Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 57
MINNINGAR 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast.
Það er lífsins saga.
(Páll J. Árdal)
Já elsku Hrafnhildur mín, líf-
ið var þér efitt síðustu árin þín
og það var mikil sorg að þurfa
að horfa upp á þig hverfa frá
okkur þar sem alzheimersjúk-
dómurinn tók öll völd, mest var
þó sorgin fyrir börnin þín og
hann Konna þinn að upplifa
þetta, en nú ert þú laus þrauta
þinna og komin í sumarlandið
góða.
Hrafnhildur
Einarsdóttir
✝
Hrafnhildur
Einarsdóttir
fæddist 13. desem-
ber 1956. Hún lést
17. október 2021.
Maki hennar var
Guðmundur Kon-
ráð Rafnsson, f. 8.
október 1960. Börn
þeirra eru: 1) Hilm-
ar Örn Óskarsson,
f. 14. júní 1975. 2)
Auður Gréta Ósk-
arsdóttir, f. 1. september 1978.
3) Karlotta Ósk Óskarsdóttir, f.
11. október 1979. 4) Guðjón Örn
Guðmundsson, f. 29. maí 1980.
Útför verður frá Bústaða-
kirkju í dag, 28. október 2021,
klukkan 11.
Við Siggi áttum
margar góðar
stundir með þér og
Konna sem við er-
um þakklát fyrir,
t.d. þegar þið
bjugguð í Moskvu
og við komum í
heimsókn til ykk-
ar; þegar við spil-
uðum golf saman;
þegar við vorum
uppi í sumarbústað
og svo margt fleirra.
Hann var fallegur brúð-
kaupsdagurinn ykkar þegar þið
Konni giftuð ykkur í Kálfa-
tjarnarkirkju og svo í veislunni
heima hjá okkur Sigga.
Já elsku nafna mín, það er
gott að hafa minningarnar til að
ylja sér við og láta hugann
reika. Guð blessi allar góðu
minningarnar.
Elsku Konni, Hilmar, Auður,
Karlotta, Guðjón og fjölskylda,
missir ykkar er mikill.
Guð gefi ykkur öllum styrk í
sorginni. Innilegar samúðar-
kveðjur frá okkur Sigga og fjöl-
skyldu okkar til ykkar allra.
Elsku Hrafnhildur mín:
Far þú í friði, friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Valdimar Briem)
Hrafnhildur Bryndís
Rafnsdóttir.
✝
Hallgrímur
Hallgrímsson
skipstjóri fæddist á
Eskifirði þann 15.
apríl 1955. Hann lést
á Droplaug-
arstöðum þann 13.
október 2021 eftir
baráttu við hreyfi-
taugasjúkdóminn
MND.
Foreldrar Hall-
gríms voru: Torf-
hildur Magnúsdóttir, stöðvarstjóri
Pósts og síma, fædd 11. október
1922, dáin 12. febrúar 2002, og
Hallgrímur Hallgrímsson póst-
meistari, fæddur 4. júlí 1909, dáinn
8. ágúst 1984. Systur Hallgríms
eru: 1) Rósa Þóra, fædd 4. maí
1951. Sonur Rósu Þóru er Hall-
grímur, fæddur 1984. 2) Ingibjörg,
fædd 12. maí 1953, og 3) Jóhanna
fædd 8. júlí 1958, maki Halldór
Jónasson. Dóttir Jóhönnu og Hall-
dórs er Sylvía Dögg, fædd 1980.
Hallgrímur kvæntist Valgerði
Hebu Valgeirsdóttur árið 1975,
þau skildu. Dætur Hallgríms og
Valgerðar eru:
a) Hildur Rós, fædd 19. sept-
síðar í Hallgrímshúsi ásamt Val-
gerði, fyrrverandi eiginkonu
sinni, og dætrum þeirra. Hann bjó
einnig um tíma í Reykjavík og ná-
grenni uns hann flutti norður í
land og settist að í Torfufelli II í
Eyjafjarðarsveit þar sem hann bjó
á árunum 1999-2013. Í Torfufelli
bjuggu þau Hallgrímur, Irina og
Torfhildur, móðir hans, sér fallegt
heimili. Torfhildur naut umönn-
unar þeirra Hallgríms og Irinu til
andláts hennar 2002.
Hallgrímur var mikill náttúru-
unnandi sem hafði bæði ástríðu og
metnað fyrir fegrun umhverfis
síns og fórst honum það einkar vel
úr hendi. Þessa má sjá glögg
merki í öllu umhverfi Torfufells í
dag.
