Morgunblaðið - 09.12.2021, Page 54

Morgunblaðið - 09.12.2021, Page 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 ✝ Pétur Jónsson fæddist í Reykjavík 1. maí 1997. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 20. nóvember 2021. Hann var sonur hjónanna Jóns Gauta Jónssonar, f. 8. janúar 1974, og Sigrúnar Magnús- dóttur, f. 26. janúar 1976. Pétur var elstur þriggja systkina, systkini hans eru Berglind, f. 2003, og Einar, f. 2007. Hann var ógiftur og barnlaus. Hann ól manninn að mestu leyti í Hafnarfirði, æfði knattspyrnu með FH lengi framan af og gekk í Lækjar- skóla og Flensborg- arskólann. Pétur var sjálfs sín herra og stofn- aði sitt fyrsta fyrir- tæki með vini sín- um 18 ára gamall og starfaði hjá eig- in fyrirtæki þegar hann lést. Útför hans verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 9. desember 2021, klukkan 15. Hlekkir á streymi: https://tinyurl.com/2p87273k http://mbl.is/go/4ksug „Ég elska þig amma mín,“ sagði hann stöku sinnum við mig og það var ljúft. Átti ein- hvern veginn þennan tæra ein- læga tón sem svo ljúft er að upplifa. Hann barðist sumar- langt við illvígt krabbamein. Inn á milli kom vonarglæta en stóð stutt. Hann var upplýstur um allt sem var að gerast en bar sig með karlmennsku allan tímann með einstakri hjúkrun og kær- leika fjölskyldu sinnar og starfs- fólks. Pétur var gullfallegur, glað- sinna, eldkár og vinmargur. Þetta er nístandi sárt, ég læt það heita það sem það heitir, nístandi sárt. Hver er hann þessi guð sem margur vitnar í? Hann er mér með öllu hulinn. Og já, amma elskaði þig á móti 1000 meira en þú eins og börnin léku sér að til þess að toppa. Hallgerður Pétursdóttir. Elsku Pétur minn, ljúfi drengurinn sem kvaddir allt of snemma. Mín fyrsta minning af okkur saman er frá Akureyri þar sem þú varst í ömmustólnum á gólf- inu á Klettastígnum og ég sat hjá þér. Þarna myndaðist strax sterk tenging á milli okkar sem hélst allar götur síðan. Það var alltaf svo gott að hitta þig því þú tókst alltaf svo vel á móti manni með sterku faðmlagi. Reyndar breyttist faðmlagið oftar en ekki í létta glímu sem voru auðveldar fyrir mig þegar þú varst yngri en eftir að þú varst vaxinn úr grasi og varðst að þessum stóra og flotta manni þá hallaði undan fæti hjá mér í þessum léttu átökum. Alltaf var stutt í brosið þitt og prakkarann og hrekktum við hvor annan á ýmsa vegu í gegnum árin og plataðir þú mig einnig í að aðstoða þig við hrekki á öðrum fjölskyldumeð- limum eins og til dæmis þegar þú varst kominn upp á þak á sumarbústaðnum með vatnsfötu og ég plataði pabba þinn út þannig að þú gætir hvolft úr föt- unni á hann. Þú reyndar hittir ekki og við lifðum í stöðugum ótta um hefndaraðgerðir frá honum í langan tíma á eftir. Það hefur verið ótrúlega gaman að sjá þig vaxa úr grasi og fylgjast með því sem þú hef- ur tekið þér fyrir hendur. Þú hefur haft metnaðinn og gleðina að leiðarljósi og hef ég litið upp til þín og dáðst að þeim manni sem þú hafðir að geyma, svo ótrúlega traustur og góður vin- ur sem var alltaf til staðar fyrir fjölskyldu og vini. Hugrún Edda og Kolfinna hafa alltaf hlakkað til að hitta Pétur frænda. Þær hafa verið stoltar af því að eiga þig að og talað um hversu skemmtilegur og góður frændi þú værir. Alltaf tókstu