Morgunblaðið - 04.11.2021, Page 63
ÍÞRÓTTIR 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
Rakel Sara Elvarsdóttir átti frá-
bæran leik og skoraði átta mörk
fyrir KA/Þór þegar liðið vann
öruggan 34:26-sigur gegn Haukum
í úrvalsdeild kvenna í handknatt-
leik, Olísdeildinni, í KA-heimilinu á
Akureyri í frestuðum leik úr þriðju
umferð deildarinnar í gær.
Akureyringar voru með yf-
irhöndina í leiknum allan tímann en
Matea Lonac átti stórleik í marki
KA/Þórs, varði 14 skot og var með
41% markvörslu. KA/Þór er með 7
stig í þriðja sætinu en Haukar eru í
því fjórða með 5 stig.
Fór á kostum
á Akureyri
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
4 Martha Hermannsdóttir fagnar
vel og innilega á Akureyri í gær.
Haukar töpuðu stórt þegar liðið
heimsótti Villeneuve D’Ascq í L-
riðli Evrópubikars kvenna í körfu-
knattleik í Villeneuve í Frakklandi
gær. Leiknum lauk með 82:33-sigri
Villeneuve en Lovísa Hennings-
dóttir var stigahæst í liði Hauka
með 9 stig og eitt frákast.
Haiden Palmer skoraði 6 stig, tók
sex fráköst og gaf þrjár stoðsend-
ingar og Briana Gray skoraði fimm
stig og tók fjögur fráköst.
Haukar eru í neðsta sæti L-riðils
með 4 stig eftir fjóra leiki, stigi
minna en Brno sem er með 5 stig.
Ljósmynd/FIBA
Frakkland Elísabet Ýr Ægisdóttir
reynir að verjast Caroline Heriaud.
Töpuðu stórt
í Frakklandi
KÖRFUBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Fjölnir náði í tvö afar mikilvæg stig í
Subway-deild kvenna í körfuknatt-
leik í gær. Fjölnir heimsótti Íslands-
meistara Vals á Hlíðarenda og vann
84:74 eftir skrautlegan leik en fram-
lengja þurfti til að knýja fram úrslit.
Töluverðar sveiflur voru í leikn-
um. Fjölnir var þremur stigum yfir
að loknum fyrri hálfleik, 38:35, og
settu gestirnir þá niður nokkrar
góðar þriggja stiga körfur. Í upphafi
síðari hálfleiks náði Fjölnir sjö stiga
forskoti 44:37. Valskonur létu sér
hvergi bregða og náðu fínum tökum
á leiknum. Þegar nokkrar mínútur
voru eftir var Valur með níu stiga
forskot, 62:53, en það fór fyrir lítið á
lokakaflanum. Þá skoraði Fjölnir
sextán stig gegn fjórum. Fjöln-
iskonur knúðu fram framlengingu
þegar Iva Bosnjak setti niður
þriggja stiga skot og jafnaði, 66:66.
Í framlengingunni héldu Fjöln-
iskonum engin bönd og þær skoruðu
nánast að vild og tryggðu sér stigin
tvö. Bosnjak skoraði alls 14 stig fyrir
Fjölni og hitti úr fjórum af sex
þriggja stiga skotum. Sanja Orozo-
vic var stigahæst með 22 stig og var
mjög mikilvæg í framlengingunni.
Ameryst Alston sýndi góð tilþrif hjá
Val og skoraði 31 stig en gaf einnig
sjö stoðsendingar. Dagbjört Dögg
Karlsdóttir skoraði 16 stig.
Þessi sömu lið áttust við í undan-
úrslitum Íslandsmótsins á síðasta
tímabili. Þá vann Valur 3:0 en miklar
breytingar hafa orðið á liðunum síð-
an þá auk þess sem Hildur Björg
Kjartansdóttir er ekki leikfær hjá
Val fegna höfuðáverka. Fjölnir fór
upp að hlið Vals með sigrinum en lið-
in eru með átta stig eftir sex leiki í 3.
og 4. sæti. Útlit er fyrir hörkubar-
áttu um sætin fjögur í úrslitakeppn-
inni en Haukar eru með sex stig í 5.
sæti og eiga tvo leiki til góða vegna
verkefna sinna í Evrópukeppni.