Hallgrímur hafði unun af ferða-
lögum, hvort sem um ræddi ferða-
lög heima eða erlendis. Hann
hafði mikið dálæti á útivist og
göngu og var stofnmeðlimur í
gönguhópi. Hallgrímur hafði auk
þess áhuga á íþróttum. Hann
fylgdist með fótbolta og var góður
badmintonspilari á yngri árum.
Þegar Hallgrímur veiktist var
hann búsettur í Kristnesi þar sem
systur hans Ingibjörg og Rósa
Þóra veittu honum umönnun um
tíma í veikindum hans. Síðar flutt-
ist Hallgrímur á Droplaugarstaði
þar sem hann lést.
Útförin hefur farið fram í kyrr-
þey.
ember 1972, lögfræð-
ingur, sambýlis-
maður Jason Brady,
fæddur 20. nóvember
1973, endurskoðandi.
Dóttir Hildar er:
Birta ljósmóðurnemi,
fædd 6. febrúar 1993,
maki Styrkár Halls-
son sálfræðingur,
fæddur 11. maí 1992.
Dætur Birtu og
Styrkárs eru Salka
Björt, fædd 2016, og Sóllilja, fædd
2021.
b) Heba Björg, fædd 15. nóvem-
ber 1975, atvinnurekandi.
Sambýliskona Hallgríms frá
árinu 1999 til 2010 var Irina Tros-
kova, þau slitu samvistir. Dóttir
Irinu er Lína, fædd 1977.
Hallgrímur stundaði nám við
Stýrimannaskólann í Reykjavík og
útskrifaðist þaðan árið 1979. Hann
stundaði sjómennsku, bæði fiskaði
og sigldi um heimsins höf í fjölda-
mörg ár.
Hallgrímur var búsettur á Eski-
firði sem barn og ungur maður.
Fyrst bjó hann á símstöðinni ásamt
foreldrum sínum og systrum og
Elsku Halli bróðir minn. Nú
hefur þú lagt upp í þína síðustu
sjóferð og festar verið leystar í
síðasta sinn. Hún var dásamleg
kveðjustundin sem stelpurnar
þínar skipulögðu fyrir þig og í
þínum anda. Það eru blendnar til-
finningar sem bærast með mér
við að kveðja þig. Ég sakna þess
sem var og sakna þess sem hefði
getað orðið. Mér þótti svo und-
urvænt um þig og trúi að í hjarta
þínu hafir þú alltaf vitað það.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Góða ferð elsku bróðir.
Jóhanna.
Nú blánar við sjónarrönd
fyrir svefneyjum.
Hann leggur árar í kjöl
og hafstraumurinn vaggar
og vaggar hægt og rótt
bátnum þangað
í beina stefnu.
(Hannes Pétursson)
Sofðu vært elsku Halli.
Valgerður (Vala).
Ég kynntist Halla frænda mín-
um fyrir um það bil þrjátíu árum;
glaðbeittur nýbakaður togara-
skipstjóri og spígsporaði um ver-
lega útskeifur, en sá var háttur
hans þegar hann var ánægður
með sinn hlut. Blankur náms-
maðurinn fékk pláss hjá honum
nokkra sumarparta sökum
frændsemi. Við sigldum víða; í
kringum landið, norður í Smug-
una hvar við áttumst við norsku
landhelgisgæsluna, á Grænlands-
mið og til Nýfundnalands. Víst er
að reynslan var ómetanleg; lífið
um borð var gott, vinnan karl-
mannleg, mannskapurinn hetjur.
Höfuðskepnurnar líða ekki úr
minni, hvort heldur þær voru
öskrandi í sínum versta ham eða
malandi í friðsemd, spegilsléttur
sjór.
Einn túrinn vorum við búnir
að vera lengi í veltingi og lélegu
fiskiríi. Áhöfninni var tekið að
leiðast iðjuleysið og einhverjir
plötuðu mig, þar sem ég var nú
frændi skipstjórans, til að fara
upp í brú og spyrja hvort ekki
styttist í að við sigldum í land.
Úr varð hin mesta sneypuför.
Frændi sagðist ekkert skilja í að
ég léti hafa mig í svona sendiferð
og til hvers ég væri að munstra
mig á sjó ef ég vildi svo strax
fara í land, og ekki búið að fylla
skipið. Þetta var mikil lexía, sem
ég hef búið að síðan.
Úti á óravíddum hafsins, einn í
brúnni; þar leið Halla best. Hann
fór vel með sín skip, var fiskinn
og naut virðingar áhafnarinnar,
en hann var ekki við allra skap.
