Morgunblaðið - 04.11.2021, Side 40
Marta María
mm@mbl.is
Hver er þín morgunrútína?
„Ég vakna yfirleitt milli 7.30 og 8, set á mig
andlitskremin mín og helli upp á Bialetti--
espressókaffi og nýt þess að drekka það á meðan
ég mála mig. Ég elska að taka fyrsta sopann af
þessu dásamlega kaffi, þetta er án efa langbesti
kaffibolli dagsins.“
Borðar þú morgunmat?
„Já, ég fæ mér oft hrökkkex, stundum eitt egg
eða jógúrt með berjum og múslí og ef ég er á
hlaupum þá ½ banana. Um helgar útbý ég gjarn-
an gott súrdeigsbrauð með kotasælu, avókadó,
basilíku, tómötum, fetaosti og eggi. Þegar ég er
stödd í París þá fæ ég mér croissant frá góðu bak-
aríi og til hátíðabrigða pain au chocolat. Ég reyni
alltaf að borða það sem við á í hverju landi, til
dæmis hummus og shakshouka í Mið-Austur-
löndum og amerískar pönnukökur í Bandaríkj-
unum svo fátt eitt sé nefnt.“
Hver er besta kaka sem þú hefur smakkað?
„Sko, þær eru margar góðar sem ég hef smakk-
að en ég er mikið fyrir að breyta til og prófa nýja
hluti svona heilt yfir, hvort sem það eru kökur eða
annað tengt mat. En ég átti í ástarævintýri við
köku þegar ég bjó í París á mínum yngri árum,
kakan var svona frystikaka frá Le Notre og hét
Prevert, hún var með súkkulaðimús, pistasíumús
og hnetubotni og stundum lifði ég á henni og engu
öðru sem er skrítið því ég er meira fyrir mat en
kökur, hún er því miður hætt í framleiðslu. En í
dag er uppáhaldskakan mín kanilkakan hennar
Foldu úr nýjasta kökublaði Gestgjafans, ég féll
hreinlega í stafi þegar ég smakkaði hana, hún er
fínleg, falleg og ferlega bragðgóð.“
Á hvaða tónlist hlustar þú á laugardagskvöldi?
„Ég er rosaleg alæta á tónlist og það fer eftir
því hvort ég er í hressa gírnum eða í rómantísku
stuði. Um þessar mundir er ég svolítið að vinna
með franska tónlist en Nat King Cole, Ella Fitz-
gerald, Billie Holliday, Aretha Franklin og lög
eftir Burt Bacharach eru oft á fóninum. Gott popp
og pönk getur alveg dottið á fóninn líka að
ógleymdu diskóinu. Annars á ég það oft til að velja
tónlist eftir því hvað passar við kvöldmatinn.“
Hvað er lúxus í þínum huga?
„Mig langar að segja líf án vandamála og flækja
en held að hér sé verið að fiska eftir einhverju
meira veraldlegu og þá kemur geggjað
flott hótel fyrst upp í hugann. Vel hann-
aður hótelbar með áhugaverðum arki-
tektúr og ég klædd í fallegan kjól með
spennandi kokteil eða kampavín í hönd
á barnum í mjög góðum félagsskap er
lúxus fyrir mér. Ég er dugleg við að
veita mér alls konar „lítinn lúxus“
eins og gott bað með kertaljósi,
kampavín fæ ég mér reglulega
og svo finnst mér æðislegt að fara
í eitthvert lítið dekur eins og spa
eða andlitsbað.“
Ef þú þyrftir að bjarga einni flík úr eldsvoða,
hver yrði fyrir valinu?
„Úff, ég á svo mikið af fötum. Ætli ég myndi
samt ekki kippa með mér sebramynstraða sam-
festingnum mínum sem ég keypti í Toronto og
„Ég er dugleg við að veita
mér alls konar „lítinn lúxus““
Hanna Arnarsdóttir, ritstjóri
Gestgjafans og Húsa og híbýla,
kann að njóta lífsins. Hún elskar
gott kampavín, falleg hótel
og fær innblástur af því að
ferðast um heiminn.
Uppáhaldskaka
Hanna segir að
þetta sé hennar
uppáhaldskaka.
Ljósmynd/Viktoría Kjartansdóttir
Nýtur lífsins Hanna Arnarsdóttir, rit-
stjóri Gestgjafans og Húsa og híbýla,
kann að meta litlu hlutina í lífinu.
Prada-taskan mín myndi þá líka hanga á herða-
trénu.“
Hvert er besta ráð sem þú hefur fengið?
