Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
ULLARJAKKAR
ÍSLENSK ULLAREINANGRUN
NÝSKÖPUN
Á HLÝJUM GRUNNI
www.icewear.is
Íslenska sauðkindin er einstök og hefur lifað af síbreytilegt
íslenskt veðurfar í gegnum aldirnar. Íslenska ullin samanstendur
af grófu togi og fíngerðu þeli sem andar vel og hrindir frá sér
raka. Eiginleikar ullarinnar gefa stöðugan varma sem nýtist í
einangrun í nýrri útivistar línu Icewear. Nýja ullareinangrunin er
nýsköpun þar sem íslenska ullin er í fyrsta skipti unnin og notuð
sem einangrun í útivistarflíkur. Íslenska ullareinangrunin í flíkum
Icewear kemur í mismunandi þykktum sem henta hver um sig við
fjölbreyttar aðstæður og mismunandi notkun.
J
afntefli varð í litlausri tíundu
einvígisskák Magnúsar
Carlsens og Jans Ne-
pomnniactchis í Dúbaí í gær
og virðist nú einungis formsatriði
fyrir Norðmanninn að vinna einvígið
því staðan er nú 6½:3½ og hann þarf
einn vinning í þeim fjórum skákum
sem eftir eru til að verja heims-
meistaratitilinn. Ellefta skákin verð-
ur tefld á morgun.
Þessi staða í einvíginu kemur
nokkuð óvart því að byrjunin lofaði
góðu fyrir Nepo. Byrjanir hans voru
markvissar og Magnús lenti í tals-
verðum erfiðleikum í fimmtu skák-
inni. En sigur hans í lengstu skák
sem tefld verið í heimsmeist-
araeinvígi sl. föstudag, 136 leikja
maraþonviðureign, hefur greinilega
slegið Nepo út af laginu. Leita þarf
vel og vandlega í annálum til að
finna jafn slaka leiki í heimsmeist-
araeinvígi og þá sem urðu Nepo síð-
an að falli í áttundu og níundu skák-
inni. Maður hefði haldið að
sálfræðilegur undirbúningur Nepos
fyrir einvígið hefði átt að gera hann
móttækilegan fyrir einhverju and-
streymi en greinilegt er að höggið í
sjöttu „lotu“ var of þungt. Eftir lit-
laust jafntefli í sjöundu skákinni
virtist allt í himnalagi í þessari
stöðu:
HM-einvígi í Dúbaí 2021; 8. skák:
Magnús Carlsen – Jan Nepomni-
achtchi
Svartur heldur jafnvægi með 21.
… Kg8 t.d. 22. De7 Be6 o.s.frv. Ann-
ar möguleiki er 21. … Dd6 22. Db3
b5 23. Bxf7 Df4 24. Da3+ Dd6 með
flókinni stöðu. Nepo átti nægan tíma
en lék ótrúlegum afleik.
21. … b5?? 22. Da3+ Kg8 23.
Dxa7 Dd8
Skárra var 23. … Bxh3 24. Dxf7+!
Dxf7 25. He8 Kh7 26. Bxf7+ og hvít-
ur á sælu peði meira.
24. Bb3
– og þessi staða er unnin á hvítt.
Magnús vann í 46 leikjum.
Nepo mætti svo til leiks í níundu
skák með nýja hárgreiðslu. Hár-
hnúturinn horfinn og dómgreindin
kannski líka:
HM-einvígi Dúbaí 2021; 9. skák:
Jan Nepomniachtchi – Magnús
Carlsen
Nepo vissi að hann þyrfti að vinna
þessa skák. En staðan á borðinu er
jöfn og það virtist hann ekki geta
sætt sig við. Best var 27. f3 Rh6 28.
Be4 Hxc4 29. Hec1 en svartur leikur
betur með 28. … Rf5. En nú kom
hrikalegur afleikur …
27. c5??
Það var greinilegt á svipbrigðum
heimsmeistarans að leikurinn kom
honum í opna skjöldu. Eftir dágóða
stund lék hann …
27. … c6!
Biskupinn lokast úti og Nepo
gafst upp eftir 39 leiki. Það verður
ekki frá Norðmanninum tekið að
hann nýtti færi sín vel í vinnings-
skákunum þremur.
Situr lítið við skákborðið
Það háttalag Nepos að sitja sem
minnst við borðið þegar skákirnar
eru tefldar en dvelja í hvíldar-
herbergi keppenda, hugsa sinn gang
þar en stíga svo fram til að leika,
hefur vakið athygli. Magnús hefur
ekki gert neinar athugasemdir við
þetta háttalag sem rifjar upp hat-
ramma deilu sem spratt upp í loka-
einvígi áskorendakeppninnar 1977/
78 í Belgrad. Viktor Kortsnoj hafði
náð miklu forskoti gegn Boris
Spasskí, sem kaus upp frá því að
sitja sem lengst í hvíldarherbergi
sínu en kom fram til að leika. Korts-
noj tók þessu afar illa og upp úr
sauð. Skyndilega vann Spasskí fjór-
ar skákir í röð en viðskiptum þeirra
lauk með því að prúðmennið Spasskí
steytti hnefann framan í Kortsnoj
þegar síðasta skákin var tefld. En
Kortsnoj vann og tefldi um heims-
meistaratitilinn við Karpov sumarið
og haustið 1978.
Höggið í
sjöttu „lotu“
var of þungt
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
AFP
Ný hárgreiðsla Nepo og Magnús við upphaf níundu skákarinnar. Athygli vakti að Nepo hafði látið klippa sig.