Morgunblaðið - 04.11.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 04.11.2021, Síða 1
F I M M T U D A G U R 4. N Ó V E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 259. tölublað . 109. árgangur . Kóresk BBQ sósa Kimchi Mæjó og Kore - 250 ml 639KR/STK ÁÐUR: 799 KR/STK Lambahryggur 2.239KR/KG ÁÐUR: 3.199 KR/KG Heill, frosinn Döðluplómur 349KR/KG ÁÐUR: 499 KR/KG 30% AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR 30% AFSLÁTTUR TILBOÐ GILDA 4.--7. NÓVEMBER FRÁBÆR TILBOÐ Í NÆSTU NETTÓ FARA YFIR NJÁLSSÖGU Á HUNDAVAÐI GAF ÞJÓÐINNI VITNESKJU UM LANDIÐ ATVINNUBLAÐ MORGUN- BLAÐSINS MYND AF MANNI 20 FINNA VINNU 8 SÍÐURHUNDUR Í ÓSKILUM 67 _ „Ég vil meina að svona flygill sé bara besta fjárfesting sem þjóðar- búið getur gert. Þetta kostar um 25 milljónir eins og einn ráðherrajeppi en það er bara einn ráðherra sem nýtur hans hverju sinni en flygill- inn í Hörpu hefur glatt milljónir gesta,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari sem heldur þrenna Mozart-tónleika í Hörpu í nóvember þar sem hann vígir nýjan flygil. Líftími flygla af bestu gerð er um 10 ár. Víkingur er annars á stöðugu ferðalagi um allan heim og mun til dæmis spila á um tuttugu tónleikum í janúar. »64 Morgunblaðið/Einar Falur Vígsla Líftími góðra flygla er um 10 ár. Nýr flygill eins og einn ráðherrabíll _ Sala á jólabjór í Vínbúðunum hefst í dag og hefur framboðið aldr- ei verið meira. Að þessu sinni verð- ur hægt að velja úr 108 tegundum en þær voru 88 í fyrra. Þar af eru 76 íslenskir jólabjórar. Alls seldust 1.181 þúsund lítrar af jólabjór í ÁTVR á síðasta sölutímabili en það var 58% aukning frá sama tímabili árið áður. „Þjóðin hefur verið alveg biluð í þetta,“ segir Valgeir Val- geirsson, bruggmeistari hjá RVK bruggfélagi. Hann sendir frá sér Ora jólabjór þetta árið og virðast margir áhugasamir um að smakka bjór sem bragðbættur er með rauð- káli og grænum baunum. »18 Íslenska þjóðin „alveg biluð í þetta“ _ „Ef íslenska ríkið hefur ekki bol- magn til að hlúa sómasamlega að arfleifð Sigurjóns og hugverki mínu, er það siðferðileg skylda þess að skila gjöfinni, eigum mínum og heimili,“ ritar Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns Ólafssonar myndhöggv- ara, m.a. í opnu bréfi til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu í dag. Er hún mjög ósátt við örlög Listasafns Sigur- jóns, sem ríkið fékk að gjöf. »37 Ríkið skili mynd- verkum Sigurjóns Forsætisráðherrar Norðurlandanna sammæltust í gær um þörfina á að auka sameiginlegan neyðar- viðbúnað ríkjanna eftir kórónuveirufaraldurinn. Sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að faraldurinn hefði sýnt bæði styrkleika og veik- leika norræns samstarfs. Jens Stoltenberg, fram- kvæmdastjóri NATO, ávarpaði þing Norður- landaráðs í gær og fagnaði því að varnar- og öryggismál væru nú loks á dagskrá þess. »32 Ljósmynd/Norðurlandaráð Sameiginlegur neyðarviðbúnaður verði aukinn Helgi Bjarnason Ómar Friðriksson Gert er ráð fyrir því að gjaldskrá helstu flokka Sorpu bs. hækki um 31% á næsta ári. Aðalástæðan er sögð aukinn kostnaður við bætta meðhöndlun sorps með starfrækslu gas- og jarðgerðarstöðvarinnar Gaja í Álfsnesi. Samtök iðnaðarins hafa óskað eftir upplýsingum um boðaðar hækkanir og hækkanir sem urðu á gjaldskrá um síðustu áramót. Umrædd 31% gjaldskrárhækkun Sorpu er boðuð í greinargerð fag- sviða og B-hluta fyrirtækja borgar- innar sem fylgir frumvarpi að fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022. Til skýringar er bent á að breytingar hafi verið gerðar á meðhöndlum lífræns úrgangs, meðal annars í gas- og jarðgerðarstöðinni í Álfsnesi. Úrgangur af því tagi sé ekki lengur urðaður. Þá kemur fram að kjarasamningar við Eflingu feli í sér verulegan kostnaðarauka. Þá beri samlaginu skylda, lögum sam- kvæmt, til að innheimta raunveru- legan kostnað sem fellur til við alla meðhöndlun úrgangs. Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlög- fræðingur Samtaka iðnaðarins, rifj- ar upp að miklar hækkanir hafi orðið á einstökum liðum í gjaldskrá Sorpu um síðustu áramót. Dæmi séu um nærri 300% hækkun þá. Hún segir að óskað hafi verið eftir upplýsingum frá Sorpu um breytingar á þeirri gjaldtöku og áformuðum hækkun- um. „Við teljum mikilvægt að gjald- töku fyrirtækja eins og Sorpu og annarra opinberra fyrirtækja og stofnana sé stillt í hóf,“ segir Björg. Sorpa boðar 31% hækkun á gjaldskrá - Samtök iðnaðarins óska eftir upplýsingum um forsendur MÁformaðar hækkanir »4 & 34 Hekla er vara- samt eldfjall vegna þess hvað hún gýs með skömmum fyrir- vara, að mati Páls Einarssonar jarð- eðlisfræðings. Þenslan hefur aukist stöðugt frá síðasta gosi í Heklu árið 2000. Hún veldur aflögun sem er eins og kúla á jarðskorpunni. Kúlan sem nú þenst út við Heklu er um 30 km í þvermál og ekki kröpp. Það gefur vísbendingar um að þrýstingurinn sem veldur þenslunni eigi upptök á 15-20 km dýpi. »4 Hekla er varasöm - Tilbúin í eldgos Hekla Undir kraumar kvika.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.