Hvort það var þess vegna sem
hann kaus starfann eða hvort
hann varð einrænn af því að vera
skipstjóri veit ég ekki. Hitt veit
ég að hann var manna ræktar-
samastur við þá sem áttu upp á
pallborðið hjá honum. Hann
munaði ekkert um að aka lands-
hluta á milli til að aðstoða menn í
framkvæmdum, og þá gengu sko
hlutirnir. En hann kom ekki upp
á önnur bítti en að gera hlutina
vel og þá kvöð urðu þeir sem að-
stoðina þáðu að undirgangast
undanbragðalaust.
Svo var það einn daginn að ég
frétti af því að Halli væri kominn
suður í rannsóknir, hann gat ekki
lengur lyft handleggjunum, var
kominn með hinn hræðilega
MND lömunarsjúkdóm. Þegar
hann var nær algjörlega orðinn
lamaður var hann fluttur að
Droplaugarstöðum í Reykjavík,
þar sem hann fékk alla þá bestu
aðhlynningu sem hugsast getur.
Þangað vandi ég komur mínar,
fyrst stopult og oftast með pabba
mínum sem heimsótti Halla oft í
viku. Það var alltaf gaman hjá
okkur, mikið hlegið og þjóð-
félagsmálin rædd ofan í kjölinn
og við horfðum mikið á fótbolta.
Þegar pabbi veiktist og gat
ekki lengur vísiterað, tók ég við
keflinu og heimsótti Halla þegar
ég gat og sótti til hans styrk á
erfiðum tíma. Að pabba gengn-
um fjölgaði heimsóknunum; í
þeim var hughreysting og ég
hafði gagn og ánægju af félaginu
við hann. Ég vona að það hafi
verið gagnkvæmt. Hann var mik-
ill höfðingi og bauð mér mat og
drykk ef ég kom á matmálstím-
um. Ekkert var skorið við nögl.
Það var mér mikið áfall þegar
hann sagði mér fyrir rúmum
mánuði að nú styttist í endalokin
hjá honum; en, hann ætlaði ekki
að deyja, svo var ljúflingurinn
þver. Jafnvel þótt hann þyrfti að
liggja bjargarlaus alla tíð, vildi
hann samt lifa.
Guð blessi minningu Hall-
gríms Hallgrímssonar
Orri.
Hallgrímur
Hallgrímsson
Kveðja frá sam-
starfsmönnum
við Iðnskólann
í Reykjavík
Kær félagi, góður vinur og
mikilvirkur samstarfsmaður,
Magnús Ingi Ingvarsson, féll frá í
lok ágúst síðastliðins eftir lang-
varandi veikindi sem hann tókst á
við með aðdáunarverðri hugarró
og æðruleysi.
Þegar Magnús Ingi réðst til
kennslustarfa við Iðnskólann í
Reykjavík árið 1976 var hann
meðal reyndustu byggingafræð-
inga landsins. Hann starfaði sem
húsasmiður í nokkur ár að loknu
sveinsprófi sem hann lauk árið
1955. Hann fékk síðan meistara-
réttindi og byggingarleyfi árið
1958. Nokkru síðar fór hann til
frekara náms og varð bygging-
arfræðingur frá Byggeteknisk
höjskole í Kaupmannahöfn árið
1963. Að því námi loknu réðst
hann til Húsnæðismálastofnunar
ríkisins og starfaði þar til ársins
1976, lengst af sem deildarstjóri.
Hann var virkur og vel metinn
þátttakandi í fjölmörgum nefnd-
um og ráðum á bygginga- og
mannvirkjasviðinu.
Það var því sannarlega happa-
fengur fyrir Iðnskólann í Reykja-
vík og kennaraliðið þar að fá slík-
an samstarfsmann en skólinn var
þá í örum vexti og nýjar deildir
settar á fót nær árlega. Samhliða
kennslunni ýmist samdi hann eða
þýddi fjölmargar kennslubækur
á byggingasviði sem full þörf var
á. Kennslugreinar hans voru
fyrst og fremst húsateikningar
iðnaðarmanna og tækniteiknara.
Hann var vinsæll og mjög hæfur
kennari sem náði vel til nemenda
sinna enda einstakt ljúfmenni
með yfirburðaþekkingu á flestum
Magnús Ingi
Ingvarsson
✝
Magnús Ingi
Ingvarsson
fæddist 29. júlí
1934. Hann lést 26.
ágúst 2021.
Útför Magnúsar
Inga fór fram 8.
september 2021.
sviðum mannvirkja-
gerðar.
