Morgunblaðið - 09.12.2021, Síða 1
F I M M T U D A G U R 9. D E S E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 289. tölublað . 109. árgangur .
Hamborgarhryggur
1.784KR/KG
ÁÐUR: 1.338 KR/KG
Lambalæri
1.439KR/KG
ÁÐUR: 2.399 KR/KG
Léttreykt
Klementínur
Netapoki, 1,5 kg
674KR/PK
ÁÐUR: 899 KR/PK
25%
AFSLÁTTUR40%
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
TILBOÐ GILDA 9.--12. DESEMBER
FRÁBÆR TILBOÐ
Í NÆSTU NETTÓ
15
dagar til jóla
Jólaleikir eru á
jolamjolk.is
ATHAFNAMENN
OPNA HÓTEL
OG MATHÖLL
TVÆR ÓLÍKAR
HLIÐAR Á
DIETER ROTH
KENGÚRUR,
FASANAR OG
HREINDÝR
TVÆR SÝNINGAR 66 HÁTÍÐARMATUR 8 SÍÐURGRÓÐURHÚSIÐ 36-37
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Ísfirska lækningavörufyrirtækið Ker-
ecis verður skráð á markað í Svíþjóð
eða Bandaríkjunum innan fárra vikna.
Þetta staðfestir Guðmundur Fertram
Sigurjónsson, forstjóri og stofnandi
þess. Hann er gestur í Dagmálum í dag
þar sem hann ræðir sögu fyrirtækisins
og framtíðaráætlanir þess.
Á föstudag í liðinni viku boðaði Ker-
ecis hluthafa á trúnaðarfund á Hilton
Reykjavik Nordica þar sem framtíð-
aráætlanir þess voru kynntar. Heim-
ildir Morgunblaðsins herma að það sé
mat ráðgjafa og stjórnar að fyrir-
tækinu verði fleytt á markað á grund-
velli verðmats sem er á milli 600-700
milljónir dollara, jafnvirði 80-90 millj-
arða króna.
Að sögn Guðmundar hafa fyrirtæki
sem eru áþekk og Kerecis og eru í góð-
um rekstri í nokkur ár verið metin í
kauphöll á einn milljarð dollara, jafn-
virði 130 milljarða króna. Er þá litið til
fyrirtækja á sama markaði sem búa
yfir sömu vaxtarmöguleikum og Ker-
ecis. Tekjur Kerecis hafa að jafnaði
vaxið um nærri 100% á ári síðastliðinn
hálfan áratug. Í aðdraganda skráning-
ar Kerecis á markað er stefnt að því að
afla 40-80 milljóna dollara í nýtt hlutafé
til að styðja við reksturinn. Skv. heim-
ildum Morgunblaðsins á fyrirtækið
einnig í viðræðum um kaup á banda-
rísku fyrirtæki sem trúnaður ríkir um
hvert sé.
Í hluthafahóp Kerecis eru um 160
fjárfestar. Aðeins tveir íslenskir lífeyr-
issjóðir eru í hópi hluthafa fyrirtækis-
ins, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja og
Lífsverk.
Allt að 130 milljarða virði
- Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis stefnir á skráningu á markað erlendis innan tíðar
- Tekjuvöxtur 96% á milli ára - Aðeins tveir íslenskir lífeyrissjóðir meðal hluthafa
Tólf ára saga
» Kerecis var stofnað hér á landi
árið 2009.
» Hjá fyrirtækinu starfa um 250
manns í nokkrum löndum.
» Tekjur fyrirtækisins nema um
30 milljónum dollara í ár, jafnvirði
4 milljarða króna.
» Stefnir að kaupum á bandarísku
fyrirtæki á svipuðum markaði.
MHef mikla trú á framtíð … »16
Forsvarsmenn Pfizer og BioNTech
sögðu í gær að frumrannsóknir
sýndu að bóluefni fyrirtækjanna
veitti enn virka vörn gegn Ómíkron-
afbrigði kórónuveirunnar eftir
þriðja skammtinn af því. Óvíst væri
hins vegar hvort tveir skammtar
myndu duga til að verja fólk gegn af-
brigðinu.
Ugur Sahin, framkvæmdastjóri
BioNTech, sagði á blaðamannafundi
í gær að réttast væri að sínu mati að
stytta tímann sem liði á milli fyrri
örvunarskammts og þess síðari, til
þess að auka þá vörn sem bóluefnið
myndi gefa yfir vetrarmánuðina.
Bresk stjórnvöld hafa stytt bið-
tímann milli örvunarskammta niður
í þrjá mánuði, en víðast hvar annars
staðar er miðað við hálft ár hið
minnsta. »40
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetning Þriðji skammturinn
veitir góða vörn gegn Ómíkron.
Veitir vörn
eftir þriðja
skammtinn
Breiðablik beið lægri hlut fyrir stórliði Real Ma-
drid frá Spáni, 0:3, í Meistaradeild kvenna í fót-
bolta á snævi þöktum Kópavogsvellinum í gær-
kvöld. Þetta var síðasti heimaleikur Breiðabliks í
riðlakeppninni en liðið á eftir að sækja topplið
PSG heim til Parísar í næstu viku. Blikakonum
hefur enn ekki tekist að skora mark í keppninni
en voru nálægt því á lokamínútunum í hríðar-
veðrinu í gærkvöld. »60
Ljósmynd/Benjamin Hardman
Real Madrid hafði betur í hríðinni í Kópavogi