Morgunblaðið - 09.12.2021, Page 53

Morgunblaðið - 09.12.2021, Page 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 ✝ Leifur Þor- leifsson bif- reiðasmíðameistari og verslunarmaður fæddist í Reykjavík 17. apríl 1935. Hann lést 10. nóv- ember 2021. Foreldrar hans voru Þorleifur Eyj- ólfsson arkitekt, f. 30. mars 1896, d. 29. júní 1968, og Margét Halldórsdóttir hús- móðir, f. 3. janúar 1901, d. 27. ágúst 1978. Leifur var yngstur sex systk- ina. Þau eru Þóra, f. 23. apríl 1927, d. 27. ágúst 2017, Hörður, f. 28. maí 1928, Laufey, f. 8. maí 1930, d. 14. júlí 2021, Nanna Sigfríður, f. 7. júní 1931, og Guðlaug, f. 17. apríl 1935, d. 24. júní 2013, tvíburasystir hans. Leifur kvæntist 30. nóv- ember 1963 Mörtu Pálsdóttur, Agli Vilhjálmssyni. Hann varð bifreiðasmíðameistari 4. maí 1962. Hann vann m.a. hjá Bíla- smiðjunni, Bílaskálanum, í raf- tækjaversluninni Luktinni hjá tengdaföður sínum, Páli Ein- arssyni, Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis og Bílasmiðjubúð- inni. Árið 1980 stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Bílasmið- inn, í Lágmúla 7 sem síðar flutti í eigið húsnæði árið 1986 á Bíldshöfða 16. Fyrirtækið fagnaði 40 ára afmæli í fyrra. Leifur og Marta hófu búskap á Njálsgötu 87 Reykjavík en fluttu árið 1970 að Hörgslundi 19, Garðabæ. Leifur gekk í IOOF-Oddfell- owregluna st. nr. 1 Ingólf árið 1973 og var síðar einn af stofn- félögum í st. nr. 16, Snorra Goða í Hafnarfirði, og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Útför Leifs fer fram frá Ví- dalínskirkju í Garðabæ í dag, 9. desember 2021, klukkan 13. Hlekkir á streymi: https://youtu.be/I4Pvb9kSd2I www//mbl.is/andlat ritara og leiðsögu- manni, f. 4. nóv- ember 1940. For- eldrar hennar voru Páll Einarsson, rakarameistari og verslunarmaður, f. 26. janúar 1901, d. 18. nóvember 1965, og Hermína Halldórsdóttir húsmóðir, f. 3. mars 1905, d. 24. september 1984. Bróðir Mörtu er Valur Pálsson, f. 2. sept- ember 1932, d. 23. nóvember 2020. Börn Leifs og Mörtu eru: 1) Erla, f. 7. apríl 1964. 2) Páll Þór, f. 7. ágúst 1966, maki Helga María Fressmann, f. 2. september 1968. Börn þeirra eru Elva Björk, f. 8. júní 1998, og Daníel Þór, f. 1. júní 2002. Leifur lærði bifreiðasmíði í Iðnskólanum í Reykjavík og hjá Nú þegar komið er að leið- arlokum og lífsgangan liðin er margs að minnast og af góðu einu. Leifur var ekki aðeins fað- ir minn heldur líka vinnufélagi í nær 40 ár, hann var einstaklega laginn á járn og tré og var örlát- ur að miðla kunnáttu sinni til annarra. Fíton til verka og kom ótrúlega miklu í verk á stuttum tíma. Nutum við fjölskyldan þess þegar við vorum að koma okkur þaki yfir höfuðið að hafa hann með í ráðum og verki. Minnisstæðar eru kvöldheim- sóknir upp í Hörgslund með heimilishundinn. Sérstaklega bóngóður var hann og ef hægt var mátti það helst ekki bíða næsta dags en ef svo varð að vera var hann mættur til eld- snemma næsta dag. Pabbi var harður Evrópusinni og hafði einatt ákveðnar skoðanir á þjóð- málum og nýjum matarvenjum, hann sagði oft að suðlægar mat- arvenjur og réttir ættu ekkert erindi við íslensk gen, kjöt, kart- öflur og skyr væri það eina sem Íslendingar gætu þrifist á. Við vorum oft kannski ekki alveg sammála og þá sérstaklega í seinni tíð en málin voru þá oftast rædd þótt það breytti ekki þeim skoðunum sem hann hafði, þeim var ekki hnikað, þótt rökin væru sterk á móti breytti hann bara um umræðuefni. Hann hafði mikið jafnlundargeð og man ég ekki eftir að hann hafi skipt skapi en átti það til að nota orðið „Donnerwetter“ ef honum mis- líkaði. Hann var mikill húmoristi og stutt í brosið og fannst hann ávallt fyndnastur með sína heimatilbúnu brandara eða inn- slög á erlenda tungu sem hittu ekki í mark. Pabbi átti það til að koma sér strax að málinu og fannst það tímaeyðsla að tala ut- an af hlutum, þá eru mér í huga allmörg símtöl sem stóðu í ör- stund, þegar spurningunni var svarað þá var símtalinu lokið. Hann var mikill dýravinur og hringdi oft til að vita hvernig heimilishundurinn