svo vel á móti þeim og sýndir þeim hversu glaður þú varst í raun og veru að hitta þær, þú lést þeim líða eins og þær skiptu þig miklu máli. Í samtölum okkar Lenu minn- umst við þess hve mikið ljós var ætíð í kringum þig og stutt í brosið og smitandi hlátur enda varstu með dásamlega skemmti- legan húmor og tókst sjálfan þig ekki alvarlega. Aldrei heyrði ég þig kvarta í gegnum veikindi þín og í síðasta skipti sem við hittumst gastu slegið á létta strengi þó að þú værir kvalinn og spurðir mig frekar hvernig ég væri en að kvarta undan þinni stöðu. Ég mun alltaf muna eftir þér sem traustum, brosmildum manni með frábæran húmor og hjartað á réttum stað, sem lýsir sér meðal annars í því þegar þú af- þakkaðir jólagjafir og vildir heldur að fólk styrkti Mæðra- styrksnefnd. Það síðasta sem þú sagðir við mig var „verðum í bandi“. Okkar samband mun aldrei rofna og ég mun ávallt varðveita þig í hjarta mínu. Ástar- og saknaðarkveðja, Kristinn, Lena, Hugrún Edda og Kolfinna. P.Vesen. Þú varst aldrei með vesen, aldrei og þess vegna gaf ég þér þetta nafn. Þú kallaðir mig líka „ammaSíún“ og svo „ammahrænkaSíún“. Málið var einfaldlega það að við vorum vinir og fyrir það er ég svo þakklát. Það er ekki sjálfgefið að eiga vinskap barna systkina sinna. Þegar þú varst 13 ára vildir þú ekki lengur koma í næturpössun með systkinum þínum enda orðinn unglingur. Þú hafðir þó áhyggjur af því að ég yrði sár, sem var þér líkt en það var ekki hægt að vera sár út í þig. Það er svo óraunverulegt að vera í þeim sporum að kveðja þig, sitja og reyna að muna allt það góða þegar ég er bara möl- brotin og galtóm, en veistu, P.vesen, þú slóst ekki feilnótu, hvergi … það var alveg sama við hvaða aðstæður, þú varst ljúfur, glaður og til í að ræða málin og alltaf með blik í aug- um. Stundum komu frá þér skilaboð þar sem þú varst að velta fyrir þér hinu og þessu og ég var svo glöð að vera treyst fyrir því að svara þeim hugleið- ingum, já og þetta síðasta sem við ræddum, ég lofa því að klára það fyrir þig. Ég ætla að fara að ráðum pabba þíns, já stundum geri ég það, og gera mitt besta að hugsa um allt það góða sem við áttum í stað þess að hugsa um það sem við höfum misst, er ekki að segja að það verði auðvelt en það er klárt að enginn lofaði okkur því að þetta líf yrði auð- velt. Ég lofa að hugsa vel um Begguló og Einsa og ekki síst mömmu og pabba fyrir þig. Þín ammahrænkaSíún. Farðu í friði, elsku vinurinn minn. Sigrún Jónsdóttir. Góður drengur hefur kvatt. Tilhugsunin er óbærilega sár og í senn óraunveruleg. Hvernig má það vera? Hraustur ungur maður fullur af lífskrafti. Allt lífið fram undan. Áformin þín, hugmyndaflugið, sköpunarkraft- urinn, framkvæmdagleðin og keppnisskapið. Síðan allt í einu þetta risastóra verkefni, glíma við illvígan sjúkdóm. Viðhorf þitt og barátta gegn mótlætinu sýndi sannarlega hvaða mann þú hafðir að geyma. Æðruleysið sem þú sýndir elsku vinur. Til- gangurinn verður aldrei skilinn en eftir situr minningin um þig, yndislegur, ljúfur töffari og hjartahlýr drengur. Þú skilur eftir tómarúm í tilveru okkar allra. Minning þín mun lifa í hjarta okkar og fylgja um ókomna tíð. Hvers vegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Mikill harmur er kveðinn að fjölskyldu þinni og