Morgunblaðið - 04.11.2021, Page 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
40 ÁRA Garðar ólst upp í Hafnarfirði og
á Egilsstöðum en býr í Reykjavík. Hann
er með BA-gráðu í vöruhönnun frá Cent-
ral Saints Martins-hönnunarskólanum í
London og MA-gráðu frá Design Aca-
demy Eindhoven. Hann er dósent við
hönnunardeild Listaháskólans.
„Svo er ég að kenna út um allan heim.
Ég er líka í ýmsum samstarfsverkefnum
við stofnanir og fyrirtæki um tengsl
manns við umhverfi og tækni og líka oft á
forsendum framtíðarinnar. Nýjasta
áhugamálið mitt er að semja raftónlist og
nær allur frítíminn fer í það þegar ég er
ekki að tala um framtíðina.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Garðars er Eva Dögg Kristjánsdóttir, f. 1984,
kennari í Breiðagerðisskóla. Börn eru Saga, f. 2009, og Lukka, f. 2013. For-
eldrar Garðars eru Eyjólfur Valgarðsson, f. 1957, byggingatæknifræðingur,
og Kristín Þóra Garðarsdóttir, f. 1957, leikskólakennari. Þau eru búsett í
Garðabæ.
Garðar Eyjólfsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er fallegt að aðstoða aðra, en
það má ekki ganga svo langt að þú gleymir
sjálfum/sjálfri þér. Notaðu innsæið og
spáðu í hvað aðrir eru að reyna að segja þér.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það skiptir öllu máli að hafa hlutina í
jafnvægi og í þínu tilfelli skil milli vinnu og
einkalífs. Óöryggi þitt á rætur að rekja til at-
burðar sem gott væri að ræða við fagaðila.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Iðkun, agi og endurtekning skila
árangri. Gefðu þér tíma til þess að hugsa
fyrir hlutunum, ekki ana bara áfram.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú komst þér sjálf/ur í þessar að-
stæður og ákveður hvort þú kallar það
heppni eða óheppni. Einhver reynir að villa
þér sýn.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú átt auðvelt með að sannfæra við-
mælendur þína og átt því að notfæra þér
það. Gakktu ekki of nærri þér í skipulagn-
ingu fyrir aðra.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú munt líklega skipta um vinnu eða
samastað á þessu eða fljótlega á næsta ári.
Þú veist að ástarsamband þitt er byggt á
sandi.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Stundum getur smá dirfska borgað sig
en samt er sígandi lukka best. Haltu ró þinni
þótt allt gangi ekki upp um leið.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þótt þér finnist þú ekki mega
slaka á í neinu, skaltu samt taka þér tíma til
þess að lyfta þér aðeins upp. Þér eru allir
vegir færir.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Grunnurinn þarf að vera góður
til þess að það sem á honum rís sé til fram-
búðar. Gríptu öll tækifæri til að víkka sjón-
deildarhringinn.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Fólk mun taka drifkraft þinn sér
til fyrirmyndar. Þú mátt samt ekki gleypa
sólina. Léttu undir með þeim sem þess
þurfa.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Samræður við eldri og reyndari
manneskjur koma þér að miklu gagni í dag.
Allir hlutir kosta sitt en það er forgangs-
röðin sem skiptir öllu máli.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Leggðu þig fram um að auka jafn-
vægi í lífi þínu. Það gengur ekki að stinga
höfðinu í sandinn - horfstu í augu við það
sem er í gangi.
flugvéla, þjálfunarmálum og svo eru
snertifletir við margar aðrar deildir
innan fyrirtækisins. Ég kenni áfram
í flugherminum og flýg sjálf þótt
mestum tíma sé eytt við skrifborð og
tölvu. Það er nauðsynlegt að halda
tengslum við hópinn með því að
halda áfram að fljúga og vera hluti af
framlínunni. Svo er líka í reglugerð-
um að maður þurfi að fljúga reglu-
stjóri frá 2018. Hún stýrir því flug-
mannahópi Icelandair sem fyrir Co-
vid taldi hátt í 600 manns. Honum
fækkaði mjög í covid en núna er hóp-
urinn kominn í 300 manns og fer
fjölgandi.
