpana og Dólómítafjöll. Bókina prýða teikningar Guðmundar og fjöldi ljósmynda frá liðnum tíma. Einnig gefur Salka út að nýju ævi- sögu listakonunnar og rithöfund- arins Ástu Sigurðardóttur, Minn hlátur er sorg, eftir Friðriku Benón- ýsdóttur. Í bókinni Þegar ég verð stór eftir Láru Garðarsdóttur leggja Snær og kisan hans upp í ævintýralegt ferða- lag og fljúga um himinhvolfin, binda bófa, heimsækja hallir og hitta meira að segja sjóræningja. Ímyndunar- aflið færir þau heimsendanna á milli í leit að svarinu við spurningunni sem börn fá svo oft en er erfitt að svara. Fyrir yngri börnin eru bækurnar Snuðra og Tuðra fara í útilegu eftir Iðunni Steinsdóttur og Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur, Oreo fer í skólann eftir Sylviu Erlu Melsted og verk- efnabókina Svefninn minn eftir Erlu Björnsdóttur, en bókinni er ætlað að auka svefngæði barna og hún tekur á ýmsum vandamálum sem tengjast svefnvenjum. Þegar eru komnar út bækurnar Dæs eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur og glæpareyfarinn Jarðvísindakona deyr eftir Ingibjörgu Hjartardóttur. Fjölbreyttar bækur Sölku - Allt frá útivist til fjármálavafsturs Sólveig Pálsdóttir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Jakob E. Jakobsson Sylvia Erla Melsted Eva Laufey Hermannsdóttir Iðunn Steinsdóttir Björn Berg Gunnarsson Ingibjörg Hjartardóttir AirMini kæfisvefnsvélin Sú allra minnsta og hljóðlátasta á markaðnum í dag. Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is Ertu með kæfisvefn? Auðvelt að taka með í: Bústaðinn • Veiðina • Golfferðina • Fríið fa liðið einkennilega var ég greindur með kæfisvefn. lger bylting í lífimínu eftir að ég fékk kæfisvefnsvél. g ferðast mikið hefur ferðasvefnvélin frá STOÐ bjargað mér. Vélin er svo lítil að það fer ekki mikið henni en farsíma. staklega meðfærileg og ég ferðast einfaldlega ekki hennar. gnar Hilmarsson Eftir að ha Það varð a Þar sem é algjörlega meira fyrir Hún er ein án Ra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.