Morgunblaðið - 28.10.2021, Side 38

Morgunblaðið - 28.10.2021, Side 38
38 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is 2012 2021 HJÁ OKKUR FÁST VARAHLUTIR Í AMERÍSKA BÍLA st’ al og Stál og stansar Súdanskar öryggissveitir hófu í gær fjöldahandtökur á mótmælendum í höfuðborginni Kartúm og öðrum helstu borgum landsins þegar valda- ráni hersins á mánudaginn var mót- mælt þriðja daginn í röð. Alþjóðabankinn ákvað í gær að frysta alla aðstoð sína til Súdans vegna valdaránsins, og Afríku- sambandið ákvað að víkja landinu úr sambandinu, þar sem það bryti í bága við stjórnarskrá landsins. Mótmælendur í Kartúm köstuðu steinum í her og lögreglulið og var táragasi og gúmmíkúlum beitt til þess að kveða mótmælin niður. Þá rifu hermenn niður allar götulokanir og götuvígi mótmælenda og hand- tóku hvern þann er stóð nærri þeim. Auk mótmælanna í Kartúm var einnig mótmælt í Port Sudan í aust- urhluta landsins, Wad Madani í suð- urhluta þess og Atbara í norðri. Sögðu heimildarmenn AFP- fréttastofunnar að aðfarir hersins minntu einna helst á valdatíma ein- ræðisherrans Omars al-Bashir, sem ríkti í landinu í tuttugu ár. Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði í gær að hann hefði rætt við Abdalla Ham- dok, forsætisráðherra landsins, sem settur var í stofufangelsi á mánu- daginn. Ítrekaði Borrell stuðning sinn við að borgaraleg öfl tækju aft- ur við valdataumunum í Súdan, líkt og stefnt var að fyrir tveimur árum þegar Bashir var steypt af stóli. Þá lýstu Bandaríkin, Bretland og Evrópusambandið því yfir að þau viðurkenndu enn bráðabirgðastjórn Hamdoks sem lögleg stjórnvöld í Súdan. AFP Súdan Ungmenni í Kartúm taka til fótanna eftir að táragasi var beitt til þess að kveða niður mótmælin. Fjöldi mótmæl- enda handtekinn - Alþjóðabankinn frystir aðstoð sína Sir Keir Starmer, leiðtogi Verka- mannaflokksins, greindist í gær með kórónuveir- una. Hann hefur fjórum sinnum áður þurft að fara í sóttkví í faraldrinum, en ekki smitast fyrr en nú. Starmer var einkennalaus í gær, en veikindin þýddu að hann gat ekki tekið þátt í hefðbundnum fyrir- spurnartíma forsætisráðherra í neðri deild breska þingsins, né held- ur gat hann stýrt gagnrýni stjórnar- andstöðunnar á fjárlög ríkisins, sem kynnt voru í gær. Ed Miliband tók við fyrirspurnum í fyrsta sinn síðan hann vék sem leið- togi flokksins 2015, og hét Miliband því að hann myndi ekki gera þetta aftur, og uppskar hlátur frá stjórn og stjórnarandstöðu. BRETLAND Starmer greinist með kórónuveiruna Keir Starmer Mary Carmack- Altwies, sak- sóknari í Santa Fe í Nýju- Mexíkó, sagði í gær að ekki væri útilokað að ákært yrði fyrir drápið á kvik- myndatöku- manninum Halynu Hutchins. Carmack-Altwies sagði í viðtali við New York Times að byssan sem notuð var hefði ekki verið leikmunabyssa, heldur al- vörubyssa frá tímum villta vesturs- ins. Þá hefði gríðarlegt magn af skotfærum fundist á vettvangi, og stæði rannsókn nú yfir á því. Ekki er talið að leikarinn Alec Baldwin, sem hleypti af skotinu sem felldi Hutchins, muni sæta ákæru fyrir víg hennar. Hins vegar sé hann einn af framleiðendum myndarinnar, og er því mögulega skaðabótaskyldur fyrir brotalamir í öryggi á tökustað. BANDARÍKIN Byssan sögð ekta og ákærur á borðinu Alec Baldwin menntað samfélag,“ sagði Manza. Við það hefði fjöldi hermanna á vegum bandalagsins aukist upp í um 60.000 manns árið 2006, þar sem sveitir hermanna og borgaralegra starfsmanna NATO dreifðu sér um landið að reyna að ýta undir hagvöxt og bætta stjórnsýslu í nær hverju einasta héraði landsins. Manza sagði að þessi fjölgun hefði ekki skilað þeim árangri sem vonast var eftir, þar sem uppreisn talíbana hefði vaxið ásmegin. Þá hafi banda- lagið ekki náð að taka á spillingu eða bæta frammistöðu stjórnvalda. „Þú verður að spyrja, og við í nefndinni höfum spurt okkur oft að því sama: voru þessi markmið sem við höfðum þá raunhæf?