Morgunblaðið - 09.12.2021, Qupperneq 60
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
Meistaradeild karla
E-RIÐILL:
Bayern München – Barcelona................. 3:0
Benfica – Dynamo Kiev ........................... 2:0
Lokastaðan:
Bayern M. 6 6 0 0 22:3 18
Benfica 6 2 2 2 7:9 8
Barcelona 6 2 1 3 2:9 7
Dynamo Kiev 6 0 1 5 1:11 1
_ Bayern og Benfica í 16-liða úrslit, Barce-
lona í Evrópudeildina.
F-RIÐILL:
Atalanta – Villarreal ......................... frestað
Manchester Utd – Young Boys............... 1:1
Staðan:
Manch. Utd 6 3 2 1 11:8 11
Villarreal 5 2 1 2 9:7 7
Atalanta 5 1 3 1 10:10 6
Young Boys 6 1 2 3 7:12 5
_ Manchester United í 16-liða úrslit ásamt
Atalanta eða Villarreal.
G-RIÐILL:
Salzburg – Sevilla ..................................... 1:0
Wolfsburg – Lille...................................... 1:3
Lokastaðan:
Lille 6 3 2 1 7:4 11
Salzburg 6 3 1 2 8:6 10
Sevilla 6 1 3 2 5:5 6
Wolfsburg 6 1 2 3 5:10 5
_ Lille og Salzburg í 16-liða úrslit, Sevilla í
Evrópudeildina.
H-RIÐILL:
Juventus – Malmö .................................... 1:0
Zenit Pétursborg – Chelsea .................... 3:3
Lokastaðan:
Juventus 6 5 0 1 10:6 15
Chelsea 6 4 1 1 13:4 13
Zenit Pétursborg 6 1 2 3 10:10 5
Malmö 6 0 1 5 1:14 1
_ Juventus og Chelsea í 16-liða úrslit, Zenit
í Evrópudeildina.
Meistaradeild kvenna
A-RIÐILL:
Servette – Wolfsburg............................... 0:3
Chelsea – Juventus .................................. 0:0
Staðan:
Chelsea 5 3 2 0 13:4 11
Juventus 5 2 2 1 8:4 8
Wolfsburg 5 2 2 1 13:7 8
Servette 5 0 0 5 0:19 0
B-RIÐILL:
Kharkiv – París SG .................................. 0:6
Breiðablik – Real Madrid ........................ 0:3
Staðan:
París SG 5 5 0 0 19:0 15
Real Madrid 5 3 0 2 9:6 9
Kharkiv 5 1 1 3 2:12 4
Breiðablik 5 0 1 4 0:12 1
Katar
Deildabikarinn, B-riðill:
Al-Arabi – Qatar SC ................................ 2:3
- Aron Einar Gunnarsson skoraði fyrra
mark Al-Arabi og lék fyrri hálfleikinn.
>;(//24)3;(
Subway-deild kvenna
Haukar – Grindavík ............................. 68:63
Skallagrímur – Fjölnir....................... 70:105
Njarðvík – Breiðablik .......................... 68:67
Keflavík – Valur ................................. (67:67)
Staðan fyrir leik Keflavíkur og Vals:
Njarðvík 12 10 2 836:711 20
Fjölnir 12 9 3 990:869 18
Valur 10 7 3 805:686 14
Keflavík 10 6 4 827:740 12
Haukar 8 5 3 567:481 10
Grindavík 12 4 8 869:950 8
Breiðablik 11 2 9 765:863 4
Skallagrímur 11 0 11 618:977 0
Evrópubikar FIBA
Kiev – Antwerp Giants ....................... 90:82
- Elvar Már Friðriksson átti 10 stoðsend-
ingar og tók 4 fráköst fyrir Antwerp en
skoraði ekki stig á 30 mínútum.
Belgía/Holland
Leeuwarden – Landstede Hammers 73:94
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor-
aði 4 stig fyrir Landstede og átti 2 stoð-
sendingar á 14 mínútum.
Feyenoord – Hague Royals.............. 103:69
- Snorri Vignisson skoraði 14 stig fyrir
Hague, tók 6 fráköst og átti 2 stoðsend-
ingar á 29 mínútum.
NBA-deildin
Dallas – Brooklyn............................... 99:102
San Antonio – New York ................. 109:121
LA Lakers – Boston......................... 117:102
>73G,&:=/D
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
TM-hellirinn: ÍR – Grindavík .............. 18.15
Höllin Ak.: Þór Ak. – Valur ...................... 19
IG-höllin: Þór Þ. – KR.......................... 20.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Framhús: Fram – Haukar................... 19.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Dalhús: Fjölnir/Fylkir – HK U ........... 18.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Víkin: Berserkir – ÍR ................................ 20
Dalhús: Vængir Júpíters – Selfoss U . 20.30
Í KVÖLD!
ínó og verður því í efri styrkleika-
flokknum en Chelsea í þeim neðri
þegar dregið verður til sextán liða
úrslitanna.
