Morgunblaðið - 28.10.2021, Qupperneq 36
36 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnson
tobj@mbl.is
Krónan áætlar að opna nýja 700 fer-
metra verslun auk bakrýma í Borg-
artúni 26 eftir áramót og munu fram-
kvæmdir hefjast fljótlega. Verslunin
verður sú 25. í röðinni.
Eggert Þór Kristófersson forstjóri
Festar, móðurfélags Krónunnar, seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að tæki-
færið til að opna verslun í Borgartúni
hafi komið ekki alls fyrir löngu. „Eig-
endur hússins, fasteignafélagið Eik,
misstu Vínbúðina úr húsinu og ein-
hverjir leigjendur aðrir vildu færa
sig. Þannig að þá vantaði nýja verslun
í húsið. Þeir höfðu samband við okkur
og þetta var niðurstaðan. Við töldum
vera dauðafæri að opna góða Krónu-
búð þarna, “ segir Eggert.
Beðið eftir leyfi
Hann segir að nú sé beðið eftir
formlegu leyfi frá Reykjavíkurborg
fyrir því að reka matvöruverslun í
plássum Vínbúðarinnar, Fylgifiska og
pítsustaðarins Blackbox. Blackbox
flytji sig yfir í rýmið þar sem Kram-
búðin er í dag.
„Við skoðuðum líka möguleikann á
að opna á Kirkjusandi, en aðkoman
þar var ekki nógu hentug varðandi
birgðaflutning og annað,“ útskýrir
Eggert.
Eins og Eggert bendir á er Krónan
mætt aftur til leiks í hverfið, en félag-
ið rak áður verslun í Nóatúni, í 700
metra göngufæri frá Borgartúni 26.
„Byggðin í kring er stækkandi, m.a.
með uppbyggingu Kirkjusandsreits-
ins og Vogabyggðar.“
Samkvæmt sátt Festar við Sam-
keppniseftirlitið, í kjölfar samruna fé-
laganna sem ráku m.a. Krónuna, N1,
Elko, Nóatún, Kjarval og vöruhúsið
Bakkann árið 2017, þurfti Festi að
loka verslun sinni á Hellu, auk fimm
bensínstöðva. Í tengslum við sölu
verslunarinnar á Hellu til Samkaupa
var verslunin í Nóatúni einnig seld fé-
laginu. „Lokun verslunarinnar í Nóa-
túni var ekki hluti af sáttinni, en við
töldum nauðsynlegt að selja Nóatúnið
til Samkaupa því enginn hefði viljað
kaupa verslunina á Hellu staka,“ seg-
ir Eggert og kveðst aðspurður ekki
eiga von á að Samkeppniseftirlitið
fetti fingur út í nýju búðina. Til gam-
ans má geta þess að Samkeppniseft-
irlitið er til húsa í Borgartúni 26, þar
sem hin nýja Krónuverslun opnar.
Guðbjörg Glóð Logadóttir eigandi
Fylgifiska staðfestir að verslun fyrir-
tækisins í Borgartúni loki endanlega
3. nóvember. „Okkur bauðst að flytja
yfir í bilið sem Krambúðin er í en það
hentaði okkur ekki. Við tókum því
ákvörðun um að fara með allt yfir í
verslun okkar á Nýbýlavegi í Kópa-
vogi. Sú verslun fær því andlitslyft-
ingu,“ segir Guðbjörg en bætt verður
við nýju fiskborði og nýjum kælum
m.a.
Spurð hvort Fylgifiskar hefðu kos-
ið að vera áfram í Borgartúninu segir
Guðbjörg að verslunin hafi ekki verið
á leiðinni í burtu, eins og hún orðar
það. Leigusamningur hafi ekki verið
útrunninn.
Dauðafæri að opna nýja
Krónubúð í Borgartúninu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hrókering Krónan verður í plássum Vínbúðarinnar, Blackbox og Fylgifiska. Blackbox fer í pláss Krambúðarinnar.
- Fylgifiskar og Blackbox flytja - Hefur ekki áhyggjur af Samkeppniseftirlitinu
Krónanopnarverslun
í Borgartúni
Borgartún
Laugavegur
Borgartún 26
N
ó
at
ú
n
Nóatún 17
700metrar
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir áhyggjuefni að at-
vinnulaust fólk skuli hafna störfum.
