Morgunblaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
Listamannaspjall
laugardaginn 6. nóvember, kl. 14–16
Opið virka daga
10–18,
laugardaga 12–16
Lokað á sunnudögum
HRAFNHILDUR INGA
SIGURÐARDÓTTIR
Sýnir í Gallerí Fold 30. október–13. nóvember
Ó, VEÐUR
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Þegar kirkjuþingi var um miðja síð-
ustu viku frestað fram undir lok
nóvember beið fjöldi stórra mála
enn afgreiðslu. Þingið fer með
æðsta vald í veraldlegum málefnum
þjóðkirkjunnar. Meðal þess sem
ekki tókst að afgreiða var að taka af-
stöðu til tillagna um stórfellda sölu á
fasteignum þjóðkirkjunnar, hag-
ræðingu í mannahaldi, starfsreglur
fyrir prófasta og vígslubiskupa,
stefnumótun í samskipta- og ímynd-
armálum og afnám greiðslna fyrir
aukaverk presta sem hér verður
fjallað um. Fram kom á þinginu að
innan kirkjunnar eru skoðanir mjög
skiptar um flest þessi mál. Og í um-
ræðunum um aukaverkin varð ýms-
um heitt í hamsi. Deilur um
greiðslur fyrir þau eru þó ekki nýjar
af nálinni enda byggir þetta fyr-
irkomulag á gamalli hefð.
Afnumin frá ársbyrjun 2024?
Það sem kom umræðunni af stað
að þessu sinni var tillaga frá fjórum
fulltrúum á kirkjuþingi um að frá og
með 1. janúar 2024 skyldi „afnumin
öll gjaldtaka vegna prestsþjónustu
þjóðkirkjunnar, sem tilgreind er í
gjaldskrá kirkjuþings“. Leggja
flutningsmenn til að starfskostn-
aðarnefnd, sem kosin var á kirkju-
þingi í mars, takist á hendur að
vinna tillögur með hliðsjón af nið-
urfellingu gjaldtökunnar og skili
þeim til kirkjuþings ekki seinna en
fyrri hluta árs 2023. Er nefndinni
ætlað að kanna sérstaklega hvort
afnema megi gjaldtöku í áföngum
þannig að prestsþjónusta fyrir
skírnir og fermingarfræðslu verði
gjaldfrjáls sem fyrst.
Eins og sjá má í töflu hér til hliðar
eru helstu aukaverkin, sem heimilt
er að innheimta gjald fyrir, skírn,
ferming, hjónavígsla og útför. Varla
er þó hægt að segja að fjárhæðirnar
séu mjög háar og síst í samanburði
við önnur gjöld sem oft falla til við
athafnir af þessu tagi, svo sem fyrir
söng, tónlist, skreytingar og marg-
víslega þjónustu. Engu að síður telja
flutningsmenn að gjöldin séu „tíma-
skekkja“. Vígð þjónusta kirkjunnar
eigi ávallt að vera grundvölluð á
kristilegum kærleika og sem mest
án hindrana fyrir fólk. Gjöldin fyrir
aukaverkin séu „fráhrindandi ásýnd
kirkjulegrar þjónustu“ og dragi
mjög úr trúverðugleika hennar.
Einkum sé þetta slæm birting-
armynd þegar um efnalítið fólk sé að
ræða.
Fjölmargir áhrifamenn í kirkj-
unni lýstu sig andvíga því að af-
greiða málið með þessum hætti á
þinginu. Einkum var andstaðan hörð
frá forystumönnum Prestafélagsins.
Þeir bentu á að blekið væri varla
þornað á síðasta kjarasamningi
presta þar sem greiðslur fyrir auka-
verkin eru heimilaðar. Stjórn félags-
ins sagði í ályktun að það væri „í
hæsta máta ósmekklegt og ekki
kirkjuþingi sæmandi að væna presta
um skort á kristilegum kærleika
þegar þeir nýta sér grundvallaðan
rétt sinn til að innheimta fyrir auka-
verk“.
Þá benti stjórnin á að prestar
gangi ekki hart fram í innheimtu
aukaverka gagnvart efnalitlu fólki
og hafi þar umhyggju og kærleika að
leiðarljósi.
