Morgunblaðið - 09.12.2021, Qupperneq 48
Þessa uppskrift gerðum við sérstaklega fyrir þessa
bók en Ivan hefur þó verið að vinna með svipaðan
drykk lengi. Yfirleitt þegar óákveðinn gestur á
kokteilbörum sem hann hefur verið að vinna hjá
vill fá kokteil að hætti barþjónsins er þetta drykk-
urinn sem hann hefur teygt sig í, enda einfaldur og
þægilegur, bæði í bígerð og drykkju.
50 ml ljóst romm
15 ml allspice-líkjör
15 ml ástaraldinsíróp
15 ml sykursíróp
25 ml límónusafi
Skraut: ástaraldin
Við setjum öll hráefnin nema skrautið í hristara,
fyllum hann alveg upp í topp með klaka og hristum
hressilega í 10-15 sekúndur eða þar til hristarinn
er orðinn vel kaldur. Þá er drykkurinn streinaður í
gegnum sigti í kælt coupe-glas og skreyttur með
fljótandi ástaraldini.
Eiginleikar
Ástaraldin og bökunarkrydd, eins og allspice, er
bragðsamsetning sem svíkur engan. Við notum
ljóst romm í þennan og helst þá romm sem er ríkt
af vanillu. Vanillan úr romminu, ástaraldin úr sír-
ópinu, kryddið úr líkjörnum og límónan úr saf-
anum fara fullkomlega saman í þessum ljúffenga
drykk.
Passion & Allspice Daiquiri
Ferskur, einfaldur ginkokteill fyrir þá
sem kunna að meta límónu og gin. Við
mælum með að nota gin með mikla sítr-
useiginleika eins og Tanqueray Ten í
Gimlet. Það er auðvelt að bæta við bragð-
tegundum í Gimlet og hægt að leika sér
með jurtir, ávexti og í raun hvaða hráefni
sem er, annaðhvort með því að nota
bragðbætt síróp í stað sykursíróps eða
setja fersk hráefni beint í hristarann.
50 ml gin
25 ml límónusafi
25 ml sykursíróp
Skraut: límónubörkur
Við setjum öll hráefnin nema skrautið í
hristara, fyllum hann alveg upp í topp
með klaka og hristum hressilega í 10-15
sekúndur eða þar til hristarinn er orðinn
vel kaldur. Þá er drykkurinn streinaður í
gegnum sigti í kælt coupe-glas og
skreyttur með fallega skornum lím-
ónuberki.
Fróðleikur
Upp úr aldamótunum 1800 fóru menn
að átta sig á því að safi úr sítrusávöxtum
ynni bug á skyrbjúg, hörgulsjúkdómi sem
herjaði á sjóliða breska flotans. Í kjölfar-
ið voru sett lög um að öll bresk skip
skyldu sigla með slíkan safa innan borðs.
Á meðan hásetar skipanna drukku
romm drukku yfirmenn þeirra gin og
þykir líklegt að Gimlet hafi fyrst verið
blandaður um borð í skipi. Nafnið Gimlet
kemur líklega frá handbor sem notaður
var til að bora í gegnum víntunnur um
borð í skipunum.
Gimlet
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARST
með og án rafmagns lyftibú
Komið og
skoðið úrvalið
ÓLUM
naði
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is