“ sagði Manza. Bætti hann við að þó að eng- inn árangur hefði sést, hefði alþjóða- samfélagið brugðist við með því að setja alltaf meira og meira í verk- efnið. Aðstoðin skilaði sér illa Eitt dæmi um það var þegar Bar- ack Obama, þáverandi Bandaríkja- forseti, fyrirskipaði að fjölga mjög í herliði Bandaríkjanna árið 2009, en þá fjölgaði jafnframt í herliði banda- lagsins í Afganistan. Voru þá um tíma rúmlega 100.000 hermenn á vegum bandalagsins í landinu, á sama tíma og auknu fjár- magni var varið í neyðaraðstoð. Það fjármagn hefði hins vegar skilað sér illa, og í raun ýtt frekar undir spill- ingu sem þá þegar var mjög mikil. Sagði Manza að þegar horft væri til baka væri ljóst að ekki hefði verið hægt að halda svo stórum aðgerðum til streitu, þannig að áhrif þeirra hefðu verið mismikil og tímabundin í sumum héruðum landsins. ISAF-verkefni bandalagsins lauk í desember árið 2014 og var þá allt herlið á vegum þess kallað til baka. Þess í stað tók við verkefnið „Resol- ute Support“, sem þýða má sem „staðfastur stuðningur“, en það snerist um þjálfun afganska stjórn- arhersins og annarra öryggissveita, og var í gangi allt þar til að talíbanar tóku yfir Afganistan í sumar og haust. Sum aðildarríki bandalagsins, einkum Bandaríkin, héldu áfram úti herliði í landinu allt fram til þessa árs, án þess þó að því væri ætlað að sinna bardagahlutverki. Færðist of mikið í fang - Atlantshafsbandalagið skoðar hvað hafi farið úrskeiðis í þátttöku þess í Afgan- istanstríðinu - Fjöldi hermanna fór úr 5.000 upp í um 100.000 á nokkrum árum AFP Afganistan Breskir hermenn sjást hér á gangi í Helmand-héraði árið 2010, en þar var hart barist í stríðinu. SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Atlantshafsbandalagið færðist of mikið í fang í Afganistan, og leyfði sér að vera dregið út í tilraun til þess að endurbyggja hið stríðs- hrjáða land, frekar en að halda sig við hið þrönga hernaðarhlutverk sem bandalaginu var ætlað í upp- hafi. Svo sagði John Manza, aðstoðar- framkvæmdastjóri aðgerða hjá bandalaginu, í gær en hann hefur síðustu vikur leitt nefnd sem er að rannsaka hvað hafi farið úrskeiðis í þátttöku bandalagsins í Afganistan- stríðinu. Auk Manza er nefndin skipuð fulltrúum bandalagsríkjanna 30, en hún var sett á fót eftir að talíbanar náðu að kollvarpa ríkisstjórn lands- ins í haust með undrasnöggum hætti án þess að stjórnarherinn, sem þjálf- aður hafði verið af bandalagsríkjun- um, fengi rönd við reist. Manza kynnti frumniðurstöður nefndarinn- ar á fundi varnarmálaráðherra bandalagsins í síðustu viku, en von er á lokaskýrslu hennar um þar- næstu mánaðamót. Manza fundaði með þingmönnum Evrópuþingsins í gær, og sagði þeim að helstu mistökin hefðu verið að verkefnið hefði farið sístækkandi (e. mission creep). Sagði Manza að í upphafi hefðu um 5.000 hermenn bandalagsríkjanna séð um öryggi í og við höfuðborgina Kabúl, en NATO tók við hlutverki ISAF (Int- ernational Security Assistance Force) árið 2003, tveimur árum eftir að innrás Bandaríkjamanna steypti talíbönum af stóli. Úr 5.000 í 60.000 manns Innan þriggja ára hafði hlutverk bandalagsins færst frá því að verja öryggi Kabúl yfir í að „fást við rætur hryðjuverka, með því að aðstoða við enduruppbyggingu landlukts lands sem væri margskipt í fylkingar eftir þjóðerni og ættbálkum og með lág-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.