Morgunblaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Glæsileg borðstofuhúsgögnum
frá CASÖ í Danmörku
Snertifletir
sem draga
úr smitum
Kynntu þér nanoSeptic á hreint.is
Auðbrekka 8 s: 589 5000 hreint@hreint.is
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
„Við strákarnir erum svolítið öðru-
vísi bara, að eðlisfari. Ekki bara
líkamlega. Við erum seinni að
sækja hjálp ef við sækjum okkur
hjálp,“ segir Gísli Álfgeirsson frá
Krafti en stuðningsfélagið Kraftur
stendur nú í kvöld, fimmtudaginn
4. nóvember, frá kl. 20-21:30, fyrir
Kraftmikilli strákastund á Kexinu
fyrir karlmenn sem hafa verið
snertir af krabbameini, hvort sem
þeir hafa greinst með krabbamein
sjálfir eða eru makar, synir, feður,
afar, vinir eða jafnvel samstarfs-
félagar.
Reynsluboltar munu mæta á
svæðið og segja frá reynslu sinni
en meðal annars mun Kári Krist-
ján Kristjánsson, landsliðsmaður í
handbolta, segja frá reynslu sinni
af því að greinast með æxli. Þá
munu Pétur Helgason, Hjörleifur
Stefánsson og Arnar Sveinn Geirs-
son segja sína sögu.
„Okkur langar bara að hafa ein-
hvern svona miðlægan punkt.
Þetta er ekki þannig að við séum
að fara í einhverjar umræður. Við
erum meira að fara að koma og
hlusta á aðra karlmenn tala um
hvernig þeir urðu fyrir áhrifum
krabbameins.
Hvernig þeir tókust á við það og
hvernig þeim tókst að komast í
gegnum það,“ sagði Gísli sem
sjálfur er aðstandandi en hann
missti eiginkonu sína, Olgu Stef-
aníu, eftir langvarandi baráttu við
krabbamein.
„Ég veit bara sjálfur þar sem ég
var aðstandandi að maður prófar
allt annað en að biðja um aðstoð,“
sagði Gísli.
Hvetur alla karlmenn
til að mæta
„Það var geðlæknir sem sagði
það á sínum tíma að það hjálpar
svo ótrúlega að þú ferð og sérð
einhvern í svipaðri stöðu og þú eða
sömu stöðu. Er jafnvel á svipuðum
stað eða kominn lengra og lifði það
af. Það gerir bara ótrúlega mikið,“
bætti hann við en hann vill hvetja
alla karlmenn til að mæta á kvöld-
ið í kvöld og skrá sig á vefsíðu
Krafts, kraftur.org.
Eru seinni að leita hjálpar
Kraftur Gísli Álfgeirsson sér um
kröftuga strákastund á Kexinu.
Lífið er núna Kraftur stendur fyrir viðburði á Kexinu í kvöld fyrir karlmenn sem hafa verið snertir af krabbameini.
Hér má sjá Auke van der Ploeg, Gísla Álfgeirsson og Trausta Thorberg frá Krafti sem hafa reynslu af krabbameini.
Kraftur stendur fyrir
viðburðinum Kraftmikil
strákastund á Kexinu
í kvöld fyrir karlmenn
sem hafa verið snertir
af krabbameini en þar
munu reynsluboltar
segja frá sinni reynslu.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
„Ég og Eyþór Kristjánsson vinur minn vorum um mið-
bik ársins 2019 að ræða málin. Við vorum vanir að eyða
löngum tíma í síma þar sem við ræddum pólitík og sam-
félagsmál. Við ákváðum í kjölfarið á því að skapa hlað-
varpið Ein pæling ásamt Kristínu Ketilsdóttur. Við töld-
um vanta hlaðvarp sem réðist í að ræða erfið málefni og
því slógum við til. Fyrst um sinn fengum við nánast eng-
ar hlustanir en nú, um tveim árum síðar, gengur betur heldur en mig hefði
nokkurn tímann grunað,“ segir Þórarinn Hjartarson, hlaðvarpsstjórnandi
hlaðvarpsins Ein Pæling. Inntur eftir því hvað hann hlusti mest á sjálfur
segist hann hlusta mikið á bækur og klippur af Youtube frá C-SPAN til
þess „að öðlast sögulegt samhengi“ um bandarísk stjórnmál sem hann hef-
ur sérstakan áhuga á. Horfir hann að auki mikið á Christopher Hitchens á
Youtube sem er að hans mati mikilvægasti hugsuður samtímans en hann
lést árið 2011. Hann hlustar þó bæði á íslensk og erlend hlaðvörp og eru
eftirfarandi hlaðvörp í uppáhaldi:
Making Sense Podcast Hlaðvarp þar sem Sam Harris
fjallar um ýmis mál. Harris er taugasálfræðingur og
hugsuður en hann er sérstaklega þekktur fyrir að fjalla
um eldfim mál sem fæstir aðrir hlaðvarpsstjórnendur
myndu snerta með priki.
Í ljósi sögunnar Ég tel að þetta sé einn
ástsælasti þáttur Íslendinga. Vera
Illugadóttir brýtur til mergjar sögulega atburði á ótrú-
lega vandaðan máta. Vera á sérstakt hrós skilið fyrir að
velja áhugaverð efni.
The Glenn Show Glenn Show með
Glenn Loury og John McWhorter en
Glenn og John eru í sérstöku uppá-
haldi í sambandi við samfélagsmál í Bandaríkjunum.
Þeir kalla sig The Black Guys at BloggingHeads en þeir
ræða rasisma og veruleika þeldökkra í bandarísku sam-
félagi á annan máta en telst hefðbundið.
Conversation with Coleman Coleman
Hughes er ungur hugsuður sem fjallar um ýmis álitaefni
og er hvergi banginn að takast á við erfið málefni. Um
er að ræða áhugaverðan ungan mann sem verður
skemmtilegt að fylgjast með í náinni
framtíð.
The Fifth Column Kmele Foster er
mikill frjálshyggjumaður sem ræðir
pólitísk álitaefni. Það er sérstaklega áhugavert að hlusta
á Foster ræða málin sökum þess að honum tekst listavel
að ræða málin við fólk sem er honum ósammála án þess
að umræðurnar verði hatrammar.
Vantaði hlaðvarp til
að ræða erfið málefni
Þórarinn Hjartarson
stjórnar vinsæla hlað-
varpinu Ein pæling en
þar ræðir hann við
áhugavert fólk um allt
milli himins og jarðar.
K100 fékk hann til að
ræða um upphaf Einnar
pælingar og deila sínum
uppáhaldshlaðvörpum.
Fimm áhugaverð hlaðvörp frá Þórarni
Hlaðvarp Þórarinn Hjartarson
stjórnar hlaðvarpinu Ein pæling.