Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Síða 18
A pótek voru rekin í afar fal- legu húsi við Laugaveg 16 í tæpa heila öld; fyrst Laugavegsapótek og síðar Lyfja. Í húsinu má nú finna annars vegar konseptbúðina Andrá og hins vegar nýja íslenska tískuvöruverslun þar sem finna má hágæða hönnun eftir þrjá fatahönnuði. Ýr Þrastardóttir, Halldóra Sif Guðlaugsdóttir og Sævar Markús Óskarsson opnuðu um síðustu helgi vinnustofu og verslun í þessu gamla apóteki og lá því beinast við að nefna verslunina Apotek Atelier. Ýr, Halldóra Sif og Sævar Markús eru mætt í búðina snemma morguns til að leiða blaða- mann í allan sannleikan um hönnun þeirra og hugmyndir. Of fallegt til að sleppa Ýr hefur orðið fyrst, en hún hefur starfað sem fatahönnuður í áratug. Eftir útskrift úr Listaháskólanum gekk hún til liðs við aðra hönnuði hjá Kiosk en er nú í kvikmynda- skólanum, ásamt því að stofna og reka Apotek Atelier. Ýr hannar undir merkinu Another Creation og er hún helst þekkt fyrir að fara óhefðbundnar leiðir í sníðagerð, en hún vinnur mikið jakka og kápur í bútasaum með leður, silki og ull. Í dag hannar hún líka afar fallega síða silkikjóla. „Ég hanna aðeins einn af hverj- um kjól í einu því þetta er rosalega dýrt ferli. Ég hef brennt mig á því að sauma í mörgum stærðum og sitja svo uppi með kjóla. Um leið og ég sel kjól, bý ég til annan. Annars hef ég verið þekktust fyrir jakka og jakkasnið. Ég geri kápur og leð- urjakka sem hægt er að breyta með því að taka til dæmis ermar eða kraga af. Ég hef verið að vinna með Heiðari feldskera sem hefur gert fyrir mig feldi sem fylgihluti fyrir mig,“ segir hún og segir að sér finnist gaman að geta sameinað vinnustofu og verslun. „Ég fékk útdeilt húsnæði í sumar á Skólavörðustíg og var að sauma skó fyrir herferð Íslandsstofu og þar var ég með sníðaborðið og saumavélina. Ferðamönnum sem þangað duttu inn fannst svo gaman að fá að sjá inn í vinnustofu, en það er einmitt svipað hjá Orrifinn; þar er verkstæðið inni í búð. Ég var að hugsa um að halda húsnæðinu en sá svo á Instagram að þetta rými væri að losna. Það var of fallegt til að taka það ekki,“ segir Ýr, en í húsnæðinu baka til er lítil sauma- stofa og þangað mega allir kíkja inn. Innblástur frá list Sævar Markús hannar undir eigin nafni en sérstaða hans eru sérstök mynstur á klassískum sniðum á skyrtum, kjólum og klútum. Hann vann mikið í tískuheiminum í París en ákvað að snúa heim til Íslands. Hann segist gjarnan leita í fortíðina í sinni hönnun. „Ég vinn oft með fortíðina, lista- sögu, fornmuni og ýmislegt fleira þegar ég vinn mynstur, hvort sem það er bein vísun í ákveðin lista- mann sem ég vinn línu út frá og til- einka, eða þá að vinna út frá öðrum hlutum. Það er mjög misjafnt vinnuferli og innblásturinn kemur víða og getur verið langt og flókið ferli. Einnig vinn ég ávallt með Ýr hannar síðkjóla úr silki og hægt er að láta sauma á sig kjól eftir máli. Gamalt apótek í nýju hlutverki Þrír íslenskir fatahönnuðir hafa opnað Apotek Atelier á Laugveginum. Þar má finna kvenföt, töskur og fylgihluti úr hágæðaefnum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Halldóra Sif hefur hannað kvenleg jakkaföt og ýmsa flotta fylgihluti. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.11. 2021 HÖNNUN 80x200 cm 87.900 kr. Nú 52.740 kr. 90x200 cm 89.900 kr. Nú 53.940 kr. 90x210 cm 90.900 kr. Nú 54.540 kr. 100x200 cm 91.900 kr. Nú 55.140 kr. 120x200 cm 93.900 kr. Nú 56.340 kr. 140x200 cm 99.900 kr. Nú 59.940 kr. 160x200 cm 114.900 kr. Nú 68.940 kr. 180x200 cm 129.900 kr. Nú 77.940 kr. NATURE´S LUXURY heilsudýna Vönduð heilsudýna með pokagormakerfi og yfirdýnu úr þrýstijöfnunarefni. Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Holtagörðum, Reykjavík 512 6800 Smáratorgi, Kópavogi 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 Skeiði 1, Ísafirði 456 4566 Afgreiðslutími Rvk Mán. til fös. kl. 11–18 Laugardaga kl. 11–17 40% 50% DANADREAM dúnkoddi Þægilegur dúnkoddi frá Quilts of Denmark. Stærð: 50x70cm. Dún og fiður fyllt ytra birði og svo stillanleg svampfylling. Áklæðið er úr 100% bómull. Fullt verð: 18.900 kr. Nú 9.450 kr. DORMALUXE heit dúnsæng Dásamleg, heit dúnsæng frá Quilts of Denmark. 140×200 cm. 800 g. 90% hreinn andadúnn. 10% smáfiður. 29.900 kr. NÚ 23.920 kr. 20% 5

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.