Morgunblaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021 HUNDAFÓÐUR Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is 4. nóvember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.98 Sterlingspund 177.51 Kanadadalur 104.79 Dönsk króna 20.269 Norsk króna 15.396 Sænsk króna 15.238 Svissn. franki 142.37 Japanskt jen 1.1426 SDR 183.55 Evra 150.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.5654 « Fulltrúar Norðuráls og Arion banka hafa skrifað undir samning um fjár- mögnun á fyrirhuguðum steypuskála Norðuráls á Grundartanga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðuráli en þar segir að um sé að ræða fjárfestingu upp á 17 milljarða kr. Nýja framleiðslulínan er sögð gera Norðuráli kleift að vinna fleiri og verð- mætari vörur úr álinu á Grundartanga. Haft er eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka, að bankinn hafi nýverið farið í sína fyrstu al- þjóðlegu grænu skuldabréfaútgáfu þar sem bankinn naut hagstæðra kjara. „Það er einstaklega ánægjulegt að Norðurál fái nú notið góðs af þeim kjör- um og [að] styðja við verkefni sem gerir fyrirtækinu kleift að framleiða verð- mætari vörur hér á landi með minni orkunotkun og minna kolefnisspori,“ sagði Benedikt jafnframt. Arion banki fjármagnar steypuskála Norðuráls Ljósmynd/Norðurál Samningar Ásgeir Reykfjörð, aðstoðar- bankastjóri Arion banka, og Sigrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri Norður- áls á Grundartanga, við undirritunina. STUTT Fyrirtækið Icelandic Lava Show, sem haldið hefur úti lifandi hraunsýningu í Vík í Mýrdal, hyggst færa út kvíarnar og koma upp sambærilegri sýningu í hús- næði á Grandanum í Reykjavík. Er uppbyggingin í höfuðborginni sögð fyrsti áfangi af fleirum í framtíðaráformum um meiri vöxt á komandi árum. Framsókn fyrirtækisins er studd með aðkomu nýs hluthafa, EB Invest ehf., en það er Birgir Örn Birgisson, fyrrum forstjóri Domino’s á Íslandi, sem stendur á bak við það félag. Segir hann að upplifun sín af sýningunni í Vík hafi verið með því móti að hann hafi séð mörg tækifæri með að- komu sinni að fyrirtækinu. Það eru þau Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir sem stofnuðu Icelandic Lava Show og opnuðu sýningu undir sama heiti árið 2018. Útbreiðsla kórónuveir- unnar hafði neikvæð áhrif á rekstur fyrirtækisins eins og önn- ur í ferðaþjónustu. Þannig dróg- ust tekjur þess saman um 60% milli áranna 2019 og 2020. Námu 23,8 milljónum í fyrra. Rekstr- arkostnaður dróst einnig veru- lega saman og varð tap af rekstr- inum minna en þegar umsvifin voru meiri. Nam tapið 5 millj- ónum í stað 23 milljóna árið 2019. Um nýliðin áramót var eigið fé fyrirtækisins neikvætt sem nam 3,8 milljónum. Eignir stóðu í 55,1 milljón og skuldir í 58,9 millj- ónum. Fljótandi hraun Sýning Icelandic Lava Show er mikið sjónarspil. Icelandic Lava Show stækkar - Eigið fé félags- ins var neikvætt í árslok 2020 húsnæðisöryggi. Hlutfall þeirra sem eru mjög eða frekar sammála var 21,2% árið 2019, 16,1% árið 2020 og 18,9% í ár og hækkar hlutfallið því á nýjan leik. Öryggið er minnst hjá 45- 54 ára leigjendum. Að mati skýrslu- höfunda eru meginástæður þess að leigjendur telja sig ekki búa við hús- næðisöryggi einkum þær að þeir hafa tímabundinn leigusamning, telja að leiguverð sé of hátt og að lítið fram- boð sé á íbúðarhúsnæði. Um 2.200 fleiri erlendir ríkisborg- arar fluttu til landsins á þriðja árs- fjórðungi en fluttu þá frá landinu. Hafa því samanlagt 3.160 fleiri erlendir ríkisborgarar flutt til landsins en frá því á þessu ári, líkt og lesa má úr grafinu. Flutningsjöfn- uðurinn var einnig