Morgunblaðið - 09.12.2021, Page 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
Innanlandsflug fyrir jólapakkann á 1.800 kr.*
Sælla er að gefa en þiggja – en jólafrakt Icelandair Cargo
getur aukið enn á ánægjuna. Hvort sem þú lætur kerti, spil
eða eitthvað allt annað í jólapakkana sjáum við um að flytja
þá hratt og örugglega í réttar hendur fyrir jólin.
*Gildir 8.–20. desember fyrir pakka allt að 10 kg s. 570 3400
Akureyri — Egilsstaðir — Ísafjörður — Reykjavík
icelandaircargo.is
Jólagleðin liggur
í loftinu
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið lögðum af stað með það
að skrifa raddir kvenna
og ætlunin var að gera
útvarpsleikrit um það
sem kallað er erfiðar konur. Okkur
langaði að skoða hvað geri konu
erfiða, af hverju erfiðar konur eru
til, hvort þær hafi haft mótandi
áhrif á sögu okk-
ar, hvort þær séu
kannski bara í
erfiðum sam-
skiptum, hvað
eru erfiðir karlar
og svo framvegis.
Við fundum að
þarna var ein-
hver kjarni sem
var kona í mót-
stöðu,“ segja þær
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og
Sunna Dís Másdóttir þegar þær
eru spurðar um tilurð skáldsög-
unnar Olíu, en þær eru tvær þeirra
sex kvenna sem eru höfundar
hennar. Hinar eru Þórdís Helga-
dóttir, Þóra Hjörleifsdóttir, Mel-
korka Ólafsdóttir og Fríða Ísberg.
Þessar sex konur eru ekki óvanar
að vinna saman, þær kalla sig
Svikaskáld og hafa áður gefið út
þrjú ljóðverk sem þær skrifuðu í
sameiningu sem hópur.
Olía geymir sögur af sex kon-
um og hverja þeirra skrifar ein
kona úr Svikaskáldum.
„Við byrjuðum á að skrifa
nafnlausar raddir og við skiptum
með okkur konum eftir aldri, ég
skrifa til dæmis um elstu konuna,
Gerði, sem er fullorðin kona og
bókin hefst á sögu hennar,“ segir
Sunna og bætir við að allar persón-
ur sem á eftir koma tengist með
einum eða öðrum hætti.
„Aldur þessara kvenna nær
nánast yfir alla ævi konu og þá
kviknaði löngun hjá okkur til að
spanna vítt og breitt svið,“ segir
Sunna.
Ekki nógu þægar konur
Ragnheiður Harpa segir að
þær í Svikaskáldum hafi unnið
þessa skáldsögu eins og þær hafa
gert með ljóðabækurnar.
„Við deilum ört hver með ann-
arri því sem við erum að skrifa
meðan á sköpunarferlinu stendur.
Þá förum við að fá einhverja til-
finningu og við þreifuðum okkur
áfram í áttina að röddum þessara
kvenna. Þá fóru að koma í ljós fleiri
og fleiri tengingar milli þeirra,
sumar komu okkur jafnvel á óvart.
Við hittumst reglulega til að ræða
saman og þegar skrifin voru sem
hráust lásum við upp hver fyrir
aðra, þá fengu hinar hugmyndir
líka sem batt þetta saman og gerði
að skáldsögu. Við fórum líka í
nokkrar ferðir, dvöldum saman í
fallegu rými, elduðum góðan mat
og skrifuðum eftir skeiðklukku og
deildum hráa gumsinu sem út úr
því kom. Þá er allt opið í alla enda
og það býður upp á allskonar teng-
ingar og snertifleti hjá þessum
ólíku konum sem þykja ,,erfiðar“ af
því þær eru ekki nógu þægar, með-
færilegar eða uppfylla ekki kröfur
samfélagsins um að vera duglegar,
fórnfúsar, þolinmóðar, umburðar-
lyndar og svo framvegis.“
Ekki sýna bara glansmynd
Sagan nær utan um mörg ólík
hlutverk kvenna og raunveruleika,
að vera móðir, dóttir, systir, vin-
kona, maki. Á ýmsu gengur í þeim
samböndum, á einum stað segir t.d.
dóttir að mamma hennar sé tilfinn-
ingaokurlánari og á öðrum stað
segir af konu sem finnst heimurinn
speglast í grindarbotninum, svo
fátt eitt sé nefnt.
„Okkur fannst heillandi hvað
konur fara í gegnum mörg hlutverk
á æviskeiðinu og þau eru alltaf að
breytast, dýpka á einum stað en
grynnka á öðrum,“ segir Sunna og
Ragnheiður Harpa bætir við að í
bókinni sé komið inn á ýmislegt
sem þjaki margar konur.
