Morgunblaðið - 04.11.2021, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 04.11.2021, Qupperneq 65
MENNING 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021 M yndin Titane fjallar um morðóðu nektardans- meyna Alexia (Agathe Rousselle) sem í æsku lendir í bílslysi af völdum föður síns sem gerði það að verkum að hún þurfti að fá títanplötu í höfuðið og þaðan er titillinn kominn. Alexia er því ekki að fullu mennsk og út- skýrir það af hverju hana skortir mannlega eiginleika eins og sam- kennd. Einu raunverulegu tengsl hennar virðast vera við bíla og því ekki skrýtið að Alexia verði ólétt eftir að hafa stundað kynlíf með tryllitækinu Kadillak. Alexia neyð- ist hins vegar til þess að flýja heimaslóðir sínar ólétt þegar eitt fórnarlamba hennar sleppur lifandi. Á flóttanum sér hún tölvugerða mynd af því hvernig löngu týnt barn, Adrian, myndi ef til vill líta út í dag sem ungmenni. Án þess að hika breytir hún útlit sínu til þess að líkjast Adrian og áður en hún veit af situr hún í framsætinu við hliðina á föður Adrian, Vincent (Vincent Lindon), sem grætur gleði- tárum. Í byrjun kvikmyndarinnar er Alexia strippdansari á bílasýn- ingum þar sem hún er til sýnis líkt og bílarnir. Á sama tíma virðist hún haga sér frekar eins og vélmenni en manneskja og er það þá sem hún fremur flest morðin. Hún tælir fólk- ið og ræðst síðan á það með málm- skafti sem hún notar sem hárnál. Í fyrsta morðatriðinu til að mynda keyrir hún málmskaftið í gegnum eyrað á fórnarlambinu og þurrkar það svo beint á eftir eins og hún hafi einungis verið að athuga olíuna á vél bílsins. Alexia er ekki einungis ómennsk í hegðun sinni heldur virð- ist hún einungis laðast að hlutum og vélum. Þetta má til að mynda sjá í atriðinu þar sem hún er að stunda kynlíf með stelpu sem er með lokk í geirvörtunni. Alexia virðist í fyrstu vera mjög upptekin af því að sleikja á henni brjóstin en síðan verður það skýrara að hún hefur engan áhuga á brjóstunum heldur aðeins lokkn- um í geirvörtunni. Alexia reynir að slíta lokkinn frá geirvörtunni með munninum og á meðan æpir hin stúlkan af sársauka. Sem fyrr segir verður Alexia nánast að vélmenni meðan hún starfar sem strippdansari. Þeirri spurningu er þannig velt upp hvort það sé hið karllæga augnaráð sem gerir hana beinlínis ómann- eskjulega. Þetta er ekki mjög frá- brugðið því sem á sér stað í dag í nútímasamfélögum þar sem konur velja að hlutgera sig sjálfar því eng- in undankomuleið er frá hinu karl- læga augnaráði og því betra að hlutgera sig sjálfar heldur en að vera hlutgerðar af öðrum. Þrátt fyrir að hafa lifað á útliti sínu sem strippdansari virðist Alexia samt sem áður ekki hafa neina persónulega tengingu við lík- ama sinn. Án þess að hika nef- brýtur hún sig, bindur brjóst sín og útþaninn kvið sinn til þess að líkjast hinum týnda Adrien. Hún færir sig úr heimi þar sem hún reiðir sig al- farið á kvenlega frammistöðu sína inn á ofurkarlmannlegt svið slökkvi- liðsins sem Vincent stýrir. Slökkvi- liðsstöðin er mjög karllægur vinnu- staður og er það einungis í gegnum dans sem þeir geta slakað á í hlut- verkaleik þeirra sem „alvöru“ karl- menn. Ducournau leikur sér þannig með kynjahlutverkin en tengir þau einnig við annað þema myndarinnar sem felst í því að hafa stjórn á eigin líkama. Í raun má segja að Titane sé knúin áfram af örvæntingarfullri löngun persónanna til að hafa stjórn á eigin líkama. Alexia reynir að líkjast og haga sér eins og karl- maður en er föst í óæskilegri með- göngu þar sem líkami hennar hótar að afhjúpa hana. Alexia ætti ekki að geta orðið ólétt eftir bíl