jákvæður hjá ís- lenskum ríkisborgurum en 340 fleiri fluttu til landsins á þriðja fjórðungi en frá því og alls 860 frá áramótum. Er þetta metfjöldi aðfluttra íslenskra ríkisborgara umfram brottflutta á öldinni en flest árin hefur þessi flutn- ingsjöfnuður verið neikvæður. Ríflega fjögur þúsund fleiri Alls hafa um fjögur þúsund fleiri flutt til landsins fyrstu níu mánuði ársins en frá því og er árið 2021 því í sjötta sæti yfir aðflutning á öldinni. Með sama áframhaldi mun þetta ár fara fram úr árinu 2016 og vel það og aðeins þensluárin 2006 og 2007 og svo góðærisárin 2017, 2018 og 2019 vera framar þessu ári. Það er athyglisvert í ljósi faraldursins. Hvort tveggja, aðflutningur er- lendra og íslenskra ríkisborgara, á þátt í íbúafjölgun á Íslandi en alls bjuggu 374.830 manns á Íslandi í lok 3. ársfjórðungs. Hefur íbúum fjölgað um 10.700 frá ársbyrjun 2020 sem eru síðustu tölur áður en kórónuveiru- faraldurinn hófst í mars 2020. Til samanburðar hafa um 1.370 fleiri íslenskir ríkisborgarar flutt til landsins en frá því síðan í ársbyrjun 2020 og tæplega 4.900 erlendir ríkis- borgarar. Alls eru þetta um 6.300 ein- staklingar, sem samsvarar um 60% íbúafjölgunar frá 1. jan. 2020. Búferlaflutningarmilli landa eftir ríkisfangi 2000-2021* Aðfluttir umfram brottflutta Íslenskir Erlendir 2000 62 1.652 2001 -472 1.440 2002 -1.020 745 2003 -613 480 2004 -438 968 2005 118 3.742 2006 -280 5.535 2007 -167 5.299 2008 -477 1.621 2009 -2.466 -2.369 2010 -1.703 -431 2011 -1.311 -93 2012 -936 617 2013 -36 1.634 2014 -760 1.873 2015 -1.265 2.716 2016 -146 4.215 2017 352 7.888 2018 -65 6.621 2019 -175 5.136 2020 506 1.734 2021 860 3.160 +7 +6 +5 +4 +3 +2 +1 0 -1 -2 -3 -4 Þúsundir '00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21 Samtals Íslenskir Erlendir 2000-2021 -10.432 54.183 2005-2008 -806 16.197 2009-2011 -5.480 -2.893 2012-2021 -1.665 35.594 2015-2021 67 31.470 Íslenskir ríkisborgarar Erlendir ríkisborgarar *Til og með 30. september 2021 (fyrstu níu mánuði ársins) Fyrstu 9 mán. ársins 2021 Heimild: Hagstofa Íslands Mikill aðflutningur til landsins eykur spennu á leigumarkaði - Könnun HMS bendir til minna leiguöryggis - Landsmönnum fjölgar hratt Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þorsteinn Arnalds, framkvæmda- stjóri hjá Húsnæðis- og mannvirkja- stofnun (HMS), segir merki um að aukinn aðflutningur fólks til landsins sé farinn að hafa áhrif á leigu- markaðinn til hækkunar. „Leigumarkaðskönnun okkar bendir til að farið sé að þrengja að leigjendum og það eru miklar líkur á því að aðflutning- urinn á fyrri hluta ársins hafi áhrif í því efni. Jafn- framt að aukinn aðflutningur á þriðja ársfjórð- ungi muni hafa meiri áhrif þegar fram í sækir,“ segir Þorsteinn í tilefni af nýjum tölum Hagstofunnar um búferlaflutninga. Máli sínu til stuðnings vísar Þor- steinn í niðurstöður væntanlegrar leigumarkaðskönnunar HMS. Að óbreyttu muni þessi þróun leiða til þess að leiguverð íbúða á höf- uðborgarsvæðinu muni hækka. Tilfærsla yfir í eigið húsnæði Meðal niðurstaðna er að yngsti hópurinn í könnuninni, 18-24 ára, hef- ur „fært sig að miklu leyti aftur í for- eldrahús“ eftir að kórónuveiru- faraldurinn hófst, og að aldurshópurinn 25-34 ára hafi verið að „færa sig af leigumarkaði og að einhverju leyti úr foreldrahúsum og yfir í eigið húsnæði“. Ljóst sé að fjöl- mörg heimili hafi yfirgefið leigumark- aðinn sl. ár og keypt eigið húsnæði, ekki síst tekju- og eignameiri heimili. Þátttakendur í könnuninni voru spurðir hvort þeir teldu sig búa við Þorsteinn Arnalds
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.