„Ég hef nú fengið mörg og gefið mörg í gegnum
árin, misgáfuleg og því erfitt að velja eitt en ætla
samt að segja; að taka ekki mark á gagnrýni frá
þeim sem maður myndi ekki leita ráða hjá, sér í
lagi þegar kemur að útliti.“
Hvert sækir þú innblástur
þegar kemur að tísku?
„Verandi ritstjóri á tveimur blöðum gerir það
að verkum að ég þarf að fylgjast vel með og ekki
bara í mat og hönnun heldur líka á sviði almennr-
ar tísku. Ég ferðast mikið og fer oft í heimsborgir
eins og París og London og þar skoða ég tískuna í
búðum og á götunni. Það er fátt skemmtilegra en
að sitja á kaffihúsi í París og horfa og stúdera
tískuna hjá þeim sem ganga fram hjá, svo finnst
mér gaman að kaupa mér tímarit. Annars verð ég
að bæta við að dóttir mín Viktoría (@viktoria-
kjartans) er sérlegur ráðgjafi mömmu sinnar þeg-
ar kemur að því að skvísa mig upp.“
Hvert er besta tískuráð allra tíma?
„Að festast ekki í sama stílnum en vera samt
með persónulegan stíl.“
Hvað getur fólk gert til að breyta heiminum?
„Vera góður við aðra og muna að margt smátt
gerir eitt stórt.“
Hvaða snyrtivöru getur þú ekki lifað án?
„Kremaða sólarpúðrið, Soleil Tan frá Chanel á
hug minn allan þessa dagana, gefur svo flottan og
frísklegan ljóma. Svo verð ég að bæta við að Hot
Mama-kinnaliturinn frá The Balm er nýjasta við-
bótin í snyrtibuddunni minni og ég er með algert
„kröss“ á hann.“
Lampinn Flowerpot VP9 var hann-
aður af Verner Panton árið 1968.
Síðan lampinn var hannaður og kom
á markað hefur hann notið mikilla
vinsælda og verið eftirsóttur. Lamp-
inn er eins og blóm í
laginu og kemur
eins og ferskur
andblær inn í
ferkantaðan
heim. Lampinn
kemur í fjölmörgum lit-
um sem gerir það að
verkum að hann passar
vel inn í mismunandi
heimili. Í skærum lit
getur hann algerlega
umbreytt herbergi
sem er klassískt á
meðan hann getur keyrt upp nú-
tímalega stemningu innan um gömul
húsgögn.
Á dimmum og köldum vetr-
arkvöldum er fátt betra en að eiga
góðan lampa sem veitir birtu og yl.
Þess vegna ætla Smartland Mörtu
Maríu og Epal að gefa einum heppn-
um lesanda Flowerpot-lampann.
Það sem þú þarft að gera er að fara
inn á Instagram-síðu Smartlands,
fylgja síðunni og merkja vini og vin-
konur sem eiga skilið að fá meiri
birtu inn í tilveruna.
Dreymir þig
um að eignast
Flowerpot-
lampann?
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
STUÐIÐ ER
Í VINNUNNI
NÝR VIVARO-E
Vivaro-e er einn fullkomnasti atvinnu–
rafmagnsbílinn á markaðnum. Með honum
velur þú að marka grænt fótspor með
þínum atvinnurekstri.
100% RAFMAGN
RAFHLAÐA, HLEÐSLA OG DRÆGNI
Nú kemur ekkert í veg fyrir að það sé hægt að
nota rafmagnsbíla í atvinnurekstri. Vivaro-e hefur
svipaða burðagetu og vörurými og hefðbundinn
sendibíll en er mikið hagkvæmari í rekstri.
Mótor: 100 kW
Rafhlaða: 50/75 kWh
Drægni: 231/330 km. (WLTP)
BÍLABÚÐ BENNA
KOLEFNISJAFNAR OPEL benni.is
Bílasala Suðurnesja
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Ib bílar
Selfoss
Fossnes A
Sími: 480 8080
BB, betri bílar
Akureyri
Njarðarnesi 12
Sími: 534 7200
Bílabúð Benna
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
VIVARO-E
VERÐ FRÁ AÐEINS:
5.290.000 KR.
LANGTÍMALEIGA FRÁ: 129.600 KR. Á MÁNUÐI.
TILBÚINN TIL
AFHENDINGAR Í NÓVEMBER!
TRYGGÐU ÞÉR BÍL FYRIR ÁRAMÓT!
B
irt
m
e
ð
fy
rirv
a
ra
u
m
m
y
n
d
-
o
g
t
e
x
ta
b
re
n
g
l.
B
íll
á
m
y
n
d
e
r
m
e
ð
a
u
k
a
b
ú
n
a
ð
i.