Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 46

Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Bílamerkingar Vel merktur bíll er besta auglýsingin. Tökum að okkur allt frá litlum merkingum að heilpökkuðum bílum. Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|xprent@xprent.is www.xprent.is SKECH-AIR DYNAMIGHT 13.995 kr./ St. 36 - 40 withMemory Foam KRINGLAN - SKÓR.IS DÖMUSKÓR MEÐ MJÚKU INNLEGGI SEM AÐLAGAST FÆTINUM SKECHERS Marta María mm@mbl.is Eins og nafnið gefur til kynna sér töfraformúla um að eyða öllum leiðindum og fríska okkur upp. Bye Bye Dullness eða Bæ Bæ þreytta þú kemur eins og ferskur andvari inn í líf miðaldra kvenna sem vinna of mikið, eiga of krefjandi einkalíf og hvíla sig of lítið. Ef við vöknum þreyttar á morgnana þurfum við vítamín- bombu til að hressa okkur við. Formúlan í efninu var hönnuð af húðlæknum og inni- heldur 15% C-víta- mín. Formúlan er vegan og á tíu dögum er okkur lofað öllu fögru. Eftir að hafa prófað þetta held ég hreinlega að þetta sé nokkuð nærri lagi. Ég hef áður prófað 15% C-vítamín frá Lancôme og var það líka mjög gott. 15% C-vítamín örvar húð- ina á sérstakan hátt og gerir því raunverulegt gagn. Í formúlunni er ekki bara C-víta- mín heldur einnig E-vítamín sem gerir heilmikið fyrir okkur líka. E- vítamínið eykur rakann í húðinni og nærir hana vel. Formúlan er ilmefnalaus, sem er í takt við nú- tímaþarfir fólks. Best er að bera kremið á húðina á morgnana og ef þú ert sér- lega mikið að mygla í leik og starfi gæti verið sniðugt að nota Bæ bæ þreytta þú bæði kvölds og morgna. Allavega á meðan mesta grámyglan er að ganga yfir. Þegar þú hef- ur náð upp ljómanum og orðin svo of- urfersk að hægt væri að virkja þig gætirðu farið í það að bera Bæ bæ þreytta þú bara á andlitið á morgnana. Ég mæli með því að fólk beri á sig ser- um á eftir og líka dagkrem því farði verður aldrei fallegur á húð- inni ef hún er ekki vel nærð. Þegar þú ert búin að setja farða á andlitið er uppáhaldstrixið mitt að úða ör- litlu af Marc Inbane-brúnkuspreyi yfir andlitið (yfir farðann, ekki undir hann) til að fá ennþá meiri ljóma! Bæ bæ þreytta þú! Þegar kólna fer í veðri skiptir meginmáli að hugsa sem allra best um húðina. Hægt er að fara fjölbreyttar leiðir til þess að fá frísklegri og fallegri áferð á húðina. Eitt af því sem fólk ætti að prófa er Bye Bye Dullness frá IT Cosmetics. Fyrir og eftir Hér sést hvað Bæ bæ þreytta þú getur getur gert fyrir andlitið. Brúnkubomba Marc Inbane-brúnkukrem gefur fallegan lit. Fæst á beautybar.is Ferskleiki Bye Bye Dullness frá It Cosmetics eða ein- faldlega Bæ bæ þreytta þú hefur góð áhrif á húðina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.