Morgunblaðið - 09.12.2021, Page 2
Baldur Blöndal
baldurb@mbl.is
Matsalur Réttarholtsskóla var þétt-
setinn í gærkvöldi þegar fundur
Íbúasamtaka Bústaða- og Fossvogs-
hverfis fór fram. Íbúar og borgar-
fulltrúar tókust þar á um þéttingu
og hraðalækkun við Bústaðaveginn
en tillögur borgarinnar þess efnis
hafa vakið miklar og heitar umræð-
ur innan hverfisins.
Salnum var skipt í tvö sóttvarna-
hólf og rúmaði 100 grímuklædda
gesti. Dagur B. Eggertsson borg-
arstjóri og Eyþór Arnalds Laxdal,
oddviti Sjálfstæðisflokksins í borg-
arstjórn, fluttu erindi og sátu fyrir
svörum á fundinum.
Íbúasamtökin sem stóðu fyrir
fundinum voru nýverið endurvakin
en Gísli Kr. Björnsson fer með for-
mennsku samtakanna. Gísli setti
fundinn og vísaði til líflegra um-
ræðna í umræðuhópi hverfisins á
Facebook. Fundurinn hófst á ávarpi
borgarstjóra þar sem hann hrósaði
íbúum fyrir endurvakningu samtak-
anna. Hann sagði það „ómetanlegt
að hafa skipulagðan hóp íbúa til
samtals og samráðs“.
Dagur kynnti hverfaskipulagið og
fór yfir það samráð sem hafði átt sér
stað. Hann sagði að samráðið hefði
hafist á árunum 2015-2017. Sagði
hann meðal annars að tillögurnar
væru vinnutillögur og undanfari
formlegrar tillögu að hverfaskipu-
lagi.
Í máli Dags kom fram að síðar
yrði unnin formleg tillaga sem færi
þá í annað kynningarferli og benti
hann á að oft væri fallið frá tillögum
sem þessum eftir samráð við íbúa.
Sagði Dagur að tillögurnar væru
til þess fallnar að lækka aksturs-
hraða sem hefði lengi verið kallað
eftir í íbúasamráði. Þá væri byggð
við veginn til þess fallin að minnka
hávaða í grennd við veginn og lækka
umferðarhraðann sömuleiðis.
Slagæðin í gegnum hverfið
Í erindi sínu sagði Eyþór nafn Bú-
staðahverfis vísa til bústaða fólksins
og sagði hann að það væri hlýlegt
gróðurhverfi. Líkti Eyþór Bústaða-
veginum við slagæð í gegnum hverf-
ið og sagði hann einkenni hverfisins
vera Fossvogsdalinn og Bústaða-
veginn í miðjunni.
„Þetta er vel skipulagt hverfi,“
sagði Eyþór sem sagði óþarft að
laga það sem ekki væri bilað. Sagði
Eyþór að hann hefði viljað sjá annan
valkost fyrir hinn breiða Bústaðaveg
sem yrði þá „manneskjuleg breið-
gata“.
Sagði Eyþór að Bústaðavegur
yrði ekki vistvænni með tilkomu
blokka og vísaði hann til rannsóknar
um hvaða áhrif það hefði að þrengja
götur. Þá væri ljóst að bílarnir
myndu ekki hverfa heldur leita ann-
að.
Eyþór vakti síðan athygli á um-
ferðinni í Reykjavík sem hann líkti
við start-stopp. Hann sagði hana
þurfa að vera jafnari þar sem fólk
yrði pirrað. Þá þyrfti að fækka ljósa-
stýrðum gatnamótum sem hann
sagði umferðaröryggismál.
Að loknum erindum þeirra Dags
og Eyþórs var opnað fyrir spurn-
ingar úr salnum þar sem íbúar
skiptust á skoðunum. Flestir þeirra
sem tóku til máls settu spurning-
armerki við tillögurnar og töldu
þrenginguna of mikla.
Aðrir íbúar lýstu yfir áhyggjum af
því að útsýni í hverfinu myndi skerð-
ast við tilkomu þessara nýbygginga
auk þess að bílastæði á svæðinu
yrðu undir í framkvæmdunum.
Flestir íbúar sem tóku til máls
voru þó sammála um að sundlaug í
hverfið væri ágæt hugmynd.
Meðal þeirra sem tóku til máls á
fundinum var Lilja Dögg Alfreðs-
dóttir, ferðamála-, viðskipta- og
menningarmálaráðherra og íbúi í
hverfinu. Lýsti hún fyrst yfir stuðn-
ingi sínum við fyrirætlanir um sund-
laug í Fossvogi og spurði hún Dag
borgarstjóra hvenær hún kæmi.
