Morgunblaðið - 04.11.2021, Side 62

Morgunblaðið - 04.11.2021, Side 62
62 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021 Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL: Manchester City – Club Brugge .......... (2:1) RB Leipzig – París SG .......................... (1:2) B-RIÐILL: AC Milan – Porto...................................... 1:1 Liverpool – Atlético Madrid ................. (2:0) C-RIÐILL: Borussia Dortmund – Ajax ................... (1:0) Sporting – Besiktas ............................... (4:0) D-RIÐILL: Real Madrid – Shakhtar Donetsk........... 2:1 Sheriff – Inter Mílanó ........................... (0:1) _ Leikjum innan sviga var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Úrslitin er að finna í umfjöllun á mbl.is/sport/fotbolti. England B-deild: Blackpool – Stoke.................................... 0:1 - Daníel Leó Grétarsson var ekki í leik- mannahópi Blackpool. Staða efstu liða: Bournemouth 16 11 4 1 27:10 37 Fulham 16 11 2 3 42:14 35 WBA 16 9 4 3 26:14 31 Coventry 16 8 3 5 22:19 27 QPR 16 7 4 5 27:23 25 Stoke City 16 7 4 5 21:19 25 Huddersfield 16 7 4 5 20:18 25 Luton 16 6 6 4 26:21 24 Millwall 16 6 6 4 16:16 24 Blackpool 16 7 3 6 18:19 24 Swansea 16 6 5 5 20:18 23 Blackburn 16 6 5 5 25:24 23 Birmingham 16 6 4 6 17:17 22 Middlesbrough 16 6 3 7 18:18 21 Skotland Hearts – Celtic ......................................... 0:3 - María Ólafsdóttir Gros lék allan leikinn með Celtic. Danmörk B-deild: Vendsyssel – Lyngby .............................. 1:1 - Sævar Atli Magnússon kom inn á sem varamaður hjá Lyngby á 60. mínútu. Fre- derik Schram var ónotaður varamaður. Freyr Alexandersson þjálfar liðið. >;(//24)3;( Subway-deild kvenna Valur – Fjölnir ...................................... 74:84 Grindavík – Skallagrímur.................... 88:61 Njarðvík – Keflavík ........................... (40:35) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/korfubolti. Staðan fyrir leik Njarðv. og Keflav.: Njarðvík 6 5 1 424:333 10 Keflavík 6 5 1 501:421 10 Fjölnir 6 4 2 473:447 8 Valur 6 4 2 460:437 8 Haukar 4 3 1 305:208 6 Grindavík 7 2 5 517:569 4 Breiðablik 6 1 5 410:434 2 Skallagrímur 7 0 7 364:605 0 Evrópubikar kvenna L-RIÐILL: Villeneuve – Haukar ............................ 82:33 _ Tarbes 8, Villeneuve 7, Brno 5, Haukar 4. Evrópubikar karla B-RIÐILL: Valencia – Gran Canaria .................... 89:90 - Martin Hermannsson skoraði 15 stig fyrir Valencia, tók eitt frákast, gaf þrjár stoðsendingar og stal þremur boltum á 24 mínútum. Evrópubikar FIBA D-RIÐILL: Zaragoza – Saratov............................. 86:92 - Tryggvi Snær Hlinason skoraði 6 stig, tók 6 fráköst og varði 3 skot fyrir Zaragoza á 30 mínútum. _ Saratov 8, Reggiana 7, Zaragoza 5, Gilbao Galil 4. F-RIÐILL: Sporting Lissabon – Antwerp Giants 77:53 - Elvar Már Friðriksson skoraði 3 stig fyrir Antwerp Giants, tók tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu á 25 mínútum. _ Sporting 7, Antwerp Giants 7, Belfius Mons 5, Ionikos 5. Danmörk Aabyhöj – Falcon................................. 66:56 - Þóra Kristín Jónsdóttir var stigahæst hjá Falcon með 18 stig og tók 5 fráköst á 29 mínútum. Ástrós Lena Ægisdóttir skoraði 4 stig og gaf eina stoðsendingu á 25 mín- útum. >73G,&:=/D Anton Sveinn McKee hafnaði í 16. sæti í 100 m bringusundi á Evr- ópumeistaramótinu í sundi í 25 metra laug í Kazan í Rússlandi í gær. Anton kom í mark á tímanum 58,23 sekúndum sem dugði ekki til þess að komast áfram í úrslit en hann synti á tímanum 57,98 sek- úndum í gærmorgun í undanrásum þegar hann tryggði sér sæti í und- anúrslitum. Anton stingur sér næst til sunds á morgun þegar keppni í 200 m bringusundi hefst en hann keppir