Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 58

Morgunblaðið - 28.10.2021, Síða 58
Fjármála- og skrifstofustjóri Blönduósbær auglýsir lausa til umsóknar stöðu fjármála- og skrifstofustjóra. Viðkomandi heyrir beint undir sveitarstjóra og er staðgengill hans. Um er að ræða áhugavert atvinnutækifæri í vaxandi umhverfi fyrir einstakling sem býr yfir leiðtogahæfileikum, frumkvæði og góðum samskiptahæfileikum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er æskileg. • Mjög góð þekking á reikningshaldi, uppgjörum og áætlanagerð. • Leiðtogafærni, frumkvæði og skipulagshæfileikar. • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum. • Reynsla af opinberri stjórnsýslu, helst af vettvangi sveitarfélaga. • Mjög góð tölvukunnátta. Þekking á Navision er kostur. • Samviskusemi og nákvæmni ásamt góðri hæfni í íslensku í ræðu og riti. • Yfirmaður fjármála með ábyrgð á umsýslu fjármála og bókhalds. • Fagleg forysta og daglegur rekstur skrifstofu sveitarfélagsins. • Ábyrgð á gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana ásamt eftirliti með framgangi þeirra. • Ábyrgð á vinnu við ársreikninga. • Umsjón með úttektum, frávikagreiningum og kostnaðareftirliti. • Staðgengill sveitarstjóra ásamt aðstoð við samninga og önnur fjármálatengd verkefni. • Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun á sviði fjármála. Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni og ábyrgð: Blönduósbær er fallegur bær á Norðurlandi vestra og eru íbúar um 950 talsins. Samfélagið er fjölskylduvænt, með hátt þjónustustig við íbúa og metnaðarfullt starf í leik-, grunn- og tónlistarskólastarfi ásamt því að rekin er dreifnámsdeild frá Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Aðstaða til íþróttaiðkunar er mjög góð og er mikið framboð af menningar-, íþrótta- og tómstundastarfi á svæðinu auk möguleika til útivistar af ýmsu tagi. Hafnar eru formlegar viðræður um sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps sem getur skapað tækifæri til eflingar starfsins strax á næsta ári enda hefur verið töluverð uppbygging á undanförnum árum. Nánari upplýsingar um Blönduósbæ má finna á: www.blonduos.is. Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐGJÖF RÁÐNINGAR RANNSÓKNIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.