Lilja sagði að fyrirliggjandi hug-
myndir um skipulag væru sérstakar
og lagði hún beinlínis til að Dagur
myndi hætta við þær hér og nú.
Uppskar Lilja mikið lófatak meðal
gesta við þá uppástungu.
Heitar umræður um skipulagið
- Fjallað um málefni Bústaðavegar á fjölsóttum fundi endurvakinna íbúasamtaka - Dagur segir tillög-
urnar vera vinnutillögur - Lilja Dögg Alfreðsdóttir skoraði á Dag að hætta við áformin á Bústaðavegi
Morgunblaðið/Eggert
Íbúafundur Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks, og Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri fluttu erindi og spunnust líflegar umræður að þeim loknum.
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000
Val di Fassa
12. febrúar í 7 næturSkíðaferð
Verð á mann frá
159.700
Verð á mann frá
179.700
A
H
Á
Salan er hafin á
kærleikskúlan.is
og í gjafavöruverslunum
um land allt.*
Allur ágóði rennur
til starfs í þágu fatlaðra
barna og ungmenna.
Sölutímabil: 9.– 23. des.
*takmarkað upplag.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrirséð er að aflvél nr. 2 í Búrfells-
stöð sem bilaði síðastliðið laugar-
dagskvöld kemst ekki í gagnið aftur
fyrr en næsta vor. Uppsett afl vél-
arinnar er 46 megavött. Sömuleiðis
er útlit fyrir að vél 2 í Nesjavalla-
virkjun Orku náttúrunnar komist
ekki í gagnið aftur fyrr en undir jól.
Afl hennar er 30 MW. Er því aflið 76
MW minna en venjulega vegna bil-
ana í þessum stöðvum.
Bilunin í Búrfellsstöð og seinkun á
því að raforkuvinnsla hjá „öðrum
framleiðanda“ sem átt hafi að koma
inn í kerfið í síðustu viku en skili sér
ekki inn fyrr en í lok næstu viku voru
meðal ástæðna sem Landsvirkjun
gaf fyrir því að nauðsynlegt væri að
takmarka orkuafhendingu til fiski-
mjölsverksmiðja og annarra sem
hafa samið um kaup á skerðanlegri
orku. Með seinkun hjá „öðrum fram-
leiðanda“ mun vera átt við vél 2 í
Nesjavallavirkjun. Ekki fengust
miklar upplýsingar um málið hjá
Orku náttúrunnar í gær nema hvað
stefnt sé að innsetningu vélarinnar
fyrir jól, nánar tiltekið 20. desember.
Bilun í rafala vélar 2
Bilunin í Búrfellsstöð varð í sátri
rafala vélar 2 en það er hluti umbún-
aðarins utan um snúð rafalans. Sam-
kvæmt upplýsingum Landsvirkjun-
ar er ekki búið að staðfesta
nákvæmlega hversu umfangsmikil
bilunin er en talið er, í ljósi reynsl-
unnar, að það taki um það bil sex vik-
ur að gera við hana. Unnið er að bil-
anagreiningu þannig að hægt sé að
hefja viðgerðir.
Ljóst er að vélin kemst ekki rekst-
ur fyrr en í vor því um miðjan janúar
næstkomandi er áætlað að hefja
vinnu við að skipta um vatnshjól vél-
arinnar. Sú vinna mun standa fram í
byrjun maímánaðar.
Sjö aflvélar eru í Búrfellsstöð 1.
Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, tekur
fram að þær séu sjaldnast allar
keyrðar í einu. Hinar vélarnar verða
að líkindum keyrðar meira á meðan
vél 2 er ekki í rekstri en það auki
áhættuna í rekstri raforkukerfisins.
Af þessum ástæðum er ekki hægt
að segja til um það með fullri vissu, á
þessu stigi, hversu mikið minna afl
stöðvarinnar í heild verður en venju-
lega, á meðan vélin er biluð.
Af öðrum ástæðum fyrir orku-
skorti og aðgerðum Landsvirkjunar
má nefna að vatnsbúskapurinn á há-
lendinu er með lakasta móti, sér-
staklega sunnanlands, en raforku-
flutningskerfið dugar ekki til að
flytja alla þá orku frá Norðaustur-
landi sem þörf er á.
Vél 2 í Búrfellsstöð
verður úti fram á vor
- Stefnt að gangsetningu vélar 2 á Nesjavöllum 20. desember
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vatnsafl Búrfellsstöð er fyrsta aflstöðin sem Landsvirkjun reisti frá grunni.
Afl stöðvarinnar er alls 270 MW en vélarnar eru ekki alltaf allar á fullu.
Morgunblaðið/Sverrir
Jarðgufa ON rekur virkjanir á
Nesjavöllum og Hellisheiði.