Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 61
ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 Í gærkvöld féll 52 ára gamalt met þegar Breiðablik tók á móti Real Madrid í Meistaradeild kvenna á Kópavogsvelli. Aldrei áður hefur mótsleikur í knatt- spyrnu utanhúss farið fram svona seint á Íslandi en samt var metið bara bætt um einn dag. Sunnudaginn 7. desember 1969 léku Akureyringar (ÍBA) og Skagamenn úrslitaleikinn í bik- arkeppni karla það ár. Bikarkeppnin var leikin að Íslandsmótinu loknu á þessum árum en lauk aldrei jafn seint og í þetta skipti. Ástæðan var sú að liðin höfðu gert jafntefli, 1:1, viku áður og þá hafði ekki verið hægt að framlengja leikinn vegna hríð- arveðurs. Þann 8. desember var leik- ið í ágætu veðri á Melavellinum sem var hins vegar háll og stór- hættulegur, og svellið setti svip sinn á leikinn. Lýsingar dagblað- anna á mörkunum og atvikum leiksins bera því glöggt vitni en Akureyringar þóttu „sterkari á svellinu“ en Skagamenn. Þannig lét Kári Árnason, sem skoraði sigurmark ÍBA, 3:2, í framlengingu „varnarmenn ÍA „skauta“ fram hjá í öfuga átt og tókst að renna boltanum í mark- ið,“ eins og Kjartan L. Pálsson skrifaði í Tímann. Á sama hátt var Teitur Þórð- arson eini Skagamaðurinn „sem eitthvað notaði sér svellið við mark Akureyringa,“ þegar hann skoraði annað mark ÍA í leiknum. Kjartan skrifaði jafnframt að Melavöllurinn hefði verið öllu lík- ari hrauni en knattspyrnuvelli. „Á stórum köflum var hann enn eins og skautasvell, sem leikmenn áttu enga möguleika að fóta sig á, en á stöku stað voru auðir blettir og þá bletti nýttu norðan- menn mun betur.“ Vallaraðstæður voru vissu- lega aðrar og betri í Kópavogi í gærkvöld. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is HM kvenna Leikið á Spáni: MILLIRIÐILL 3: Tékkland – Suður-Kórea ..................... 26:32 Þýskaland – Kongó............................... 29:18 Danmörk – Ungverjaland.................... 30:19 _ Danmörk 6, Þýskaland 6, Suður-Kórea 4, Ungverjaland 2, Tékkland 0, Kongó 0. MILLIRIÐILL 4: Króatía – Argentína ............................. 28:22 Brasilía – Austurríki ............................ 38:31 Spánn – Japan....................................... 28:26 _ Spánn 6, Brasilía 6, Króatía 2, Japan 2, Argentína 2, Austurríki 0. Keppni um sæti 25-32: Slóvakía – Túnis.................................... 31:27 Paragvæ – Kína .................................... 30:24 Meistaradeild karla A-RIÐILL: Elverum – Aalborg.............................. 28:34 - Orri Freyr Þorkelsson skoraði eitt mark fyrir Elverum. - Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. Meshkov Brest – Montpellier............. 31:31 - Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði ekki fyrir Montpellier. _ Montpellier 16, Aalborg 15, Kiel 13, Pick Szeged 12, Elverum 8, Vardar Skopje 5, Zagreb 4, Meshkov Brest 4. Danmörk Kolding – SönderjyskE....................... 29:23 - Ágúst Elí Björgvinsson varði 18 skot í marki Kolding, 49 prósent markvarsla, og skoraði eitt mark. - Sveinn Jóhannsson skoraði 4 mörk fyrir SönderjyskE. Noregur Arendal – Drammen ........................... 27:33 - Óskar Ólafsson skoraði ekki fyrir Dram- men. %$.62)0-# Íþróttaáhugafólk mun geta fylgst með Tiger Woods spila golf á ný í desember þegar hann mun keppa með syni sínum á árlegu góðgerð- armóti. PNC Championship fer fram 18. og 19. desember en mótið er liða- keppni þar sem tveir eru saman í liði. Keppendur eru kylfingar sem hafa unnið risamót á ferlinum og spila með einhverjum nánum fjöl- skyldumeðlim. Feðgarnir voru með í mótinu í fyrra en síðan þá hefur Tiger Woods ekki keppt á golfmóti en hann fót- brotnaði illa í bílslysi í febrúar. Ætlar að spila í desember AFP Leikfær? Tiger Woods verður með í góðgerðarmóti