Morgunblaðið - 04.11.2021, Side 6
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stjórn Formenn stjórnarflokkanna þriggja munu áfram funda þrjú saman.
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra segir stjórnarmyndunarvið-
ræðum vinda vel fram og segir
mögulegt að ríkisstjórn verði mynd-
uð í næstu viku.
„Ég get staðfest það að við erum
komin mjög langt í okkar samtölum.
Búin að fara yfir mjög mörg mál og
vinna texta um ýmis svið. Við eigum
eftir að ljúka nokkrum málum. Ég
get tekið undir það að það gæti séð
til lands í næstu viku,“ sagði Katrín í
samtali við mbl.is í gær.
Ráðherrar og þingmenn eru
margir hverjir á farandsfæti á ráð-
stefnum bæði í Glasgow og Kaup-
mannahöfn.
Katrín setur þó fyrirvara um að
störf undirbúningsnefndar sem fer
fyrir rannsókn kjörbréfa muni hafa
áhrif á hvenær hægt verði að kalla
saman þing.
Þéttur kjarni fundar áfram
Hingað til hafa formenn stjórnar-
flokkanna fyrst og fremst fundað
þrír saman án aðstoðarmanna og
annarra utanaðkomandi. Spurð
hvort þau sjái fram á einhverja
breytingu á því fyrirkomulagi svarar
hún því neitandi:
„Við höfum ekki haft neinar áætl-
anir um það en við höfum trúnaðar-
menn sem við erum í samskiptum við
innan okkar flokka. Það hefur þó
ekkert verið ákveðið um neina út-
víkkun.“
Stjórnarsátt-
máli í augsýn
- Setur fyrirvara vegna rannsóknar
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
N J Á L A
Á H U N D A V A Ð I
Frumsýning
á morgun
Glænýtt verk frá Hundi í óskilum
Tryggðu þér miða á borgarleikhus.is
Morgunblaðið/Ófeigur
Laugardalshöll Uppsetning bún-
aðar fyrir lýsingu gæti dregist enn.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég mun kæra í þessari viku. Ann-
að er ekki hægt. Hvers vegna á
borgin að eyða meiri peningum en
hún þarf,“ segir Páll Halldórsson,
framkvæmdastjóri Metatron ehf.,
um niðurstöðu innkaupa- og fram-
kvæmdaráðs Reykjavíkurborgar.
Ráðið ákvað að nýjasta tilboð
Metatron í uppfestibúnað fyrir lýs-
ingu og viðburðabúnað í Laugar-
dalshöll hefði verið ógilt. Þetta
verður í fjórða sinn sem útboðið er
kært.
Tilboð voru opnuð 11. október.
Lagt var til að gengið yrði að til-
boði frá Atendi ehf. upp á
41.560.112 krónur sem var 97,53%
af kostnaðaráætlun. Tilboð Meta-
tron ehf. var 38.491.657 krónur eða
90,33% af kostnaðaráætlun.
„Ég var búinn að leggja fram öll
gögn sem uppfylltu þeirra óskir í
ferlinu. Þess vegna var mér boðið
að taka þátt í þessu samkeppn-
isútboði. Ég gerði þau mistök að
hengja eina ranga skrá við þegar
ég sendi gögnin inn aftur en áður
var ég búinn að láta þau fá rétt
skjöl,“ segir Páll. Hann segir að
tilboð sitt hafi verið dæmt ógilt
vegna röngu skrárinnar þótt öll
gögnin hafi verið í lagi. „Ég tel að
það sé skylda þeirra að hugsa um
hag kaupandans, að hann fái mun
hagstæðara verð og ekki lakari
vöru. Það eru mín rök í málinu.“
Páll kveðst vera orðinn lang-
þreyttur á þessari vitleysu. Kostn-
aðurinn við ítrekuð útboð er orð-
inn mikill. „Það var búið að veita
mér verkið og taka það af mér. Ég
hef alltaf verið lægstur. Kerfið hjá
borginni er þannig að maður getur
ekki sent inn möppur með rafræn-
um skjölum heldur verður að tína
skrárnar inn hverja fyrir sig. Ég
gerði smávægileg og augljós mis-
tök og virðist hafa verið hent út
vegna þess,“ segir Páll.