hefði það. Bílaáhugi hans var mikill enda lifði hann og hrærðist í þeim geira alla tíð, fyrst við réttingar og yfirbyggingar og síðar versl- un með íhluti til þess. Hann hafði mikið dálæti á Saab-bif- reiðum og átti alltaf þannig um ævina og passaði vel upp á að hafa þá hreina og gljáandi, brýndi fyrir okkur systkinunum að mikilvægt væri að halda bíl- unum hreinum. Hann sagði stundum þegar viðgerð stóð fyr- ir dyrum að ef einhver „grease- monkey“ gæti gert þetta þá gætir þú það líka. Heiðarleiki í viðskiptum skipti hann miklu máli og hafa viðskiptavinir hans haldið mikilli tryggð alla tíð og sagði hann að það væru ekki við- skipti nema báðir væru sáttir. Pabbi trúði alltaf á það góða og að allir væru að gera sitt besta, vildi leiðbeina þeim ef þyrfti, en ef ekki var tauti komandi við viðkomandi átti hann til að ganga burt hristandi höfuðið yf- ir vitleysunni. Pabbi sagði líka einnig að mikilvægt væri að muna að verkfæralaus gerði maður ekki neitt og er það einn af mínum uppáhaldsfrösum. Hann hafði mikið dálæti á vindl- um og íslensku öli en það mátti ekki vera kalt því mesta bragðið er þegar það er við herbergis- hita, vildi hann meina. Nú þegar litið er yfir sviðið og minning- arnar bresta fram finnum við fyrir miklum söknuði og kveðj- um þennan höfðingja með virkt- um. Páll, Helga María, Elva Björk og Daníel Þór Í dag kveð ég ekki bara pabba minn heldur líka samstarfsmann og vin. Pabbi var dugnaðarforkur og vílaði ekkert fyrir sér. Skipti ekki máli hvort það var að byggja hús, laga bíl, garðyrkja, elda mat, bólstra húsgögn eða reka fyrirtæki. Mér fannst pabbi minn geta allt og vita allt, svo komst ég að því síðar að það var kannski ekki alveg þannig en margt kunni hann og margt vissi hann. Enda fæddur og al- inn upp á krepputímum þegar allir þurftu að bjarga sér eins vel og þeir gátu. Hann kenndi mér að fara vel með og koma vel fram við náungann. Vissulega hafði hann sterkar skoðanir á hlutunum enda alinn upp í stórum systk- inahópi. Hann var þrjóskur en aldrei ósanngjarn. Þá sjaldan hann skipti skapi þurfti töluvert að hafa gengið á til að hann fengi nóg. Hann bar virðingu fyrir sínum viðskiptavinum og það var hans kappsmál að vera sanngjarn í viðskiptum svo að báðir aðilar væru sáttir eftir kaupin og þá var stutt í brosið. Við Palli bróðir áttum nú al- veg til að gera eitt og annað af okkur hér áður fyrr og ef það komst upp þá var viðkvæðið oft- ar en ekki: „Þið segið bara henni mömmu ykkar ekki frá því!“ Alltaf studdi hann okkur í því sem hugur okkar stóð til og að- stoðaði af fremsta megni. Gilti þar einu hvort það var nám er- lendis, bílakaup, fasteignakaup, húsbyggingar eða –breytingar eða hvernig átti að steikja jóla- steikina og rauðkálið. Það var nefnilega þannig að pabba fannst bæði gott að borða og elda. Oftar en ekki eldaði hann um helgar og hátíðir og þá skipti sósan ávallt miklu máli. Svínabógurinn og sósan á að- fangadag var sérkapítuli út af fyrir sig. Ég mun aldrei komast með tærnar þar sem hann var með hælana í þessari sósugerð. Pabbi hafði gaman af falleg- um bílum, m.a. átti hann á sínum yngri árum svartan Buick, ávallt spegilgljáandi, sem tekið var eftir á götum borgarinnar. Síðar fékk hann mikinn áhuga á Saab- bílum og átti þá allnokkra. Síð- ast en ekki síst má nefna Fiat sport-blæjubílinn sem rak á fjörur hans og hann gerði upp nánast frá grunni; þar var nostr- að við hvern hlut, mikil völund- arsmíð. Já, hann var magnaður hann pabbi! Pabbi og mamma voru lengi í dansi hjá dansskóla Hermanns Ragnars og fannst pabba gaman að dansa, hvort sem var að taka sporið í jive, jitterbug eða valsi á hjónaböllum í Garðabæ, hjá Oddfellow eða bara á stofugólf- inu heima með góða tónlist í spilun. Vindlareykingarnar voru svo annar kapítuli út af fyrir sig. Flestir setja örugglega sama- semmerki á milli pabba og vindl- anna. Hann var fastakúnni hjá Rolf Johanen & co í mörg ár og þegar fæturnir voru farnir að svíkja voru honum færðir vindl- ar út í bíl. Toppþjónusta! Besti brandarinn var eiginlega þegar ég fór með honum í heilsufars- skoðun fyrir ekki svo löngu, þá var hann spurður hvort hann reykti. Þá var svarið stutt og laggott: „Ha, reyki? Nei, en ég púa stundum vindla!