Grindavík er með fjögur stig eftir
öruggan sigur á botnliði Skallagríms
sem skipti um þjálfara á dögunum.
Grindavík vann 88:61 og skoraði
Hulda Björk Ólafsdóttir 20 stig fyrir
Grindavík. Embla Kristínardóttir
skoraði einnig 20 fyrir Skallagrím.
_ Toppslag Njarðvíkur og Kefla-
víkur var ekki lokið þegar blaðið fór
í prentun en um hann er fjallað á
mbl.is/sport/korfubolti.
Upp að hlið
Vals með sigri
á Hlíðarenda
Morgunblaðið/Unnur Karen
Á Hlíðarenda Aliyah Mazyck úr Fjölni með boltann í leiknum í gær en
Valsarinn Dagbjört Dögg Karlsdóttir gefur henni lítið svigrúm.
- Mikilvægur sigur Fjölnis - Útlit fyrir
hörkubaráttu um sætin fjögur
tvo kosti. Annars vegar að spila í
öðru landi í Evrópu eða reyna að fá
rússneska sambandið til að taka
leikinn að sér og leika þar.
Til þess að leysa málin fór KKÍ
þess á leit við FIBA og rússneska
körfuknattleikssambandið að fá leyfi
til að skipta á heimaleik/útileik í
leikjaplaninu og úr varð að það gekk
upp, Rússar taka á móti Íslandi í
Sankti Pétursborg þann 29. nóv-
ember í stað þess að koma til Íslands
og verður þá vonandi heimaleikur
Íslands gegn Rússum í staðinn 4. júlí
2022,“ sagði í tilkynningu frá Körfu-
knattleikssambandi Íslands í gær.
Tímabært að bæta aðstöðumál
Í tilkynningunni gagnrýndi KKÍ
hvernig komið er fyrir aðstöðu-
málum hjá fólki sem iðkar inniíþrótt-
ir hér á landi. „Þetta er því miður
staðan en Ísland hefur ekki leikið
heimaleik í Höllinni í rúmlega eitt og
hálft ár sem var fyrst vegna Covid-
ástandsins (leikið í sóttvarna-
bubblum) og svo nú þegar það er
loksins möguleiki að spila hér heima
á ný þá koma upp aðstöðumál sem
hindra það að leikmenn liðsins og ís-
lenskir aðdáendur fái að keppa og
styðja við sitt lið hér á landi.
Einnig mun þetta hafa fjár-
hagsleg áhrif á starfsemi KKÍ þar
sem sambandið verður af tekjum
vegna heimaleiksins og mikils kostn-
aðar við að ferðast til Rússlands á
þessum tíma. Eins og KKÍ hefur
bent ítrekað á er löngu kominn tími
á að bæta aðstöðumál sérsambanda
sem stunda inniíþróttir sem uppfylla
nútímakröfur varðandi keppn-
isaðstöðu og aðgengi landsliða. Það
er kominn tími til að stjórnvöld setji
fjármagn í gerð þjóðarleikvangs og
stígi skrefið við að framkvæma.“
Ljósmynd/KKÍ/Jónas
Laugardalshöll Íslenska karlalandsliðið í síðasta landsliðsverkefni þar sem
liðið spilaði í Laugardalshöll, gegn Slóvakíu í lok febrúar árið 2020.
Geta ekki spilað heimaleiki
- Fá ekki undanþágu frá undanþágu
- Tími kominn á nýjan þjóðarleikvang
KÖRFUBOLTINN
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í körfu-
knattleik hefur leik í undankeppni
fyrir HM 2023 þegar liðið mætir
Hollandi og Rússlandi í lok mán-
aðarins. Til stóð að síðari leikurinn
gegn Rússlandi færi fram hér á landi
en það er ekki mögulegt vegna að-
stöðuleysis. Leikvangur íslenska
liðsins, Laugardalshöllin, sem er eini
löglegi keppnisvöllurinn á landinu
en þó með undanþágu frá Al-
þjóðakörfuknattleikssambandinu,
FIBA, hvað varðar grunnkröfur
sambandsins fyrir landsleiki, er
ónothæf vegna viðgerða og hefur
verið það síðastliðna mánuði.
