Morgunblaðið - 04.11.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
Hlýtt og
notalegt
Þinn dagur, þín áskorun
100% Merino
ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi
Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði
Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is
Kíktu í heimsókn!
Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is
Sjá nánar
á patti.is
Ný sending
af gæðarúmum
frá Dupen
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur
hafnað ósk þess efnis að heimilt
verði að reisa húsnæði undir mat-
vöruverslun á lóð vöruhúss Bauhaus
að Lambhagavegi 2-4. Breyta þyrfti
aðalskipulagi til að þau áform næðu
fram að ganga.
Lambhagavegur fasteignafélag
ehf. fól lögfræðiskrifstofunni Lands-
lögum að senda skipulagsfulltrúa
fyrirspurn vegna tillögu um breyt-
ingu á skipulagi Reykjavíkurborgar
2010-2030. Félagið er eigandi fast-
eignarinnar að Lambhagavegi 2-4.
Félagið hefur unnið að hugmyndum
um 3-4.000 fermetra stakstæða
byggingu gegnt núverandi verslun
Bauhaus fyrir dagvöru- og þjón-
ustustarfsemi á lóðinni, þar sem
yrði 1.500 fm. matvöruverslun og
fleiri verslanir.
Mjög gott aðgengi að svæðinu
Mjög gott aðgengi bíla og gang-
andi verði að matvöruversluninni
frá fyrirhuguðum íbúðahverfum
sunnan við Lambhagaveg 2-4. Þann-
ig sé lóðin vel tengd skilgreindum
borgargötum á svæðinu, stofn-
stígum hjóla og gangandi vegfar-
enda.
Með fyrirspurninni er óskað eftir
afstöðu til beiðni um breytingu á að-
alskipulagi á þann veg að rekstur
matvöruverslunar á lóðinni við
Lambhagaveg 2-4 verði heimilaður.
Í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-
2030 er lóðin skilgreind sem „Mið-
svæði – M9“. Svæðið er jafnframt
skilgreint sem þróunarsvæði, Þ101,
þar sem einkum er gert ráð fyrir
rýmisfrekri verslun, heildsölu, þjón-
ustu og léttum iðnaði. Í greinargerð
aðalskipulags kemur fram að nýjar
matvöruverslanir séu ekki heim-
ilaðar á svæðinu. Tilgangur þessa er
stefna Reykjavíkurborgar að festa í
sessi og tryggja betur stöðu versl-
unar og þjónustu innan hverfa.
Gengur stefnan í aðalskipulaginu
undir heitinu „kaupmaðurinn á
horninu“.
Þurfa að aka í annað hverfi
Lögfræðingur Landslaga rekur í
löngu máli rök fyrir því að þessi að-
alskipulagsbreytingin nái fram að
ganga. Segir hann að miðað við nú-
verandi aðalskiplag á svæði M9
munu íbúar á svæðinu (austan Ell-
iðaárósa, einkum í Úlfarsárdal)
þurfa að aka yfir í annað hverfi til
þess að geta komist í stórmarkað
eða matvöruverslun til að gera
heildarinnkaup.
Lóðarhafi telji að fjölgun íbúða á
svæði M9 muni óhjákvæmilega leiða
til aukinnar umferðar milli hverfa af
þessum sökum, en það gangi gegn
markmiðum aðalskipulagsins um að
draga úr umferð milli hverfa og þar
með draga úr álagi á stofnbrautir
borgarinnar. Matvöruverslun á
þessum stað muni koma til móts við
þarfir aukins fjölda íbúa í hinum
nýju hverfum sem munu vilja hafa
greiðan aðgang að dagvöruverslun í
nálægð við heimili þeirra.
Lóðarhafi telur staðsetningu
Lambhagavegar 2-4 ákjósanlegasta
kost á svæðinu vegna þessa. Bent er
á að engin matvöruverslun hafi hafið
rekstur í Úlfarsárdal frá því byggð
tók að rísa í dalnum eftir úthlutun
fyrstu byggingarlóðanna árið 2007.
Næstu verslanir við hverfið eru ann-
ars vegar við Gullhamra í Grafar-
holti í rúmlega 700 metra fjarlægð í
beinni loftlínu við byggðina neðst í
dalnum og hins vegar við Korputorg
sem er í rúmlega 1,2 km fjarlægð í
beinni loftlínu frá byggðinni næst
Skyggnisbraut. Fyrir liggi að núver-
andi matvöruverslun við Korputorg
muni ekki starfa þar til frambúðar.