Frávísunartillaga felld
Á lokadegi kirkjuþings lögðu
nokkrir fulltrúar til að tillögunni um
afnám greiðslna fyrir aukaverk yrði
vísað frá. En það átti ekki hljóm-
grunn á þinginu og var frávís-
unartillagan felld með 12 atkvæðum
gegn 8. Þingfulltrúar eru samtals 29,
17 leikmenn kjörnir af sókn-
arnefndum og 12 prestar. Það að frá-
vísunin var felld er vitnisburður um
að þingfulltrúar vilja ekki ýta málinu
út af borðinu strax og ekki er óhugs-
andi að það nái fram að ganga í ein-
hverri mynd á komandi þingi síðar í
þessum mánuði.
Aðeins hluti preststarfsins
Meðal almennings heyrast þær
raddir að prestar séu fullsæmdir af
föstum launum sínum. Reyndar eru
ýmsir í prestastétt sama sinnis og
einnig ýmsir kirkjuþingsmenn. En
úti í þjóðfélaginu örlar á þeim mis-
skilningi að störf presta felist í fáu
öðru en að skíra, ferma, gifta og jarð-
setja. Sannleikurinn er sá að þetta er
aðeins hluti af störfum þeirra. Reglu-
legar guðsþjónustur í kirkjunum
taka tíma og kalla á undirbúning,
margs konar stjórnsýsla og skrif-
finnska fylgir starfinu, einnig þátt-
taka í fundum og samkomum og síð-
ast en ekki síst leita fjölmargir til
presta á degi hverjum til að ræða
vandamál og áhyggjuefni daglegs
lífs. Þau samskipti öll útheimta mik-
inn tíma hjá flestum prestum.
Ekki greitt fyrir aukaverk
Misjafnt er hvort greitt er fyrir
skírnir, fermingar, hjónavígslur og
útfarir í öðrum trúfélögum hér á
landi. Sr. Jakob Rolland, kanslari
kaþólsku kirkjunnar, segir að þar
séu engin gjöld innheimt en menn
séu hvattir til framlaga til kirkjunnar
hver eftir sinni getu, enda þurfi hún
á fé að halda til rekstrar. Prestarnir
fái engin starfslaun en kirkjan sjái
um uppihald þeirra og húsnæði og
leggi þeim til dagpeninga.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson
Fríkirkjuprestur segir að þeir sem
skráðir eru í söfnuðinn greiði að jafn-
aði ekkert fyrir þjónustuna. „Við telj-
um að fólk hafi þegar greitt fyrir
slíkt með þeim trúfélagsgjöldum sem
tekin eru af öllum landsmönnum
sama hvar þeir eru skráðir,“ segir
hann. Frá þessu er þó ein und-
antekning eftir að ný reglugerð gekk
í gildi um mitt síðastliðið ár sem fól
það í sér að kirkjugarðarnir hættu að
greiða fyrir prestsþjónustu í
tengslum við andlát og útfarir. Þurfi
aðstandendur að gera það í staðinn.
„Við erum verulega ósátt við þetta
fyrirkomulag og viljum helst breyta
því sem fyrst,“ segir hann. Pétur
Þorsteinsson hjá Óháða söfnuðinum
segir að ekki sé greitt fyrir aukaverk
í söfnuðinum.
Deilan um aukaverk óútkljáð
- Mörg ágreiningsmál bíða kirkjuþings undir lok nóvember - Skoðanir mjög skiptar um greiðslur
fyrir aukaverk presta - Ekki innheimt vegna þeirra í Fríkirkjunni, kaþólsku kirkjunni og víðar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kirkjuþing Miklar umræður urðu um greiðslur fyrir aukaverk presta á nýafstöðnu kirkjuþingi. Ekki tókst að afgreiða tillögu um að afnema þær frá árs-
byrjun 2024 þegar þingið gerði hlé á störfum sínum. Hér tekur einn kirkjuþingsfulltrúa til máls, Guðlaugur Óskarsson úr Borgarfirði.
Gjaldskrá presta þjóðkirkjunnar fyrir aukaverk
Þjónusta Fjárhæð í krónum
Skírn, sem ekki fer fram
í guðsþjónustu 7.418
Fermingarfræðsla 21.194
Hjónavígsla 13.776
Kistulagning 8.478
Útför 27.552
Jarðsetning duftkers eða
kistu, sem ekki er í beinu
framhaldi af útför
8.478
Vottorð um þjónustu prests 2.119
Heimild:
Kirkjuþingstíðindi
ágúst 2021