Það var því engin
tilviljun að leitað var
til hans þegar þörf
var á aðstoðarskóla-
stjóra. Magnús Ingi
var maður sem hafði
fullt traust bæði
skólayfirvalda og
starfsmanna. Hann
tók að sér starfið
tímabundið á árun-
um 1979 til 1980 en hafði í raun
ekki áhuga á starfsframa við
skólastjórnun. Áhugasvið hans
og ástríða voru hönnun og miðlun
þekkingar; það er húsa- og mann-
virkjateiknun og kennsla á því
sviði. Hann styrkti sig enn frekar
í kennarastarfinu með því að
ljúka tveggja ára kennslurétt-
indanámi árið 1982 samhliða
fullri vinnu.
Það er óhætt að segja að
Magnús Ingi hafi ekki verið ein-
hamur maður. Á níunda áratug
síðustu aldar stofnaði hann öfl-
uga teiknistofu með nokkrum
samkennurum sínum. Hann
fylgdist því vel með nýjungum í
sínu fagi og kennslugreinum,
bæði tæknilegum og faglegum,
og miðlaði því jafnharðan til nem-
enda sinna. Hann leit reyndar á
teiknistofustarfið að hluta til sem
hagnýta símenntun. Það er óþarfi
að taka það fram að þessi störf
komu á engan hátt niður á vinnu-
framlagi hans til skólans. Síðustu
starfsárin rak hann arkitekta-
stofu í samstarfi við Guðjón son
sinn. Án efa hefur þátttaka hans í
þessum fyrirtækjarekstri verið
mikilvæg fyrir teiknistofurnar
því orðstír, þekking, reynsla og
tengslanet skipta sköpum í slíku
starfi.
Við samstarfsmenn hans og
vinir við Iðnskólann í Reykjavík
kveðjum Magnús Inga með þakk-
læti fyrir vináttuna og samstarf-
ið. Góður drengur er fallinn frá
en orðstír hans lifir. Við sendum
Aðalheiði konu hans, börnum
þeirra og fjölskyldunni allri okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Frímann I. Helgason.
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
hluttekningu og hlýhug vegna andláts
ástkærrar systur okkar, mágkonu
og frænku,
ÞÓRU GUÐNADÓTTUR,
áður til heimilis í Sólheimum 25.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Minni-Grundar, sem
annaðist hana af einstakri alúð og umhyggju.
Gerður Guðnadóttir
Bjarni Guðnason
Jónína M. Guðnadóttir Sveinn Snæland
og frændsystkin
Sigurlaug Gunn-
arsdóttir fæddist 28.
ágúst 1962 og lést í
faðmi fjölskyldu sinnar eftir
stranga baráttu við krabbamein 8.
október 2021. Hún giftist yngsta
bróður mínum, Hafsteini, og varð
þeim þriggja barna auðið. Þau eru
Davíð, búsettur í Danmörku, Ásta
Rakel, búsett í Kaliforníu ásamt
sinni fjölskyldu og Sara. Davíð á
Júlíu Björk og Ellie Sigurlaugu.
Ásta Rakel á Dag, Karen Evu og
Jón Hafstein.
Sigurlaug var alla tíð fyrirmynd-
arhúsmóðir og einstaklega ástrík
móðir sem var stolt af ungunum sín-
um. Og eftir að barnabörnin komu í
heiminn lagði hún kapp á að reynast
þeim vel og dekra við þau eins og
ömmur einar geta. Þau voru öll af-
skaplega hænd að Sillu ömmu sinni
Sigurlaug
Gunnarsdóttir
✝
Sigurlaug
Gunnarsdóttir
fæddist 28. ágúst
1962. Hún lést 8.
október 2021.
Útför Sig-
urlaugar fór fram
19. október 2021.
og henni þótti afar
vænt um þau öll.
Öll fjölskyldan hélt
hunda og voru þeir
hundar ávallt taldir
með sem hluti af fjöl-
skyldunni.
Hún bjó ásamt
manni sínum í Hafn-
arfirði nánast öll sín
fullorðinsár og
byggðu þau sér fal-
legt heimili sem var gott heim að
sækja. Skiptumst við á að halda
matarboð og var alltaf klassískur
ljúffengur íslenskur matur á borð-
um hjá þeim hjónum Hadda og
Sillu.
Hún var flink í höndunum og síð-
ustu árin lagði hún mikla áherslu á
heilsurækt, m.a. hljóp hún maraþon
og stundaði útivist ýmiss konar.
Hún naut þess að ferðast en gafst
því miður ekki tækifæri til að stunda
það eftir að veikindin dundu yfir.
Við vottum ástvinum Sillu okkar
dýpstu samúð og blessuð sé minning
hennar.
Sæmundur Haraldsson
og Sigurbjörg Andreu
Sæmundsdóttir.