Morgunblaðið - 28.10.2021, Side 24
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Framkvæmdir við menningarhús og
sundlaugar í Úlfarsárdal eru á loka-
stigi og er stefnt að opnun fyrir ára-
mót. Þetta fékk Morgunblaðið upp-
lýst hjá Reykjavíkurborg.
Fyrirtækið Sér-
verk ehf. í Kópa-
vogi hefur séð
um allan innan-
hússfrágang.
Úlfarsárdalur
er eitt af yngri
íbúðarhverfum
höfuðborgar-
innar. Þar hefur
á undanförnum
árum verið í
byggingu mikið
mannvirki við Úlfarsbraut 122-124
sem kallað hefur verið „Miðstöð
skóla, menningar og íþrótta“ í Úlf-
arsárdal.
Það mun hýsa grunnskóla, leik-
skóla, frístundaheimili, menningar-
miðstöð, almenningsbókasafn, inni-
sundlaug og íþróttahús ásamt
útisundlaug. Þá verður á svæðinu
knattspyrnuvöllur Fram með áhorf-
endastúku. Um hönnun sáu VA
arkitektar, Landmótun og VSÓ ráð-
gjöf. Heildarstærð mannvirkjanna
verður í kringum 16.000 fermetrar.
Heildarkostnaður mannvirkja í Úlf-
arsárdal, þ.e. leik- og grunnskóla,
menningarmiðstöðvar og sundlaug-
ar og íþróttamannvirkis Fram (án
knatthúss), er áætlaður um 14 millj-
arðar króna.
Framkvæmdir hófust haustið
2015. Leikskólinn var fyrsti áfangi
og var hann tekinn í notkun í ágúst-
lok 2016 og þá fyrst um sinn not-
aður fyrir grunnskólanema. Annar
áfangi var bygging grunnskóla og
frístundaheimilis. Fyrsti hluti
grunnskólans var tekinn í notkun
haustið 2018 en grunnskólinn allur
haustið 2019.
Og nú er komið að langþráðum
áfanga fyrir íbúa Úlfarsárdals þeg-
ar til stendur að taka í notkun
menningarhús, bókasafn og inni-
sundlaug sem verða 2.890 fermetrar
og síðan útisundlaug með 150 fer-
metra tæknirými. Menningar-
miðstöð, almenningsbókasafn og
sundlaug eru fyrir miðju nýbygg-
ingarinnar við Úlfarsbraut. Gert er
ráð fyrir að fjölnota mannvirki og
knattspyrnuvöllur Fram verði
fullbúin á næsta ári. Við þau tíma-
mót mun félagið yfirgefa Safamýri
og flytja alla sína starfsemi í Úlfars-
árdal.
Fyrirtækið Sérverk ehf. hefur
verið aðalverktaki þessa verkhluta
og hljóðaði verksamningur upp á
rétt um 1.400 milljónir króna. Að
sögn Elíasar Guðmundssonar fram-
kvæmdastjóra Sérverks hófst vinn-
an fyrir 14 mánuðum og hafa 25-30
starfsmenn fyrirtækisins unnið að
jafnaði við verkið allan tímann. Nú
eru bara tveir starfsmenn eftir á
svæðinu til að vinna að frágangi.
Sérfræðingar að utan eru komnir til
landsins til að stilla öll tæki sem til-
heyra inni- og útisundlaugunum.
Allar innréttingar sérsmíðaðar
Sérverk hefur unnið allan frá-
gang hvað varðar trésmíði, múr-
verk, flísa- og pípulagnir og annað
sem tilheyrir. Þá eru allar innrétt-
ingar sérsmíðaðar hjá Sérverki
enda ræður fyrirtækið yfir einu öfl-
ugasta smíðaverkstæði landsins í
Tónahvarfi 9 í Kópavogi. Elías segir
að innréttingar séu allar mjög vand-
aðar rétt eins og hönnuðir hússins
hafi lagt upp með.
„Miðað við covid og annað hefur
verkið gengið ótrúlega vel og eig-
inlega alveg magnað að við höfum
getað skilað því frá okkur á þessum
tíma,“ segir Elías og bætir við að
allt samstarf við Reykjavíkurborg
og eftirlitsaðila hafi verið framúr-
skarandi. „Við göngum glaðir og
stoltir frá þessu verki,“ segir Elías
að lokum.
Bókasafnið Allt er tilbúið og brátt munu hillur safnsins fyllast af bókum. Menningarhúsið Hinar glæsilegu innréttingar eru íslensk smíði starfsmanna Sérverks á verkstæðinu í Kópavogi.
Stórum áfanga náð í Úlfarsárdal
- Framkvæmdir við menningarhús og sundlaugar eru á lokastigi og er stefnt að opnun fyrir áramótin
Elías
Guðmundsson
Morgunblaðið/Unnur Karen
Útisundlaugin Búið er að hleypa vatni í laugina og nú vinna erlendir sérfræðingar að því að stilla tækjabúnaðinn.
24 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021
ÞÚ FINNUR DRAUMABÍLINN
Í BÍLAHÖLLINNISími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
DACIA - DUSTER – RN. 191965.
Nýskráður 6/2019, ekinn 71 þ.km., bensín, ljós-
grár, beinskiptur, aksturstölva, hiti í framsætum,
loftþrýstingsskynjarar, hraðastillir, bluetooth.
Verð 2.590.000 kr.
VW - GOLF GTE PLUG IN HYBRID COMFORT
RN. 331250 Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km.,
bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, hiti í stýri,
360° nálgunarvarar, bakkmyndavél, bluetooth.
Verð 4.590.000 kr.
TOYOTA - COROLLA H/B HYBRID STYLE 2.0
RN. 191922. Nýskráður 11/2019, ekinn 43 þ.km.,
bensín/rafmagn, grár, sjálfskiptur, fjarlægðar-
skynjarar framan/aftan, bakkmyndavél, bluetooth.
Verð 4.590.000 kr.
VOLVO - XC90 MOMENTUM 4 WD – RN. 340584
Nýskráður 4/2018 ekinn 58 þ.km., dísel, grár,
sjálfskiptur, túrbína, leiðsögukerfi, bakkmyndavél,
kastarar, glertopplúga, bluetooth, hiti í sætum.
Verð 8.390.000 kr.