Morgunblaðið - 21.10.2021, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 21.10.2021, Qupperneq 68
VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Orðið aiôn kemur úr grísku og vísar, ásamt orðunum kairos og chronos, í þrjár mismunandi tegundir af tíma. Aiôn vísar samtímis til óendanleikans og lífs manneskjunnar, sem kallaðist vel á við hugmyndir okkar þegar við þróuðum verkið,“ segir tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir sem ásamt danshöfundinum Ernu Ómarsdóttur hefur skapað kóreógrafíska sinfón- íska sviðsverkið Aiôn sem dansarar Íslenska dansflokksins og hljóðfæra- leikarar Sinfóníuhljómsveitarinnar flytja í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 20. Hljómsveitarstjóri er Anna-Maria Helsing. Dansarar eru Ásgeir Helgi Magnússon, Charmene Pang, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Félix Urbina Alejandre, Shota Inoue, Sigurður Andrean Sigurgeirsson og Una Björg Bjarnadóttir. Lífrænt sköpunarferli Hvernig kom það til að þið fóruð að vinna saman? „Gautaborgarhljómsveitin pantaði af mér stórt tónverk á sínum tíma fyrir Point-tónlistarhátíðina og þá kviknaði sú hugmynd að spennandi væri að vera líka með kóreógrafíu,“ segir Anna og tekur fram að hún hafi umsvifalaust leitað til Ernu, „því hún er náttúrlega snillingur,“ segir Anna og bætir við: „Við Erna eigum mjög fallega listræna samleið.“ Þekktust þið áður en samstarfið hófst? „Nei, en ég hafði áður verið að dansa heima í stofu og fá innblástur og gæsahúð við tónlistina hennar Önnu,“ segir Erna. „Og ég hafði fallið í stafi á dansssýningum Ernu og svo kynnti Arnbjörg María Danielsen okkur í persónu,“ segir Anna. Af hverju náið þið svona vel saman sem samstarfsfélagar? „Það er góð spurning. Ég veit það ekki. Kannski skýrist það af stjörnu- merkjunum,“ segir Erna kímin. „Að vissu leyti höfum við mjög svipaða sýn á listina, en líka ólíka sem skapar fallega dýnamík,“ segir Anna og tekur fram að þær Erna beri mikla virðingu hvor fyrir annarri. „Samvinna okkar hefur einkennst af mjög lífrænu sköpunarferli. Við átt- um ótrúlega góð samtöl um bak- grunnshugsunina og vorum alltaf á sömu blaðsíðu þegar kom að út- færslu,“ segir Anna. Anna dansaði fyrir Ernu „Þetta eru ekki bara tónleikar og ekki bara dans, heldur lýsum við verkinu sem kóreógrafísku sinfón- ísku sviðsverki þar sem listformin blandast algjörlega saman. Þar við bætist vídeóverk eftir Valdimar Jóhannsson og Pierre-Alain Giraud. Dansararnir eru ekki uppi á sviði og hljómsveitin í gryfju heldur deila dansararnir og hljóðfæraleikararnir sviðinu saman og skapa verkið. Það krafðist öðruvísi samvinnu af okkur Ernu,“ segir Anna og rifjar upp að það hafi tekið hana hálft annað ár að semja tónlistina. „Á þeim tíma vorum við Erna stöðugt að tala saman og ég varð mjög innblásin af hennar list- rænu nálgun. Þegar tónlistin var komin varð síðan auðveldara fyrir Ernu að koma inn með hreyfing- arnar,“ segir Anna. „Meðan Anna var að semja heimsótti ég hana til Lond- on þar sem hún sýndi mér teikningar af verkinu meðan hún var að útskýra tónlistina fyrir mér. Tónlist hennar er svo líkamleg að hún dansaði nán- ast tónlist sína fyrir mér,“ segir Erna og tekur fram að það hafi veitt sér mikinn innblástur að hreyfiefni verksins sem hún skapaði í samvinnu við dansarana. „Mér finnst mjög áhugavert að heyra frá Ernu að ég hafi verið að dansa því ég upplifði það ekki þannig,“ segir Anna. Boðið inn í heilagt rými Verkið var frumflutt af Sinfóníu- hljómsveit Gautaborgar og Íslenska dansflokknum í Tónlistarhúsinu í Gautaborg í maí 2019. Krefst það mikillar aðlögunar að setja verkið núna upp í Eldborg Hörpu? „Þegar verkið var alveg nýtt og áður en við fórum til Gautaborgar náðum við æfingu í Eldborg með Sin- fóníuhljómsveit Íslands,“ segir Anna. „Þar tóku hljóðfæraleikararnir virk- an þátt í fyrstu tilraununum sem við vorum að gera með dönsurunum. Og þar gerðust strax galdrar,“ segir Erna. „Sýningin mun alltaf vera að- löguð að þeirri hljómsveit sem spilar hverju sinni,“ segir Anna og vísar þar til hlutverks hljóðfæraleikaranna í hreyfingum því tónlistin haldist alltaf sú sama. „Svo þurfum