Morgunblaðið - 09.12.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.12.2021, Qupperneq 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Örlögin höguðu því þannig að Guð- mundur Fertram Sigurjónsson réðst til starfa hjá fyrirtækinu Keratec á Nýja-Sjálandi. Þar handlék hann m.a. líkhúð sem nýtt er til sára- græðslu. Á einhverjum tímapunkti fór hann að velta fyrir sér hvað húðin minnti sig á og tók hugurinn hann aftur um langan veg þegar hann starfaði í fiskvinnslu afa síns og ömmu á Ísafirði. „Eitt leiðinlegasta starfið sem mað- ur lenti í var að standa við roðflettivél- ina. Þar stóð maður og beið eftir að hún stíflaðist og þá losaði maður stífl- una, beygði sig niður, tók roðið sem datt og setti í kassa. Ég man að maður var alltaf að þreifa á roðinu. Það er teygjanlegt, það er þunnt, það er fitu- ríkt og með hreistur.“ Áttaði hann sig á að það voru mikil líkindi með líkhúðinni og roðinu. Teygjanleikinn, þykktin svipuð og jafn gegndræpt. „Nokkrum árum seinna sat ég hérna upp úr hruni og var í þeim stellingum að sækja um styrk úr Tækniþróunarsjóði því mig langaði til að gera eitthvað sem tengdist sár- um eða stoðtækjum sem ég hafði unnið við síðustu tuttugu árin. Þá vaknaði þessi hugmynd.“ Algjörlega ný nálgun Aldrei fyrr hafði nokkrum dottið í hug að nota fiskroð í þessu tilliti en Guðmundur segir að það hafi vakið furðu sína og annarra hversu mikil líkindi þarna voru á milli. Vill hann þó ekki taka undir þá vangaveltu blaðamanns að við séum af þessum sökum ekki annað en þorskar á þurru landi. Rannsóknir leiddu í ljós að roðið virkaði við sáragræðslu og það svo um munaði og segir Guðmundur að þar hafi komið í ljós að notkun þess fylgja ekki sömu alvarlegu áskoranir og þegar notast er við líkhúð, húð af svínum eða fósturhúð nautgripa. Vír- usa sem losna þarf við úr þeim, sem geti borist yfir í menn, sé ekki að finna í þorskroði. „Kaldvatnsþorskur ber enga sjúk- dóma í menn. Vírusarnir í þorskinum eru hannaðir til að virka við 2 gráður. Þegar þú setur þá í 37 gráður þá missa þeir virkni sína,“ segir Guð- mundur. Bendir hann á að þetta at- riði hafi ekki síst merkingu nú, í kjöl- far þess að kórónuveiran setti allt á annan endann. Talið sé að hún hafi borist úr leðurblökum í menn og að heilbrigðisyfirvöld um heim allan vilji tryggja eftir fremsta megni að var- færnislega sé farið með öll líffræðileg efni sem borist geti milli dýra og manna. Frá því að Guðmundur gerði hina ótrúlegu uppgötvun hefur mikið vatn runnið til sjávar en allt frá fyrstu tíð hefur sáraroðið verið unnið úr þorski sem veiddur er við strend- ur Íslands og hefur Hraðfrystihúsið Gunnvör haft mikilvægu hlutverki að gegna við útvegun þess. Fyrirtækið er jafnframt í hópi hluthafa Kerecis. Guðmundur bendir á að reynslan af sáraroði Kerecis sé afar góð og að reglulega berist tíðindi af ótrúlegum árangri sem læknar hafi náð við með- höndlun sjúklinga. Varan hafi sannað sig sem öflugra meðferðarúrræði en margar aðrar vörur sem notast er við í sama tilgangi. Spurður út í hvort sáraroðið geti orðið flöskuháls þegar kemur að framleiðslunni segir Guðmundur það af og frá. Sennilega gæti fyrirtækið annað allri mögulegri eftirspurn með roði úr