“ Ég þurfti að passa mig að skella ekki upp úr. Ég sé pabba fyrir mér hinum megin á gljáfægðri drossíu, í glæsilegum jakkafötum með góðan vindil í hendi. Erla. Leifur Þorleifsson Útför í kirkju Kirkjan til staðar fyrir þig þegar á reynir utforikirkju.is Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, SVANHILDUR SVANSDÓTTIR, Jörfalind 10, Kópavogi, lést á hjartadeild Landspítalans fimmtudaginn 2. desember. Útförin fer fram frá Lindakirkju þriðjudaginn 14. desember klukkan 13. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur og þeim sem er boðið viðstaddir útförina. Streymt verður á www.lindakirkja.is. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Góðvild - stuðningsfélag langveikra barna. Fjölskyldan færir starfsfólki Landspítalans innilegar þakkir fyrir hlýja og góða umönnun. Svanur Þorsteinsson Hulda Björk Svansdóttir Sævar Rafn Guðmundsson Gísli Svanur Svansson Sigríður Björk Halldórsdóttir Erla Svansdóttir Gunnar Már Jóhannesson Þórir Svansson Matthildur Þórarinsdóttir og barnabörn Frænka okkar, GUÐRÚN MARGEIRSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 1. desember, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju mánudaginn 13. desember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Athöfninni verður streymt á youtubesíðu Grafarvogskirkju, www.grafarvogskirkja.is. Aðstandendur hinnar látnu Ástkær faðir okkar, GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON frá Finnbogastöðum í Trékyllisvík, lést á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 2. desember. Guðbrandur Albertsson Linda Guðmundsdóttir Þorsteinn Guðmundsson Elsku pabbi okkar, afi og langafi, SVEINN ÞÓRARINSSON landgræðsluvörður, frá Krossdal í Kelduhverfi, lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík laugardaginn 4. desember. Ólöf Sveinsdóttir Matthías Guðmundsson Ingveldur Guðný Sveinsd. Þorsteinn Guðjónsson Þórarinn Sveinsson Regina Bailing og afkomendur Ástkær móðir okkar, SIGRÚN SIGURDRÍF HALLDÓRSDÓTTIR frá Súðavík, síðast til heimilis í Lindasíðu 2, Akureyri, lést þriðjudaginn 30. nóvember á öldrunarheimilinu Hlíð á Akureyri. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 10. desember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna þurfa kirkjugestir að sýna fram á neikvætt PCR- eða hraðpróf, tekið af viðurkenndum aðila, ekki eldra en 48 klst. gamalt. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Björns Rúnarssonar, reikningsnr. 0354-13-200686, kt. 1412513259. Streymt verður á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Glerárkirkju – beinar útsendingar. Daði Hálfdánsson Ráðhildur Stefánsdóttir Rúnar Hálfdánarson Inga Helga Björnsdóttir Kristján Hálfdánarson Jóhanna S. Hansen Brynjar Bragason Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir Sigurdríf Jónatansdóttir Björn J. Sighvatz Ólafía Jónatansdóttir Haukur Konráðsson Rögnvaldur Jónatansson Ásdís Reykdal Jónsdóttir ömmu- og langömmubörn Faðir okkar, SVERRIR GARÐARSSON hljómlistarmaður, lést þriðjudaginn 7. desember. Útförin verður auglýst síðar. Garðar Sverrisson Ásdís Sverrisdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGÓLFUR JÓNASSON frá Koti í Svarfaðardal, Skógarhólum 1, Dalvík, lést á heimili sínu laugardaginn 4. desember. Útför hans fer fram frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn 14. desember kl. 13.30. Allir sem vilja fylgja honum eru velkomnir en vegna sóttvarna þarf að sýna neikvætt Covid-19-hraðpróf við innganginn, tekið af viðurkenndum aðila og ekki eldra en 48 tíma. Streymt verður frá athöfninni og hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Guðrún Ingvadóttir Helga Íris Ingólfsdóttir Helgi Einarsson Ingibjörg Ösp Ingólfsdóttir Jónas Rúnar Ingólfsson Bergljót Halla Kristjánsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.