Morgunblaðið - 09.12.2021, Qupperneq 72
9.-13. desember
25-60%
AF völdum vörum
KÓS Í UM
JÓL IN
FRÍ HEIMSENDING
Þegar keyptar eru smávörur
fyrir 9.900 kr. eða meira.
SKOÐAÐU
ÖLL T I L BOÐ I N Á
I LVA . I S
J Ó LAMARKAÐUR ALLAR HELGAR*
MÖNDLUVAGNINN RISTAR JÓLAMÖNDLUR Á
LAUGARDÖGUM OG VIÐ BJÓÐUM HEITT
NÓA SÚKKULAÐI Á SUNNUDÖGUM.
*Aðeins Í reykjavík
Tónlistarkonan Kristín Björk Kristjánsdóttir, betur
þekkt sem Kira Kira, vinnur nú að sinni sjöttu breið-
skífu og frumflytur lagið „Blessast“ á sveitakirkju-
tónleikaröð sem stendur næstu helgi. Fyrstu tónleik-
arnir verða í Strandarkirkju í Engilsvík á föstudag kl. 20
og þar kemur Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir fram með
Kira Kira. Á laugardag kl. 17 verða tónleikar í Hraun-
gerðiskirkju í Flóahreppi þar sem fram koma Kira Kira,
Snorri Hertervig og Frímann Kjerúlf Björnsson. Loka-
tónleikar helgarinnar verða í Stokkseyrarkirkju á
sunnudag kl. 18 þar sem Sandrayati Fay og Hermi-
gervill koma fram ásamt Kira Kira. Við sama tækifæri
verður Stokkseyrarfrumsýning á stuttmyndinni Eld-
ingar eins og við eftir Kristínu Björk Kristjánsdóttur.
Kira Kira er með tónleikaröð
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 343. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sif Atladóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er á heim-
leið eftir tólf ár í atvinnumennsku og hefur samið við
Selfyssinga um að leika með þeim á næsta tímabili.
„Þetta er frábær tímapunktur til að koma heim. Ef ég
hefði tekið eitt ár enn í Svíþjóð, hefði ég þá spilað
heima á Íslandi eftir það?“ segir Sif í ítarlegu viðtali í
blaðinu í dag. » 61
Frábær tímapunktur að koma heim
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Valgerður Jóhannsdóttir er að und-
irbúa sýningu á verkum sínum,
sem verður í Gallerí Horninu í
Hafnarstræti 15 í Reykjavík í byrj-
un næsta árs. „Ég ætla að taka all-
ar myndirnar mínar á vinnustof-
unni og vera með svokallaða
pop-up-sýningu að danskri fyrir-
mynd, losa mig við eins margar
myndir og ég get til þess að
hreinsa hugann og byrja síðan aft-
ur á núlli.“
Listamenn úr öllum áttum hafa
alla tíð tengst rekstri veitingahúss-
ins Hornsins og fyrir bragðið hefur
það verið mikið menningarhús. Þeir
aðstoðuðu við að búa húsnæðið
undir veitingarekstur, sem hófst
sumarið 1979, og hafa síðan tekið
þátt í ýmsum uppákomum í húsinu.
Djúpið var formlega opnað 9. des-
ember 1979 með samsýningu sex
grafíklistamanna, og Gallerí Hornið
varð til 1996.
Frændurnir Guðni Erlendsson
leirlistamaður og Jakob H. Magn-
ússon matreiðslumeistari hófu
rekstur Hornsins ásamt eigin-
konum sínum. Guðni seldi Jakobi
sinn hlut 1983 og síðan hefur sá
síðarnefndi átt og rekið staðinn
ásamt fjölskyldu sinni.
Smitaðist á Horninu
Valgerður, eiginkona Jakobs,
segist hafa orðið fyrir miklum
áhrifum frá myndlistarfólkinu sem
hafi verið með sýningar í Djúpinu
og síðar í Galleríinu, þar sem hún
hafi seinna séð um sýningarhaldið.
„Þarna var stöðugur straumur
listafólks,“ áréttar hún og nefnir
meðal annars félaga í SÚM-
hópnum, Rósku, Dag Sigurðarson,
Alfreð Flóka og fleiri. „Þetta fólk
hafði mikil áhrif á mig og lengi
blundaði í mér að taka fram pensil
og mála eitthvað á striga,“ segir
hún um byrjunina í listinni. Hún
hafi stundað nám í Myndlistarskóla
Kópavogs í tvö ár, farið á ótal nám-
skeið og fundið sig æ betur í þessu
umhverfi. „Myndlistin varð að
ástríðu, varð helsta áhugamál mitt,
ég hætti í hárgreiðslunni og frá
2005 hefur nánast öll orkan farið í
að mála.“
Listakonan málar einungis með
olíulitum og fer út um víðan völl.
„Ég er ekki föst í einhverju formi
heldur beiti frjálsri tækni og mála
það sem hugurinn segir mér hverju
sinni. Ég byrja kannski að mála
með ákveðna mynd í huga en enda
svo með eitthvað allt annað. Ég
leyfi hlutunum að koma, teikna þá
ekki upp áður á striga, heldur er
meira abstrakt, læt litina flæða ef
sá gállinn er á mér.“
Valgerður er með meistararétt-
indi í hárgreiðslu frá Danmörku og
bendir á að myndlistin sé af sama
meiði. „Hárgreiðsla er mikil list-
grein,“ leggur hún áherslu á og vís-
ar til margra möguleika í meðferð
hárs.
Ellý Ármanns, tengdadóttir Val-
gerðar, ætlar að vera með verk á
sýningunni og hugsanlega fleiri
listamenn. „Ég vil hafa sýninguna
opna og lifandi og öðrum lista-
mönnum er velkomið að koma og
hengja upp myndir meðan húsrúm
leyfir,“ segir Valgerður.
Beitir frjálsri tækni
og lætur hlutina flæða
- Valgerður undirbýr pop-up-sýningu að danskri fyrirmynd
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í vinnustofunni Valgerður Jóhannsdóttir sinnir sköpuninni í Kópavogi.
Fjölbreytni Valgerður er afkastamikill myndlistarmaður.