Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Blaðsíða 29
hennar, „Re- hab“, þar sem hún lýsti baráttu sinni við fíknina. McLintock sagði AFP að auk þess að bera vitni „fáguðum listamanni“ væri sýn- ingin tækifæri til að leggja mat á gildi hennar og áhrif tíu árum eftir andlátið. Til marks um áhugann á Wine- house er að kjóllinn, sem hún klæddist í síðasta skiptið sem hún kom fram, seldist á uppboði fyrir 243 þúsund dollara (tæpar 32 milljónir króna) á uppboði fyrr í þessum mánuði eða 16-falt matsverð. „Það er sérstaklega indælt að sjá að margt ungt fólk, sem ekki ólst upp við tón- list Amy, er spennt fyrir því að koma og sjá sýninguna,“ bætti McLintock við. „Þannig að hún heldur greinilega áfram að veita ungum listamönnum innblástur.“ Faðir Winehouse, Mitch, hjálp- aði til við að kynna sýninguna á miðvikudag og hún var opnuð al- menningi á föstudag. Sýningin um Amy Winehouse var opn- uð í London í vikunni. AFP Mynd af Winehouse eftir ljósmyndarann Jake Chessum. Rafmagnsgítar með áletrun Wine- house er meðal þess sem sjá má á sýningunni um litríkan feril söngkon- unnar og áhrif hennar. Aðdáendur Winehouse skrifuðu kveðjur á þetta götuskilti frá Camden Square í London er hún lést. Kjólar bresku söngkonunnar Amy Winehouse eru meðal muna á sýningunni. 28.11. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 UMDEILT Stjórnvöld í Malaví hafa leitað til hnefaleikarans fyrrverandi, Mikes Tysons, um að verða sendi- herra þeirra í að kynna kannabis- rækt í landinu í lækningaskyni. Ty- son er stuðningsmaður þess að leyfa kannabis og er með sitt eigið vöru- merki kannabisafurða. Vonast Malaví til að Tyson muni hjálpa þeim að ná í fjárfesta og kaupendur, en hann hefur ekki svarað fyrirspurn- inni. Tyson var dæmdur fyrir nauðg- un 1992 og var gagnrýnt í Malaví að leitað hefði verið til hans. Vilja að Tyson kynni kannabis Malaví leitaði til gamla hnefaleikarans. AFP BÓKSALA 17.-23. NÓV. Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Lok, lok og læs Yrsa Sigurðardóttir 2 Sigurverkið Arnaldur Indriðason 3 Fagurt galaði fuglinn sá Helgi Jónsson/Anna Margrét Marinósdóttir 4 Jól á eyjahótelinu Jenny Colgan 5 Nýja Reykjavík Dagur B. Eggertsson 6 Úti Ragnar Jónasson 7 Rauð viðvörun – jólin eru á leiðinni Sigrún Eldjárn 8 Sextíu kíló af kjaftshöggum Hallgrímur Helgason 9 Vetrarfrí í Hálöndunum Sarah Morgan 10 Lára bakar Birgitta Haukdal 1 Fagurt galaði fuglinn sá Helgi Jónsson/Anna Margrét Marinósdóttir 2 Rauð viðvörun – jólin eru á leiðinni Sigrún Eldjárn 3 Lára bakar Birgitta Haukdal 4 Jólasyrpa 2021 Walt Disney 5 Saffranráðgátan Martin Widmark 6 Lóa og Börkur – saman í liði Kjartan Atli Kjartansson 7 Lára lærir á hljóðfæri Birgitta Haukdal 8 Þín eigin ráðgáta Ævar Þór Benediktsson 9 Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa Birgitta Haukdal 10 Óskar var einmana um jólin Holly Webb Allar bækur Barnabækur Í sumar las ég í áföngum bók Gunnars Gunnarssonar, Svart- fugl, í líklega þriðja eða fjórða skiptið. Þetta er eina bókin sem ég „sit“ í, að lesa hana er eins og að vera í þægilegri værð- arvoð og maður er ekkert að flýta sér að klára þó að bókin sé reyndar þannig gerð að það er erfitt að hætta þegar maður er kominn á skrið! Og hér er ég að sjálf- sögðu að tala um þýðingu Magnúsar Ás- geirssonar á verkinu. Orð- kynngin er slík að mann setur hljóðan við lestur og oftlega þarf ég að leggja hana frá mér til að melta, spretta upp gæsa- húð eða bara tárast. Næstu vik- urnar læðast svo Gunnarslegar hendingar inn í mín eigin skrif. Allir eru orðnir óttaslegnir – en þó vonbjartir en um leið með hryggðarmyndir í skelkuðu brjósti. Þessi saga er ótrúleg og ég vísa bara í ritdóm frá 1929 sem birtist í Ekstrabladet: „Sá meistarabragur sem er á lýs- ingum um- hverfisins og persónanna þolir sam- anburð við mestu skáld- sagnameistara heimsins fyrr og síðar.“ Meðfram þessu mynd- ast ég líka við að lesa bækur um tónlist, nema hvað. Sumar straujar maður einn, tveir og þrír eins og sagt er. Í valnum er t.d. saga söngvara Judas Priest, Rob Halford. Confess kallast hún og er svona líka ljómandi vel heppnuð. Halford er fyrst og fremst enskur séntilmaður fram í fingurgóma og ef hann hefði ekki endað í rokk- sveit hefði hann orðið kærleiksríkur yfirkennari. Lýsingar hans á rokklíferni, baráttu sam- kynhneigðra og slælegum dönsum við bróður Bakkus fanga alla athygli og maður er nærður og margs vís- ari í kjölfarið. Einnig er ég með nokkuð magnaða ævisögu Elvis Presley í síma-kyndlinum mínum, fyrri bókina sem Peter Guralnick nokkur reit um kónginn, Last Train to Memphis. Lesturinn sækist hins vegar hægt. Lýsingar Guralnick á Presley, sam- ferðamönnum og umhverfi ná Svartfuglslegum hæðum á köfl- um og ég hef svona verið að kjamsa á bókinni vel og lengi. Sest stundum niður í Hámu, í Háskóla Íslands, eftir mat og „sóna“ út í ca. kortér/tuttugu mínútur og rölti um öngstræti Memphis í ofurlitla stund. Hálf- gerð hugleiðsla eiginlega – eins og lestur góðra bóka er jafnan. ARNAR EGGERT ER AÐ LESA Svartfugl líkur værðarvoð Arnar Eggert Thoroddsen er félags- fræðingur og umsjónar- maður grunn- náms í fjöl- miðlafræði við Háskóla Ís- lands.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.