Morgunblaðið - 04.11.2021, Page 72
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
Virkir dagar 11-18:30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
Virkir dagar 11-18
s: 522 4500 - www.ILVA.is
FAST SENDINGARGJALD MEÐ
PÓSTINUM HVERT Á LAND SEM ER!
AF ÖLLUM SÓFUM,
HÆGINDASTÓLUM
OG SÓFABORÐUM
20-40%
Sófadagar
1. - 15. NÓV
20%20%
AFMOTTUM OG LÖMPUMAF PÚÐUM OG ÁBREIÐUM
BAYVILLE HÆGINDASTÓLL
cognac leðurlíki
39.900 kr.Nú 29.925 kr.
AURA BORÐLAMPI
Hæð 50CM
24.995 kr.Nú 189.996 kr.
25%
SIENA TUNGUSÓFI
Ljósgrátt áklæði. L300 x D160 x B94 cm. 369.900 kr.Nú 295.920 kr.
20%
RIA 2JA SÆTA SÓFI.
Sinnepsgult flauelsáklæði, kemur í fleiri
litum. L152 x B83 x H79 cm
109.900 kr.Nú 87. kr.
20%
20%
Nýr litur!
Sýning á málverkum
Chris Foster verður opnuð
í dag, fimmtudag, í sýn-
ingarsal SÍM að Hafnar-
stræti 16 í Reykjavík. Eru
það óhlutbundin akríl-
málverk máluð á spjöld
sem eru ekki hornrétt.
Chris segir um verkin að í
þeim sé margræðnin og sambandið innan verks, sem
áþreifanlegs hlutar, skoðað, hvernig litir og litbrigði
hafa áhrif á skynjunina á áferð þeirra og hrynjandina í
máluðum formum á yfirborði þeirra. Segist hann hafa
rannsakað athafnir á borð við ímyndun, sköpun, það að
horfa á, sjá og bregðast við tilfinningalega, vits-
munalega, líkamlega og menningarlega við þeirri at-
höfn að mála og setja mark á þann efnivið sem hann
noti. Chris stundaði nám í myndlist á Englandi, fyrst
við Yeovil School of Art og Norwich School of Art og
lauk meistaraprófi frá Chelsea School of Art árið 1972.
Hann starfar sem tónlistarmaður og hefur búið á Ís-
landi í 17 ár og varð íslenskur ríkisborgari árið 2017.
Chris Foster sýnir í sal SÍM
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 308. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Hinn 16 ára gamli Hugi Halldórsson varð á dögunum Ís-
landsmeistari í kumite í fullorðinsflokki í fyrsta sinn
eftir sigur gegn Ólafi Engilbert Árnasyni í úrslitum í
Fylkisseli í Norðlingaholti. Hugi vann tvöfalt á mótinu
en hann fagnaði einnig sigri í flokki 16-17 ára pilta.
Hugi á ekki langt að sækja karatehæfileikana en fað-
ir hans, Halldór Örvar Stefánsson, er fyrrverandi að-
stoðarlandsliðsþjálfari í kumite. Nýkrýndi Íslands-
meistarinn hefur æft karate frá því hann man eftir sér
og ætlar sér stóra hluti í komandi framtíð.
Nýkrýndur Íslandsmeistari setur
stefnuna á Evrópumeistaratitil
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skólagjöld á framhaldsskólastigi
eru há í Bandaríkjunum og því ekki
á allra færi að sækja sér þangað
menntun nema að fá til þess styrki.
Það er einmitt leið sem íþróttafólk
nýtir sér í auknum mæli, og þar á
meðal er Dagný Lísa Davíðsdóttir,
nýliði í A-landsliðinu, sem mætir
landsliðum Rúmeníu og Ungverja-
lands í undankeppni EM í næstu
viku. Hún var í námi í Bandaríkj-
unum í sjö ár, spilaði körfubolta
með skólaliðum sínum og kom heim
með tvær mastersgráður í apríl fyrr
á árinu.