vinum. Þeim sendum við öllum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Hvíldu í friði elsku Pétur. Birgir, Ásthildur, Árný Björk og Ásta Rakel. Börn vinkvenna manns eiga sérstakan stað í hjartanu. Mað- ur á þau ekki sjálfur en á samt svo mikið í þeim, fylgist með úr fjarlægð og tekur þátt í sigrum og ósigrum í gegnum mömmu- rnar. Fyrsti maí 1997 er dagur sem við gleymum aldrei. Þá kom hann Pétur í heiminn, fyrsta barnið í okkar vinkvenn- ahópi. Við örkuðum að sjálf- sögðu upp á spítala daginn eftir til að berja drenginn augum, 21 árs stelpugerpi sem vissum ekk- ert um börn eða barneignir. Og þarna var hann, langstærsta og langfallegasta barnið innan við glerið og svo líkur pabba sínum að við þekktum hann strax. Við stóðum á miðjum fæðingargang- inum og hlógum og grétum til skiptis, í sjokki yfir litla undrinu og stoltar af afreki vina okkar. Pétur óx úr grasi og var áfram stór og myndarlegur, ljúfur og brosmildur strákur, hvers manns hugljúfi. Duglegur og hæfileikaríkur, stolt foreldra sinna og frábær stóri bróðir. Það er svo ótrúlega sárt og óréttlátt að aðeins 24 árum seinna sé komið að kveðjustund. Við vonum að minningin um ljúfa strákinn sem fæddist í sól- inni í maí muni lýsa elsku Sig- rúnu okkar og Gauta, Berglindi og Einari og fjölskyldunni allri. Þín augu mild mér brosa á myrkri stund og minning þín rís hægt úr tímans djúpi sem hönd er strýkur mjúk um föla kinn þín minning björt. (Ingibjörg Haraldsdóttir) Hvíl í friði elsku Pétur. Anna Lena og Þóra. Margar minningar koma upp í hugann þegar ég hugsa til Pét- urs. Hann var með mikla út- geislun og alltaf brosandi. Ein- lægnin og kurteisin voru einkennandi í hans viðmóti. Í rýminu sem félagarnir kölluðu „Hellinn“ voru draumarnir og áætlanirnar sett á blað. Mikið var unnið og aldrei var neinn vafi á því hvert leiðin lá; hún lá upp. Vinirnir hvöttu hvor annan áfram og ekkert fjall var of stórt. Fyrsta fyrirtækið var stofnað og þeir 18 ára gamlir. Oft var unnið fram eftir hér í „Hellinum“ og Pétri auðvitað oft boðið að borða kvöldmat en allt- af fannst honum best að fara heim í mat, því mamma beið með mat eins og hann sagði oft. Hann vildi ekki láta hafa fyrir sér og þótti greinilega betra að gefa en þiggja. Ef það tókst að gefa honum eitthvað þá var ein- lægt þakklæti svo áberandi. Ég man að það var reglulega nýr kassi af kaffi inni í eldhúsi frá Pétri, sem vildi sýna sitt þakk- læti. Pétur var markmiðadrifinn og mikill hugsjónarmaður með stóra drauma. Hann vann stöð- ugt að því að láta drauma sína og hugsjónir rætast. Það var augljóst að þarna var sannur sigurvegari á ferð, með mikinn húmor fyrir lífinu, hvetjandi og metnaðarfullur. Fyrir nokkrum mánuðum kom Pétur við í hádegismat og bar sig ótrúlega vel. Hann horfði á verkefnið með einstöku æðruleysi. Við ákváðum að þeg- ar verkefninu væri lokið mynd- um við borða saman ljúffenga steik og fagna. Það varð því miður ekki að veruleika og mun- um við sakna þeirra tíma þar sem hann kom með sína ynd- islegu nærveru og gleði. Pétur kvaddi þennan heim sem sigurvegari þar sem auð- mýkt og jákvæðni voru að leið- arljósi. Hann vann ótrúlega marga stóra sigra á allt of stuttri ævi. Þakklæti er mér of- arlega í huga fyrir að hafa feng- ið að kynnast Pétri og