Tilefnið er samtal
við Unni Sverris-
dóttur, forstjóra
Vinnumálastofn-
unar, í Morgun-
blaðinu í gær sem
sagði að erfitt
væri að ráða fólk í
átakinu Hefjum
störf.
„Þetta er staða
sem blasir við
okkur og flestum
atvinnurekendum, ekki aðeins hér á
höfuðborgarsvæðinu heldur hring-
inn í kringum landið, að atvinnurek-
endur hafa átt í miklum erfiðleikum
með að manna störf. Sérstaklega af
listum Vinnumálastofnunar, þar sem
haft er samband við fjölda manns og
ekkert kemur út úr því.
Þær skýringar sem við fáum frá
atvinnurekendum er að það sé ekki
endilega verið að kasta út víðu neti í
þessu samhengi heldur jafnvel oft
verið að hafa samband við fólk sem
áður gegndi sömu störfum, sem fáist
ekki til baka af bótum. Og það hlýtur
að vera áhyggjuefni fyrir samfélagið
allt og skýringar forstjóra Vinnu-
málastofnunar varpa ekki ljósi á þá
þróun,“ segir Halldór. Skýringarnar
liggi í öðru en menntun.
Ójafnvægi í bótakerfunum
„Aðalatriðið er að það er verið að
bjóða sömu störf aftur og það veldur
mér áhyggjum að það fáist ekki fólk
til baka í sömu störf.
Svarið sem blasir við er að hér er
eitthvert ójafnvægi í bótakerfunum
okkar og ég hjó eftir því í kosninga-
baráttunni að fjármálaráðherra
nefndi sérstaklega að það þyrfti að
stokka upp þessi bótakerfi. Þessi
þróun sem birtist okkur nú er óræk-
ur vitnisburður þess. Íslendingar
eru vinnufús þjóð og við þekkjum
það ekki að hér sé fólk á atvinnuleys-
isskrá þegar næga vinnu er að hafa
og að langtímaatvinnuleysi haldi
áfram að aukast. Þetta er samtal
sem þarf að eiga sér stað við eldhús-
borð landsmanna, ekki aðeins milli
stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar-
ins, enda getum við sem samfélag
ekki samþykkt að vinnufúsar hendur
þiggi ekki vinnu þegar hún býðst.“
Hafna störfum
sem þau gegndu
- SA vilja stokka upp bótakerfin
Halldór Benjamín
Þorbergsson
28. október 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.13
Sterlingspund 178.16
Kanadadalur 104.43
Dönsk króna 20.163
Norsk króna 15.492
Sænsk króna 15.023
Svissn. franki 140.41
Japanskt jen 1.1325
SDR 182.6
Evra 150.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.371
« Fasteignafélagið
Reitir sendi í gær
frá sér afkomu-
viðvörun í aðdrag-
anda þess að félag-
ið birtir níu mánaða
uppgjör sitt. Er
rekstrarhagnaður
þriðja ársfjórðungs
umfram áætlanir
félagsins sjálfs og
greiningaraðila.
Þannig gerir félagið ráð fyrir að rekstr-
arhagnaður fyrir matsbreytingu fjárfest-
ingareigna nemi 2.065 milljónum króna-
.Uppgjör fyrirtækisins verður birt 15.
nóvember næstkomandi og segir í til-
kynningu þess að afkoman á fjórð-
ungnum kunni að reynast frábrugðin því
sem nú hefur verið tilkynnt um.
Reitir senda frá sér já-
kvæða afkomuviðvörun
Reitir Guðjón
Auðunsson stýrir.
STUTT
« Ný verðbólgumæling Hagstofunnar
leiðir í ljós að tólf mánaða verðbólga er
4,5%. Eykst hún úr 4,4% frá síðustu
mælingu í september. Líkt og verið hef-
ur síðustu mánuði er það húsnæðislið-
urinn sem kyndir helst undir en án
kostnaðar vegna búsetu í eigin húsnæði
væri verðbólgan 3%.Auk húsnæðislið-
arins er það verð á bensíni og olíum
sem hækkar verulega og er hlutdeild
þeirrar hækkunar 0,13 prósentustig í
verðbólgumælingunni. Verðbólga hefur
ekki mælst meiri í ár að undanskildum
aprílmánuði þegar hún reyndist 4,6%.
Verðbólga eykst í októ-
ber og stendur í 4,5%