Eftir að hafa leikið með Hamri í
Hveragerði og unglingalandsliðinu
lá leiðin í menntaskóla í Phila-
delphiu. Hún ætlaði í körfubolta-
búðir vestra með Hamri en fór frek-
ar í unglingalandsliðsferð á sama
tíma.
„Við höfðum safnað peningum til
að fara í búðirnar og mér þótti mjög
leiðinlegt að komast ekki en Kefla-
víkurstelpurnar fóru í sömu búðir
skömmu síðar, ég fékk að fara með
þeim, stjórnandi búðanna benti mér
á tvo skóla, mér bauðst skólastyrk-
ur í kjölfarið og ég fór út árið eftir.“
Tvær mastersgráður
Menntaskólinn sem hún fór í
leggur mikla áherslu á íþróttir og
sérstaklega körfubolta, að sögn
Dagnýjar. „Ég var 17 ára og átti
eftir tvö ár í stúdentinn þegar ég fór
út með það að markmiði að halda
þar áfram í háskóla,“ segir Dagný.
Það gekk eftir. Eftir að hafa lokið
BS-prófi í aðfangastjórnun og
braustskráðst með MBA-gráðu í al-
þjóðaviðskiptum skipti hún um
skóla í fyrra, fór til Wyoming og út-
skrifaðist með mastersgráðu í fjár-
málafræði í vor. „Það var strembið
að vera í skólanum jafnt á veturna
sem sumrin og spila með skólalið-
unum, en ég er mjög þakklát fyrir
allt námið, sem varla er hægt að
stunda nema að fá fullan styrk, hef
lært mikið og gaman er að nýta það
í starfi.“ Hún leggur áherslu á að
allur kostnaður hafi verið greiddur,
s.s. skólagjöld, bækur, húsnæði og
allt sem viðkom körfuboltanum.
Í Wyoming spilaði Dagný með
skólaliðinu í sterkari og jafnari deild
en áður og fór með liðinu í úrslita-
keppni 64 liða, „marsfárið“ (e.
March Madness) eins og það er kall-
að. „Veturinn í fyrra var algjört æv-
intýri, við sigruðum í okkar riðli og
náðum því í úrslitakeppni bestu há-
skólaliða Bandaríkjanna. Það var
frábær reynsla og kórónaði veruna
úti.“
Háskólar í Bandaríkjunum eru
misjafnir og áherslurnar með ólík-
um hætti. „Möguleikarnir eru miklir
og íþróttafólk getur almennt fundið
eitthvað við sitt hæfi,“ segir Dagný.
„Ég hvet körfuboltafólk til þess að
íhuga þetta, því reynslan af því að
spila í Bandaríkjunum skilar sér vel
í auknum gæðum hérna heima.“
Hún býr í Hveragerði, starfar sem
fyrirtækjaráðgjafi hjá Ernst & Yo-
ung í Reykjavík og spilar körfubolta
með Fjölni í efstu deild kvenna. „Ég
byrja daginn í bílnum snemma á
morgnana og lýk honum á sama
stað seint á kvöldin, en það er gam-
an þegar nóg er að gera.“ Hún seg-
ist hafa farið í Fjölni vegna þess að
hún hafi viljað spila í efstu deild,
hafi litist vel á þjálfarana, markmið
þeirra og uppbyggingarstarf félags-
ins. „Mikil áhersla er lögð á yngri
stelpurnar með framtíðina í huga og
gaman er að taka þátt í að efla ungu
stelpurnar og lyfta körfuboltanum á
hærra stig.“
Skólastyrkir koma sér vel
- Dagný Lísa reynslunni ríkari og valin í landsliðið
Árangur Dagný Lísa Davíðsdóttir stóð sig vel í Bandaríkjunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dugleg Dagný starfar sem fyrirtækjaráðgjafi hjá Ernst & Young í Reykjavík.