Morgunblaðið - 09.12.2021, Page 46

Morgunblaðið - 09.12.2021, Page 46
Limoncello 300 ml vatn 300 g sykur 8 stk. lífrænar sítrónur 400 ml vodka 25-100 ml sítrónusafi Limoncello er ítalskur sítrónulíkjör sem flestir kannast við. Gulleitur, sætur og ferskur líkjör sem passar vel í kokteila en er einnig ljúffengur eftir góða máltíð. Það eru til hundruð leiða til að búa til Limoncello en hver fjöl- skylda á Ítalíu er með sína uppskrift þar sem tegund sí- trónunnar, tíminn sem tekur að búa drykkinn til, syk- urmagn, spíramagn og fleira er mismunandi. Þennan líkjör getur tekur stuttan tíma að búa til en þeir sem gera hann árlega á Ítalíu taka oft marga mánuði í að ná honum réttum. Hér er uppskrift af limoncello sem getur tekið allt frá klukkustund og upp í mánuð að klára. Aðferð: Við byrjum á að skræla sítrónurnar með rif- járni, og búa til Oleo Saccharum með sykrinum í stál- eða glerskál. Hér verðum við að passa að rífa bara ysta lagið á sítrónunni því hvíta lagið sem er næst er beiskt og við viljum það ekki. Þá er berkinum einfaldlega nuddað saman við syk- urinn, með sleif eða höndunum í dágóðan tíma þar til all- ar olíurnar úr berkinum hafa blandast við sykurinn. Vatnið er hitað í litlum potti og þegar það er við suðu- mark hellum við því í skálina og hrærum vel þar til allur sykurinn er bráðinn. Nú setjum við vodkann saman við, setjum við lok yfir skálina og látum hana standa við stofu- hita í að minnsta kosti klukkustund. Að þeim tíma liðnum getum við annað hvort sigtað all- an börkinn frá og bætt við smá sítrónusafa fyrir auka sýru og meira sítrónubragð eða við getum sett innihald skálarinnar í lokaða krukku og inn í ísskáp með berk- inum í lengri tíma, en þannig náum við dýpra sítrónu- bragði úr berkinum og meiri lit í líkjörinn. Þegar líkjörinn hefur kólnað niður í 4-6 gráður er hann tilbúinn til notkunar. Líkjörinn geymist í allt að tvo mánuði í kæli. Ljósmynd/Kristinn Magnússon Á dögunum kom út bókin Heimabar- inn eftir þá Ivan Svan Corvasce og Andra Davíð Pétursson. Bókin inni- heldur mikinn fjölda uppskrifta að bæði áfengum og óáfengum kokteilum, auk ítarlegrar kennslu, fróðleiks um aðferðir og víntegundir. Má því segja að bókin innihaldi flest það sem þarf til að geta blandað góðan drykk. Það eru barþjónarnir Ivan Svanur og Andri Davíð sem eru höf- undar bókarinnar er báðir eru þeir þunga- vigtarmenn í faginu og hafa getið sér gott orð hér heima sem erlendis. Að sögn þeirra félaga ákváðu þeir að leiða hesta sína saman eftir að í ljós kom að þeir höfðu báðir fengið nákvæmlega sömu hugmynd að því að gera kokteilabók. Í fram- haldinu fór af stað yfir- gripsmikil vinna þar sem ákveðið var hvernig að verkinu yrði staðið. Útkoman er ein- staklega vel heppnuð bók sem inniheldur mik- inn fróðleik, fullt af ómissandi uppskriftun svo ekki sé minnst á for- kunnarfagrar myndir eftir Kristinn Magn- ússon. 5 Sjá síðu 48 Bókin sem beðið hefur verið eftir Reynsluboltar Ivan Svanur Corvasce og Andri Davíð Pétursson deila ástríðu fyrir góðum drykkjum og miðla þeirri reynslu í nýútkominni bók sinni. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Opið alla daga til jóla Frábært úrval af fallegum sloppum í Jólapakkann Vefverslun selena.is Frí heimsending um land allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.