„Eilíft samviskubit, óttinn við
berskjöldun, sjálfstýring í lífinu,
innri og ytri mótstaða, að skamm-
ast sín fyrir holdafarið, að bæla
næmni og reyna að standa undir
væntingum samfélagsins. Sífellt
eru verið að ætlast til að konur séu
einhvern veginn, hagi sér á ákveð-
inn hátt og fari ákveðnar sam-
þykktar leiðir.“
Sunna bætir við að konur leggi
oft mikið á sig til að reyna að
þröngva sér inn í einhvern kassa
sem hentar þeim alls ekki.
„Þessi undirgefni er enn svo
rík í konum held ég. Okkur fannst
spennandi að velta fyrir okkur hvað
gæti orðið ef þær sprengja kassann
og henda því spýtnabraki til hlið-
ar.“
Ragnheiður Harpa segir að sér
finnist ansi miklar kröfur í nútíma-
samfélagi vera gerðar til fjöl-
skyldna.
„Þessi vinnustaðamenning sem
við lifum við í dag er ekki mann-
eskjuleg, þar sem börn eiga að vera
fullan vinnudag í gæslu og eftir það
eiga foreldrar eftir að kaupa í mat-
inn, elda, baða, þrífa og sinna öll-
um. Þetta eru óraunhæfar kröfur,
sérstaklega gagnvart konunni því
hún tekur það kannski oftar á sig.
Á sama tíma eiga þær að vera með
flatan maga, elda besta mat í heimi
og gera allt frá grunni. Tilfinninga-
rófið getur verið allskonar hjá
mæðrum og við eigum ekki að sýna
börnunum okkar eða samfélaginu
alltaf einhverja glansmynd af ham-
ingju, heldur leyfa þeim að sjá inn í
hráleikann og rótarkerfið. Þetta til-
finningaróf sem við búum yfir verð-
ur svo einsleitt í umhverfi glans-
mynda á samfélagsmiðlum. Við
erum í bókinni að sýna inn í kjarna
þessara sex kvenna sem við segjum
sögur af, þetta er smá leiftur, og
þar sjáum við allt, gleði, ólgu, sam-
viskubit, ást, reiði og fleira.“
Sambandsleysi er tabú
Í bókinni er drepið á ýmsum
málum í samtímanum, til dæmis
áformum um betri heim og hræsni
þeirra sem mótmæla loftslags-
breytingum og njóta á sama tíma
þægilega, kolefnisríka millistéttar-
lífsins á Íslandi. Einnig fær lesandi
að sjá að hluta til hvað er á bak við
tilfinningalegt sambandsleysi fólks-
ins í sögunum, hvort sem það er
maki, móðir, afkvæmi, systir eða
vinkona.
„Fólk brynjar sig kannski
gagnvart þeim sem standa þeim
næst og hafa þar með valdið til að
særa,“ segir Sunna og Ragnheiður
Harpa bætir við að í samfélagi okk-
ar sé lítið talað um sambandsleysi
innan nánustu fjölskyldu, það sé
mikið tabú og nánast bannað.
Þær segja að Svikaskáld séu
með nýtt verk í vinnslu, en að þar
sé allt á frumgums-stigi.
„Við erum með frumsúpu í
potti og hrærum í. Einmitt það er
fallegt og spennandi við þessa sam-
vinnu, við vitum ekki hvert við er-
um að fara. Svona samvinna er
mikil æfing í trausti og Svikaskáld
er orðin þó nokkuð þroskuð vera.
Það er extra skemmtilegt að vera
sex saman í þessu brasi, við þekkj-
um hver aðra orðið svo vel. Við er-
um alltaf að vinna að því í smiðj-
unum okkar og ljóðakvöldunum að
taka hugmyndina um snilling niður
af stöplinum, af því að í kringum
alla er alltaf einhver hópur sem á
þátt í því sem manneskjan gerir.
Margar manneskjur vinna með ein-
um eða öðrum hætti saman að því
að skapa eitthvað, hvað sem það
er.“
Sýna inn í kjarna sex kvenna
Í fyrsta sinn í þrjátíu ára sögu Íslensku bókmennta-
verðlaunanna er skáldverk tilnefnt sem skrifað er af
fleiri en einum höfundi. Þetta er skáldsagan Olía,
sem Svikaskáld skrifuðu saman, en þar segir af sex
„erfiðum“ konum á ólíkum aldri.
Ljósmynd/Saga Sig
Svikaskáldin Efri röð f.v.: Ragnheiður Harpa, Sunna Dís, Melkorka og Þórdís. Fyrir framan eru Þóra og Fríða Ísberg.