Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Side 15
Þjóðleikhúsið/Óli Páll Kristbjörg er hér ung í hlutverki Önnu Frank, en Valur Gíslason lék föðurinn. Þjóðleikhúsið/Vignir Kristbjörg lék á móti Erlingi Gíslasyni í Þrettándakvöldi í Þjóðleikhúsinu árið 1967. Ljósmynd/Þjóðleikhúsið „Mig langar enn að verða betri og betri. Það er það sem gefur þessu gildi. Ég fæ ekk- ert leiða á þessu, þó það komi tímabil sem maður er þreyttur. En ég fæ ekki leiða á þessu.“ En þegar þú þarft að standa á sviði og leika í leiðinlegu leikriti sextíu sinnum? „Leiðinleg leikrit eru ekki sýnd sextíu sinn- um,“ segir hún og skellihlær. „Svo eru engar tvær sýningar eins; þær eru alltaf misjafnar. Maður er auðvitað misvel stemmdur en þarf stundum að gíra sig upp, hvað sem tautar og raular. Svo fer maður inn í annan heim.“ Árið 2005 þegar Kristbjörg var sjötug hætti hún á samningi hjá Þjóðleikhúsinu og þá fór að rigna inn tilboðum, bæði frá Borgarleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu og kvikmyndum. „Þá fór ég í fyrsta sinn í Borgarleikhúsið, en ég lék aldrei í Iðnó.“ Gaman að láta hlæja að sér Við færum okkur til nútímans, þar sem Krist- björg vill helst dvelja, en þessa dagana leikur hún í Er ég mamma mín á Nýja sviði Borgar- leikhússins. „Það hefur gengið mjög vel en við höfum þurft að stoppa svo oft vegna Covid. Það má segja að við séum búin að frumsýna fjórum sinnum. En nú vonum við að fá að sýna áfram. Ég leik þar konu á níræðisaldri. Hún er bara helvíti hress og það er mjög skemmti- legt að leika hana. Það er gaman að láta hlæja að sér því ég hef oft leikið alvarlegri hlutverk,“ segir hún og segir ýmislegt fleira vera á döfinni. Í janúar 2022 verður frumsýnt í Borg- arleikhúsinu verkið Ein komst undan, skrifað fyrir fjórar eldri leikkonur af breska leik- skáldinu Caryl Churchill. Þar er sögð saga kvenna sem hafa staðið af sér áföll og árekstra. Þær eru ekki af verri endanum leik- konurnar sem fara með þessi hlutverk, en með Kristbjörgu leika þær Edda Björgvins- dóttir, Guðrún Ásmundsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir, en verkið er í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. „Ég veit ekki hvernig ég á að flokka það leikrit, það má segja að það sé torrætt. Ég skildi ekki baun í þessu fyrst þegar ég las það en svo setur maður sinn skilning í verkið,“ seg- ir Kristbjörg. „Við erum þarna þrjár á níræðisaldri og Edda er táningurinn. Við höfum haft samlestur og byrjum æfingar í næstu viku. Leikritið er um konur sem koma saman í tedrykkju nokkur síð- degi,“ segir Kristbjörg og gefur ekki meira upp. „Það er gaman að þessu, þetta er órætt og spennandi. Það er líka órætt hvað við tölum um.“ Þannig að áhorfandinn kemur út eitt stórt spurningarmerki? Kristbjörg brosir. „Kannski. En ábyggilega finnst honum gaman.“ Held áfram á meðan ég get Það er ekki nóg fyrir leikkonu á níræðsaldri að leika í einu leikriti í einu, því eftir áramót mun Kristbjörg einnig leika í verki í Þjóðleikhúsinu. „Það heitir Sjö ævintýri um skömm eftir Tyrfing Tyrfingsson og verður frumsýnt ein- hvern tímann á næsta ári. Það er líka mjög spennandi verk. Þar leik ég Kanamellu úr Njarðvíkunum,“ segir hún og hlær dátt. Nú hefur oft verið rætt um að ekki séu skrif- uð nógu mörg hlutverk fyrir konur og hvað þá eldri konur. En þú virðist hafa nóg að gera? „Já, það hefur nú hist þannig á. Nú í seinni tíð er meira skrifað fyrir konur og líka eldri konur. Það endurspeglar samfélagið, nú eru konur gjaldgengar í öll störf.“ Þegar þú varst fimmtán ára að leika í Aum- ingja Hönnu, hefði þig varla grunað að þú yrð- ir enn að leika 86 ára? „Nei! Guð hjálpi mér, og ekki grunað að ég myndi leggja þetta fyrir mig. Þetta hefur verið dásamlegt ævistarf og ég hef fengið margar viðurkenningar í gegnum tíðina, Eddur og Grímur. Ég fékk einmitt Grímuna fyrir ævi- starfið og það þótti mér mjög vænt um.“ Ætlarðu að halda áfram að leika á meðan þú stendur í lappirnar? „Já, á meðan það er eftirspurn eftir mér og mér finnst ég geta það. Á meðan ég get þetta er gaman.“ Morgunblaðið/Ásdís Kristbjörgu þótti ákaflega gaman að leika í Mýrarljósi með sonardóttur sinni Krist- björgu Maríu árið 2005. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Stilla úr kvikmyndinni 79 af stöðinni þar sem Kristbjörg lék á móti Gunnari Eyjólfssyni. Kristbjörg lék í Forsetaefninu eft- ir mann sinn Guðmund Steins- son sem sýnt var árið 1964. Með henni á sviðinu eru Gísli Al- freðsson og Gunnar Eyjólfsson. 17.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.