Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Qupperneq 8
VIÐTAL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.10. 2021 Þ að er við hæfi að það sé stjörnu- bjart þegar Daniel Leeb tekur á móti blaðamanni á Kjarvals- stofunni í Austurstræti. Hann biður um að vera ávarp- aður Daniel að íslenskum sið en hann hefur skotið hér rótum og eignast íslenska fjölskyldu. Daniel hefur sterka nærveru hugsjóna- mannsins og það leynir sér ekki að hann brennur fyrir geimferðum. Sannfæring hans er að Ísland geti lagt mikilvægt lóð á vogar- skálar rannsókna vegna komandi tunglferða og haft af því margvíslegan ávinning. Geimferðir eru aftur í umræðunni og er það ekki síst að þakka auðmönnunum Elon Musk og Jeff Bezos, tveimur ríkustu mönnum heims samkvæmt auðmannalista Forbes, en eigur þeirra eru metnar á samanlagt 400 milljarða dala eða tæplega 52 þúsund milljarða króna. Innkoma þeirra í geimferðaheiminn er ekki óumdeild en aðdragandi hennar skýrist meðal annars af þeirri ákvörðun Baracks Obama, þá- verandi Bandaríkjaforseta, árið 2011 að fella niður Stjörnumerkjaáætlunina, sem leysa átti Geimskutluna af hólmi, og draga úr útgjöldum til geimferða eftir fjármálakreppuna 2008 í þeirri von að einkageirinn brúaði bilið. Síðan hafa þeir Musk og Bezos byggt upp fyrirtæki sín SpaceX og Blue Origin og náð árangri í þróun endurnýtanlegra geimflauga. Ber þar ef til vill hæst að Musk skuli hafa flutt bandaríska geimfara til Alþjóðlegu geim- stöðvarinnar með Fálkaflaug en það var fyrsta slíka ferðin með einkafyrirtæki í sögunni. Þá hefur Musk haft betur í kapphlaupi við Bezos um þróun ferju fyrir NASA sem mun flytja birgðir í tunglgáttina á braut um tunglið. Ný gullöld í geimferðum Þegar við setjumst niður í vinnuherbergi með útsýni yfir Austurvöll segist Daniel sann- færður um að í vændum sé ný gullöld í geim- ferðum. Fyrir 60 árum hafi John F. Kennedy Bandaríkjaforseti sett stefnuna á mannaðan leiðangur til tunglsins fyrir lok áratugarins. Með samstilltu átaki bandarísku þjóðarinnar hafi það markmið náðst árið 1969 og hafi það á alla mælikvarða verið mikið afrek. Nú sé komið að því að endurtaka leikinn með nýrri tækni og varanlegri dvöl manna á tunglinu. Til upprifjunar fór Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, í níu mannaða leið- angra með Apollo-geimferjum á árunum 1968 til 1972 og voru þeir Neil Armstrong og Buzz Aldrin fyrstir manna á tunglið í leiðangri Apollo 11 – stigu þar fæti 20. júlí 1969. Síðan fóru tíu aðrir geimfarar NASA á tunglið, þeir síðustu með leiðangri Apollo 17 árið 1972. Síðan hefur maðurinn ekki komið á tunglið. Árið 2015 lýsti NASA yfir því langtíma- markmiði að senda geimfara til Mars en fyrst skyldi stofnunin snúa aftur til tunglsins. Með Artemis-áætluninni stendur til að hefja tunglferðir á ný og hefur NASA sett markið á að fyrstu geimfararnir komi á tunglið 2024. Það eru ekki nýjar upplýsingar og telur Daniel raunhæfara að miða við síðari hluta þessa áratugar. Artemis var tvíburasystir Apollo í grískri goðafræði og er því táknrænt að með Artemis-áætluninni eigi sem áður segir að flytja fyrstu konuna til tunglsins. Hófu geimrannsóknir á Íslandi En hvers vegna erum við að ræða þessa hluti á reykvísku kaffihúsi, sex