einnig í 50 m bringusundi á laugardaginn. Hafnaði í 16. sæti á EM Ljósmynd/Simone Castrovillari 16 Anton Sveinn komst ekki áfram í úrslit í 100 m bringusundi í Kazan. „Það var gott að sjá hann brosa,“ sagði Eirik Bakke, þjálfari norska knattspyrnufélagsins Sogndal, í samtali við heimasíðu félagsins í gær. Bakke fór ásamt aðstoð- arþjálfara sínum Marius Lenni Böe að heimsækja Emil Pálsson og fjöl- skyldu hans á Haukeland- háskólasjúkrahúsið í Bergen í gær. Emil dvelur nú í Bergen eftir að hafa farið í hjartastopp í leik Sogn- dal og Stjördals-Blink í norsku B- deildinni mánudagskvöld en hann mun gangast undir frekari rann- sóknir á næstu dögum. Gott að sjá hann brosa Ljósmynd/Sarpsborg Noregur Emil Pálsson dvelur nú á Haukeland-sjúkrahúsinu í Bergen. KARATE Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Hinn 16 ára gamli Hugi Halldórsson varð á dögunum Íslandsmeistari í kumite í fullorðinsflokki í fyrsta sinn eftir sigur gegn Ólafi Engilbert Árnasyni í úrslitum í Fylkisseli í Norðlingaholti. Hugi vann tvöfalt á mótinu en hann fagnaði einnig sigri í flokki 16-17 ára pilta. Hugi á ekki langt að sækja karatehæfileikana en faðir hans, Halldór Örvar Stefánsson, er fyrr- verandi aðstoðarlandsliðsþjálfari í kumite. Nýkrýndi Íslandsmeistarinn hef- ur æft karate frá því hann man eftir sér en það er rætt um fátt annað við matarborðið en íþróttina, en báðar systur Huga, þær Ronja Halldórs- dóttir og Embla Rebekka Halldórs- dóttir, fóru einnig mikinn á Íslands- mótinu á dögunum. „Ég get ekki sagt að þessi árang- ur hafi komið mér á óvart enda eitt- hvað sem ég er búinn að vera að stefna að lengi,“ sagði Hugi í samtali við Morgunblaðið. „Óli [Ólafur Engilbert Árnason] hefur verið bestur hér á landi und- anfarin ár og ég lagði upp með það að mæta honum á Íslandsmótinu. Ég var mjög þungur í aðdraganda Íslandsmótsins og ég þurfti því að létta mig umtalsvert til þess að geta keppt í -75 kg flokknum. Ég breytti mataræðinu mikið og minnkaði matarskammtana. Ég var duglegur að fara í gufubað nokkrum dögum fyrir vigtunina sem var hald- in rétt fyrir mótið. Ég held að ég hafi misst um tvö kílógrömm síðustu tvo dagana fyrir Íslandsmótið, en þau komu fljótt aftur og ég var strax orð- inn þremur kílógrömmum þyngri á mótsdegi. Ég hefði auðvitað getað keppt í +75 kg flokknum en samkeppnin er mun meiri í -75 kg flokknum og þess vegna ákvað ég að létta mig eins og ég gerði,“ sagði Hugi sem hefur lagt áherslu á keppni í kata og kumite, þá sérstaklega kumite undanfarið. Leikáætlunin gekk eftir Ólafur Engilbert er margfaldur Íslandsmeistari í kumite og æfir með einu sterkasta félagsliði Norðurlandanna í Álaborg í Dan- mörku en Ólafur er 24 ára gamall. „Markmiðið fyrir mótið var að vinna það og ég æfði mjög vel fyrir bardagann gegn Óla. Ég var með ákveðna leikáætlun sem gekk eftir en þetta var mjög tæpt. Hann byrj- aði bardagann mun betur og var með yfirhöndina lengi vel. Ég missti samt sem áður aldrei trúna á að ég gæti unnið hann og ég var aldrei að fara að gefast upp þeg- ar á hólminn var komið enda búinn að bíða lengi eftir þessu tækifæri. Karate er 30% geta og 70% hugar- ástand og ég var búinn að sjá þetta ágætlega fyrir mér hvernig væri best að vinna hann. Það gekk nokk- urn veginn eftir og mér tókst að lok- um leggja hann að velli í hörku- bardaga.