Eins og kom fram í frétt í Morg-
unblaðinu 13. ágúst í sumar var
fyrst tekið tilboði Exton ehf. 6.
apríl í vor í búnaðinn þrátt fyrir
að Metatron hefði verið lægst-
bjóðandi. Ástæðan var sögð sú að
Metatron hefði ekki uppfyllt kröf-
ur í útboðsgögnum.
Tilboð Exton var svo fellt úr
gildi 4. maí því við skoðun kom í
ljós að það stóðst ekki heldur
kröfur útboðsgagna. Innkaupa-
og framkvæmdaráð ákvað svo 25.
maí að samþykkja tilboð Meta-
tron sem áður þótti ekki uppfylla
kröfur útboðsgagna.
Nýjasta umferð útboðsins var
svonefnt samningsúboð þar sem
þeir sem voru undir kostnaðar-
áætlun fengu að taka þátt.
Útboðið kært enn einu sinni
- Tilboð Metatron ehf. í uppfestibúnað í Laugardalshöll var dæmt ógilt - Tilboð Metatron var lægst
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Miklar raskanir hafa orðið á
mörkuðum um allan heim vegna
kórónuveirunnar. Dr. Daníel
Svavarsson, forstöðumaður hag-
fræðideildar Landsbankans, segir
að skýringanna sé ekki aðeins að
leita í misgengi á flutningamörk-
uðum eða hægagangi í fram-
leiðslu á ákveðnum sviðum. Stað-
reyndin sé sú að
alheimshagkerfið hafi sjaldan eða
aldrei verið knúið áfram af jafn
miklum móð.
„Það hefur mikið verið talað
um truflanir í framleiðslukeðj-
unni og flutningakeðjum í heim-
inum en raunin er sú að heim-
urinn hefur aldrei framleitt jafn
mikið af dóti og gert er í dag.
Það sama er með flutningakerfin
að aldrei hefur meira verið flutt
milli landa en í dag.“
Daníel, sem er gestur Dagmála
í dag, bendir á að eftirspurn á
grundvelli einkaneyslu hafi auk-
ist um 25% í Bandaríkjunum, um-
fram það sem búist var við miðað
við eðlilegt árferði.
„Yfirleitt víkur eftirspurnin
ekki meira en 1-2% frá því sem al-
mennt gengur og gerist,“ bendir
Daníel á.
Hann segir að þegar eftirspurn
aukist jafn gríðarlega og gerst
hefur í mörgum vöruflokkum
hljóti það að valda misgengi á
markaðnum.
„Það ræður ekkert fyrirtæki
við að auka framleiðslu sína um
25% si svona. Fyrirtæki sem væri
í aðstöðu til þess væri einfaldlega
mjög illa rekið.“
Minni hækkanir fram undan
Spurður út í á hverju fólk þurfi
að hafa augun á komandi mán-
uðum varðandi þróun efnahags-
mála nefnir Daníel fyrst og
fremst verðbólguna. Staðreyndin
sé sú að fasteignaverðið hafi knú-
ið hana áfram á undanförnum
misserum, eftir nokkuð stöðug ár
þar sem verðbólgan hélst innan
vikmarka Seðlabankans.
Landsbankinn spáir því nú að
hægja muni á hækkunum á fast-
eignamarkaðnum á komandi mán-
uðum.
„Við reiknum með að þetta fari
að róast núna, ekki síst vegna
þess að vextir eru farnir að
hækka núna. Fólk er að komast út
úr þessu Covid-ástandi og farið að
gera annað en að skoða fast-
eignaauglýsingar.“
Segir hann að fjármunir heimil-
anna muni á komandi mánuðum
leita meira í einkaneyslu ýmiss
konar. Hins vegar verði verðbólg-
unnar meira að leita í innfluttum
vörum. Þar sé áhrifanna ekki tek-
ið að gæta enn, nema helst í elds-
neyti og einstaka vöruflokkum.
Dagmál Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Lands-
bankans, er gestur þáttarins í dag og ræðir þar nýja hagspá bankans.
Aldrei meira framleitt
- Hagfræðingur segir mikla eftirspurn knýja verðbólgu
- Landsbankinn gerir ráð fyrir rólegri fasteignamarkaði