þúsund kílómetra frá Canaveralhöfða á Flórída, þaðan sem Apollo- geimfararnir hófu ferð sína? Hvaðan kom hug- myndin að Geimvísindastofnun Íslands? Daniel, sem ólst upp í Brooklyn og lagði stund á listnám við Rhode Island School of Design, útskýrir að hann hafi starfað við kvik- myndagerð fyrir framleiðslufyrirtæki í New York að verkefnum um heim allan, gjarnan við erfiðar aðstæður, þegar leiðin lá til Íslands og honum bauðst að starfa hjá Valhalla Tours við ferðaleiðsögn og markaðssetningu. Kynntist hann þá Gunnari Guðjónssyni leiðsögumanni og samstarfsmönnum hans og úr varð að þeir skipulögðu rannsóknarferðir. Þá meðal annars fyrir Evrópsku geimferðastofnunina, ESA, sem sýndi því áhuga að rannsaka hraunhella og undirbúa þannig geimferðir framtíðar. „Hraunhellar eru mikilvægir í geimrann- sóknum en slíkir hellar á tunglinu og Mars gætu varið geimfara fyrir geimgeislum og sól- stormum,“ segir Daniel. Fleiri sýndu Íslandi áhuga í þessu efni og á vegum Herbert Enns, prófessors í arkitektúr við Manitoba-háskóla í Kanada, komu hingað meistaranemar í arki- tektúr sem unnu að hugmyndum um uppbygg- ingu innviða fyrir geimferðir á Íslandi út frá þeirri forsendu að Íslendingar hefðu úr sömu fjármunum að spila og NASA. „Samtímis viðræðum okkar við Evrópsku geimferðastofnunina hófum við samtal við vís- indamenn hjá NASA sem leiddi til samstarfs um rannsóknaleiðangra á Íslandi. Þurftu alltaf að byrja upp á nýtt Það kom í ljós að í sérhvert sinn sem vísinda- mennirnir vildu koma til Íslands þurftu þeir að byrja upp á nýtt og spyrja sig við hvern þeir ættu að ráðfæra sig við,“ segir Daniel. Fulltrúar NASA og Bandaríkjastjórnar hafi sýnt því áhuga að stunda rannsóknir á Íslandi í þágu geimmála en rekið sig á að hér var eng- inn opinber tengiliður, engin stofnun, eða embætti, sem var til svara um geimferðir. Til að gera langa sögu stutta stofnaði hann ásamt Gunnari Guðjónssyni Geimvísinda- stofnun Íslands árið 2017 til að halda utan um þetta samstarf við erlenda aðila um geimrann- sóknir á Íslandi. Þeim til ráðgjafar var Ari Kristinn Jónsson, fyrrverandi rektor Háskól- ans í Reykjavík og sérfræðingur í gervigreind, en hann starfaði um árabil hjá NASA. Daniel rifjar upp fund um mögulega aðild Íslands að Evrópsku geimferðastofnuninni sem haldinn var í utanríkisráðuneytinu árið 2019. Þá hafi fulltrúi Evrópsku geimferða- stofnunarinnar og fleiri fundarmenn sýnt hug- myndunum áhuga en lítið gerst í kjölfarið. Ástæðan hafi ekki síst verið skortur á um- gjörð utan um geimrannsóknir á Íslandi. „Ég held að hluti vandans sé að Ísland hefur Daniel Leeb, einn stofnenda Geimvísindastofnunar Íslands, segir nýju tungláætlunina skapa tækifæri fyrir Ísland. Morgunblaðið/Árni Sæberg Aftur út í geim Ísland skipar sess í geimferðasögunni. Hér bjuggu geimfarar sig undir tunglgöngur og hér hafa vísindamenn NASA rannsakað jarðveg vegna komandi tunglferða. Eldhugi frá Brooklyn telur kominn tíma á geimferðastefnu á Íslandi. Tækifærin séu mikil. Baldur Arnarson baldura@mbl.is ’ Fulltrúar NASA og bandaríska utanríkis- ráðuneytisins telja, líkt og við, að Ísland geti gegnt mikilvægu strategísku hlutverki í geim- rannsóknum í framtíðinni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.