„Eftir mikil samskipti við FIBA,
formleg sem óformleg, varð ljóst að
FIBA var ekki tilbúið til að veita
undanþágu ofan á undanþágu vegna
þessa heimaleiks og gaf FIBA KKÍ
Olísdeild kvenna
KA/Þór – Haukar ................................. 34:26
Staðan:
Fram 5 4 1 0 142:125 9
Valur 4 4 0 0 117:86 8
KA/Þór 5 3 1 1 138:129 7
Haukar 5 2 1 2 134:134 5
Stjarnan 5 2 0 3 115:123 4
HK 5 1 1 3 106:121 3
ÍBV 4 1 0 3 104:99 2
Afturelding 5 0 0 5 103:142 0
Grill 66 deild kvenna
Víkingur – Fram U............................... 32:30
Staðan:
FH 5 3 1 1 132:97 7
ÍR 5 3 1 1 130:116 7
Víkingur 5 3 0 2 124:126 6
Selfoss 4 3 0 1 115:106 6
Fram U 5 3 0 2 142:143 6
Grótta 5 2 0 3 122:125 4
Stjarnan U 5 2 0 3 129:153 4
HK U 4 1 1 2 97:101 3
Valur U 3 1 1 1 71:75 3
ÍBV U 4 1 0 3 110:103 2
Fjölnir/Fylkir 5 1 0 4 100:127 2
Þýskaland
Bietigheim – Sachsen Zwickau ......... 35:20
- Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 6
mörk fyrir Sachsen Zwickau.
Danmörk
Skanderborg – Aarhus United .......... 26:20
- Steinunn Hansdóttir komst ekki á blað
hjá Skanderborg.
Svíþjóð
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Skara – Kristianstad........................... 32:26
- Andrea Jacobsen skoraði 6 mörk fyrir
Kristianstad.
.$0-!)49,
_ Knattspyrnukonan Bryndís Arna
Níelsdóttir er gengin til liðs við Ís-
landsmeistara Vals samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins. Hún skrifaði
undir samning við félagið á þriðjudag
en Bryndís Arna kemur til félagsins frá
uppeldisfélagi sínu Fylki. Bryndís
Arna, sem er einungis 18 ára gömul, á
að baki 43 leiki í efstu deild þar sem
hún hefur skorað 18 mörk. Bryndís
mætti á sína fyrstu æfingu hjá Val í
gær en hún á að baki 14 landsleiki fyrir
yngri landslið Íslands þar sem hún
hefur skorað sex mörk.
_ Heiðar Ægisson, hinn fjölhæfi leik-
maður karlaliðs Stjörnunnar í knatt-
spyrnu, hefur ákveðið að framlengja
ekki samning sinn við uppeldisfélagið
og er því laus allra mála. Heiðar er 26
ára gamall og hefur verið í herbúðum
Garðabæjarliðsins allan sinn feril og á
að baki 128 leiki fyrir félagið í efstu
deild þar sem hann hefur skorað 2
mörk. Hann hefur verið orðaður við
bæði FH og Val undanfarna daga.
_ Chris Paul færði sig upp í þriðja
sæti yfir flestar stoðsendingar í sögu
NBA-deildarinnar í körfuknattleik þeg-
ar hann gaf 18 slíkar í 112:100 sigri
Phoenix Suns gegn New Orleans Pelic-
ans. Paul, sem er 36
ára gamall, fór Paul
úr fimmta sæti upp
í það þriðja á listan-
um. Hefur hann gefið
10.346 stoðsendingar
en er þó ansi langt
frá því að komast
enn ofar á listanum.
Jason Kidd, sem er í
öðru sæti, gaf á sín-
um tíma 12.091 stoð-
sendingu og John
Stockton er lang-
efstur með 15.806
stoðsendingar.
Eitt
ogannað