Morgunblaðið - 04.11.2021, Síða 48
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
✝
Jónas Scheving
Arnfinnsson
fæddist á Vestra-
Miðfelli í Hval-
fjarðarstrand-
arhreppi 16. nóv-
ember 1925. Hann
lést á Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu
Höfða 23. október
2021.
Foreldrar hans
voru Arnfinnur
Scheving Björnsson skipa-
smiður, f. 1893, d. 1970, og
Ragnheiður Jónasdóttir hús-
móðir, f. 1891, d. 1984. Systkini
Jónasar voru: Björn Scheving,
f. 1918, d. 1990, Guðrún Lára, f.
1919, d. 2013, Guðrún Að-
alheiður, f. 1921, d. 2008, Ásdís,
f. 1924, d. 2004, Grétar Schev-
ing, f. 1927, d. 1927, Arnfinnur,
hann dvaldi til dánardags.
Hjónin eignuðust tvær dætur,
Magneu Sigríði Jónasdóttur, f.
1960, og Ragnheiði Jón-
asdóttur, f. 1962, maki Eiríkur
Þór Eiríksson, f. 1963. Börn
þeirra eru: 1) Ingunn Dögg Ei-
ríksdóttir, f. 1986, maki Jón
Ingi Þórðarson, f. 1978. Börn
þeirra eru: Gabríel, f. 2009, d.
2009, Ilmur, f. 2010, og Eldon,
f. 2015. 2) Jónas Kári Eiríksson,
f. 1994, sambýliskona Rakel
Rósa Þorsteinsdóttir, f. 1996.
Þau eiga eina dóttur, Ragnheiði
Marey, f. 2019.
Jónas lærði múrsmíði við
Iðnskólann á Akranesi og lauk
sveinsprófi 1953. Hann öðlaðist
löggildingu sem meistari í
múrsmíði 1957. Jónas starfaði
sjálfstætt við fagið alla sína
starfsævi.
Útför Jónasar fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 4. nóv-
ember 2021, og hefst athöfnin
klukkan 13. Athöfninni verður
streymt af vef Akraneskirkju.
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
f. 1929, d. 2018,
Margrét, f. 1930, d.
2015, Ragnar
Scheving, f. 1932,
d. 1992.
Jónas kvæntist
8. nóvember 1958
Ingunni Hjördísi
Jónasdóttur, f. 3.
desember 1933.
Foreldrar hennar
voru Jónas Þor-
valdsson, skóla-
stjóri og oddviti í Ólafsvík, og
Magnea Guðrún Böðvarsdóttir,
húsfreyja frá Laugarvatni. Jón-
as og Ingunn bjuggu allan sinn
búskap á Akranesi, lengst af á
Vesturgötu 155, þar til árið
2015 er þau fluttu á Eyrarflöt
4, Akranesi. Í febrúar 2021
flutti Jónas á Hjúkrunar- og
dvalarheimilið Höfða þar sem
Nú er hann afi Jói búinn að
kveðja okkur eftir nokkuð stutt
veikindi en langa ævi. Eftir situr
mikill söknuður enda eyddum við
systkinin ómældum stundum hjá
ömmu og afa en við búum að góð-
um minningum og viljum nýta
tækifærið og minnast alls þess
góða á sama tíma og við sendum
hann inn í sumarlandið.
Þegar við hugsum yfir farinn
veg þá er ekki auðvelt að vita hvar
maður á að byrja enda margt
minnisstætt um þann eðalmann
sem afi hafði að geyma. Afi var
múrarameistari og starfaði við
það alla sína ævi og munum við
helst eftir honum í köflóttri vinnu-
skyrtu, með axlabönd og hnéhlífar
sem var alltaf mikið sport að fá að
prófa þegar við vorum yngri. Afi
var einstaklega laghentur, alltaf
eitthvað að sansa og það var ekki
óalgengt að finna hann í bílskúrn-
um heima á Vesturgötunni áður
en þau amma fluttu í minna hús-
næði. Hann var alltaf tilbúinn að
stökkva til og hjálpa ef það vant-
aði aðstoð með eitthvað, hvort
sem það var hjá okkur systkinum,
öðrum fjölskyldumeðlimum eða
vinum. Hann afi var einnig mikill
græjukarl og vildi alltaf kaupa
það nýjasta og flottasta, hvort
sem það voru myndbandstæki,
myndavélar, sjónvörp, tölvur og
ekki síst snjallsímar. Hann topp-
aði sig þó alveg þegar hann versl-
aði sér “selfie“-stöng, þá 92 ára
gamall. Hliðarafurð af þessari
tæknifíkn var að hann var iðulega
fyrir aftan myndavélina og því
ótrúlega duglegur að taka myndir
og býr fjölskyldan þar að dýr-
mætum fjársjóði.
