Morgunblaðið - 04.11.2021, Side 35

Morgunblaðið - 04.11.2021, Side 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021 Eins og kunnugt er stendur nú yfir í Glasgow tuttugasti og sjötti aðildarríkja- fundur Loftslags- samnings Sameinuðu þjóðanna. Þrír helstu trúarleiðtogar krist- inna kirkjudeilda, Frans páfi, andlegur leiðtogi rómversk- kaþólsku kirkjunnar, Bartholomew, fyrsti andlegur leiðtogi rétttrún- aðarkirkjunnar, einnig nefndur græni páfinn, og Justin Welby, andlegur leiðtogi anglíkönsku kirkjunnar, gáfu út sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir horfa fram til fundarins í Glasgow. Yfirlýsinguna má lesa hér: Ec- umenical Patriarch, Pope and Archbishop of Canterbury call for the Protection of Creation (www.anglicannews.org). Þeir benda m.a. á að í heimsfar- aldrinum höfum við verið minnt á þá staðreynd að enginn búi við ör- yggi fyrr en allir búi við öryggi. Þeir benda á að breytingar í nátt- úrunni eigi sér uppruna í gjörðum okkar þar sem freklega hefur ver- ið gengið á auðlindir jarðar og misskipting gæðanna hefur aukist. Við hér á Íslandi höfum ekki farið varhluta af loftslagsbreyting- unum og ekki heldur heimsfaraldr- inum enda erum við öll á sama báti hér á jarðarkringlunni. Heimsfaraldurinn hefur skapað aðstæður sem síst var búist við. Í öllu samskiptaleysinu út af Covid sátum við, hópur Íslendinga sem unnið hefur saman síðastliðin þrjú ár, allt í einu í Skálholti á tali við 450 háttsetta trúarleiðtoga úr 15 trúarbrögðum og 6 heimsálfum þrjá daga í október 2020. Þetta var áreiðanlega stærsta netráð- stefna á sínu sviði það ár og tók líf og lit af Skálholtskirkju. Umræðu- efnið var á hvaða hugmyndagrunni mætti sameinast um að kalla eftir stofnun Heimsbandalags um trú fyrir jörðina í tengslum við Um- hverfisstofnun Sameinuðu þjóð- anna. Það gekk vel að ná samstöðu sem rennir stoðum undir þá kenningu að flest trúarbrögð heims eigi sér sameiginlegan kjarna. Skálholt í miðju heimsumræðu Íslenskt teymi trú- og lífskoðunarfélaga, umhverfisstofnana og -samtaka naut stuðn- ings ríkisstjórn- arinnar við umrætt ráðstefnuhald. Því var svo fylgt eftir með framhaldsfundi sem stjórnað var frá Skálholti 12.-13. október síðastliðinn þar sem leið- togar 70 trúarsamtaka, vís- indastofnana og ungs fólks sam- þykktu ábendingar um framhaldið. Unnið verður að því að 5. Um- hverfisþing Sameinuðu þjóðanna, sem fram verður haldið í febrúar á næsta ári, lýsi stuðningi við hug- myndina um Heimsbandalag trúarbragða fyrir jörðina. Um- hverfis- og utanríkisráðuneytið hafa lýst vilja sínum til þess að veita þessum málatilbúnaði braut- argengi. Brýnast er að snúast gegn fátækt og misskiptingu jarðargæða, breytingu á loftslagi vegna kolefnisbruna, ágangi á vist- kerfi jarðar og líffræðilega fjöl- breytni. Eigi núlifandi kynslóðir að geta litið framan í barnabörn sín með góðri samvisku má ekki bíða með þá umbreytingu lífs- og framleiðsluhátta sem tryggir framhaldslíf á jörðinni. Sem betur fer höfum við í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna leiðarvísi um hvert leiðin liggur til betra lífs í sátt við náttúruna. Það sem vantar er vilji, samstaða og kjarkur. Aðgerðir heima og heiman Hreyfingar með trúarlegan bak- grunn eru sterkt afl í heiminum. Talað er um þau sem þriðja mesta efnahagsveldi heims, að þau ráði um helmingi allra skóla í heim- inum og hafi umsjón með yfir 8% alls lands. Trúarleiðtogar hafa einnig víða ítök í stjórnmálum og áhrif á afstöðu almennings. Sund- urlyndi einkennir þá kannski fremur en samlyndi í augum al- mennings og afskipti þeirra af opinberum málum eru síður en svo óumdeild. En leggist þeir sameig- inlega á árarnar í umhverfismálum