en sú er raunin. Hér er aftur verið að gagn- rýna það að konur hafi ekki stjórn á eigin líkama. Hins vegar á þetta ekki einungis við um konur þar sem Vincent reynir eftir bestu getu að halda sér stæltum og ungum með því að sprauta í sig sterum enda helsta merki karlmennsku að hafa algjöra stjórn á eigin líkama. Titane býður upp á margar túlk- anir þrátt fyrir að vera líkamshryll- ingur, en sumir hafa bent á að sag- an fjalli í raun um fórnarlamb sem reiðir sig á gerandann. Þetta má til dæmis sjá skýrt í atriðinu eftir slys- ið en það fyrsta sem Alexia gerir eftir að hún kemur af spítalanum er að knúsa og kyssa bílinn. Aðrir vilja meina að myndin fjalli um áföll sem erfast með kynslóðum þar sem barn Alexiu fæðist með títan fyrir hrygg. Það eru þessar ýmsu túlkunarleiðir sem gera myndina sérstaka og ef til vill væri best að flokka hana sem pólitískan líkamshrylling. Ducour- nau vakti áður mikla athygli fyrir líkamshryllinginn Hrá (Raw, 2016) en þar notaði hún óhugnanleg mannátsatriði til þess að koma fram skilaboðum um sjálfsmynd og líkamsímynd. Það er þó ekki það eina sem myndirnar eiga sameigin- legt því í báðum tilvikum eru per- sónur sem heita Alexia og Adrien. Áhugavert verður að sjá hvað Duco- urnau tekur sér næst fyrir hendur og hvort hún komi til með að þróa enn frekar sín höfundareinkenni. Kadillak-kynlíf Líkamshryllingur „Titane býður upp á margar túlkanir þrátt fyrir að vera líkamshryllingur, en sumir hafa bent á að sagan fjalli í raun um fórnarlamb sem reiðir sig á gerandann,“ segir um Titane sem hlaut Gullpálmann 2021. Bíó Paradís Titane/Títan bbbbn Leikstjórn: Julia Ducournau. Handrit: Jacques Akchoti, Julia Ducournau. Aðalleikarar: Vincent Lindon, Agathe Rousselle og Garance Marillier. Frakk- land og Belgía, 2021. 108 mín. JÓNA GRÉTA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDIR Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Frábær ný mynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali. Tónlistarkon- urnar Jenny Wil- son og Kate Havnevik koma fram hvor í sínu lagi á tónleikum í Norræna húsinu í dag og á morg- un kl. 21. Eru tónleikar þeirra hluti af röð sem nefnist Autumn or Winter Con- certs, þ.e. haust- eða vetrartón- leikar. Báðar áttu þær að koma fram á hátíðinni Iceland Airwaves sem var frestað til næsta árs. Havnevik er norsk og kemur fram með Guy Sigsworth og verður Sig- tryggur Baldursson trommuleikari sérstakur gestur þeirra. Wilson er sænsk og vakti fyrst athygli sem söngvari og gítarleikari hljómsveit- arinnar First Floor Power og sem annar liðsmanna dúettsins Driften. Wilson og Havne- vik í tónleikaröð Jenny Wilson Verk eftir Högna Egilsson, tón- listarmann og tónskáld, verða leikin í föstu- dagsröð Sin- fóníuhljóm- sveitar Íslands í Norðurljósasal Hörpu annað kvöld kl. 18 og 20. Hljómsveitarstjóri verður Korn- ilios Michailidis. Högni stundaði fiðlunám í æsku, söng með Hamrahlíðarkórnum um árabil og hefur lokið tónsmíðanámi við Listaháskóla Íslands. Á tónleik- unum verður leikin ný sinfónísk tónlist eftir hann og verður það í fyrsta sinn sem Högni semur sér- staklega fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands, eins og segir á vef Hörpu. Segir á vefnum að Högni hafi um langt árabil verið meðal kunnustu tónlistarmanna landsins og náð at- hygli út fyrir landsteinana með tón- list sinni og starfi með tónlistar- hópnum Hjaltalín. Þá hafi hann einnig samið tónlist fyrir þáttaröð- ina Kötlu á Netflix og tók SÍ þátt í flutningi hennar. Ný verk Högna í Norðurljósum Högni Egilsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.