Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 33
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Barnafoss Göngubrúin yfir Barnafoss var upphaflega byggð árið 1891 og var þá notuð til fjárrekstrar. Barnafoss getur varla talist foss lengur því áin flæðir í gegnum gljúfrið í stríðum straumi. metrum neðan við göngubrúna yfir fossinn. Í jarðgöngunum verður hefðbundinn laxastigi, 30 þrepa, fyr- ir lax og silung að synda upp liðlega 13 metra hæðarmun. Jarðgöngin munu hafa lítil áhrif á vatnafar Hvítár því þau taka aðeins um hálft til eitt prósent af vatni ár- innar. Mikil reynsla er komin á laxastiga í jarðgöngum í Noregi. Þar eru yfir 50 slíkir stigar, margir fram hjá virkjunum. Lengstu jarðgöngin eru 540 metra löng. Stefán segir að veiðiréttareig- endur í Hvítá muni einnig njóta góðs af aukinni laxagengd í kjölfar rækt- unar stofns í Norðlingafljóti. Veiði- félagið nær til efsta hluta Hvítár, frá ármótum við Reykjadalsá. Segir Stefán að möguleikar eigi að skapast á stangveiðum í Hvítá á ákveðnum tímum árs, eins og í ýmsum öðrum jökulám. Framkvæmdin muni því þjóna öllu samfélaginu, ekki aðeins landeigendum við Norðlingafljót. „Sjálfbærni, stækkun á nátt- úrulegum búsvæðum fyrir lax, nátt- úruvernd og efnahagslegar for- sendur eru allt þættir sem munu eflast þegar Norðlingafljót verður fiskgengt,“ segir Stefán. Vandað til verka Þar sem um er að ræða leyf- isskylda framkvæmd er nauðsynlegt að vanda vel til verka, segir Stefán. Fyrirspurn til Skipulagsstofnunar um matsskyldu var verkstýrt af Sig- mari A. Steingrímssyni hjá Verkís. Spurningin um það hvort gera skuli formlegt umhverfismat vegna fram- kvæmdarinnar er í umsagnarferli hjá Skipulagsstofnun. Stofnunin hef- ur óskað eftir umsögnum ýmissa að- ila og metur síðan matsspurninguna. Sérfræðingar sem unnið hafa að málinu fyrir framkvæmdaraðila telja að framkvæmdin muni ekki raska umhverfi Hraunfossa eða breyta ásýnd þess. Hún muni ekki hafa neikvæð áhrif á umhverfið og eigi því ekki að fara í umhverfismat. Stefán Stefánsson viðurkennir að málið sé vandmeðfarið og umhverfið sníði framkvæmdinni þröngan stakk. Segir hann ósennilegt að leyfi fengist til að leggja venjulegan fisk- veg við fossinn. „Ég myndi aldrei leggja af stað í slíkt verkefni enda vil ég ekki spilla umhverfinu á nokkurn hátt. Þess vegna höfum við unnið verkefnið sérstaklega vel og nið- urstaðan er að það er hægt án þess að spilla þessum vernduðu stöðum,“ segir Stefán. Hann bendir einnig á þann ávinn- ing sem fæst fyrir umhverfið með því að opna Norðlingafljót og rækta upp sjálfbæran laxastofn. Vitnar hann til álits Sigurðar Más fiski- fræðings sem telur að framkvæmdin geti aukið laxveiði á Íslandi um 2-3% og einnig hjálpað bleikjustofninum. Þá muni framkvæmdin hafa mjög já- kvæð áhrif fyrir samfélagið í upp- sveitum Borgarfjarðar. Stefán segist halda áfram með verkefnið þótt það þurfi að fara í um- hverfismat. „Ef og að reyna eru orð sem ég vil ekki hafa í minni orða- bók,“ segir hann en bendir á að það taki lengri tíma og kosti mikla fjár- muni að fara í fullt umhverfismat. Það muni að hans mati ekki skýra neitt betur en þegar hefur verið gerð grein fyrir. „Ég er sannfærður um að okkur í þessu góða samfélagi tekst að hrinda þessu mikla og mikilvæga verkefni í framkvæmd, í þágu alls samfélags- ins og fyrir íslenska laxastofninn. Hagsmunir okkar og umhverfisins eru samofnir,“ segir Stefán. FRÉTTIR 33Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 Leyfi Umhverfisstofnunar þarf til framkvæmda. Í umsögn til Skipulags- stofnunar nú kemur fram það álit að ekki liggi fyrir nægilegar upplýs- ingar um áhrif framkvæmdarinnar á verndargildi friðlýsta svæðisins og þörf sé á frekari rannsóknum. Það mál er nú í ferli milli aðila. Í umsögninni kemur fram að stofnunin metur málið þannig að fram- kvæmdin sé líkleg til að valda umtalsverðum umhverfisáhrifum og nokk- ur óvissa ríki um áhrif hennar á friðlýsta svæðið. Telur stofnunin að fram- kvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Vilja fullt umhverfismat UMHVERFISSTOFNUN „Þetta er ástríðuverkefni hjá mér. Ég ólst upp við veiðar og náttúru- skoðun með föður mínum, Stefáni Stefánssyni, bæjarverkfræðingi á Ak- ureyri. Safnaði blómum og vann í Lystigarðinum á Akureyri og að plöntu- rannsóknum með Herði Kristinssyni grasafræðingi, á meðan félagar mínir léku sér á mótorhjólum,“ segir Stefán Stefánsson í Fljótstungu þegar hann er spurður um hvatann til að ráðast í Norðlingafljótsverk- efnið og bætir við: „Ég vil leggja mikið á mig til að efla íslenska laxa- stofninn.“ Stefán er Akureyringur en keypti jörðina Fljótstungu með konu sinni, Þórhöllu Laufeyju Guðmundsdóttur, og börnum árið 2015. Fyrsta verkefni fjölskyldunnar var að koma upp aðstöðu til hellaskoðunar og fræðslu í Víðgelmi í Hallmundarhrauni en hann er einn af stærstu hraunhellum heims. Hefur það verkefni gengið vel og dregur þjónustan að sér fjölda ferðamanna allt árið. Þá hafa þau einnig byggt upp góða aðstöðu fyrir starfsfólkið í Fljótstungu. „Ég er stundum spurður að því hvers vegna ég kaupi ekki hús á Spáni frekar en að búa til nýja laxveiðiá. Svarið er einfalt, ég vil þetta frekar. Mér er annt um samfélagið. Umhverfið í Borgarfirði er svo stórkostlegt að þeir sem eiga tækifæri verða að nýta þau,“ segir Stefán. Vil leggja mikið á mig fyrir laxinn STEFÁN STEFÁNSSON Í FLJÓTSTUNGU Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Frumkvöðull Stefán Stefánsson dregur vagninn í verkefninu um Norðlingafljót.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.