Morgunblaðið - 04.11.2021, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 04.11.2021, Qupperneq 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021 www.gilbert.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Performansinn byrjar á neðstu hæð hússins og leiðir þaðan yfir í Hörpuhornið og loks upp stigann alveg upp á fjórðu hæð, en lokakafl- inn gerist í stóra langa stiganum sem stundum er nefndur himnastig- inn. Það verður því dansað á þremur hæðum og tónlistarfólk mun leiða áhorfendur milli hæða,“ segir María Huld Markan Sigfúsdóttir tónskáld um dans- og tónlistarverkið Are we Ok? sem flutt verður í Hörpu í dag, fimmtudag, kl. 19 og 21. Flutningurinn er opinn öllum og aðgangur ókeypis, en fólk er hvatt til þess að mæta tímanlega til þess að tryggja sér pláss. María Huld samdi tónlist verksins og danshöf- undur er Daniel Roberts. Andri Snær Magnason hefur sett saman texta sér- staklega fyrir verkið og Heimir Freyr Hlöðvers- son myndlistar- maður verður með sýningu á ljósmyndum af jökulís úr fimm jöklum. Í kynningarefni um verkið er sjónum beint að vatninu, sem er dýrmæt en viðkvæm auðlind sem „viðheldur andrúmsloftinu, höfunum og norðurslóðunum eins og við þekkjum þær í dag,“ segir á vef Hörpu. Þar kemur fram að endan- legt hvarf jökulsins Ok hafi vakið at- hygli á heimsvísu og orðið til þess að fleiri hafi farið að gefa vatni, hvort sem er í fljótandi, föstu eða gufu- formi, meiri gaum. Eins konar afmælispakki „Verkið tekur um 40 mínútur í flutningi og er hugsað sem upplif- unarferðalag um Hörpu,“ segir María Huld og rifjar upp að Roberts hafi heillast af Hörpu þegar hann heimsótti tónlistarhúsið fyrst fyrir um fjórum árum. „Hann heillaðist algjörlega af opnu rýmum hússins og fannst þau kalla á sig til að semja dansverk fyrir þau. Að hans mati er Harpa ein fallegasta bygging sem hann hefur komið inn í,“ segir María Huld og bendir á að Roberts, sem er fyrrverandi dansari í Merce Cunningham-dansflokknum, hefur á ferli sínum dansað í mörgum af þekktustu menningar-, tónlistar- og óperuhúsum heims. María Huld rifjar upp að upphaf- lega hafi staðið til að flytja verkið áður en Covid-19 brast á, en heims- faraldurinn hafi frestað öllum plön- um. „Verkið fór í salt, sem var kannski bara gott því þá gafst okkur tækifæri til að þróa það enn frekar,“ segir María Huld og fagnar því að verkið rati nú loks fyrir sjónir al- mennings í tengslum við 10 ára afmælisfögnuð Hörpu. „Þannig verður verkið eins konar afmælis- veisla eða afmælispakki,“ segir María Huld og fagnar góðu sam- starfi við Hörpu sem komi að því að setja upp ljós- og hljóðkerfi innan- húss til að verkið njóti sín sem best, auk þess sem leyfi hafi fengist til að breyta lýsingunni í hjúp Hörpu þannig að hún kallist á við verkið. Vísar í sköpunarkraftinn Í kynningarefni um Are We Ok? kemur fram að verkið sé m.a. inn- blásið af verkum Ólafs Elíassonar, Andra Snæs Magnason og Roni Horn. „Verkið sækir innblástur sinn í umræðuna um loftslagsmálin sem hefur verið áberandi í heimsfaraldr- inum. Mikið hefur verið rætt um það hvernig heimurinn verði þegar allt fari af stað aftur eftir faraldurinn. Ok í titli verksins vísar til þess hvernig okkur líður eftir þetta allt saman, hvernig líður okkur að vera starfandi listamenn sem fljúgum milli landa til að sinna list okkar, skiptir listin máli þegar kemur að því að setja loftslagsmálin á dag- skrá. Ok vísar einnig í okið, þ.e. þær byrðar sem við berum öll saman þegar kemur að loftslagsmálum og Okið sem hvarf. Loks vísar ok í sköpunarkraftinn sem er okfruman, sem er fyrsta fruma