tvö hundruð tonnum af þorski. Og eftirspurn eftir vörum fyrirtækisins vex og vex og flest bendir til þess að sá vöxtur muni halda áfram að aukast. Í grunninn byggist hugmyndin að baki þeim á því að græða sár fólks sem þjáist af alvarlegri sykursýki og bendir Guð- mundur á að Alþjóðaheilbrigðisstofn- unin skilgreini nú sjúkdóminn sem heimsfaraldur. Árið 2040 er gert ráð fyrir að 20% Bandaríkjamanna muni þjást af henni og sé ekkert að gert, muni hundruð þúsunda manna um heim allan þurfa að gangast undir af- limanir vegna afleiðinga hennar. Skertar lífslíkur Og þótt aflimanir séu ákveðin lausn á hinum mikla vanda í ein- hverjum skilningi bendir Guð- mundur á það í viðtalinu að þeim fylgi miklar breytingar á högum fólks og að andlegir, félagslegir og líkamlegir fylgifiskar hennar valdi því að lífslíkur fólks sem verði fyrir aflimun séu jafn miklar og þeirra sem greinist með lungnakrabba. En fyrirtækið horfir á breiðara svið, m.a. með tilliti til þess að græða sár eftir skurðaðgerðir og einnig brunasár. Þá hafa svokallaðar ábend- ingar frá heilbrigðisyfirvöldum vald- ið því að fyrirtækið vinnur einnig að þróun vara sem koma að tann- ígræðslum, enduruppbyggingu eftir brjóstnám og enduruppbyggingu liða, svo dæmi sé tekið. Vöruþróun og öflugt markaðsstarf veldur því að tekjur Kerecis aukast ár frá ári um tæplega 100% og segist Guðmundur hafa mikla trú á framtíð þess. Hann segir ekki of bjartsýnt að telja að fyrirtækið sé næsti nýsköp- unarsproti sem muni blómstra með sama hætti og Össur og Marel hafa gert. Á fundi hluthafa fyrirtækisins í lið- inni viku kom fram að fyrirtækið stefndi á skráningu á markað innan skamms tíma og að áætlað markaðs- verðmæti þess sé talið á bilinu 80 til 90 milljarðar og að miðað við áætl- anir þess og samanburð við sambæri- leg fyrirtæki sem eru nú þegar í Kauphöll megi gera ráð fyrir því að árið 2023 verði verðmæti fyrir- tækisins einn milljarður dollara, jafn- virði 130 milljarða króna. Til sam- anburðar má geta þess að markaðsvirði Kviku banka er 130 milljarðar króna og markaðsvirði Brims, eins stöndugasta sjávar- útvegsfyrirtækis landsins, er rúmir 150 milljarðar. Í aðdraganda skrán- ingarinnar stefna eigendur Kerecis að því að auka hlutafé fyrirtækisins og er það m.a. gert vegna fyrirhug- aðrar yfirtöku á ónefndu fyrirtæki í Bandaríkjunum sem nú er í sigtinu. Guðmundur gerist nokkuð dulur þegar hann er spurður út í hvað felist í þessum kaupum en ljóst er af öllu að stutt er í að vænta megi stórtíðinda af þessu fyrirtæki sem ekki er ósennilegt að hvert einasta manns- barn á Íslandi muni þekkja deili á áð- ur en langt um líður. Hef mikla trú á framtíð Kerecis - Íslensk nýsköpun ryður sér til rúms á sístækkandi markaði með lækningavörur - Kerecis komið í hóp verðmætustu fyrirtækja Íslands - Þorskroð að vestan græðir sár hraðar en staðkvæmdarvörur Sköpun Guðmundur Fertram Sigurjónsson stofnaði Kerecis árið 2009. Rúmum áratug síðar er fyrirtækið í hópi verðmætustu framleiðslufyrirtækja landsins. Kerecis Er með framleiðslu sína á Ísafirði og skapar þar fjölda hálauna- starfa. Í heildina starfa 250 manns hjá fyrirtækinu í nokkrum löndum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.