við auðvitað að aðlaga verkið að nýju rými, enda Eld- borg allt öðruvísi en sviðið í Gauta- borg,“ segir Erna og bendir á að eitt af því sem sé svo spennandi í verkinu sé sá samruni sem verði milli hljóm- sveitar og dansara þar sem hljóð- færaleikarar taka þátt í hreyfiefninu og öfugt. „Á æfingunni með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands áður en dansflokkurinn hélt til Gautaborgar vorið 2019 var svo spennandi að prófa ýmsa ólíka hluti. Hljóðfæraleikarar Sinfóníu- hljómsveitarinnar voru svo opin og jákvæð og til í að prófa miklu meira en við bjuggumst við,“ segir Erna og bendir á að það hafi ekki verið sjálf- gefið. „Rýmið sem hljóðfæraleikari hefur kringum hljóðfæri sitt er heil- agt og því ekki sjálfsagt að dansari fari inn í það rými. En strax á fyrstu æfingu náðu dansararnir og hljóð- færaleikararnir svo góðri tengingu og hljóðfæraleikararnir buðu döns- urunum inn í þetta rými sitt, sem var ótrúlega fallegt að sjá,“ segir Erna. „Formið sinfóníuhljómsveit er að vissu leyti mjög niðurnjörvað og þau sem spila í sveitunum eru ekki öll vön að taka þátt í svona sýningum. Við vorum því meðvitaðar um það frá byrjun að það yrði að vera boð um þátttöku, ekki krafa,“ segir Anna og bendir á að fyrir vikið hafi skapast mikið traust í hópnum. Burðast með farangur kynslóða Í kynningu á verkinu er talað um að það sé innblásið af abstrakt hugs- un um tímann og ferðalagi milli vídda. Hvernig birtist þetta? „Við Erna deilum þessari abstrakt nálgun á listinni. Yfirleitt þegar við erum að vinna erum við með mjög sterkar hugmyndir um hvað listin er og verkin okkar, en það er aldrei mat- að ofan í áhorfendur heldur birtist fremur með abstrakt hætti. Grund- vallarhugmyndin að verkinu sem tit- illinn vísar í felur í sér tengingu við tímann þar sem fólk getur til dæmis heimsótt mismunandi tíma ævi sinn- ar, ekki gegnum minningar heldur með því að fara þangað. Við það verð- ur til ákveðin togstreita því suma staði viljum við heimsækja oftar en aðra. Tíminn geymir mismunandi minningar. Þetta var sterk grunn- hugmynd á bak við verkið. Þetta end- urspeglast á vissan hátt í köflunum þremur sem verkið er í. Í fyrsta kafl- anum ríkir ákveðin óvissa hvar þú ert meðan þú ert ekki búinn að átta þig á því að þú getir farið hvert sem er. Í öðrum kaflinum kemur ákveðin kyrrð og í lokakaflanum birtist ákveðið sjálfstraust og öryggi. Þetta er hægt að hugsa um þetta með tilliti til æviskeiðs og staðsetningar, en auðvitað er þetta fyrst og fremst list- ræn hugsun sem knýr sköpunarferlið áfram,“ segir Anna. „Þegar Anna var búin að veita okkur uppkast að tón- listinni komu alls kyns myndir og til- finningar, t.d. sú mynd að vera að burðast með farangur kynslóða, nún- ingar, sátt, flæði og gamlar vélar. Dansararnir eru á sífelldu ferðalagi verkið á enda,“ segir Erna og tekur fram að tíminn sé bæði margræður og óræður og alls ekki línulaga. „Við getum flest verið sammála um að við séum að skynja tímann og eilífðina með öðrum hætti eftir Covid sem dæmi,“ segir Erna. Eru fleiri sýningar fyrirhugaðar? „Já, við munum sýna verkið á Arc- tic Arts í Harstad með sinfóníu- hljómsveitinni í Norður-Noregi,“ segir Erna. „Og í Finnlandi,“ segir Anna og bendir á að kófið hafi sett ákveðið strik í alla framtíðar- skipulagningu, en hún reiknar með að fleiri hljómsveitir muni vilja setja verkið á efnisskrá sína. Sjáið þið fyrir ykkur að vinna fleiri sviðsverk saman? „Ég vona það,“ segir Erna. „Ég held að við séum báðar búnar að fá fullt af hugmyndum að frekara sam- starfi sem gaman væri að útfæra,“ segir Anna að lokum. Tímaskyn Dansarar Íslenska dansflokksins ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og Önnu-Mariu Helsing stjórnanda. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Dúó Anna Þorvaldsdóttir tónskáld og Erna Ómarsdóttir danshöfundur. „Eigum fallega listræna samleið“ - Aiôn eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Ernu Ómarsdóttur flutt í Eldborg Hörpu í kvöld - „Lýsum verkinu sem kóreógrafísku sinfónísku sviðsverki þar sem listformin blandast algjörlega saman“ 68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.