munu minningarnar um hann lifa. Heimurinn er fátækari við brotthvarf Péturs. Kæra fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Megi ljós kærleikans lýsa ykkur leið- ina alla tíð. Hulda Helga Þráinsdóttir. Jákvætt hugarfar, sigurvilji, metnaður, góðmennska og bar- áttuþrek eru þau orð sem koma upp í hugann þegar við hugsum til Péturs. Pétur var engum líkur. Dug- legri og metnaðarfyllri mann var ekki hægt að finna og lét hann aldrei verk úr hendi falla. Það var líkt og Pétur þyrfti ekki á svefni að halda. Þegar aðrir voru rétt að vakna var hann bú- inn að hugleiða, teygja, lesa, æfa og byrjaður að vinna. Pétur smitaði út frá sér sínu metn- aðarfulla og jákvæða viðhorfi til lífsins og hafði unun af því að hafa áhrif á og hvetja aðra áfram í lífinu. Metnaðurinn sneri ekki bara að æfingum heldur að öllum þeim verkefnum sem Pétur tók sér fyrir hendur í lífinu og þrátt fyrir gagnrýni fór hann alltaf sínar eigin leiðir. Gott dæmi er frá tímum Flensborgar þegar hann fór að klæðast leðurbux- um, hanna sína eigin boli og ganga um með glansandi eyrna- lokka á stærð við vínber. Allt var þetta gert til að kæta, gleðja og hafa gaman af lífinu, en það kunni hann svo sannarlega. Snemma var það ljóst að hin hefðbundna skólaganga hentaði ekki Pétri. Hans hugsjónir, gildi, ævintýraþrá og metnaður kallaði á eitthvað miklu stærra og meira. Frumkvöðlahæfileik- arnir og þráin fóru að taka stærri sess og áhugasviðið víkk- aði. Hann fór um víðan völl en loks fann hann sína fjöl sem sneri að fyrirtækjarekstri og fyrsta fyrirtækið leit dagsins ljós þegar hann var einungis 18 ára gamall. Þarna blómstraði Pétur og naut sín í botn. En sama hversu mikið var að gera hjá Pétri, hvort sem það var í vinnunni, á æfingum eða við að læra nýja hluti, gat hann alltaf fundið tíma fyrir vini sína. Pétur var sannur vinur og hann var góðmennskan uppmáluð. Hann var ótrúlega duglegur að rækta sín vinasambönd og átti marga góða vini. Hann hafði gaman af því að heyra í mönn- um hljóðið og var það gert af einlægum áhuga á því hvernig vinirnir hefðu það. Pétur var svo sannarlega sálfræðingurinn í hópnum. Ef manni lá eitthvað á hjarta eða vantaði ráð þá hringdi maður í Pétur og hann var alltaf til í að hjálpa. Pétur var kjarninn í vina- hópnum. Hann batt alla saman. Hann var hinn besti vinur. Hugarfarið hans og dugnaður var svo sannarlega rannsóknar- efni. Hann lét ekkert stoppa sig, kvartaði aldrei og var alltaf með jákvæðnina í fyrirrúmi. Hann var með frábæra nærveru og smitaði eingöngu jákvæðni frá sér, eða eins og hann sagði oft: „Það kostar 0 kr. að brosa.“ Pétur var mörgum kostum gæddur. Þessi magnaða, drep- fyndna manneskja sem gaf sín- um nánustu mikið traust, þessi frábæri og góði hlustandi, skiln- ingsríki og hvetjandi vinur. Til þess að draga þetta saman þá erum við að kveðja einstakann mann og er heimurinn og við svo sannarlega fátækari eftir þennan missi. Við erum ekkert annað en heppin að hafa þekkt Pétur og ætti okkur að líða vel yfir því að hann snerti okkar hjörtu. Við munum heiðra minningu hans svo lengi sem við lifum. Tómarúm er í hjörtum okkar allra er við kveðjum okkar besta vin með ást og söknuði. Atli, Baldur, Bjarki, Dagur, Ellert, Garðar, Grétar, Hákon, Kári, Sæmundur og Þórður. Pétur