Morgunblaðið - 09.12.2021, Síða 37
lendra og erlendra ferðamanna,
höfuðborgarbúa, sumarhúsafólks og
íbúa á svæðinu. Að sögn Brynjólfs
mun starfsfólk í móttöku hótelsins
einnig afgreiða viðskiptavini versl-
ana og kaffihússins í norðurenda
Gróðurhússins. Fyrirkomulagið sé
að erlendri fyrirmynd nema hvað
gengið sé lengra en víðast hvar í því
að samnýta afgreiðslufólkið. Niður-
staðan sé í reynd nýtt rekstrarform
á Íslandi. Valgarð bendir í þessu efni
á að kauphegðun sé að breytast.
Netverslun sé að færast í vöxt og
verslunarmiðstöðvar að leggja sífellt
meiri áherslu á upplifun. Fyrir vikið
verði nálgunin á verslunina
skemmtilegri. „Svo vegur launa-
kostnaður orðið þungt í verslunar-
og veitingarekstri á Íslandi og raun-
ar almennt í rekstri. Hér getum við
verið sveigjanleg í mannahaldi eftir
þörfum,“ segir Valgarð.
Hálfdán Pedersen á heiðurinn af
innanhússhönnun Gróðurhússins.
Greinilegt er að mikil vinna hefur
verið lögð í hönnunina og víða hefur
verið leitað fanga. Skírskotað er til
sögunnar og má nefna gamlar ljós-
myndir frá Hveragerði og bananatré
sem vekur minningar frá Eden.
Varðandi hönnunina, og áhersluna
á upplifun og stemningu, segir
Brynjólfur byggt á þeirri hug-
myndafræði að ef Gróðurhúsið verði
vinsælt meðal Íslendinga muni er-
lendir ferðamenn sækja þangað líka.
Valgarð bætir því svo við að alltaf
hafi staðið til að bjóða Íslendingum
upp á hagstætt verðlag í mathöllinni
og verslunum en að hafa ekki aðeins
verslanir ætlaðar ferðamönnum.
Veitingar á hagstæðu verði
Brynjólfur tekur undir þetta og
segir gesti mathallarinnar munu
geta snætt góðan mat í skemmtilegu
umhverfi án þess að borga meira en
fyrir skyndibita, eða fengið sér sæti
á Nýlendubarnum í notalegri og suð-
rænni stemningu. „Ég held að Ís-
lendingar hafi uppgötvað í faraldr-
inum hvað það er gaman að ferðast
um Ísland og upplifa skemmtilega
hótelmenningu á íslandi. Það þarf
ekki að fara til útlanda til að upplifa
hana,“ segir Valgarð.
Við barborðið Suðræn stemning, í anda Kúbu og Hemingway, svífur yfir vötnum á Nýlendubarnum.
Hótel Á The Greenhouse Hotel eru
49 herbergi, þar með talið svítur.
FRÉTTIR 37Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
með góðan skóbúnað og hugsa fram í
tímann í þeim efnum.“
Lárus segir að skórnir séu sér-
sniðnir að hinum norðurevrópska
fæti, sem sé þykkari en sá suður-
evrópski.
Ullin gefur hitatemprun
Í skónum er merinóull frá Nýja-
Sjálandi. „Hún er með svipaða eigin-
leika og íslenska ullin. Hún hrindir
frá sér raka og hefur hitatemprun.
Ef maður ert fótheitur dregur hún
úr hitanum en heldur á manni hita ef
maður er fótkaldur.“
Undirbúningur Kosy-vörulínunn-
ar hefur tekið þrjú ár að sögn Lár-
usar. Hann segir að Serbar séu
þekktir fyrir gott handverk, einkum
í kuldaskóm, sandölum og inniskóm.
Lárus segir stefnt að útrás með
skóna. Sala er hafin í Belgíu og Lúx-
emborg og Frakkland fylgi í kjölfar-
ið.
Skórnir koma í ýmsum litum.
