Morgunblaðið - 28.10.2021, Page 10

Morgunblaðið - 28.10.2021, Page 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Hlýtt og notalegt Þinn dagur, þín áskorun 100% Merino ullarnærföt fyrir dömur og herra Stærðir: S–XXL Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is OLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is Millimál í fernu VÍTAMÍN &STEINEFNI PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA ÁN ÁN Næring+ er á lista Sjúkratrygginga Íslands yfir niðurgreidd næringarefni fyrir þá sem eiga gilda innkaupaheimild. DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Ný verðbólgumæling Hagstof- unnar sýnir að hækkandi húsnæð- isverð er helsti orsakavaldurinn þegar litið er til hækkandi verðlags í landinu. Verðbólgan mælist 4,5% en án húsnæðisliðarins væri hún 3%. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, er ómyrkur í máli þegar hann tjáir sig um hver beri helstu ábyrgðina á ástandi á markaði með íbúðar- húsnæði. „Landsmenn, sem eiga þá færri krónur í veskinu um hver mán- aðamót, [vita] að ástæðuna er að finna í ráðhúsinu.“ Fagna útgáfu borgarinnar Sigurður er gestur Dagmála í dag ásamt Magnúsi Árna Skúlasyni, hagfræðingi hjá Reykjavik Econo- mics. Ræddu þeir um húsnæðismarkaðinn, m.a. í ljósi um- ræðu sem skapast hefur í kjölfar þess að Reykjavíkurborg gaf út ít- arlegt og upplýsandi rit um íbúða- byggingar á höfuðborgarsvæðinu. Sigurður segir mikinn akk í þess- ari umfjöllun. Hins vegar séu áætl- anir Reykjavíkurborgar varðandi húsbyggingar næsta áratuginn ófullnægjandi. Borgin geri ráð fyrir að í borgarlandinu rísi um 10.000 nýjar íbúðir á þessum áratug. Sam- tök iðnaðarins telja þörfina fyrir allt landið standa í 30.000 íbúðum fyrir tímabilið og að fyrirhugað framlag Reykjavíkurborgar til að stoppa upp í það gat sé ófullnægjandi. Magnús Árni segir að taka muni tíma að mæta þeirri eftirspurn sem nú sé á markaðnum en að aðgerðir Seðlabankans séu þó líklegar til þess að tempra markaðinn nokkuð. Mikil sókn í óverðtryggð lán geri það að verkum að miðlun pen- ingastefnunnar skili sér með beinni hætti út á markaðinn en áður. Magnús Árni hefur lengi greint fasteignamarkaðinn og hann, líkt og Sigurður, fagnar því að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vinni nú að því að safna nákvæmari gögnum um húsnæðismarkaðinn. Oft hafi tölur verið misvísandi. Samtök iðnaðarins telji íbúðir sem raunverulega séu í byggingu meðan Reykjavíkurborg, eins og mörg önnur sveitarfélög meti framboðið fram undan út frá fjölda útgefinna byggingarleyfa. Þau gefi ekki alltaf raunsanna mynd af því hvað sé í pípunum. Megináherslan á þéttingu Sigurður tekur undir þau sjónar- mið sem seðlabankastjóri hefur viðrað að undanförnu að Reykjavíkurborg og önnur sveitar- félög í kring þurfi að brjóta nýtt land undir byggð. Segir Sigurður að nýr bæklingur Reykjavíkurborgar gefi þó ekki til kynna að það verði reyndin. Öll áhersla sé á þétting- arreiti. Ráðhúsið ber ábyrgð á verðbólgunni - Framkvæmdastjóri SI segir verðbólguþrýstinginn kominn til vegna lóðaskorts í Reykjavík - Tíma taki að tappa af þrýstingi - Ósennilegt að nýtt land verði brotið undir byggð í stórum stíl Dagmál Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, og Magnús Árna Skúlason hagfræðing. Mikilvægt er að einfalda kerfið þegar kemur að byggingageir- anum að sögn Sigurðar Hann- essonar. Bendir hann á að bygg- ingageirinn sé í raun ekki kominn inn í þriðju iðnbylt- inguna, nú þegar farið er að ræða um þá fjórðu. Það birtist m.a. í því að öllum teikningum þurfi að skila útprentuðum til byggingafulltrúa, jafnvel þótt þær séu allar unnar rafrænt og séu að lokum skannaðar inn hjá hinu opinbera, til þess að þær séu aðgengilegar rafrænt. Bendir Sigurður á að þetta kosti mikla fyrirhöfn og fjár- muni. Dæmi séu um í einu fjöl- býlishúsaverkefni að prent- kostnaður vegna þessara teikninga hafi numið tveimur milljónum króna. Ljóst sé hver sitji uppi með reikninginn vegna þessa í lok dags; kaupendur íbúðarhúsnæðisins. Bendir Sigurður á að hinar út- prentuðu teikningar séu sjaldn- ast notaðar af þeim sem reisi byggingarnar. Tölvutæknin hafi tekið alls staðar yfir nema hvað viðkemur samskiptum við bygg- ingayfirvöld. Kostaði tvær milljónir HÁR PRENTKOSTNAÐUR Ekki náðist samkomulag um skipt- ingu heildarafla í norsk-íslenskri síld og kolmunna í viðræðum strandríkja í London síðustu daga. Ákveðið var að halda samninga- fundi um skiptingu veiða í upphafi næsta árs, með það að markmiði að samkomulag geti leitt til sjálf- bærra veiða strax árið 2022. Ekkert heildarsamkomulag er í gildi um stjórnun veiða á þessum tegundum í Norðaustur-Atlants- hafi, né á makríl, og hefur afli síð- ustu ára verið talsvert umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráð- sins (ICES). Í frétt frá sjávarútvegsráðuneyt- inu kemur fram að strandríkin séu sammála um að mikilvægt sé að leggja þunga áherslu á að reyna að ná niðurstöðu um skiptingu heild- arafla. Án slíks samkomulags sé ljóst að raunverulegar veiðar verði umtalsvert meiri en sem nemur vísindaráðgjöfinni. Strandríkin voru sammála um að heildarveiðar skuli ekki vera um- fram vísindaráðgjöf ICES og var því samþykkt að setja heildarafla- mark sem er 598.588 tonn fyrir norsk-íslenska síld og 752.736 tonn fyrir kolmunna. Jafnframt var ákveðið að fela vísindamönnum strandríkjanna að uppfæra saman- tekt frá 2013 um dreifingu kol- munna. Strandríkin hafa hvert fyrir sig sett sér kvóta í kolmunna og norsk- íslenskri síld á eigin forsendum og hefur heildaraflinn farið talsvert umfram ráðgjöf síðustu ár. Viðræður strandríkja um makríl stóðu enn yfir í London síðdegis í gær. aij@mbl.is Ræða skiptingu afla áfram eftir áramót - Fundahöld um uppsjávartegundir fóru fram í London síðustu daga Ljósmynd/Grétar Rögnvarsson Kolmunni Á veiðum síðasta vetur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.