„Það sem felst í starfinu mínu er
utanumhald um þennan hóp sem og
utanumhald um handbækur og verk-
ferla. Við tökum þátt í innleiðingu
L
inda Gunnarsdóttir er
fædd 4. nóvember 1971
í Reykjavík og ólst upp
í Breiðholti fyrstu árin.
Hún var í sveit á bæn-
um Jónsnesi í Helgafellssveit. „Ég
átti dásamlegar stundir þar við
Breiðafjörðinn með frænku minni
Snjólaugu, en afi hennar og amma
voru sumarbændur í Jónsnesi sem
er rétt hjá Bjarnarhöfn. Við fórum á
grásleppu og tíndum æðardún öll
sumur.“
Linda byrjaði skólagönguna í
Hólabrekkuskóla en flutti á Sel-
tjarnarnes 9 ára gömul. Hún hóf þá
nám í Mýrarhúsaskóla þar sem afi
hennar var skólastjóri og amma
hennar sérkennari. Síðan gekk hún í
Valhúsaskóla og útskrifaðist svo
sem stúdent frá Verzlunarskóla Ís-
lands árið 1991. Hún fór þá til náms
við Arizona State University þar
sem hún nam flugrekstrarfræði.
Hún skipti þar um kúrs þegar þang-
að var komið og kláraði nám til at-
vinnuflugs þar í staðinn. Síðar, eða
árið 2006, útskrifaðist hún með
B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá
Háskólanum í Reykjavík.
„Ég fór að vinna á Reykjavíkur-
flugvelli sem afgreiðslumaður sum-
arið sem ég varð stúdent og þá
vaknaði áhuginn á fluginu, tók flug-
tíma meðfram vinnunni og kláraði
einkaflugmanninn. Ég var búin að
skrá mig í hagfræði við HÍ en hætti
við það og ákvað að fara til Banda-
ríkjanna í flugrekstrarnámið. Ég
ætlaði aldrei að verða flugmaður. Á
þessum tíma voru svo fáar konur
flugmenn að ég hugsaði að það væri
ekki raunhæft. En ég skipti svo um
skoðun þegar ég var komin út.“
Þegar Linda kom heim úr náminu
varð hún flugmaður hjá Íslands-
flugi. Þar flaug hún Beechcraft 99,
Fairchild Metro og Dornier 228 og
þá aðallega í innanlands- og Græn-
landsflugi. Hún hóf störf hjá Flug-
leiðum 1995 á F-50 í innanlandsflugi
en fluttist fljótlega yfir í millilanda-
flug á Boeing 737 og síðar Boeing
757 og 767. Hún sinnti bóklegri og
síðar verklegri kennslu flugmanna
fyrir Icelandair frá 2005. Hún varð
síðan flotastjóri 2016 og yfirflug-
lega, bæði til að halda sér í formi og
viðhalda þekkingunni.“
Helstu áhugamál Lindu eru úti-
vera og ferðalög. „Ég er fædd með
flakkaraeðli og hef mikla ánægju af
því að sjá nýja staði. Við fjölskyldan
höfum ferðast víða og þá ekki síður
innanlands en erlendis. Farartækin
eru allskonar eða allt frá reiðhjólum,
skíðum, buggy bílum, bátum, snjó-
Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri Icelandair – 50 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Birna Katrín, Linda, Ólafía Bjarney, Gunnlaugur og Húni Páll um síðustu áramót.
Fæddist með flakkaraeðli
Í flugvél Linda, foreldrar hennar og Pála systir á leið til Vestmannaeyja.
Í Kerlingarfjöllum Linda, Ólafía,
dóttir Lindu, og Þóra frænka þeirra.
Til hamingju með daginn
Mosfellsbær Bjarni Elíasson fæddist 1.
desember 2020 kl. 16.45 á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Hann vó 4.200 g
og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru
Bryndís Bjarnadóttir og Elías
Kristjánsson. Eldri systir hans heitir
Sóllilja Elíasdóttir, f. 26.11. 2018.
Nýr borgari
Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Í þínu liði fyrir þína liðheilsu!
Glucosamine
& Chondroitin Complex
Er kuldinn farinn
að segja til sín?
Allt að 3ja
mánaða
skammtur
í glasi.