þá léttir það róðurinn fyrir umhverfisverndar- og stjórn- málafólk sem vill ná landi í end- urheimt landgæða og loftslags- málum til að mynda. Á þetta benti dr. Andrés Arnalds á norrænum biskupafundi í Hallgrímskirkju ár- ið 2018. Það varð síðan upphafið að samstarfi Þjóðkirkjunnar við Landgræðsluna og Skógræktina sem skilað hefur aðgerðaáætlun um endurheimt votlendis, land- græðslu og skógrækt á 33 kirkju- jörðum. Sú vegferð með Umhverf- isstofnun Sameinuðu þjóðanna og umhverfisráðuneytinu, sem ég lýsti í upphafi, spratt einnig upp af því fræi sem þessi frumkvöðull í landgræðslu á innlendum og al- þjóðlegum vettvangi sáði þarna. Gleði, nægjusemi, sjálfsvirðing Ég veit ekki mikið um trúar- brögð Sikha né um punjabísku sem er í hópi þeirra 10 tungumála sem flestir tala í heiminum. En einn af leiðtogum Sikha í Bret- landi, Bhai Sahib Ji, hreif mig mjög í Skálholts-umræðunni. Hann skýrði á eftirminnilegan hátt út hugtakið „chardi kala“ sem í Punjab merkir „hugdjörf bjart- sýni“. Það er lífsafstaða sem víkur burt ótta, öfund og óvild en rækt- ar gleði, nægjusemi og sjálfsvirð- ingu. Talsvert er rætt um lofts- lagskvíða meðal ungs fólks og jafnvel mælt gegn því að auka sál- arangist með því ala á hræðslu- áróðri um hamfarahlýnun og heimsslit. Þetta minnir á kvíðann vegna útrýmingar af völdum kjarnorkuvopna sem ég ólst upp við á tímum kalds stórveldastríðs og kjarnorkuvopnakapphlaups. Það er að sönnu rétt að óttinn er ógnvaldur sem ekki er góður föru- nautur til lengdar. Reynum því eftir mætti að bægja honum frá með því að ganga fram í „chardi kala“ og láta hugdjarfa bjartsýni stýra okkur í aðgerðum og ákvörð- unum sem leiða til góðs lífs á jörð- inni. Eftir Agnesi M. Sigurðardóttur »Eigi núlifandi kyn- slóðir að geta litið framan í barnabörn sín með góðri samvisku má ekki bíða með þá um- breytingu lífs- og fram- leiðsluhátta sem tryggir framhaldslíf á jörðinni. Agnes M. Sigurðardóttir Höfundur er biskup Íslands. Hugdjörf bjartsýni Morgunblaðið/Brynjar Gauti Loftslagsbreytingar „Hreyfingar með trúarlegan bakgrunn eru sterkt afl í heiminum.“ Mikil gróska einkennir menntamál í Reykjavík þar sem byggt er á ný- legri menntastefnu Reykjavíkurborgar sem þúsundir hagaðila í skólasamfélaginu mót- uðu í víðtæku samráði. Menntastefnan hvílir á skýrri forgangsröðun þar sem áherslan er á fimm hæfniþætti sem sérstök rækt er lögð við að efla hjá öllum börnum: félagsfærni, sjálfseflingu, heilbrigði, sköpun og læsi. Við innleiðingu stefnunnar höfum við tryggt nýtt fjármagn, 200 milljónir króna á hverju ári, sem sérstaklega er helgað nýsköpun og þróunarverkefnum í skól- um og frístundastarfi. Menntun og velferð nýtur forgangs Meirihluti Samfylkingarinnar, Við- reisnar, Pírata og Vinstri grænna setur menntamál og velferð íbúa í forgang í fjárhagsáætlun sinni fyrir næsta ár. Fjármögnun grunnskóla er efld verulega með nýju fjármagni sem nemur rúmlega 1,5 milljarði króna á hverju ári í tengslum við upptöku á nýju úthlut- unarlíkani. Fjármagn til viðhalds skóla- mannvirkja verður aukið verulega og hraðað til muna viðhaldsframkvæmdum. Verið er að hraða innleiðingu stafrænnar tækni í skólastarfinu sem mun auka til muna möguleika nemenda og kennara til að hagnýta upplýsingatækni í námi og kennslu og færa þannig náms- og kennsluhætti meira í takt við veruleika og þarfir samtímans. Þá er verið að stíga stórt skref í að þétta samstarf skóla- og vel- ferðarsviða í verkefninu Betri borg fyrir börn þar sem sam- þætt skóla- og velferðarþjónusta er veitt í nærumhverfi barnafjöl- skyldna. Betri fjármögnun grunnskóla Bætt fjármögnun grunn- skóla Reykjavíkur birtist m.a. í því að meira fé er varið til að tryggja jafnræði á milli skóla og hverfa m.a. með því að taka tillit til mis- munandi lýðfræðilegra þarfa, félagslegrar stöðu og aðstæðna á hverjum stað. Jöfn tækifæri barna til menntunar er eitt mik- ilvægasta verkefni stjórnmálanna og sú hugsjón sem hvetur okkur jafnaðarmenn til dáða. Þar er leiðarljósið að styrkja stöðu þeirra barna sem á einhvern hátt standa höllum fæti við upphaf skólagöngunnar hvort sem er vegna líffræðilegra þátta, uppruna eða félagslegra aðstæðna. 