Afi var einnig mjög vanafastur
og ekki eins mikið fyrir nýjungar í
matargerð eins og í tækninni, vildi
helst alltaf það sama þar sem
hrossakjöt var í algjöru uppáhaldi
og alltaf fékk hann sér kandís með
kaffinu og sitt daglega mjólkur-
bland. Hann sagði þó eitt sinn að
hann væri ekki matvandur, þvert
á móti borðaði hann allt sem
amma eldaði.
Ekkert gaf honum meiri gleði
og ánægju en að hitta langafa-
börnin sín, Ilmi, Eldon og Ragn-
heiði Marey. Hann hafði alltaf
góða nærveru og okkur, sem og
börnunum okkar, leið ávallt vel í
kringum hann og við munum
njóta áfram þeirrar nærveru í
gegnum ömmu Ingu.
Afi átti erfiðar vikur í lokin en
við hlýjum okkur við að nú hvílist
hann kvalalaus og við njótum
minninganna sem hann gaf okkur.
Takk fyrir allt elsku afi - hvíl í
friði. Elskum þig ávallt.
Þín afabörn,
Ingunn Dögg
Jónas Kári.
Vinur minn og mágur, Jónas
Arnfinnsson, er fallinn frá tæp-
lega 96 ára að aldri. Æðrulaus
háði hann, undir það síðasta,
snarpa glímu við Elli kerlingu.
Lengst af hafði hann undirtökin í
þeirri viðureign en lokin vinnur
enginn. Jónas bjó við góða heilsu
um langan tíma, var ekki kvarts-
ár þótt stirðir liðir plöguðu hann
á stundum eftir slítandi störf við
múrverkin.
Árið 1973 fengum við hjónin
notið starfa hans við nýreist hús
okkar að Vesturbergi í Breið-
holti. Hann tók að sér múrsmíð-
ina úti og inni. Og þvílíkur happa-
fengur. Jónas var
framúrskarandi fagmaður, út-
sjónarsamur, laginn með afbrigð-
um og snyrtimennskan einstök.
Hann var stéttarsómi og eftir-
sóttur fagmaður starfsævina á
enda.
Við systkinin ásamt mökum
byggðum sumarbústað á Laugar-
vatni árið 1980. Við öll verk þar
varðandi breytingar og viðhald
og þess háttar nutum við forsjár
og kunnáttu Jónasar. Samheldn-
in hefur ávallt verið einstök og
mikið lærðum við, ég og mágar
mínir, af Jónasi við margvísleg
verkefni í bústaðnum.
Inga og Jónas höfðu alla tíð
gaman af ferðalögum og fóru vítt
og breitt um landið, m.a. stund-
um á „heimatilbúnum“ húsbíl.
Sögulegur fróðleikur í farteskinu
og vídeó- og myndavél á lofti.
Jónas tileinkaði sér alla tíð
tæknina og nýjungar hverskon-
ar. Svo var í eðli hans sambland
af söfnunaráráttu og hirðusemi –
ekki minnst átti hann fjölda vísna
í sarpi sínum.
Jónas hafði mikinn og lifandi
áhuga á knattspyrnu. ÍA var
hans félag alla tíð. Mæðgurnar
Ragnheiður og Ingunn Dögg
voru afrekskonur í kvennafót-
boltanum. Svo var hinn léttleik-
andi spánski bolti í hávegum
hafður og Barcelona liðið hans.
Þá er hann var 90 ára fékk hann
bol félagsins með númerið 90 á
bakinu og áritaða kveðju frá
kónginum sjálfum - Messi! Um
líkt leyti keypti hann sér glænýj-
an Bens - svona til að varðveita
stílinn. Í símtölum okkar vorum
við endalaust að fara með vísur
og gamanmál. Og þegar fótbolt-
inn bættist við fór allt á flug því
Jónas hafði smitandi hlátur sem
kryddaði símtölin við hann alla
tíð.
