Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 67
DÆGRADVÖL 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021
„HVER PANTAÐI SKYNDIBITA?“ „NENNIRÐU AÐ SKRIFA „TIL HAMINGJU
MEÐ AFMÆLIГ Á HANA FYRIR MIG?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bíða spennt eftir
kúlubúanum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HEYRÐU!
ÉG VAR AÐ
ÞRÍFA!
ÉG FÆ VASAPENINGA HJÁ
MANNINUM MÍNUM! EN GAMAN!
ÉG VEIT! ÞAÐ ER EINSOG MÉR SÉ BORGAÐ
FYRIR AÐ SKIPULEGGJA MINN EIGIN FLÓTTA!
búið á Sléttuvegi í einu af húsum
Samtaka aldraðra og gegnt þar for-
mannsstörfum í húsfélaginu.
Fjölskylda
Eiginkona Sveinbjörns var Guð-
laug Einarsdóttir bókari, f. 7.1. 1936,
d. 28.11. 2008. Þau bjuggu í Reykja-
vík og Kópavogi. Foreldrar Guð-
laugar voru hjónin Einar Jónsson, f.
31.8. 1902, d. 22.2. 1957, bifvélavirki
og Kristín Pálsdóttir, f. 31.5. 1903, d.
23.12. 1983, húsmóðir.
Börn Sveinbjörns og Guðlaugar: 1)
Droplaug, f. 8.7. 1957; d. 13.9. 1993,
tannlæknir í Reykjavík. Maki: Þor-
valdur Bragason, f. 2.8. 1956, land-
fræðingur. Barn þeirra: Birna, f. 2.8.
1989, sameindalíffræðingur. Þorvald-
ur kvæntist 29.12. 1999 Guðrúnu Jó-
hannsdóttur kennara, f. 11.1. 1957.
Sonur þeirra er Bragi, f. 5.11. 2002. 2)
Einar Örn, f. 19.5. 1964, prófessor í
Reykjavík. Maki: Guðrún Karls
Helgudóttir, f. 27.4. 1969, prestur.
Sonur þeirra er Ísak Helgi, f. 13.3.
2007. Dóttir Guðrúnar er Hólmfríður
Frostadóttir, f. 5.4. 1992; 3) Björn
Már, f. 17.3. 1969, d. 10.2. 2018, tækni-
fræðingur í Reykjavík.
Systkini Sveinbjörns: Hólmfríður
Björnsdóttir, f. 16.3. 1934, d. 16.5.
2011, skrifstofumaður í Reykjavík;
Sigfús Björnsson, f. 25.3. 1938, pró-
fessor, býr í Reykjavík; Helgi Björns-
son, f. 6.12. 1942, rannsóknar-
prófessor, býr í Reykjavík; Ólafur
Grímur Björnsson, f. 6.1. 1944, læknir
og sagnfræðingur, býr í Reykjavík,
Hörður Björnsson, f. 5.5. 1948, tölvu-
teiknari, býr á sérbýli fatlaðra á Sel-
fossi.
Foreldrar Sveinbjörns voru hjónin
Björn Sigfússon, f. 17.1. 1905, d. 10.5.
1991, háskólabókavörður í Reykjavík,
og Droplaug Sveinbjarnardóttir, f.
28.5. 1912, d. 20.7. 1945, húsmóðir í
Reykjavík.
Sveinbjörn
Björnsson
Margrét Bjarnadóttir
húsfr. f. í Haga á Mýrum
Jón Ólafsson
b. í Laxárholti á Mýrum og víðar
Jóhanna Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja í Viðvík
Sveinbjörn Guðmundsson
b. og smiður í Viðvík í Helgafellssveit
Droplaug Sveinbjarnardóttir
húsmóðir í Reykjavík
Kristín Jóhannesdóttir
húsfr. f. í Hraunsfirði í
Helgafellssveit
Guðmundur Ólafsson
b. í Jónsnesi í Helgafellssveit
Hólmfríður Þorsteinsdóttir
húsfr. f. í Miðfirði á Langanesströnd
Halldór Sigurðsson
b. á Kálfaströnd við Mývatn
Halldóra Halldórsdóttir
húsfreyja á Kraunastöðum
Sigfús Bjarnarson
b. og hreppstjóri á Kraunastöðum í Aðaldal
Hólmfríður Pétursdóttir
húsfr. f. í Reykjahlíð, af
Reykjahlíðarætt
Björn Magnússon
b. og smiður á Granastöðum í Köldukinn,
af Grenjaðarstaðaætt
Ætt Sveinbjörns Björnssonar
Björn Sigfússon
háskólabókavörður í Reykjavík
Limra eftir Kristján Karlsson:
Af ástæðum ótilgreindum,
ef til vill flóknum leyndum,
hann gat ekki pissað,
sem gjörði oss svo hissa að
vér gátum ei heldur sem reyndum.
Hér er fuglalimra eftir Pál Jón-
asson í Hlíð og nefnist „Listahátíð“:
Þá var menning á Múkkabar
og mörgæsir fögnuðu þar,
því Gargöndin söng
með Gauki á Stöng,
en Súlan á súlunni var.
Og áfram um Múkkaraunir á
Múkkabar:
Við fyrsta glas flissaði og hló,
við fimmta glas vængjunum sló,
það áttunda tók
en það ógleði jók,
svo hann ældi eins og múkki, – og dó.
(og sagði ekki múkk).
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir á
Boðnarmiði:·
Klæki var kerlingin þyrst í
og útsmogin lagði hún list í
glæpi og pretti
með glottandi smetti
og kallaðist Agatha Christie.
Kári Erik Halldórsson „segir nú
bara si svona“:
Ef limrusmíð legð’í minn vana,
svo lipurt ég meitlaði hana,
að Friðbergur afi
félli í stafi
og fengi sér kaldan af krana.
Sigtryggur Jónsson yrkir:
Einhvers staðar inn til dala,
einn er bóndi fé að smala.
Við tjörn þar hjá,
í taumlausri þrá,
tófur sínum fýsnum svala.
Kristján H. Theódórsson kveður
Sokka:
Fjögur ár þann færleik sat,
á flengreið, aldrei dettinn.
Svo viljugur í Valhöll gat,
vísað endasprettinn.
Mér síður hugnast Sokki minn,
hve sár þér verður leikur.
En þar mér bjóðast betri skinn,
og bakherbergjareykur.
Þormóður í Gvendareyjum var
haldinn kraftaskáld. Oddur lög-
maður Sigurðsson reiddist eitt sinn
Þormóði vegna vísu, sem Þormóður
kastaði fram við hann, og sló hann
kinnhest. Þá er sagt að Þormóður
kvæði vísu þessa:
Hér er sigin hurð að gátt;
hittir loku kengur.
Kjaftshögg hefur enginn átt
ári hjá mér lengur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Listahátíð á Múkkabar
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is
LÉTTU
ÞÉR LÍFIÐ
Fagfólk STOÐAR veitir nánari
upplýsingar og ráðgjöf.
Sturtustólar og kollar í
miklu úrvali með og án
snúningsdisks.
Einfaldir í notkun, eru
með hæðarstillanlegum
og stöðugum fótum.
Verð frá: 9.350,-