25-30 milljarðar í viðhald skóla Meirihlutinn í borgarstjórn hefur aukið verulega fjármagn til viðhalds skólamann- virkja á undanförnum árum, og er nið- urstaðan rúmlega þreföldun á und- anförnum fimm árum, úr tæpum 600 milljónum í 2.100 milljónir í ár. Nú liggja fyrir í fyrsta sinn heildarupplýsingar um ástand skólamannvirkja sem utanaðkom- andi fagaðilar hafa unnið á síðastliðnum tveimur árum. Niðurstöðurnar gefa tilefni til að gera enn betur og hraða á næstu ár- um framkvæmdum til viðhalds og end- urbóta á skólahúsnæði í borginni. Þetta eru alls 136 skýrslur sem tengjast þeim mikla fjölda mannvirkja sem hýsa skóla og frí- stundastarfið í borginni. Á grundvelli þess- ara úttekta hefur borgarstjóri lagt fram til- lögu um að varið verði 25-30 milljörðum króna í viðhald skólamannvirkja á næstu 5-7 árum. Það verður því eitt viðamesta fjárfestingarverkefni borgarinnar á kom- andi árum. Vissulega er rétt að fjármagn til viðhalds var ekki nægilega mikið á fyrstu árunum eftir hrun en með þessari mynd- arlegu viðbót nú náum við að vinna upp og gott betur mögru árin frá 2008-2016. Þetta stórvirki er í góðu samræmi við aðgerða- hluta nýrrar menntastefnu borgarinnar þar sem mikil áhersla er lögð á fullnægj- andi húsnæði og aðstöðu barna og starfs- fólks sem helgar sig þessum mikilvæga málaflokki. Þær áherslur verða áfram á forgangslista aðgerða menntastefnunnar sem nú er verið að leggja lokahönd á fyrir næstu þrjú ár. Framtíðin er því björt í skólamálum borgarinnar í ljósi þeirra framfaramála sem ég hef hér rakið nú þeg- ar við vörðum leiðina út úr heimsfaraldr- inum, sem leggur enn ríkari kröfur á okkar herðar að halda vel utan um velferð og líð- an barna og ungmenna í samfélaginu. Menntun nýtur forgangs í Reykjavík Eftir Skúla Helgason » 25-30 milljörðum króna verður varið í viðhald skólamannvirkja í Reykja- vík á næstu 5-7 árum. Skúli Helgason Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Í Morgunblaðinu í gær segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, for- maður borgarráðs, það rangt að borgin skuldi 400 milljarða þar sem hluti skuldanna séu „bara“ skuldbindingar. Það er því nauðsynlegt að fara yfir staðreyndir málsins. Í áætlun borgarinnar sem var lögð fram á þriðjudag í borgarstjórn kemur fram að skuldir og skuldbindingar verði rúmir 403 milljarðar í næsta mánuði. Þar af eru langtímaskuldir 295 milljarðar, skammtímaskuldir eru 52 milljarðar og skuldbindingar 56 milljarðar. Samtals 403 milljarðar. Skuldbindingarnar eru að stofni til lífeyr- isskuldbinding upp á 38 millj- arða og tekjuskattsskuldbind- ing upp á 15 milljarða. Þetta ætti Þórdís Lóa að vita, enda er hún formaður Lífeyrisjóðs starfsmanna Reykjavík- urborgar. Allt er þetta fært skuldamegin í bókhald borg- arinnar. Eins og á að gera. Samkvæmt áætlun borg- arstjórnarmeirihlutans munu heildarskuldir hækka í 453 milljarða 2025. Um það ætti ekki þurfa að deila. Það kemur að skuldadögum Eftir Eyþór Arnalds Eyþór Arnalds » Í áætlun borgarinnar sem var lögð fram á þriðju- dag í borg- arstjórn kemur fram að skuldir og skuldbind- ingar verði rúm- ir 403 milljarðar í næsta mánuði. Höfundur er oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.