Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Page 22
Bollarnir af heitu súkkulaði með
rjóma eru mjög jólalegir. Í boði eru
fimm tegundir, meðal annars vegan.
Kaupmannahöfn og kannski víðar.
Þetta er okkar uppáhalds og feng-
um við þá hugmyndina að því að
selja jólasúkkulaði. Ég byrjaði í
febrúar að vinna í þessu og vorum
við systurnar marga mánuði að full-
komna uppskriftina. Svo bættist við
Bismarck og appelsínusúkkulaði og
það tók enn lengri tíma að full-
komna þær upp-
skriftir. Við
prófuðum okkur
áfram heima hjá
henni og buðum
fólki í smakk,“
segir Arnfríður.
„Við þurftum
að finna full-
komið bland af
súkkulaði á móti
mjólk, en við
notum hágæða-
súkkulaði. Við
erum með fimm tegundir af súkku-
laði og allt búið til frá grunni í vagn-
inum. Það er klassískt, saltk-
aramellu, Bismarck, appelsínu og
karamellu, og svo vegan. Við erum
svo með alvöru rjóma, og vegan
rjóma, sem við þeytum á staðnum
og eins súkkulaðirjóma,“ segir Arn-
fríður og segist einnig bjóða upp á
piparkökur.
Var í þremur vinnum
Þá var eftir að stofna fyrirtæki,
kaupa vagn, breyta honum, fá öll
tilskilin leyfi og hefjast handa!
Þ
að er svo gaman að skapa jóla-
minningar hjá fólki. Í gær
kom heil fjölskylda til mín
sem var á bæjarrölti og keypti heitt
súkkulaði og hlustaði á jólatónlist
sem er svo yndislegt. Það er hægt að
gera þetta að jólahefð, að fara í
miðbæinn og fá sér heitt súkkulaði.
Ég er strax komin með fastakúnna!“
segir Arnfríður Helgadóttir sem
opnaði nýlega Hátíðarvagninn á
Bernhöftstorfunni í miðbænum.
Að fullkomna uppskriftir
„Mig hefur alltaf langað til að eiga
minn eigin rekstur. Ég elska að
fara til Köben fyrir jólin og fara á
jólamarkaði og datt þá í hug að það
vantaði svona stemningu í Reykja-
vík því það eru svo margir sem rölta
um miðbæinn fyrir jólin. Ég og
Sandra systir mín höfum svo mik-
inn áhuga á Hotel Chocolat sem
framleiðir hágæða heitt súkkulaði
en það má finna bæði í London og
„Sandra systir mín flutti til LA í
haust og ég þurfti þá að sjá um
þetta sjálf. Ég er búin að vera í
þremur vinnum með skóla en ég er
á síðasta ári í Menntaskólanum við
Sund. Ég hef unnið hjá Hraðlest-
inni, World Class og 66°. Ég er bú-
in að vinna og vinna til að safna
mér fyrir vagni og svo vildi svo
heppilega til að pabbi vinkonu
minnar var að selja vagninn sinn
og ég fékk að borga hann með rað-
greiðslum. Þetta var stærsti kostn-
aðarliðurinn, og ég vil taka fram að
ég vann fyrir hverri krónu en ég er
búin að leggja í þetta tvær millj-
ónir. Sumir halda að pabbi standi
að baki þessu en það er alls ekki
satt.“
Allir mjög hjálpsamir
Arnfríður sótti einnig um styrki hjá
fyrirtækjum, meðal annars með því
að selja þeim frímiða fyrir bollum af
heitu súkkulaði.
„Þau geta þá gefið starfsfólki sínu
frímiða og er þetta þá nokkurs kon-
ar forsala fyrir mig,“ segir hún og
segist vera í samstarfi við Nóa Síríus
og segir MS
hafi styrkt sig
og leyfir henni
að kaupa mjólk
á heild-
söluverði.
„Ég hef lært
alveg svaka-
lega mikið á
þessu og þetta
fer í reynslu-
bankann. Svo
hafa allir verið
mjög hjálp-
samir,“ segir Arnfríður og bætir við
að Eva systir hennar, sem er við-
skiptafræðingur, hjálpi til við bók-
haldið.
„Ég stend hér vaktina sjálf og
hef tekið mér pásu í hinum vinnu-
num,“ segir Arnfríður og bætir við
að opið sé virka daga frá ann-
aðhvort 16 eða 18 til 21 og um helg-
ar frá 11 til 21.
Hin unga viðskiptakona ætlar sér
stóra hluti í framtíðinni.
„Mig langar að vera arkítekt og
reka mína eigin stofu og jafnvel eiga
húsgagnabúð líka.“
Arnfríður selur heitt súkkulaði í hátíðarvagni í
Lækjargötu og er strax komin með fastakúnna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fólk er ánægt með fram-
takið, enda gott að fá sér
heitt súkkulaði þegar rölt
er í bæinn á aðventunni.
Hátíðarvagn-
inn skapar
jólaminningar
Hin átján ára gamla Arnfríður Helgadóttir
stendur vaktina í Hátíðarvagninum og selur
hágæða heitt súkkulaði. Fyrirtækið stofnaði hún
til að auka jólastemninguna í miðbænum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’
Í gær kom heil
fjölskylda til mín sem
var á bæjarrölti og keypti
heitt súkkulaði og hlust-
aði á jólatónlist sem er
svo yndislegt. Það er
hægt að gera þetta að
jólahefð, að fara í
miðbæinn og fá sér heitt
súkkulaði.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.11. 2021
JÓL
VERÐ FRÁ
66.989
m.VSK
JÓLA-
TILBOÐ
á Duke skrifborðsstólum