Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Blaðsíða 22
Bollarnir af heitu súkkulaði með rjóma eru mjög jólalegir. Í boði eru fimm tegundir, meðal annars vegan. Kaupmannahöfn og kannski víðar. Þetta er okkar uppáhalds og feng- um við þá hugmyndina að því að selja jólasúkkulaði. Ég byrjaði í febrúar að vinna í þessu og vorum við systurnar marga mánuði að full- komna uppskriftina. Svo bættist við Bismarck og appelsínusúkkulaði og það tók enn lengri tíma að full- komna þær upp- skriftir. Við prófuðum okkur áfram heima hjá henni og buðum fólki í smakk,“ segir Arnfríður. „Við þurftum að finna full- komið bland af súkkulaði á móti mjólk, en við notum hágæða- súkkulaði. Við erum með fimm tegundir af súkku- laði og allt búið til frá grunni í vagn- inum. Það er klassískt, saltk- aramellu, Bismarck, appelsínu og karamellu, og svo vegan. Við erum svo með alvöru rjóma, og vegan rjóma, sem við þeytum á staðnum og eins súkkulaðirjóma,“ segir Arn- fríður og segist einnig bjóða upp á piparkökur. Var í þremur vinnum Þá var eftir að stofna fyrirtæki, kaupa vagn, breyta honum, fá öll tilskilin leyfi og hefjast handa! Þ að er svo gaman að skapa jóla- minningar hjá fólki. Í gær kom heil fjölskylda til mín sem var á bæjarrölti og keypti heitt súkkulaði og hlustaði á jólatónlist sem er svo yndislegt. Það er hægt að gera þetta að jólahefð, að fara í miðbæinn og fá sér heitt súkkulaði. Ég er strax komin með fastakúnna!“ segir Arnfríður Helgadóttir sem opnaði nýlega Hátíðarvagninn á Bernhöftstorfunni í miðbænum. Að fullkomna uppskriftir „Mig hefur alltaf langað til að eiga minn eigin rekstur. Ég elska að fara til Köben fyrir jólin og fara á jólamarkaði og datt þá í hug að það vantaði svona stemningu í Reykja- vík því það eru svo margir sem rölta um miðbæinn fyrir jólin. Ég og Sandra systir mín höfum svo mik- inn áhuga á Hotel Chocolat sem framleiðir hágæða heitt súkkulaði en það má finna bæði í London og „Sandra systir mín flutti til LA í haust og ég þurfti þá að sjá um þetta sjálf. Ég er búin að vera í þremur vinnum með skóla en ég er á síðasta ári í Menntaskólanum við Sund. Ég hef unnið hjá Hraðlest- inni, World Class og 66°. Ég er bú- in að vinna og vinna til að safna mér fyrir vagni og svo vildi svo heppilega til að pabbi vinkonu minnar var að selja vagninn sinn og ég fékk að borga hann með rað- greiðslum. Þetta var stærsti kostn- aðarliðurinn, og ég vil taka fram að ég vann fyrir hverri krónu en ég er búin að leggja í þetta tvær millj- ónir. Sumir halda að pabbi standi að baki þessu en það er alls ekki satt.“ Allir mjög hjálpsamir Arnfríður sótti einnig um styrki hjá fyrirtækjum, meðal annars með því að selja þeim frímiða fyrir bollum af heitu súkkulaði. „Þau geta þá gefið starfsfólki sínu frímiða og er þetta þá nokkurs kon- ar forsala fyrir mig,“ segir hún og segist vera í samstarfi við Nóa Síríus og segir MS hafi styrkt sig og leyfir henni að kaupa mjólk á heild- söluverði. „Ég hef lært alveg svaka- lega mikið á þessu og þetta fer í reynslu- bankann. Svo hafa allir verið mjög hjálp- samir,“ segir Arnfríður og bætir við að Eva systir hennar, sem er við- skiptafræðingur, hjálpi til við bók- haldið. „Ég stend hér vaktina sjálf og hef tekið mér pásu í hinum vinnu- num,“ segir Arnfríður og bætir við að opið sé virka daga frá ann- aðhvort 16 eða 18 til 21 og um helg- ar frá 11 til 21. Hin unga viðskiptakona ætlar sér stóra hluti í framtíðinni. „Mig langar að vera arkítekt og reka mína eigin stofu og jafnvel eiga húsgagnabúð líka.“ Arnfríður selur heitt súkkulaði í hátíðarvagni í Lækjargötu og er strax komin með fastakúnna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fólk er ánægt með fram- takið, enda gott að fá sér heitt súkkulaði þegar rölt er í bæinn á aðventunni. Hátíðarvagn- inn skapar jólaminningar Hin átján ára gamla Arnfríður Helgadóttir stendur vaktina í Hátíðarvagninum og selur hágæða heitt súkkulaði. Fyrirtækið stofnaði hún til að auka jólastemninguna í miðbænum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Í gær kom heil fjölskylda til mín sem var á bæjarrölti og keypti heitt súkkulaði og hlust- aði á jólatónlist sem er svo yndislegt. Það er hægt að gera þetta að jólahefð, að fara í miðbæinn og fá sér heitt súkkulaði. 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.11. 2021 JÓL VERÐ FRÁ 66.989 m.VSK JÓLA- TILBOÐ á Duke skrifborðsstólum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.