Að leiðarlokum vil ég fyrir
hönd okkar systkina og fjöl-
skyldna okkar flytja Ingu, dætr-
unum Möggu Siggu og Röggu og
öllum ástvinum Jónasar samúð-
arkveðjur. Við þökkum allar góð-
ar stundir og blessum minn-
inguna um góðan dreng.
Þorvaldur.
Jónas Scheving
Arnfinnsson
Minningarkort
fæst á nyra.is eða
í síma 561 9244
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
stjúpfaðir og afi okkar,
STEFÁN B. ÓLAFSSON,
Stebbi í Crawford,
framkvæmdastjóri,
varð bráðkvaddur 13. október.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju 5. nóvember klukkan 15.
Athöfninni verður streymt á mbl.is/andlat.
Ingunn Magnúsdóttir
Valgerður Stefánsdóttir Kristján Þór Hlöðversson
Agla Marta Stefánsdóttir
Daníel Traustason
Róbert Traustason Anna Einarsdóttir
og afabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN JÓSTEINSDÓTTIR,
Núpalind 6, Kópavogi,
sem lést 9. október, verður jarðsungin
frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn
6. nóvember klukkan 13.
Ingibjörg Björgvinsdóttir Hörður Ingi Jóhannsson
Brynja Björgvinsdóttir Vilbergur Magni Óskarsson
Svandís B. Björgvinsdóttir Þórir Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku faðir minn, tengdafaðir, afi okkar
og langafi,
JÓN FR. SIGVALDASON
bifreiðasmiður,
Faxatúni 32, Garðabæ,
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 30. október.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju fimmtudaginn 11. nóvember
klukkan 13.
Ragnheiður Edda Jónsdóttir Guðmundur Þór Kristjánsson
Líney Rut Guðmundsdóttir
Jón Grétar Guðmundsson
og langafastrákarnir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
EMILÍA LILJA AÐALSTEINSDÓTTIR
frá Hrappsstöðum í Dalabyggð,
síðast til heimilis í Gullsmára 9,
Kópavogi,
lést 31. október.
Kveðjustund verður frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 11. nóvember klukkan 15.
Leifur Steinn Elísson Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir
Bjarnheiður Elísdóttir Kári Stefánsson
Alvilda Þóra Elísdóttir Svavar Jensson
Gilbert Hrappur Elísson
Guðrún Vala Elísdóttir Arnþór Gylfi Árnason
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT HALLDÓRA SVEINSDÓTTIR,
Sóltúni 1,
Reykjavík,
andaðist mánudaginn 1. nóvember.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju þriðjudaginn
16. nóvember klukkan 15.
Guðný Ásgeirsdóttir Stäuble Markus Stäuble
Patrick Julian, Anna Margret og Klemenz
Ásgeir Ásgeirsson Ingibjörg Ýr Pálmadóttir
Sunna Dögg, Pálmi Ragnar, Ásgeir Orri, Skúli Thor
og langömmubörn
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
SMÁRI GUÐLAUGSSON
frá Giljum í Hvolhreppi,
Suðurlandsbraut 58,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk aðfaranótt
28. október. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta hjúkrunarheimilið
Mörk njóta þess.
Ómar Bjarki Smárason Katrina Downs-Rose
Edda Sjöfn Smáradóttir Erlendur Árni Hjálmarsson
Guðrún Hrönn Smáradóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Við aðstoðum þig við gerð viljayfirlýsingar
um útför þína af nærgætni og virðingu
– hefjum samtalið.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
Hinsta óskin
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
INGIGERÐAR MARGRÉTAR
GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Miðtúni.
Alúðarþakkir færum við starfsfólki dvalarheimilisins Kirkjuhvols
fyrir einstaka vináttu og umönnun.
Aðstandendur
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall okkar
ástkæra
JÓHANNS SÆVARSSONAR,
Sléttahrauni 26, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
krabbameinsdeildar 11E og Heru líknarþjónustu.
Ingibjörg G. Björnsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn
og aðrir ástvinir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar