Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 Innanlandsflug fyrir jólapakkann á 1.800 kr.* Sælla er að gefa en þiggja – en jólafrakt Icelandair Cargo getur aukið enn á ánægjuna. Hvort sem þú lætur kerti, spil eða eitthvað allt annað í jólapakkana sjáum við um að flytja þá hratt og örugglega í réttar hendur fyrir jólin. *Gildir 8.–20. desember fyrir pakka allt að 10 kg s. 570 3400 Akureyri — Egilsstaðir — Ísafjörður — Reykjavík icelandaircargo.is Jólagleðin liggur í loftinu Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið lögðum af stað með það að skrifa raddir kvenna og ætlunin var að gera útvarpsleikrit um það sem kallað er erfiðar konur. Okkur langaði að skoða hvað geri konu erfiða, af hverju erfiðar konur eru til, hvort þær hafi haft mótandi áhrif á sögu okk- ar, hvort þær séu kannski bara í erfiðum sam- skiptum, hvað eru erfiðir karlar og svo framvegis. Við fundum að þarna var ein- hver kjarni sem var kona í mót- stöðu,“ segja þær Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Sunna Dís Másdóttir þegar þær eru spurðar um tilurð skáldsög- unnar Olíu, en þær eru tvær þeirra sex kvenna sem eru höfundar hennar. Hinar eru Þórdís Helga- dóttir, Þóra Hjörleifsdóttir, Mel- korka Ólafsdóttir og Fríða Ísberg. Þessar sex konur eru ekki óvanar að vinna saman, þær kalla sig Svikaskáld og hafa áður gefið út þrjú ljóðverk sem þær skrifuðu í sameiningu sem hópur. Olía geymir sögur af sex kon- um og hverja þeirra skrifar ein kona úr Svikaskáldum. „Við byrjuðum á að skrifa nafnlausar raddir og við skiptum með okkur konum eftir aldri, ég skrifa til dæmis um elstu konuna, Gerði, sem er fullorðin kona og bókin hefst á sögu hennar,“ segir Sunna og bætir við að allar persón- ur sem á eftir koma tengist með einum eða öðrum hætti. „Aldur þessara kvenna nær nánast yfir alla ævi konu og þá kviknaði löngun hjá okkur til að spanna vítt og breitt svið,“ segir Sunna. Ekki nógu þægar konur Ragnheiður Harpa segir að þær í Svikaskáldum hafi unnið þessa skáldsögu eins og þær hafa gert með ljóðabækurnar. „Við deilum ört hver með ann- arri því sem við erum að skrifa meðan á sköpunarferlinu stendur. Þá förum við að fá einhverja til- finningu og við þreifuðum okkur áfram í áttina að röddum þessara kvenna. Þá fóru að koma í ljós fleiri og fleiri tengingar milli þeirra, sumar komu okkur jafnvel á óvart. Við hittumst reglulega til að ræða saman og þegar skrifin voru sem hráust lásum við upp hver fyrir aðra, þá fengu hinar hugmyndir líka sem batt þetta saman og gerði að skáldsögu. Við fórum líka í nokkrar ferðir, dvöldum saman í fallegu rými, elduðum góðan mat og skrifuðum eftir skeiðklukku og deildum hráa gumsinu sem út úr því kom. Þá er allt opið í alla enda og það býður upp á allskonar teng- ingar og snertifleti hjá þessum ólíku konum sem þykja ,,erfiðar“ af því þær eru ekki nógu þægar, með- færilegar eða uppfylla ekki kröfur samfélagsins um að vera duglegar, fórnfúsar, þolinmóðar, umburðar- lyndar og svo framvegis.“ Ekki sýna bara glansmynd Sagan nær utan um mörg ólík hlutverk kvenna og raunveruleika, að vera móðir, dóttir, systir, vin- kona, maki. Á ýmsu gengur í þeim samböndum, á einum stað segir t.d. dóttir að mamma hennar sé tilfinn- ingaokurlánari og á öðrum stað segir af konu sem finnst heimurinn speglast í grindarbotninum, svo fátt eitt sé nefnt. „Okkur fannst heillandi hvað konur fara í gegnum mörg hlutverk á æviskeiðinu og þau eru alltaf að breytast, dýpka á einum stað en grynnka á öðrum,“ segir Sunna og Ragnheiður Harpa bætir við að í bókinni sé komið inn á ýmislegt sem þjaki margar konur. „Eilíft samviskubit, óttinn við berskjöldun, sjálfstýring í lífinu, innri og ytri mótstaða, að skamm- ast sín fyrir holdafarið, að bæla næmni og reyna að standa undir væntingum samfélagsins. Sífellt eru verið að ætlast til að konur séu einhvern veginn, hagi sér á ákveð- inn hátt og fari ákveðnar sam- þykktar leiðir.“ Sunna bætir við að konur leggi oft mikið á sig til að reyna að þröngva sér inn í einhvern kassa sem hentar þeim alls ekki. „Þessi undirgefni er enn svo rík í konum held ég. Okkur fannst spennandi að velta fyrir okkur hvað gæti orðið ef þær sprengja kassann og henda því spýtnabraki til hlið- ar.“ Ragnheiður Harpa segir að sér finnist ansi miklar kröfur í nútíma- samfélagi vera gerðar til fjöl- skyldna. „Þessi vinnustaðamenning sem við lifum við í dag er ekki mann- eskjuleg, þar sem börn eiga að vera fullan vinnudag í gæslu og eftir það eiga foreldrar eftir að kaupa í mat- inn, elda, baða, þrífa og sinna öll- um. Þetta eru óraunhæfar kröfur, sérstaklega gagnvart konunni því hún tekur það kannski oftar á sig. Á sama tíma eiga þær að vera með flatan maga, elda besta mat í heimi og gera allt frá grunni. Tilfinninga- rófið getur verið allskonar hjá mæðrum og við eigum ekki að sýna börnunum okkar eða samfélaginu alltaf einhverja glansmynd af ham- ingju, heldur leyfa þeim að sjá inn í hráleikann og rótarkerfið. Þetta til- finningaróf sem við búum yfir verð- ur svo einsleitt í umhverfi glans- mynda á samfélagsmiðlum. Við erum í bókinni að sýna inn í kjarna þessara sex kvenna sem við segjum sögur af, þetta er smá leiftur, og þar sjáum við allt, gleði, ólgu, sam- viskubit, ást, reiði og fleira.“ Sambandsleysi er tabú Í bókinni er drepið á ýmsum málum í samtímanum, til dæmis áformum um betri heim og hræsni þeirra sem mótmæla loftslags- breytingum og njóta á sama tíma þægilega, kolefnisríka millistéttar- lífsins á Íslandi. Einnig fær lesandi að sjá að hluta til hvað er á bak við tilfinningalegt sambandsleysi fólks- ins í sögunum, hvort sem það er maki, móðir, afkvæmi, systir eða vinkona. „Fólk brynjar sig kannski gagnvart þeim sem standa þeim næst og hafa þar með valdið til að særa,“ segir Sunna og Ragnheiður Harpa bætir við að í samfélagi okk- ar sé lítið talað um sambandsleysi innan nánustu fjölskyldu, það sé mikið tabú og nánast bannað. Þær segja að Svikaskáld séu með nýtt verk í vinnslu, en að þar sé allt á frumgums-stigi. „Við erum með frumsúpu í potti og hrærum í. Einmitt það er fallegt og spennandi við þessa sam- vinnu, við vitum ekki hvert við er- um að fara. Svona samvinna er mikil æfing í trausti og Svikaskáld er orðin þó nokkuð þroskuð vera. Það er extra skemmtilegt að vera sex saman í þessu brasi, við þekkj- um hver aðra orðið svo vel. Við er- um alltaf að vinna að því í smiðj- unum okkar og ljóðakvöldunum að taka hugmyndina um snilling niður af stöplinum, af því að í kringum alla er alltaf einhver hópur sem á þátt í því sem manneskjan gerir. Margar manneskjur vinna með ein- um eða öðrum hætti saman að því að skapa eitthvað, hvað sem það er.“ Sýna inn í kjarna sex kvenna Í fyrsta sinn í þrjátíu ára sögu Íslensku bókmennta- verðlaunanna er skáldverk tilnefnt sem skrifað er af fleiri en einum höfundi. Þetta er skáldsagan Olía, sem Svikaskáld skrifuðu saman, en þar segir af sex „erfiðum“ konum á ólíkum aldri. Ljósmynd/Saga Sig Svikaskáldin Efri röð f.v.: Ragnheiður Harpa, Sunna Dís, Melkorka og Þórdís. Fyrir framan eru Þóra og Fríða Ísberg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.