Ekki var hægt að ljúka riðla-
keppninni í gærkvöld þar sem leik
Atalanta og Villarreal var frestað
þar til í dag vegna snjókomu á Ítal-
íu. Benfica, Lille og Salzburg
tryggðu sér hin þrjú lausu sætin
sem voru eftir en Barcelona er úr
leik. Dregið verður á mánudaginn
um hverjir mætast í útsláttar-
keppninni sem hefst 15. febrúar.
Chelsea missti efsta sæti H-riðils
Meistaradeildar karla í fótbolta úr
höndum sér í gærkvöld þegar
Magomed Ozdoev jafnaði, 3:3, fyrir
Zenit í leik liðanna í Pétursborg í
Rússlandi, á fjórðu mínútu í upp-
bótartíma.
Allt stefndi í að annað mark Timo
Werners í leiknum á 85. mínútu,
sem kom Chelsea í 3:2, myndi
tryggja ríkjandi Evrópumeisturum
sigurinn og toppsætið.
Þar með vann Juventus riðilinn
með því að sigra Malmö, 1:0, í Tór-
Juventus náði efsta sætinu
úr höndum Chelsea
AFP
Skoraði Moise Kean fagnar sigurmarki sínu fyrir Juventus gegn Malmö.
MEISTARADEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ekki tókst Breiðabliki að skora gegn
Real Madrid á Kópavogsvellinum í
gærkvöld, frekar en í fyrstu fjórum
leikjum sínum í Meistaradeild
kvenna. Real Madrid vann mjög
öruggan sigur, 3:0, og tryggði sér
sæti í átta liða úrslitum keppninnar
þótt einni umferð sé ólokið.
Hríðarveðrið og hvítur völlurinn
slógu alls ekki spænska liðið út af
laginu því það tók völdin strax á
upphafsmínútunum og réð gangi
leiksins frá byrjun.
Strax á 10. mínútu skoraði sænska
landsliðskonan Kosovare Asllani
með laglegu skoti upp í markvink-
ilinn af stuttu færi í kjölfarið á
stuttri hornspyrnu frá hægri.
Telma Ívarsdóttir varði nokkrum
sinnum vel í marki Blika í fyrri hálf-
leik en hún réð ekki við vítaspyrnu
frá Asllani á 40. mínútu, eftir að sú
sænska var felld í vítateignum.
Breiðablik komst mun betur inn í
leikinn í seinni hálfleik og náði að
ógna marki Spánverjanna nokkrum
sinnum. Agla María Albertsdóttir og
Hildur Antonsdóttir voru næstar því
að skora á 83. og 85. mínútu þegar
Misa markvörður varði tvö hörku-
skot þeirra. Rétt á undan hafði
Claudia Zornoza hinsvegar gert út
um leikinn með því að skora þriðja
mark Real Madrid.
Breiðablik á þá aðeins einn leik
eftir í þessu ævintýri, útileikinn
gegn París SG í næstu viku en PSG
hefur unnið alla sína leiki í riðlinum
og ekki fengið á sig mark.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Snjóbolti Karitas Tómasdóttir í baráttu við Esther González í leik Breiðabliks og Real Madrid á snævi þöktum Kópavogsvellinum í gærkvöld.
Enn bið eftir fyrsta marki
- Breiðablik fékk færi undir lokin gegn Real Madrid en mátti sætta sig við 0:3 tap
Njarðvík vann Breiðablik í Subway-
deild kvenna í körfuknattleik í
Njarðvík í gær, 68:67, eftir mikla
spennu. Diane Diéné tryggði Njarð-
vík bæði stigin þegar hún skoraði úr
tveimur vítaskotum þegar um hálf
mínúta var eftir. Njarðvík er með 20
stig eftir að hafa unnið tíu af fyrstu
tólf leikjunum. Er liðið á toppnum
en Breiðablik hefur aðeins unnið tvo
leiki og er í næstneðsta sæti.
Hin átján ára gamla Tinna Guð-
rún Alexandersdóttir fór fyrir
Haukum sem sigruðu Grindvíkinga
68:63 á Ásvöllum. Tinna var stiga-
hæst hjá Haukum með 21 stig og
var með mjög góða skotnýtingu.
Haukar eru með 10 stig í 5. sæti en
liðið hefur leikið töluvert færri leiki
en önnur lið vegna anna í Evrópu-
keppni.
Fjölnir vann stórsigur á Skalla-
grími, 105:70, þegar liðin mættust í
Borgarnesi og er Fjölnir tveimur
stigum á eftir toppliði Njarðvíkur.
Í Keflavík voru úrslitin ekki ráðin
þegar blaðið fór í prentun.
_ Stigaskor og fleira úr leikj-
unum er að finna á mbl.is/sport/
korfubolti.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Á Ásvöllum Rósa Björk Pétursdóttir úr Haukum og Thea Ólafía Lucic Jóns-
dóttir úr Grindavík takast á í Hafnarfirði í gærkvöldi.
Héldu toppsætinu
með naumindum
- Fjölnir tveimur stigum á eftir