nýs ein- staklings,“ segir María Huld og bendir á að Are We Ok? leiði fólk í ævintýralegt ferðalag um einstakan arkitektúr Hörpu. Rými skoðuð ferskum augum „Með verkinu erum við að beina athygli fólks að byggingunni með öðrum hætti en venjulega og meðal annars að skoða fallegustu sjónar- hornin með ferskum augum,“ segir María Huld og bendir á að mörg okkar fari oft um rýmið án þess að veita því sérstaka athygli. „Okkur langaði til að virkja rýmin og upp- lifun fólks af þeim, þannig að lífið í byggingunni sé ekki bara að finna í tónlistarsölunum, heldur líka í þess- um fallegu rýmum.“ Verkið flytja dansarar frá Íslandi, Bandaríkjunum og Kóreu. Þetta eru þau Devin Baker, Anaïs Barthe, Simone Burnett, Emilía Gísladóttir, Benny Olk, Andrean Sigurgeirsson, Jin Ju Song-Begin og Joshua Tua- son. „Hljóðfæraleikararnir eru sam- safn af því tónlistarfólki sem ég hef unnið með í gegnum tíðina. Í harm- óníumsveitinni eru Pétur Ben, Ólaf- ur Björn Ólafsson, Páll Ivan frá Eið- um, Júlíus Björgvinsson og Ása Önnu Ólafsdóttir. Þau Skúli Sverr- isson, Kjartan Sveinsson og Ólöf Arnalds skipa aðra grúppu. Í stig- anum syngur kórinn Kliður. Í loka- kaflanum kemur fram Ólöf Arnalds auk þess sem upptökur frá Strok- kvartettinum Sigga hljóma og Sam- úel Jón Samúlesson og Ingi Garðar Erlendsson þeyta lúðra, þar á meðal þránófón, sem er eins og horn Heimdallar sem hann notaði til að vekja guðina af svefni.“ Tími til að vakna úr doða Spurð um tónlistaruppbyggingu verksins segist María Huld vinna með ólík stílbrigði til að ná fram réttu áhrifunum. „Í fyrsta kaflanum þar sem leikið er á harmóníin er áherslan á jarðtenginguna og efnið seigfljótandi meðan dansararnir eru eins og frosinn ís. Annar kaflinn fer fram í Hörpuhorni þar sem bygg- ingin er eins og dómkirkja. Þar er verkinu ætlað að endurspegla þenn- an guðdómleika. Þar verður tónlist- in draumkenndari og rómantískari. Síðan liðast verkið upp á fjórðu hæð og endar í ógn og panik, þar sem tónefnið verður léttara og hraðara. Tilfinningin á að vera sú að fólk upp- lifi að tími sé kominn til að vakna úr doðanum og grípa til aðgerða,“ segir María Huld og tekur fram að tón- listin undirstriki þannig hið efnis- lega og tilfinningalega ferðalag sem farið er í. Málþingið „Og hvað svo?“ Þess má að lokum geta að í tengslum við verkið verður á morg- un kl. 16 í Hörpu boðið upp á mál- þing um listina og loftslagsmálin undir yfirskriftinni „Og hvað svo?“ Sverrir Norland leiðir málþingið og í panel sitja Högni Egilsson, Ólafur Páll Jónsson, Unnur Björnsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir og Benedikt Erlingsson. „Athyglinni verður beint að listafólki og loftslagsmál- unum og hvaða máli framlag þeirra til málaflokksins skiptir. Er listin mikilvæg í þessu samhengi, hvað gerist þegar búið er að flytja eða sýna listaverkið? Hafði það eitthvað að segja? Skiptir það máli í stóra samhenginu? Og hvað svo?“ segir í kynningu á málþinginu. Aðgangur er ókeypis og ekki þarf að bóka miða. Morgunblaðið/Unnur Karen „Upplifunarferðalag um Hörpu“ - Dans- og tónlistarverkið Are We Ok? flutt í Hörpu í dag kl. 19 og 21 - Daniel Roberts er dans- höfundur og tónlistina semur María Huld Markan Sigfúsdóttir - Málþing í Hörpu á morgun kl. 16 María Huld Markan Sigfúsdóttir Athygli „Með verkinu erum við að beina athygli fólks að byggingunni með öðrum hætti en venjulega,“ segir tónskáldið María Huld Markan Sigfúsdóttir um verkið Are We Ok? Frosin Tónefni fyrsta kaflans er seigfljótandi meðan dansararnir eru eins og frosinn ís.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.