Er ekki við íbúðahverfi
Umsögn skipulagsfulltrúa og
deildarstjóra aðalskipulags var lögð
fram á síðasta fundi skipulagsfull-
trúa Reykjavíkur. Þar kemur m.a.
fram að svæði M9 sé miðsvæði sem
talið er vera með einsleita atvinnu-
starfsemi og liggi ekki nærri íbúðar-
hverfi. Einkenni starfsemi og skipu-
lags á svæðinu sé þess eðlis að það
uppfylli ekki skilyrði þess að vera
borgarhlutakjarni fyrir viðkomandi
borgarhluta. Vegna þessa og í sam-
ræmi við meginmarkmið stefnunnar
um matvöruverslanir í aðalskipulag-
inu – að þær séu einkum innan íbúð-
arbyggðar eða í fjölbreyttum kjörn-
um í jaðri hennar – hefur ekki verið
gert ráð fyrir heimildum um mat-
vöruverslun á miðsvæðum M9. Ekki
hafi verið teknar ákvarðanir um
þróun íbúðarhverfis á svæði M22 í
Höllum, þótt heimildir séu fyrir
íbúðarhúsnæði í skilgreiningu þess
miðsvæðis. „Á grundvelli þessa er
ekki hægt að verða við því að breyta
skilgreiningu umrædds miðsvæðis
M9,“ segir í umsögninni.
Þess má geta að íbúasamtök Úlf-
arsárdals hafa lýst yfir stuðningi við
að íbúðabyggð verði á reit M22, líkt
og gert var ráð fyrir í deiliskipulagi
frá árinu 2013, að því er fram kemur
í bréfi Landslaga.
Áformað er að byggð verði hverf-
isverslun við Jarpstjörn nálægt
Leirtjörn, sem verði 850 fermetrar
að stærð. Óvíst er hvenær þau
áform verða að veruleika.
Vilja ekki matvörubúð við Bauhaus
- Reykjavíkurborg vill að verslanir sem selja matvörur séu innan íbúðabyggðar eða í jöðrum hennar
Tölvumyndir/THG arkitektar
Lambhagavegur Nýja byggingin var staðsett gegnt Bauhaus. Matvörubúðin átti að vera stærst, 1.500 fermetrar.
Bauhaus Nýbyggingin átti að rísa á
bílastæði hins risavaxna vöruhúss.
Sólveig Anna
Jónsdóttir, fyrr-
verandi formaður
Eflingar, hefur
sagt sig frá emb-
ætti annars vara-
forseta Alþýðu-
sambands
Íslands. Tilkynn-
ing um þetta
barst ASÍ í gær
en miðstjórn
sambandsins kom saman til fundar í
hádeginu í gær. Sólveig Anna sagði
af sér sem formaður Eflingar í byrj-
un vikunnar.
Mál Eflingar komu til umræðu á
miðstjórnarfundinum í gær þó það
hafi ekki verið formlega á dagskrá.
Afráðið fljótlega hver tekur við
„Við gáfum rými í að ræða málin
og svo fór ég yfir hvernig aðkoma
skrifstofu ASÍ væri að málinu. Að-
koma okkar er náttúrlega að tryggja
áframhaldandi starf félagsins og
bjóða fram þá aðstoð sem þarf til
þess. Að félagsmenn njóti góðrar
þjónustu áfram,“ sagði Drífa Snæ-
dal, forseti ASÍ, í samtali við mbl.is.
Unnið sé að framhaldinu innandyra í
samstarfi og samráði við Eflingu og
stuðningur veittur bæði stjórn og
starfsfólki.
Drífa sagði varmann hafa verið
kallaðan inn á fundinn í stað Sólveig-
ar Önnu samkvæmt reglum, en ekki
er búið að ákveða hver tekur við
varaforsetaembættinu í hennar stað.
„Við munum afgreiða hver kemur í
hennar stað sem þriðji varaforseti
eftir tvær vikur, vænti ég. Á hefð-
bundnum miðstjórnarfundi,“ sagði
Drífa.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður Rafiðnaðarsambands Ís-
lands, er fyrsti varaforseti ASÍ. Sól-
veig Anna var annar varaforseti og
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, var kjörinn þriðji varaforseti
sambandsins á seinasta þingi þess.
Hefur sagt af sér sem
annar varaforseti ASÍ
- Mál Eflingar voru rædd á miðstjórnarfundi ASÍ í gær
Sólveig Anna
Jónsdóttir.