“ Hugsar um karate allan daginn Það kemst fátt annað að en karate hjá Íslandsmeistaranum unga. „Ég hef alla tíð verið mjög ein- beittur á að standa mig vel í íþrótt- inni og karate er nánast það eina sem ég hugsa um allan daginn. Ég æfi af miklum krafti og hef gert það frá því ég man eftir mér. Í dag er ég að æfa sirka tíu sinnum í hverri viku og ég nota sunnudagana til þess að hvíla mig og safna styrk. Þegar ég er ekki í karate, sem er ekki oft, þá reyni ég að eyða tíma með vinum mínum en ég er með mjög háleit markmið í íþróttinni. Ég ætlaði mér að verða Íslandsmeistari og núna er það markmið í höfn og þá tekur bara næsta við. Langtímamarkmiðið er að verða Evrópueistari árið 2023 og ég er strax byrjaður að teikna það upp í hausnum á mér. Næstu mánuðir fara svo bara í það að halda upp- teknum hætti og að bæta sig áfram svo ég verði vel í stakk búinn eftir tvö ár til að ná markmiðinu.“ Mótin gerast ekki stærri Það er nóg fram undan hjá Huga sem er á leið á Norðurlandamótið í Stavanger í Noregi og þaðan liggur leiðin til Ítalíu þar sem hann keppir í Youth League í Feneyjum. „Ég hef æft mjög stíft fyrir Norð- urlandamótið og ég ætla mér stóra hluti þar. Ég er nýbyrjaður í ung- mennaflokki og það væri auðvitað frábært að standa uppi sem sigur- vegari í Noregi, sérstaklega þar sem ég er tveimur árum yngri en flestir andstæðingar mínir á Norður- landamótinu. Eftir það liggur leiðin til Ítalíu þar sem ég vonast auðvitað til þess að gera vel líka. Þetta er stærsta ung- lingamót í heimi, svo einfalt er það, og þar mæta allir bestu bardaga- menn heims. Mótin gerast því ekki mikið stærri en það fyrir keppendur í mínum aldursflokki.“ Alltaf mjög gaman Hugi er ellefufaldur Íslandsmeist- ari í unglingaflokki í bæði kata og kumite en hann varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 2013, þá átta ára gamall. „Ég var fjögurra ára gamall þegar ég byrjaði að æfa karate og ég elti í raun bara pabba minn sem hefur alltaf æft íþróttina. Ég man að hann spurði mig hvort ég vildi byrja að æfa karate og ég svaraði strax ját- andi, án þess að muna eitthvað sér- staklega eftir því af hverju mig lang- aði að prófa að mæta á æfingu. Ég man hins vegar að mér fannst strax mjög gaman í íþróttinni og ég naut mín vel. Árangurinn lét ekki á sér standa og það kom fljótt í ljós að íþróttin átti vel við mig. Vissulega hafa áherslurnar breyst aðeins, frá því að maður var fjögurra ára, en þetta er samt sem áður alltaf jafn gaman.“ Byrjuðu saman í karate Ronja, eldri systir Huga, fædd 2004, varð Íslandsmeistari í kvenna- flokki á dögunum og þá fagnaði yngri systir hans, Embla Rebekka, fædd 2008, sigri í 13 ára flokki stúlkna. „Það er alveg óhætt að segja að karateíþróttin sé okkur í blóði borin. Ég og eldri systir mín byrjuðum á sama tíma í íþróttinni og það er talað um fátt annað en íþróttina við mat- arborðið. Saman tókum við systkinin með okkur fjóra Íslandsmeistara af síðasta móti sem verður að teljast ágætis árangur. Við keppum mikið hvort við annað á æfingum og eins þá æfum við okk- ur líka inni á heimilinu. Við erum dugleg að kýla og sparka hvort í annað heima fyrir en það er bara hluti af íþróttinni og þetta eru aldrei nein slagsmál, bara venjulegar æf- ingar eins og gengur og gerist í ka- rate,“ bætti Hugi við í samtali við Morgunblaðið. Systkinin dugleg að sparka hvort í annað - Hugi Halldórsson varð Íslandsmeistari í kumite í fyrsta sinn á dögunum Ljósmynd/KAI.is Íslandsmeistari Hugi Halldórsson, til vinstri, sækir að Ólafi Engilbert Árnasyni í úrslitaeinvíginu á Íslandsmótinu í kumite sem fram fór í Fylkisseli í Norðlingaholti á dögunum en Hugi hafði að lokum betur eftir harða baráttu. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: Garðabær: Stjarnan – Valur................ 18.15 TM-hellirinn: ÍR – Þór Ak. .................. 18.15 Ísafjörður: Vestri – KR........................ 19.15 Blue-höllin: Keflavík – Þór Þ............... 20.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Dalhús: Fjölnir – Berserkir................. 19.30 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.