síðar í mánuðinum. Sveinn Jóhannsson bætist næsta sumar í hóp Íslendinganna sem leika í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik, sterkustu landsdeild heims. Hann hefur samið við Er- langen en félagið skýrði frá þessu á heimasíðu sinni í gær. Sveinn er á sínu þriðja tímabili með Sönder- jyskE í dönsku úrvalsdeildinni en hann er 22 ára gamall línumaður sem lék áður með ÍR og Fjölni og hefur spilað tíu A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Erlangen er í tólfta sæti af átján liðum í þýsku deild- inni. Sveinn fer til Er- langen í sumar Ljósmynd/HSÍ Erlangen Sveinn Jóhannsson fer til Þýskalands eftir þetta tímabil. HEIMKOMA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eftir tólf ár erlendis leikur knatt- spyrnukonan reynda Sif Atladóttir á ný með íslensku félagi á keppnis- tímabilinu 2022. Hún fór frá Val haustið 2009 í atvinnumennsku í Þýskalandi og þaðan til Svíþjóðar þar sem hún var í tæp ellefu ár á mála hjá sama félaginu, Kristian- stad, og með sama þjálfarann, El- ísabetu Gunnarsdóttur, allan tím- ann. Þegar Björn Sigurbjörnsson, eiginmaður Sifjar og aðstoðarþjálf- ari Kristianstad um árabil, var í haust ráðinn þjálfari Selfyssinga til þriggja ára lá í loftinu að hún myndi ganga til liðs við félagið og Sif tók undir það þegar Morgunblaðið ræddi við hana um væntanlega heimkomu í gær. „Nei, það þurfti ekki að koma neinum á óvart þegar horft er á heildardæmið. En ég hélt öllu opnu, við ákváðum að ég myndi taka því rólega og skoða alla möguleika heima á Íslandi og ekki útiloka neitt. Það var fínt að geta einbeitt sér að því að klára tímabilið með Kristian- stad. Ég heyrði í nokkrum öðrum liðum á Íslandi og er þakklát fyrir það. En ég var heiðarleg með það við hin liðin sem höfðu samband að þetta yrði að koma allt heim og saman á öllum vígstöðvum hjá mér og þegar upp var staðið var Selfoss besti kost- urinn að öllu leyti. Ég hef fylgst vel með deildinni heima þó ég hafi verið í Svíþjóð og það hefur verið gaman að sjá hvað Selfoss hefur gert á undanförnum árum. Þar hefur verið metnaður í leikmannamálum og ég hef upplifað þetta þannig að félagið sé alltaf að mjakast nær bestu liðunum. Selfyss- ingar hafa fengið til sín sterka leik- menn eins og Dagnýju (Brynjars- dóttur), Önnu (Björk Kristjáns- dóttur) og Fríðu (Hólmfríði Magnús- dóttur). Þeir þora að taka upp símann og heyra í fólki, sem mér finnst alltaf aðdáunarvert. Maður hefur svo oft heyrt að markaðurinn á Íslandi sé þannig að þegar sterkir leikmenn komi heim þá sé reiknað með því að bara eitt eða tvö lið komi til greina. Það er því gaman þegar önnur félög þora að reyna, og mér finnst Selfoss vera þar. Ég hef bara heyrt góða hluti um félagið frá Dag- nýju, Önnu og Fríðu og er mjög spennt fyrir því að spila með liðinu.“ Blendnar tilfinningar Sif og fjölskylda eru enn í Kristi- anstad en brottfarardagurinn nálg- ast óðum. „Við flytjum heim 18. desember og verðum í í bænum með fjölskyld- unni um jólin. Bjössi verður með æf- ingar á milli jóla og nýárs þannig að þá komum við á Selfoss og getum byrjað að tína upp úr kössum og undirbúa alvöruheimkomu. Það verður vissulega skrýtið að yfirgefa Kristianstad eftir allan þennan tíma. Ég var einmitt að sækja dótið mitt í búningsklefann áðan og tína niður það sem ég var með þar uppi á vegg. Þetta eru blendnar tilfinningar. Ég var að tala við stelpurnar í liðinu um daginn og þær sögðust ekki alveg að átta sig á því að ég væri að fara. Á þessum árs- tíma er alls konar stúss í gangi og við höfum farið heim yfir jólin og komið svo út til Svíþjóðar aftur. Eftir þessi áramót, þegar við verðum ekki aftur á leið til Kristianstad, kemur eflaust smá sjokk. En að sama skapi opnast núna nýjar dyr og það er gaman að koma heim. Ég hef ekki spilað á Íslandi, annað