Morgunblaðið - 09.12.2021, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
ALVÖRU
VERKFÆRI
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
190
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI
vfs.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Meðalverð á slægðum þorski hefur á
þessu ári verið með því hæsta á fisk-
mörkuðum á undanförnum tæpum
15 árum og hefur meðalverð það sem
af er þessu ári verið 400,83 krónur á
kíló. Eins og sést hér á myndinni
fyrir ofan er ljóst að meðalverð árs-
ins 2021 er langt umfram það verð
sem tíðkast hefur.
Skýringar þess að verð sé hátt
kunna að vera margar en mikil-
vægur þáttur í verðhækkunum hef-
ur verið skert framboð að mati
þeirra í greininni. Skertar hafa verið
aflaheimildir í þorski um 13% við Ís-
landsstrendur en 20% í Barentshafi
auk þess sem staða þorsksins í
Norðursjó er enn slæm. Skerðing
veiðiheimildanna á Íslandsmiðum og
í Barentshafi var þó mun minni en
gæti verið vegna jöfnunartækis í
aflareglu.
Verð áfram hátt á næsta ári
Án jöfnunar kynni þorskkvótinn
fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 á Ís-
landsmiðum að hafa verið skertur
um 27% í 188 þúsund tonn og í Bar-
entshafi um 43% í 506 þúsund tonn.
Bendir þetta til þessa að verð á
þorski muni haldast hátt á næsta ári
og jafnvel lengur. Árgangar sem
koma inn í viðmiðunarstofninn um-
hverfis Ísland 2023 og 2024 eru tald-
ir vera þokkalega stórir en ekki er
vitað með vissu í hversu miklum
mæli þeir muni bæta upp skerðingar
þorskkvótans, hvað þá minni stofn í
Barentshafi.
Minnkar líkur á verkfalli
Þrátt fyrir takmarkað framboð og
mikla eftirspurn er ekki sjálfgefið að
verði blóm í haga hjá öllum sjávar-
útvegsfyrirtækjum landsins þar sem
minna hráefni gæti haft neikvæð
áhrif á rekstur sumra fyrirtækja. En
hjá öðrum gæti hærra verð mætt
þeim áskorunum.
Eitt er þó víst og það er að sjó-
menn virðast margir hverjir ánægð-
ir með sinn hlut og viðurkenndi Val-
mundur Valmundsson, formaður
Sjómannasambands Íslands, í Morg-
unblaðinu á dögunum að ekki væri
til staðar mikill vilji innan raða fé-
lagsmanna til að grípa til allsherj-
arverkfalls til að knýja fram samn-
inga, meðal annars vegna góðs
afurðaverðs.
Meðalverð á slægðum þorski frá ársbyrjun 2007
Kr./kg
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021
700
600
500
400
300
200
100
10 dagar með hæsta verð frá janúar 2007
Dagur kr./kg Dagur kr./kg
1. 21.10.2021 683,77 6. 16.9.2020 638,75
2. 22.9.2021 674,35 7. 5.1.2020 624,35
3. 29.9.2021 661,79 8. 1.9.2021 622,96
4. 28.12.2015 649,76 9. 9.9.2020 618,85
5. 5.11.2020 643,11 10. 26.8.2021 612,31
Meðalverð það
sem af er ári 2021:
400,83 kr./kg
2020 2021
Fjöldi daga 10 32
Af 50 dögummeð hæsta
meðalverðið frá janúar 2007:
Verð á fiskmörkuðum óvenjuhátt
- Meðalverð slægðs þorsks það sem af er ári 400,83 krónur á kíló - Náði 688,73 krónum 21. október
- Af þeim 50 dögum sem verð hefur verið hæst á undanförnum 15 árum voru 32 dagar á þessu ári
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Landað Margir eru ánægðir með verð á mörkuðum þessa dagana.
Afurðaverð á markaði
8. desember 2021,meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 422,55
Þorskur, slægður 434,10
Ýsa, óslægð 388,95
Ýsa, slægð 389,08
Ufsi, óslægður 230,16
Ufsi, slægður 271,33
Gullkarfi 308,29
Blálanga, óslægð 273,17
Blálanga, slægð 239,51
Langa, óslægð 246,87
Langa, slægð 285,52
Keila, óslægð 49,52
Keila, slægð 99,75
Steinbítur, óslægður 251,00
Steinbítur, slægður 405,00
Skötuselur, slægður 804,00
Grálúða, slægð 409,03
Skarkoli, slægður 599,03
Þykkvalúra, slægð 1.137,87
Langlúra, óslægð 197,00
Langlúra, slægð 245,00
Sandkoli, óslægður 11,00
Skrápflúra, óslægð 10,00
Skrápflúra, slægð 10,00
Bleikja, flök 1.795,00
Regnbogasilungur, flök 3.176,00
Gellur 1.505,04
Hlýri, óslægður 341,44
Hlýri, slægður 406,93
Lúða, slægð 762,44
Lýsa, óslægð 88,72
Náskata, slægð 10,96
Stórkjafta, slægð 171,80
Trjónukrabbi 20,00
Undirmálsýsa, óslægð 132,08
Undirmálsýsa, slægð 138,00
Undirmálsþorskur, óslægður 233,25
Undirmálsþorskur, slægður 233,11