„Þetta verður heil vörulína. Við ætl-
um að verða stórir á þessum heilsu-
skómarkaði.“
Búið er að skrá vörumerkið í Bret-
landi að sögn Lárusar og markaðs-
setning á netinu er sömuleiðis komin
í fullan gang.
Betra bak í útrás með
íslensku inniskóna Kosy
- Gert fyrir norðurevrópska fætur - 26 bein neðan ökkla
Morgunblaðið/Eggert
Gæði Á eftir bókum eru inniskór vinsælasta jólagjöf í heimi, segir Lárus.
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Rúmaverslunin Betra bak hefur haf-
ið sölu á íslensku heilsuinniskónum
Kosy sem hannaðir eru af Lárusi
Gunnsteinssyni. Skórnir eru fram-
leiddir fyrir Betra bak í Serbíu og
eru með níu svæða nuddinnleggi.
Lárus, sem er menntaður bæklun-
arskósmiður, segir í samtali við
Morgunblaðið að í skóhönnun þurfi
allt að vera á réttum stað. „Það eru
26 bein í fætinum fyrir neðan ökkla,
einn fjórði af beinum líkamans,“ út-
skýrir Lárus. „Æðarnar í líkaman-
um eru smæstar lengst frá hjartanu,
þ.e. í tánum, og því þarf að tryggja
gott blóðflæði þangað, annars kólnar
fólki á fótunum. Ef nuddpunktarnir
eru á réttum stað eins og í þessum
skóm hafa þeir einmitt áhrif á blóð-
flæðið og skapa þægindatilfinningu.“
Tveir hringir kringum jörðina
Skórnir eru leðurklæddir að inn-
an. „Leður dregur í sig raka en and-
ar stöðugt og heldur rakanum ekki í
sér. Það þýðir að það kemur síður
sveppamyndun og vond lykt.“
Lárus segir að sólinn sé úr hæfi-
lega mjúku efni. „Hver einasti mað-
ur gengur 450 skref á klukkutíma og
112-115 þúsund kílómetra um ævina,
eða 1,5-2 hringi í kringum jörðina.
Það skiptir því höfuðmáli að vera
9. desember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 130.95
Sterlingspund 173.55
Kanadadalur 103.38
Dönsk króna 19.822
Norsk króna 14.465
Sænsk króna 14.37
Svissn. franki 141.54
Japanskt jen 1.1531
SDR 182.85
Evra 147.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.9535
STUTT
« Staða fjármálastöðugleika er góð
þegar á heildina er litið, þó að óvissa
vegna faraldursins sé enn nokkur. Þetta
er meðal þess sem fram kemur í yfirlýs-
ingu fjármálastöðugleikanefndar Seðla-
banka Íslands sem birt var í gær.
Þar segir einnig að eiginfjár- og
lausafjárstaða bankanna sé vel yfir lög-
bundnum mörkum og þeir hafi greiðan
aðgang að fjármögnun.
„Kröftugur efnahagsbati hefur á síð-
ustu mánuðum stutt við heimili og
fyrirtæki. Hlutabréfa- og fasteignaverð
hefur hækkað verulega undanfarin
misseri. Kerfisáhætta vex áfram, sér-
staklega vegna skuldavaxtar heimila
samhliða hækkandi íbúðaverði. Aðhald
peninga- og þjóðhagsvarúðarstefnu
hefur verið hert nokkuð á síðustu mán-
uðum,“ segir í yfirlýsingunni.
Nefndin ákvað í ársfjórðungslegu
endurmati á sveiflujöfnunaraukanum
að halda gildi aukans óbreyttu. Ákvörð-
un nefndarinnar frá september um að
hækka aukann úr 0% í 2% mun taka
gildi í lok september árið 2022.
Fjármálastöðugleiki
góður en óvissa nokkur
Morgunblaðið/Ómar
Fjármál Efnahagsbati hefur stutt
við heimili og fyrirtæki.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
S. 555 3100 · donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Góð jólagjöf
Verð kr.
39.420
handapabba ogmömmu
og afa og ömmu