en landsleiki, frá árinu 2009 og núna þann 9. janúar eru tólf ár síðan ég flutti út. Mér skilst að ég sé einmitt að jafna pabba eða jafnvel fara fram úr honum varðandi tíma- lengd erlendis,“ sagði Sif en Atli Eð- valdsson faðir hennar, landsliðsfyr- irliði og síðan landsliðsþjálfari, lék sem atvinnumaður erlendis frá 1980 til 1990. Sif lék með Saarbrücken í Þýska- landi í hálft annað ár og síðan í rúm tíu ár með Kristianstad þannig að hún hefur vinninginn á föður sinn að þessu leyti. Frábær tímapunktur Sif setti í ár leikjamet Íslendings í sænsku úrvalsdeildinni, sem hún kveður eftir 183 leiki. Hún fór á miðju sumri fram úr Erlu Steinu Arnardóttur sem lék 171 leik í deild- inni á sínum tíma. Hún er afar ánægð með þá ákvörðun að pakka núna saman búslóðinni og halda heim á leið. „Þetta er frábær tímapunktur til að koma heim. Ef ég hefði tekið eitt ár enn í Svíþjóð, hefði ég þá spilað heima á Íslandi eftir það? Maður veit ekki hvernig það hefði farið. Annars sagði ég við Bjössa þegar þetta var komið á hreint að eina áhyggjuefnið væri að fara í deild sem væri ekki með neitt sumarfrí. Ég hef fengið sumarfrí í Svíþjóð undanfarin tólf ár því þar er alltaf gert hlé á mótinu á miðju sumri. Það munar um þessa litlu pásu, bæði andlega og lík- amlega. En það verður ýmislegt spennandi við það að spila aftur á Ís- landi, það verður ógeðslega gaman að komast inn í fótboltafélagið á Ís- landi á ný og minna á sig.“ Ætlar á EM í fjórða sinn Sif, sem er 36 ára gömul, kom aft- ur inn í íslenska landsliðið í haust eftir tveggja ára fjarveru en hún var í barneignarfríi árið 2020, þegar hún og Björn eignuðust sitt annað barn. Eftir að hafa leikið síðast gegn Lett- landi í október 2019 lék Sif gegn Kýpur og Japan í október og nóv- ember, og hún ætlar sér að leika a.m.k. eitt ár enn með landsliðinu og markmið hennar er að vera með á fjórða Evrópumótinu í röð. Sif var í landsliðinu sem lék á EM 2009, 2013 og 2017. „Næsta ár er risastórt. Ég er búin að vera opinská með það markmið mitt að ætla mér á EM og það verður skemmtileg áskorun að halda dampi í deildinni heima. Ég ræddi við Steina (Þorstein Halldórsson, þjálf- ara landsliðsins) þegar það kom upp að við værum mögulega að flytja heim og spurði hann hvort það væri einhver hindrun fyrir mig varðandi landsliðið að spila á Íslandi. Hann svaraði bara að bestu leikmennirnir yrðu valdir og þeir myndu spila. Ég er alls ekki að fara að gefa eftir landsliðssætið, ég mun æfa áfram eins og ég hef gert hérna úti og veit að ég á eftir að fá mínar áskoranir áfram frá þjálfara og leikmönnum. Ef allt gengur upp og ég kemst með landsliðinu á EM verður gaman að hafa fengið að spila á fjórum Evr- ópumótum og séð hvernig þróunin hefur verið. Ég hef fundið með hverju móti hvernig umgjörðin hef- ur aukist og stækkað og það væri stórkostlegt að fá að fara og spila á Englandi og taka þátt í enn einum kaflanum í þessari þróun,“ sagði Sif Atladóttir. Ár númer 23 í meistaraflokki Hún var nýorðin fimmtán ára þeg- ar hún lék fyrsta deildaleikinn í meistaraflokki, með FH gegn Val í ágúst árið 2000. Sif er því að hefja sitt 23. ár í meistaraflokki en hún lék með FH í fimm ár, KR í eitt ár, Þrótti í eitt ár og Val í þrjú ár áður en hún hélt á vit ævintýranna í Þýskalandi. Samtals hefur Sif leikið 325 deildaleiki á ferlinum og Katrín Jónsdóttir og Hólmfríður Magnús- dóttir eru einu íslensku knatt- spyrnukonurnar sem eiga fleiri að baki. Gaman að komast í íslenska fótboltasamfélagið á ný - Sif Atladóttir samdi við Selfoss eftir tólf ár í atvinnumennsku erlendis Morgunblaðið/Golli Reynsla Sif Atladóttir lék fyrst með landsliðinu árið 2007 og spilaði sinn 84. landsleik gegn Japan í nóvember. Hún á þrjú lokamót EM að baki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.