Jónsson var skólabróð- ir okkar og útskrifaðist með okkur úr grunnskólanámi við Lækjarskóla 2013. Hann var geislandi persóna, hlýr, opinn og vinur í raun. Það var auðvelt að laðast að Pétri, hann var vin- sæll og dugmikill en líka hóg- vær, stuðningsríkur og talaði máli þeirra sem minna máttu sín. Honum var annt um að allir í hans nærumhverfi fengju að láta ljós sitt skína, og þurfti aldrei að deyfa ljós annarra til að hans skini skærar. Hann átti einstaklega auðvelt með að koma saman hópnum og hvetja fólk til þátttöku í allri þeirri vit- leysu sem okkur datt í hug. Hann tók sig ekki of alvarlega og tók á sig aðalhlutverk ófárra bekkjarmyndbanda. Hann var alltaf samkvæmur sjálfum sér og hreinskilni var honum mik- ilvæg. Honum voru allir vegir færir, var drífandi leiðtogi sem gerði kröfur til sín í námi og íþróttum, sem hvatti okkur hin til dáða í samkeppni. Síðustu ár höfum við farið í ýmsar áttir, en fylgst hvert með öðru fullorðnast, ljúka frekara námi, og stíga fyrstu skrefin í næsta kafla lífsins. Að eiga sam- ferðamann eins og Pétur á þess- um mótunarárum okkar voru forréttindi. Hann fetaði eigin slóðir og blés lífi í drauma sína af einstökum dugnaði og krafti. Við erum þakklát fyrir að hafa þekkt Pétur og minningin um hann mun lifa í okkar hópi eins og eflaust hjá öllum sem hann þekktu. Eins og skip sem heldur áleiðis inn í sjóndeildarhringinn missum við sjónar á honum, en hann heldur áfram að sigla. Okkar hlýjustu samúðar- kveðjur til fjölskyldunnar, hvíl í friði elsku Pétur. F.h. bekkjarsystkina úr Lækjarskóla, Valdís Huld Jónsdóttir. Pétur minn, nú hefur þú kvatt. Alltof snemma og alltof hratt. Þú bjarti, fallegi, góði vin- ur. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst þér. Þú varst vinur vina þinna, sannur vinur. Fram- tíðin var björt og við rétt orðnir 24 ára. Snemma vors kenndir þú þér meins og nú ertu allur. En þú munt ávallt lifa með okk- ur strákunum kæri vinur, allt til enda. Gleði þín og hamingja. Blik í auga, stuðið, drifkrafturinn og baráttuandinn var aðdáunar- verður. Það er minning þín. Við strákarnir stöndum hnípnir og tómir eftir og skiljum ekki hvernig þetta gat gerst. Sorg okkar er óendanleg. En mest er hún fyrir elsku foreldra þína og systkini. Ég bið Guð að styrkja þau. Þeirra missir er óbærileg- ur. En þá er gott að geta munað og rifjað upp brosið þitt, hlát- urinn og gleðina. Þú varst vinurinn sem var alltaf glaður, hress, klár og skemmtilegur. Ótal minningar um þig hrærast um í hausnum á manni og ljóma þar. Upp í hug- ann koma pottakvöldin í K8 sem og þegar við vorum í Flensborg og skemmtum okkur konung- lega í jarðfræði- og efnafræði- Pétur Jónsson HINSTA KVEÐJA Elsku frændi. Ég kveð þig í hinsta sinn, þrátt fyrir að vera alls ekki tilbúin í það. Já, lífið getur verið óréttlátt. Minningarnar um litla stóra frændann með stóra brosið lifir í hjörtum okkar. Uppáhaldsfrænd- ann sem litlu frændsystk- inin þín horfðu upp til og munu alltaf gera. Þangað til við hittumst næst. Bros þitt hlýjar, þinn hlátur kitlar, hvert andartak með þér sem gullið ljós geymt Í hjartastað (Hjartalag – Hulda Ólafsdóttir) Erla, Halldór Kristinn, Íris Thelma, Patrekur Magnús og Marinó Magni. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.